Vísir - 12.05.1939, Qupperneq 2
VISIR
Föstudaginn 12. maí 1939.
ftSIR
DAGBLAð
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstrœti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
(kl. 9—12 5377)
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Efling
lýdræðisins.
jlJJ EÐ þjóðstjórninni hefir í
fyrsta sinn um æði langt
árabil sest að völdum ríkis-
stjórn með öruggan meirihluta
þjóðarinnar að baki sér. Eftir
síðustu kosningar hafði ríkis-
stjórnin uppliaflega að baki sér
um 44% af kjósendum lands-
ins. Yið klofninginn, sem varð
í Alþýðuflokknum, snerist all
mikið af kjósendum hans til
andstöðu við stjórnina. Þess
vegna er óhætt.að fullyrða, að
síðasta ár hafði stjórn sú, sem
að völdum sat, langt innan 40%
af kjósendum landsins bak við
sig-
Þrátt fyrir þetta hafði ríkis-
stórnin meiri hluta innan Al-
þingis og hafði því stjórnskipu-
legan rétt til að fara áfram með
völdin. En það er nokkuð lijá-
leitt fyrir flokka, sem telja sig,
jafnvel öðrum fremur, vernd-
ara lýðræðisins, að sitja í valda-
sessi, þegar alþjóð er ljóst, að
því fer allfjarri að lýðræðinu
sé fullnægt. í umræðum þeim,
sem urðu fyrir stjórnarskiftin,
kom sá rétíi skilningur fram
hjá Framsóknarflokknum, sem
einn fór með völdin, að ekki
yrði stjórnað ef meiri liluti
þjóðarínnar snerist til andúðar
gegn þeim nauðsynlegu ráðstöf-
unum, sem gera þ}rrfti.
í myndun þjóðstjórnarinnar
felst þess vegna ótvíræðari við-
urkenning lýðræðisms en áður
hefir þekst hér á landi. Og það
eru engin líkindi til þess, að það
komi fyrir um sinn, að einstalc-
ir stjórnmálaflokkar treysti sér
til þess að fara hér með völd,
ef sýnilegt er að mikill meiri
hluti þjóðarinnar er þeim and-
vígur.
Myndun þjóðstjórnarinnar er
þannig mikill sigur fyrir lýð-
ræðið. Við Islendingar höfum
að nokkru tekið okkur til fyrir-
myndar frændþjóðir okkar í ná-
grannalöndunum. Þar er um-
kyggjan fyrir lýðræðinu svo
rík, að jafnvel þótt ríkisstjóm-
irnar styðjist í senn við iýðræð-
islegan og þingræðislegan meiri
hluta, bjóða þær samt höfuð-
andstöðuflokkunum þátttöku í
sjórn landsins. Þetta hefir gerst
bæði í Danmörku og Sviþjóð.
Hin síðari ár hefir hvert rík-
ið af öðru á meginlandi Evrópu
orðið einræðinu að bráð. En það
er eftirtektarvert, að þær þjóð-
ir, sem besta hafa aðstöðu til
þess að fylgjast daglega með
þvi, sem er að gerast í einræðis-
ríkjunum, leggja mesta áherslu
á lýðræðisfyrirkomulagið.Norð-
urlandaþjóðimar hafa voldug-
ustu einræðisþjóðimar í næsta
nábýli, Rússa í austri, Þjóðverja
i suðri. En það lítur út fyrir að
einmitt þetta nábýli valdi því,
að hvergi í heiminum er lýð-
ræðinu betur borgið en á Norð-
urlöndum. Okkur íslendingum
er holt að íhuga það, að þær
þjóðir, sem okkur eru skyldast-
ar að uppruna, sögu og menn-
ingu, eru öruggustu verðir lýð-
ræðisins í lieiminum.
Nú má leiða að því full rök,
að engin þjóð í heiminum hefir
jafn mikil skilyrði til þess og
Islendingar, að efla með sér lýð-
ræði í hinni fylstu mynd. Efling
lýðræðisins hér á landi er þess
vegna vafalaust í fullu samræmi
við þjóðareðli íslendinga. Ýms-
ir hleypidómar hafa valdið því,
að lýðræðisstefnan liefir átt
örðugra uppdráttar en skyldi.
En þeir hleypidómar hverfa
smám saman. Þegar þeir eru
úr sögunni, ættu Islendingar
ekki að þurfa að vera eftirbátar
annara þjóða í lýðræðismálum.
Þjóðstjórnin hefir tekið
verndun lýðræðisins efst á
stefnuskrá sína. Ef unnið er
samhuga, ekki einungis að
verndun, lieldur og að eflingu
lýðræðisins, höfum við íslend-
ingar bestu skilyrði til þess að
geta orðið öðrum þjóðum til
fyrirmyndar, einmitt á því sviði.
a
Bílslys:
Stúlka skerst i
andliti og viö-
beinsbrotnar.
1 gærdag kl. 13.50 var strætis-
vagninn, sem gengur að Lög-
bergi staddur rétt fyrir innan
Árbæ, og var fólk að fara út
úr lionum.
Meðal annars fóru þar úr
vagninum piltur og stúlka, og
gengu þau fvrir framan stræt-
isvagninn þvert yfir veginn.
Yeður var hvast, og þau höll-
uðu höfðinu upp i vindinn, eins
og fólk gerir oft undir þeim
kringumstæðum. Munu þau af
þessum ástæðum ekki liafa
gætt þess nógu vel, hvort nokk-
ur bíll væri á ferð, er ætlaði
fram hjá strætisvagninum aust-
ur eftir.
En í sömu svifum og þau
gengu framlijá vagninum, kom
bíllinn R-543 fram hjá strætis-
vagninum. Þegar ökumaður
bílsins kom auga á þau, gerði
liann hvorttveggja, að liemla
og beygja undan, en þótt bif-
reið hans væri á heldur liægri
ferð, tókst honum ekki að
afstýra slysi.
Stúlkan gekk nær bilnum og
lenti á vinstra horni hans, en
féll síðan á fremstu hliðarrúð-
una og braut hana. Skarst
hún nokkuð í andliti og við-
beinsbrotnaði hægra megin.
Piltinn sakaði hinsvegar ekki.
Stúlkan, sem heitir Þórunn
Einarsdóttir, var flutt á Lands-
spítalann og gert þar að
meiðslunum, en síðan var hún
flutt heim.
Þau eru orðin alltíð slysin,
sem orsakast af því, að fólk
gætir þess ekki nógu vel, er
það gengur út á götu og farar-
tæki byrgja útsýnið, hvort ör-
uggt sé að fara yfir götuna.
Ætti það þó að vera útlátalítið,
að gæta að þessu.
3. flokks mðtið.
Knattspyrnumót 3. flokks
hefst á sunnudagsmorguninn
kl .9^2 (ekki kl. 10) og keppa
fyrst Fram og Víkingur, en
strax á eftir Valur og K.R.
Ólafur Jónsson úr Víking
dæmir leikinn milli Vals og
K.R., en Jóhannes Bergsteins-
son (Val) leikinn milli Fram
og Víkings.
1 neðri málstofu breska þingsins í dag.
Eagnkvæniar sknldMndingar nm aísloS, ef til
ófriBar dregnr við MiBjaríarhaf eða á Balkan-
skaga við Adriahaf.
EINKASKEYTI TII. VlSIS.
London, í morgun.
Morgu«blöðin í London gera sér tíðrætt um að í
dag muni Chamberlain f orsætisráðherra halda
ræðu í neðri málstofu breska þingsins og gera
þar að umræðuefni samningaumleitanir Breta og
Tyrkja.
Blöðin skýra einnig frá því, að samningaumleitunum þessum
hafi lyktað á þann veg, að fult samkomulag hafi náðst milli
þessara tveggja ríkja um gagnkvæman stuðning þeirra, ef til
ófriðar dragi við Miðjarðarhaf eða á Balkanskaga, og annað,-
hvort Bretland eða Tyrkland neyðist til að grípa inn í vegna
hagsmuna sinna. Talið er einnig að samningurinn sé það víð-
tækur, að ef annaðhvort þessara ríkja lendir í ófriði sé hinu
skylt að veita því allan stuðning eftir því sem nauðsynlegt getur
talist og tilefni gefst til.
Þessi úrslit samninganna
vekja hina mestu ánægju, bæði
í Bretlandi og Frakklandi, með
því að vitað er, að Þjóðverjar
hafa lagt á það mikla áherslu að
hafa Tyrki sér vinveitta, en hins-
vegar hefir ávalt verið reipdrátt-
ur milli Tyrkja og ítala vegna
hagsmuna þeirra við Miðjarðar-
haf. Þjóðverjar hafa m. a. veitt
Tyrkjum alla aðstoð við að end-
urskipuleggja herinn, og hafa
gert við þá margskonar samn-
inga til að tryggja þýska hags-
muni, en upp á síðkastið, eink-
um eftir stjTjöldina í Abessiníu
og nú síðast töku Albáníu, hafa
Tyrkir snúið baki við Þjóðverj-
um og ítölum, en Englendingar
og Frakkar hafa notað tækifær-
ið og styrkt þá bæði f járhags-
lega og stjórnmálalega. Greiddi
það mjög götu þessara samn-
ingagerða, að Frökkum og
Tyrkjum tókst í fyrra að jafna
öll deilumál sín í Litlu-Asíu,
þannig að báðir undu vel 'við
málalokin.
Hernaðarlega séð hefir þetta
hina mestu þýðingu, með því að
Mustafa Kemal Ataturk tókst
að gera Tyrkland að miklu her-
veldi, og stöðugt er haldið á-
fram á þeirri sömu braut.
United Press.
Ferðln gengar liægt og
erfiðlega.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
Bretar fylgjast með miklum
áhuga með ferð konungsins og
drotningarinnar til Ameríku,
en eins og getið hefir verið um
í skeytum, tóku þau sér far
vestur með „Empress of Aust-
ralia“, en hættu við að fara
með herskipinu Repulse vegna
ófriðarliættnnnar.
Ferðin virðist ganga allerfið-
lega, með þvi að fyrsta sólar-
hringinn hrepti skipið hið
versta veður, en nú liefir það
legið kyrt í 17 stundir vegna
dimmrar þoku, og var þá skip-
ið statt þrjú hundruð og sextíu
mílur suð-austur af Race-höfð-
anum á Newfoundland.
Um fjögurleytið 1 nótt létti
þokunni nokkuð, þannig að
skipið gat lagt af stað að nýju
með tíu hnúta ferð, og er það
hægt farið á slíkurn skipum.
United Press.
lapanir setja her i
land i alhjnöa-
tmi iiy.
Bretar og Frakkar munn
senda harðorð mótinæll
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London i morgun.
Þær fregnir berast frá Hong-
kong, að Japanir hafi sett her
á land í Kulangsu, sem er al-
þjóðanýlendan á Amoy-eyju.
og báru þeir þvi við, að þessi
ráðstöfun hafi verið nauðsyn-
leg, vegna þrálátra árása óald-
arlýðs á hinn kínverska versl-
unarerindreka, sem Japanir
hafa sett á eyjunni.
I alþjóðanýlendunni er mikill
fjöldi Englendinga og Frakka,
og fleiri þjóða, en búist er við
því sérstaklega, að þessar tvær
þjóðir sendi Japönum harðorð
mótmæli vegna þessa tiltækis.
Amoy er eyja í mynni Lung-
Kiang-fljótsins, og borgin er
samnefnd, en er einhver mesla
verslunarborg í Kína, einkum
eftir að styrjöldin milli Kin-
verja og Japana hófst, og er
talið, að meginið af herflutn-
ingum Kínverja hafi farið í
gegnum borg 'þessa, 'eftir að
hinar stærri borgir féllu í hend-
ur Japönum. íbúar borgarinn-
ar eru 300.000, og þar liefir
verið aðalútflutningur á baðm-
ull, tei og fleiri slíkum afurð-
um um langt skeið. Hafa Eng-
lendingar og Frakkar aðallega
liaft þá verslun með liöndum
og eiga því beinna fjárhags-
legra hagsmuna þarna að gæta.
United Press.
Lokanartími
sölubtlda.
Á morgun verður öllum sölu-
búðum lokað kl. 6, eins og
venja er til á laugardögum, en
næsta laugardag verður öllum
verslunum lokað kl. 1 e. h.
Helst sá lokunartími á laugar-
dögum til 15. september.
SKJALDARMERKI SPÁNAR HINS NÝJA.
Mj'ndin sýnir skjaldarmerkið, sem nú gildir fyrir allan
Spán, og borið verður fyrir Franco, er hann heldur innreið
sína í Madrid n.k. mánudag. Fyrir ofan það stendur: Una,
grande y libre == Sameinaður, voldugur og frjáls. —■ Menn-
irnir, sem lialda á merkinu eru: Útlendingahermaður, falang-
isti og Navarra-hermaður.
Reynt að spsengja lögpeglw-
stöð í Manchester í loft npp.
Tilræðismennirnir komnst Dtdan en
lSgreglustöðin stðrskemdist.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Ekkert lát verður enn á hermdarverkum írska lýðveldishers-
ins í Englandi, og hefir það síðast borið til tíðinda að fjórar
slórkostlegar sprengingar hafa orðið í dag í Londonroad og
Marketstreet í Manchester. Ollu sprengingar þessar allmiklu
tjóni á húsum og mannvirkjum og urðu ýmsar stærstu verslan-
ir borgarinnar fyrir miklu tjóni, enda hafði sprengjum verið
komið fyrir framan við þær. Framhliðar húsanna skemdust
verulega og allar rúður brotnuðu en manntjón varð ekkert svo
vitað sé.
í nótt kl. 3.30 varð lögreglan vör við það, að komið hafði1 verið
fyrir sprengju rétt framan við aðallögreglustöð borgarinnar
og hafði verið kveikt í henni eða þræði, sem að henni lá. Lög-
reglan brá þegar við, og ætlaði að slökkva í sprengjunni, en áður
en því yrði við komið sprakk hún og braut rúður í lögreglu-
stöðinni og húsum í næsta nágrenni, en manntjón varð ekkert.
Þessi stöðugu hermdarvérk
vekja hinn mesta óliug í Eng
/andi og Skotlandi, ekki síst
þar sem óeirðaseggirnir gerast
svo uppivöðslusamir, að reyna
að sprengja lögreglustöðvarn-
ar í loft upp, án þess að unt
sé að hafa liendur í hári þeirra.
Fjöldi manns hefir verið
handtekinn upp á siðkastið, en
samtök þessi virðast vera svo
útbreidd, að einn komi í ann-
ajrs stað, þótt lögreglan hafi
vakandi auga með mannflutn-
ingum frá írlandi yfir til Bret-
lands, og einnig á írum þeim,
sem í Bretlandi dvelja.
írski lýðveldisherinn hefir
lýst yfir því, að. hann muni
halda áfram látlausri baráttu
þar til yfir lýkur og írland er
orðið eitt ríki, en ekki tvö, eins
og nú er. Þrátt fyrir viðleitni
De Valera, er gengið hefir í þá
átt að stilla til friðar, hefir hon-
um ekki tekist það, og kunna
áframhaldandi liermdarverk
að hafa hinar alvarlegustu af-
leiðingar i för með sér, jafnt
fyrir íra sem Englendinga.
United Press.
Afmæli pröf. Einars
Jönssonar.
Gestkvæmt var mjög á heim-
ili próf. Einars myndhöggvara
Jónssonar í gær, á 65 ára af-
mælisdegi hans. Var látlaus
straumur gesta lieim lil hans
allan daginn, en skeytum og
blómum rigndi yfir liann. Bár-
ust próf. Einari skeyti hvaðan-
æfa af landinu og frá útlönd-
um. Kom það greinilega í Ijós
í gær, hversu hann er virtur og
vinsæll meðal allra, sem hon-
um hafa kynst.