Vísir - 15.03.1940, Side 1
Ritst jóri:
KRISTJAN GUÐLAUGSSON.
Riotst jórnarskrifstof ur:
félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
Reykjavík, föstudaginn 15. mars 1940. 63. tbl.
Svíar og Norðmenn
æskja skýringa af
Rússum.
Svíar óttast ad jápnbpautin í Mid-Finn—
landi veröi notuð til tierflntninga.
EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun.
Mikils kvíða gætir nú á Norðurlöndum um fram-
tíðina. Er það aðstaða sú, sem Rússar fá vegna
friðarsamninganna við Finnland, sem veldur.'
Einkanlega hefir það vakið mikinn ugg í Svíþjóð, að
eitt friðarskilyrðanna er það, að járnbraut verður lögð
næstum að Helsingjabotni vestur yfir miðhluta Finn-
lands. Verður þessi járnbraut síðar notuð til herflutn-
inga af Rússum? spyrja Svíar. Hefir sænska stjórnin
nú gert fyrirspurn varðandi þessa fyrirhuguðu járn-
braut, í Moskva. Norðmönnum er einnig illa við ákvæð-
ið um tollfrjálsa flutninga yfir Finnland til Norður-
Noregs og frá. Hefir norska stjórnin ákveðið, að taka
ppp umræður um þetta atriði við Sovét-stjórnina. —
NORÐMENN ÓTTUÐUST ÞJÓÐVERJA.
Það er farið að koma enn greinilegra í ljós, að það hefir verið
óttinn við afskifti Þjóðverja, sem olli því, að Norðmenn og Svíar
vildu ekki leyfa herflutninga yfir lönd sín til Finnlands. Koht
utanríkismálaráðherra Norðmanna sagði í gær, að ef Norð-
menn hefði leyft herflutninga yfir Noreg hefði afleiðingin getað
orðið heimsstyrjöld, því að Þjóðverjar hefði vafalaust gripið
inn í ef til þessa hefði komið, en þá hefði Noregur orðið orustu-
völlur í heimsstyrjöld, og væri þá vafasamt hver hagur Finnum
hefði orðið að hjálpinni — ef til vill hefði hún gert ilt verra.
Svipaðar skoðanir hafa verið látnar í ljós af Gunther, utanríkis-
málaráðherra Svíþjóðar. Hann hefir neitað því, að Þjóðverjar
hafi beitt Svía nokkurri þvingun, en fregnir frá Bretlandi og
Frakklandi herma, að um öll lönd gangi sterkur orðrómur um
það, þrátt fyrir neitun Gunthers, að Þjóðverjar hafi beitt þving-
unaráhrifum við Svía í Finnlandsmálinu.
Brottflutningur fólksins frá
finsku héruðunum, sem
Rússar fá, er þegar
hafinn.
Brottflutningurinn frá þeim
liéruðum Finnlands, sem Finn-
ar láta af hendi við Rússa, er
að byrja. Það er búið að senda
mikið af járnbrautarvögnum og
bifreiðum til þess að flytja fólk-
ið þaðan. Það mun vera um
400.000—500.000 manns, sem
sjá þarf fyrir heimilum ann-
arsstaðar í landinu, og bíður
ríkisstjórnar Finnlands þar
risastórt blutverk.
\
Með varnarbandalagi Norður-
landa er gerð „bylting", að
því er stefnu í utanríkis-
málum snertir.
Þótt bandalag það, sem fyrir-
hugað er, milli Norðmanna,
Svía og Finna sé varnarbanda-
lag aðeins, er með því gerð bylt-
ing, að því er snertir utanríkis-
málastefnu Norðurlanda, sem
hafa fylgt hlutleysisstefnu, og
marglýst yfir því, að «þau
myndu fylgja henni, og ekki
taka á sig hernaðarlegar skuld-
bindingar hvert fyrir annað. Nú
hefir óttinn við framtíðina sam-
einað þær, en víða kemur fram
sú skoðun, að Norðurlanda-
þjóðunum sé miklu minni liag-
ur að þessu varnarbandalagi nú
heldur en ef það hefði verið gert
fyr, því að þá hefði Finnar
haldið hinum ramgeru Manner-
heimvíggirðingum, en þar sem
þær eru tapaðar er aðstaða allra
Norðurlanda til varnar mikl.u
verri. Þáð er alment viðurkent,
að Sviþjóð sé í miklu meiri
hættu nú en áður, eftir friðar-
samningana, því að varnarað-
;staða Pinna veikist stórkostlega
vegna friðarsamninganna, en
Svíþjóð var ekki minni hagur
í sterku Finnlandi en eigin
landvörnum, að margra ætlan.
Hið sanna mun, að Svíum mun
ekki liafa dottið í liug, að frið-
arsamningarnir yrði eins liarð-
ir og raun varð á, og vöktu þeir
hina mestu furðu í Svíþjóð.
Þjóðin vaknaði með skelfingu
við þá tilhugsun, að Rússar
hefði fengið járnbraut að landa-
mærum Svíþjóðar að kalla.
Á hinni fyrirhuguðu ráð-
stefnu Norðmanna, Svía og
Finna verður gerður sáttmáli,
þar sem tekið verður fram und-
ir livaða kringumstæðum hver
þjóðin kemur hinni til hjálpar.
Rússar eru sagðir sætta sig við
þennan varnarsáttmála og þyk-
ir sumum það furðulegt, en aðr-
ir liyggja, að þeir þykist nú
hafa ráð Norðurlanda í hendi
sér og megi láta sér á sama
standa um varnarbandalag smá-
þjóða.
Olympisku leik-
arnir verða ekki
haldnir í Finnlandi.
Einkaskeyti frá United Press.
K.höfn í morgun.
Samkvæmt fregnum frá Hel-
singfors í gær, er talið ólíklegt,
að ólympisku leikarnir verði
haldnir í Finnlandi. — Meðlim-
ir finsku Olympiunefndarinnar
gegna allir viðreisnarstörfum,
og að þeim verður unnið af svo
miklu kappi á næstu mánuðum,
að óliklegt þykir, að unt verði
að vinna að undirbúningi Olym-
]>iuleikanna.
Gremja yfir seinlæti
Bandamanna stórum
vaxandi í Frakklandi
og Bretlandi..
Fundur I öldungfudcild
fran§ka þjóðþing:§iii§.
EINKASKEYTI frá United Press. — K.höfn í morgun.
Fyrirspurnir voru bomar fram í öldungadeild franska þings-
ins í gær af allmörgum þingmönnum varðandi Finnland og var
einn fyrirspyrjandinn Laval, sem oft hefir verið ráðherra í
Frakklandi, m. a. forsætis- og utanríkismálaráðherra. Daladier
kvaðst fúslega vilja svara öllum fyrirspurnum, sem fram hefði
komið, en að því tilskildu, að fundurinn færi fram fyrir luktum
dyrum. Þegar fundi var slitið í gærkveldi hafði fundurinn stað-
ið í 3 klst. og verður umræðunum haldið áfram í dag.
Frönsk blöð eru afar harðorð í garð Norðmanna og Svía, eink-
anlega Svía, fyrir að leyfa ekki herflutninga yfir Noreg og Sví-
þjóð til Finnlands. Frönsk blöð segja jafnvel, að Bandamenn
hefði ekki átt að virða hlutleysi Norðurlanda svo sem þau hefði
gert. Þegar um annað eins ofbeldi sé að ræða og innrás Rússa í
Finnland, sé skylt að grípa til hverskonar ráðstafana til þess að
koma í veg fyrir það. Frönsku blöðin láta í Ijós mikla óþolin-
mæði yfir því hversu seinir Bandamenn eru til og sterk gagn-
rýni kemur fram, einnig í Englandi, á því hversu mikið hik sé
ríkjandi, þegar grípa þurfi til skjótra ráðstafana.
Sum frönsku blöðin krefjast þess, að Bandamenn geri nú á-
rásir á óvinina hvar sem þeir geta komist að þeim.
Það er vegna megnrar óánægju meðal almennings og blaða, og
franskra stjóntimálamanna, að fyrirspurnirnar voru bomar
fram í öldungadeildinni í gær.
340 MM. FALLBYSSURNAR FRÖNSKU. Þetta er ein af mestu fallbyssum Frakka. Eru þær kall-
aðar 340 mm. fallbyssurnar, af því að þær liafa 340 mm. hlaupvidd. Fjölda margar fallbysur af þess-
ari gerð eru á vígstöðvunum og liafa títt verið í notkun, en eins og kunnugt er, tilkynna Þjóðverj-
ar og Frakkar næstum daglega, að stórskotahríð liafi verið á einhverjum hluta vígstöðvanna. En alt
er það í smáum stíl enn sem komið er og ber frekast að líta á viðureignina á vesturvígstöðvunum
;nn sein komið er sem undirbúning undir þann hildarleik, sem óhjákvæmilega hlýtur að bvrja með
vorinu.
Banflamenn bufla Noregi
og Sviþjóð fulla aðstoð,
eí til styrjaidar kæmi - -
En Norðmenn og Svíai' »gerðu ekkert«.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Stjórnmálafréttaritari Lundúnardagblaðsins Daily Mail skýr-
ir frá því, að Chamberlain muni skýra frá því í neðri málstof-
unni, næstkomandi þriðjudag, að breska ríkisstjórnin hafi til-
kynt ríkisstjórnum Noregs og Svíþjóðar fyrir tveimur mán-
uðum, að ef afleiðing þess að Norðmenn og Svíar hjálpuðu
Finnum, yrði styrjöld við Sovét-Rússland, myndi Bandamenn
koma Norðurlöndum til aðstoðar með öllum þeim meðulum,
sem þeir hefði j’fir að ráða. Hefði Bandamenn tekið þessa á-
kvörðun af því, að þeim var ljóst, að sjálfstæði Finnlands var
mál, sem varðaði framtíð allrar álfunnar. En þrátt fyrir þetta
loforð Bandamanna um stuðning gerðu Norðmenn og Svíar
ekkert, segir Daily Mail.
i
MENZIES FORSÆTISRÁÐH. ÁSTRANÍU TALAR UM FRIÐAR-
SAMNINGA FINNA OG RÚSSA.
Menzies, forsætisráðherra Ástralíu, hefir haldið ræðu og talað
um friðarsamninga Finna og Rússa. Hann segir m. a., að það
væri óhyggilegt að álykta, að friðarsamningarnir hefði ekki
mikla þýðingu annarstaðar en á Norðurlöndum. Áhrifa þeirra,
sagði hann, kann að gæta lengi, og aðstaða Norðurlanda hefir
breyst þeirra vegna. Og vér skulum heldur ekki, sagði Menzies,
draga úr mikilvægi þess, sem gerst hefir. Það er alveg skakt, að
álykta, að vér stöndum ekki ver að vígi. Vér skulum gera oss
ljóst, að erfiðleikar vorir hafa vaxið, en þar fyrir munum vér
halda að settu marki, þar til vér höfum sigrað.
Sú skoðun hefir komið fram í blöðum Bandamanna, að hem-
aðarleg aðstaða þeirra hafi ekki breyst til hins verra, vegna frið-
arsamninganna. Menzies forsætisráðherra, sem er maður hrein-
skilinn og djarfmæltur, er fyrstur leiðandi manna í löndum
Bandamanna, til þess að benda á vaxandi erfiðleika vegna þess
hversu hildarleiknum í Finnlandi lyktaði. Líkurnar eru nú þær, .
að styrjöldin milli Bandamanna og Þjóðverja standi lengur en
nokkurn óraði fyrir.
Enginn
ítalsk'rússneskur
verslunarsamningnr.
Einkaskeyti frá United Press.
K-höfn í morgun.
Rússar þeir, sem búsettir eru
i Rómaborg og hafa samband
við sendisveitarskrifstofuna
rússnesku hafa borið það til
baka, aS brotiS liafi veriS upp á
því, aS ítalir og Rússar gerðu
með sér nýjan verslunarsamn-
ing. Hinsvegar væri nú meiri
likur fyrir þvi, að slíkur samn-
ingur myndi takast, vegna frið-
arsamninga Finna og Rússa.
Þá liefir heldur ekkert gerst,
ý flngvél
veröur smíðuö fyr-
ir Fluyfélag Isiánds
Eins og frá var skýrt í blaS-
inu í gær var aðalfundur Flug-
félags Akureyrar settur á Akur-
eyri í fyrradag, en honum var
ekki lokið og var frestað þar til
siðar.
Á fundinum var sú ákvörðun
tekin að breyta nafni félagsins í
Flugfélag íslands li.f.
Örn Johnson flugmaður legg-
ur annað kvöld af stað áleiðis
til Bandaríkjanna til að annast
kaup og sjá um smíSi á nýrri
flugvél fyrir félagið. Flugvélin
verður mjög áþekk gömlu vél-
inni, en lítið eitt stærri og með
enn fullkomnari tækjum.
Það tekur 6 vikur að smíða
hana, því að verksmiðjan verð-
ur að smíða hana sérstaklega
fyrir okkur og okkar staðliætti,
því hún smíðar aðeins landflug-
vélar með hjólum, en þessi vél
verður að hafa flotliolt í stað
hjóla. Auk þess verður hún út-
búin ýmsum tækjum fyrir okk-
ar staðhætti. Er búist við að hún
komi hingað í byrjun maímán-
aðar.
Gjaldeyris- og innflutnings-
leyfi er fengið fyrir hinni vænt-
anlegu flugvél, en þess má einn-
ig geta, að vátryggingarfé fyrir
gömlu vélina — en hún var
trygð hjá Lloyds í London —
fæst í erlendum gjaldeyri og það
auðveldar mjög kaupin á þeirri
nýju.
Flugvélin mun kosta með
nauðsynlegum varahlutum um
70 þús. ísl. krónur.
sem bendir til þess að sendi-
herra Rússa í Róm fari þangað
aftur, eða sendiherra Itala i
Moskva, fari þangað.
1660
.... er síraanúmer yísis.