Vísir - 20.12.1941, Page 1

Vísir - 20.12.1941, Page 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri 1 Blaðamenn Sfmi: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 31. ár. Reykjavík, lau&ardaginn 20. desember 1941. 280. tbl. Hongkong enn á valdi Breta Kínverjar 16 km. frá landamærum Kowloon. fl^rkvnnin: Herskyldan samþykkt Ljós sáust víða í EENKASKEYTI frá Únited Press. London í morgun. Það er játað hreinskilnislega i brezkum fregn- um, að horfurnar á Hongkongeyju séu mjög ískyggilegar. Það er enn bent á erfiðleikana á bví að afla frétta þaðan og i London í' gær var bein- linis varað við að trúa fregnum þeim, sem Þjóðverjar og Japanir birta um Hongkong. Eftir slíkum fregnum að dæma i gærkveldi og morgun var Hongkong ýmist á valdi Japana eða þeir vorn i þann veginn að brjóta alla mótspymu á bak aftur. Eftir fregnum að dæma, sem birtar voru i London árdegis í dag játar Domeifréttastofan japanska, að höfuðvirkin á eyjunni séu enn á valdi Breta, svo sem Victoria Peak Point, sem er miðdepill i nýju varnar- kerfi, sem lokið var við 1939. Helztu klettavirki eru enn á valdi Breta. Eins og áður er getið eru það her- sveitir frá Bretlandi, Indlandi og Kanada, sem þarna verjast. Setuliðið er fámennt. Fregnir frá Chungking herma, að fremstu sveitir Kínverja, sem ráðast að baki Japana til þess að létta undir með þeim, sem verja Hongkong, séu aðeins 16 kílómetra frá landamærum Kowloon. SEINUSTU FREGNIR: Árdegis í dag var tillkynnt í London, að nýlendumála- ráðuneytið hefði haft samband í nótt við landstjórann í Hongkong, Sir Mark Young, og bað hann sérstaklega pm, að bornar væri til baka hinar ósönnu japönsku staðhæfingar, en ein þeirra var um, að hann væri farinn frá Hongkong. Það er enn barizt af miklu kappi á Hongkongeyju, sem er því ekki á valdi Japana, að því er Bretar tilkynna, þótt Japanar segi, að þeir hafi dregið þar „herfána að hún“. Láns- og leiguaö- stoðin verðnr veitt áfram. Fregnir um að henni verðl hoett, eru af þýskum og jap- önskum rðtum runnar. Einkaskeyti til Vísis. London í morgun. Fregnir þær, sem birtar liafá verið um að Bandaríkin neyðist til að liætta láns og leiguaðstoð við Breta og Rússa og aðrar þjóðir, eru af nazistisknm og japönskum rólum runnar og liafa ekki við neitt að styðjast, að því er sagt var í amerísku og brezku útvarpi i gær. Mark Sultivan ræddi þessi. mál itarlega í New York Herald Tribune í gær og fullyrti eftir á- reiðanlegum heimildum, að staðið yrði við öll orð forsetans i þessum efnum. Mikill fjöldi skipa með ber- gögn er kominn til hafnar bandamanna við Rauðahaf — með láns- og leiguvöru. í U. S. R. Roosevelt undirritar lögin í dag. Öldungadeild þjóðþings- ins og fulltrúadeildin hafa nú náð samkomulagi um, að allir karlar í Bandaríkj- unum á aldrinum 19—65 ára skuli skrásettir til skyldustarfa, en allir á aldrinum 20—44 ára eru skyldaðir til herþjónustu. Frumvarp um þetta hefir nú verið afgreitt sem lög og mun forsetinn undirskrifa þau í dag. bænum. Þeir, sem kveikja á lömpum, þurfa að hafa svört tjöld fyrir gluggum, M yrkvunin í gær gekk betur en búast hefði mátt við, þar sem fólki hafði ekki verið settar neinar ákveðnar reglur að þessu sinni um hegðun, meðan á henni stæði. Sást þó Ijós á nokkurum stöðum. Japanar hafa sett lið á land á Mindanaoeyju, sem er stærst hinna suðlægari Filipseyja og er frá suðuroddanum ráð smá- eyja allt til Norður-Borneo, þar sem Japanir hafa einnig sett lið á land, sem kunnugt er. Á Mind- anaoeyju eru fjölda margir .Tap- anar búsettir. Hollenzkt lierlið befir farið á land á Norður-Bomeo, þar sem Japanar fóru á land á dögunum. Gerðu þeir skyndiárásir á þá og tóku marga þeirra til fanga. Japanir gerðu margar loftá- rásir á Lupneyju í gær (Filips- eyju). Roosevelt forseti hefir sæmt McArthur, yfirmann hersins á Filipseyjum, hershöfðingjatitli. Það er við Davaoflóa, sem skerst inn úr suðaustur- ströndinni, sem Japanar hafa sett lið á land. BRETR HYERFA FRÁ PENAGEYJU. Bretar liafa yfirgefið Penang, sem er viggirt eyja við vestur- strönd Malakkaskagans, sem fyrr var getið. Duff Cooper hef- ir skýrt frá því í ræðu, að nauð- synlegt hafi verið að yfirgefa eyjuna, vegna undanhaldsins á skaganum vestanverðum. Allir hinir livítu íbúar eyjarinnar voru fluttir á brott með herlið- inu. Jólakveðjur frá Islendingum í London. KI, 2.30 á morgun — á sunnudag — verður útvarpað jólakveðjum frá Islendii.gum í London. Kom skeyti um þetta efni frá Bjarna Guð- mundssyni. Útvarpið hefst kl. 14.30 á morgun og er á 25 m., en reynt verður að endurvarpa því frá stöðinni á Vatnsenda. Rúmlega stundarfjórðungi eftir 11 var gefið loftvarna- merki, en fimm, mínútum siðar var rafmagnsstraumurinn tek- inn af og dóu þá öll rafljós sam timis. Eins og síðast, j>egar loft- varnaæfing var haldin, fór verk- lræðingur Loftvarnanefndar um hæinn og kenndi hverfa- slökkviliðum að ráða niðurlög- um íkveikjusprengja. Fór liann að þessu sinni um Austurbæinn. \roru hrunaverðirnir óragir við að fást við sprengjurnar. Eins og ofar getur sáust ljós á nokkrum stöðum. Allmörg skip lágu í höfninni, og var slökkt á flestum þeirra, en á sumum var ekki hirt um að slökkva fyrri en alllöngu eftir að myrkvunin hófst, ef slökkt var á annað horð. Nokluir ljós voru þó við höfnina — önnur en skipaljós — sem ekki var hirt um að hyrgja. Annars var það helzt i Mið- hænum, sem vanræksla með Ijós var áberandi. Þar vantaði að menn breiddu svört glugga- tjiild fyrir glugga. Þó var þetta ekki eins áherandi á ölluin stöð- imi, en það var lítill vafi á því, að ljósin á lögreglustöðinni voru einna hjörtust af þeim, sem sá- ust. Það þyrfti að gera ráðstafanir til að útvega svart efni eða papp- ir, sem fólk gæti aflað sér með litlum tilkostnaði, og notað, ef nauðsyn krefur. Rússar hafa rekið fleyga inn í víglínu Finna. Stödugt fleiri bæir og þorp á valdi Rússa á mið vígstöðvunum. - - I»ýzk:t berfylki einangrað og strádrepiö. í rússneskum fregnum í gærkveldi er frá því sagt, að her- sveitir þeirra á Svirvígstöðvunum, milli Ladoga- og Onegavatns, hafi rekið fleyga inn í víglínu Finna á 3—4 stöðum, og eru Rússar nú að reyna að aðskilja hersveitir Finna, sem gengur æ erfiðlegar. Finnar segja sjálfir, að þeir eigi við ofurefli Iiðs að etja og játa að hersveitir þeirra hafi hörfað norður fjrir Svir- fljót. Óhugur er nú í Finnum, segir í brezkum fregnum, og reiða þeir sig ekki á frekari aðstoð frá Þjóðverjum. Rússneska herstjórnin tilkynnti á miðnætti síðastliðnu, að Rauði herinn hafi sótt á óvinina á öllum vígstöðvum. Á Kalinin- svæðinu og suðvesturvígstöðvunum héldu Rússar áfram sókn- inni og náðu á sitt vald bæjunum Rusa og Tarusa suðvestur af Moskvu og Serpukov og Kalino suðaustur af Kaluga. Rússar tefla stöðugt fram nýju varaliði og er ekki annað að sjá en að þeir hafi meira en nóg varalið til þess að herða sóknina á öllum vígstöðvum samtímis. Rússneski flugherinn er stöðugt á sveimi yfir hersveitunum, sem fram sækja, og hefir alger yfirráð i lofti. Þess er þó að geta, að Þjóðverjar liafa flutt á brott mikið af flugher sínum, til Vestur-Evrópu, Rritar, Ítalíu, Libyu og ef til vill víðar. manna, sem hneptir hafa verið í fangabúðir. M. a. hefir Dagens nyheter gert þessa meðferð að umtalsefni. Rússar tilkynna, að þeir hafi sökkt 3 herflutningaskipum við Norður-Rússland, samtals um 35.000 smál. Dr. Salazar tekur til máls um heznám Portúgalska Timor Portúgalska þingið kom, sam- an á fund í gær, til þess að ræða liernámið á Timor. Dr. Salazar hefir flutt útvarpsræðu um mál- ið. Skýrði Fiann frá því, að tals- verðar umræður hefði farið fram, áður\ en hernámið var framkvæmt. Kvað hann stjórn- ina i Portugal hafa getað fallist á þá skoðun handamanna i grundvllaratriðum, að Timor væri í liættu, en liann kvað hana hafa neitað að fallast á hernám, en liinsvegar á hernaðarlega að- stoð, er til innrásr kæmi. —- Mál- inu er ekki lokið enn, sagði dr. Salazar, og liefir komið til orða, að Portugal sendi aukinn liðs- afla lil Portugalska Timor. t var Opni vélbáturinn, seni aug- lýst var eftir í útvarpinu í gær- kveldi, er nú kominn fram. Kom harín að landi hjá Háagerði á Skagaströnd í nótt. Tveir menn voru á bátnmn, sem fór frá Hvammstánga í gærmorgun á leið til Illuga- staða á Vatnsnesi. Þegar dimmt var orðið var háturinn ekki kominn fram, en sést hafði til hans frá hæ einum og virtist vél lians þá biluð. Slysavarnafélagið fékk vélhát frá Hólmavik til að leita, en trillubáturinn var ljóslaus og fannst þvi eigi. FRIÐ ARHRE YFIN G I FINNLANDI. í amerísku útvarpi í gær- kveldi var frá því sagt, að þeirri skoðun væri nú hratt að aukast fylgi í Finnlandi, að semja hæri sérfrið við Rússa. Ileyrast nú raddir um, að Þjóðverjar hafi farið á halc við Finna og menn efast æ nieira um, að Þjóðverjar geti veitt Finnum nokkra aðstoð í styrjöldinni. Rússar hafa tekið óhemju her- fang, en ekki er búið að kasta tölu á ne'ma lítið af því. I fyrradag skutu Rússar niður 28 þýzkar flugvélar og tóku 300 herflutningabifreiðir og 100 flutningavagna. Á Donvígstöðvunum eru Þjóðverjar á undanhaldi. Rúss- ar tilkynna, að 134. þýzka her- fylkið hafi Verið innikróað og upprætt. Það er beinlínis tekið fram í hinni rússnesku fregn um þetta, að „ekki einn einasti Þjóðverji hafi sloppið lífs af“. Yfirmaður herfylkisins beið bana snemma í bardaganum. — Ekki er tekið fram hvar á víg- stöðvunum þetta gerðist, en mun hafa verið á Donvígstöðv- unum. Sænska blaðið Veckjojourn- alen, sem skrifar um ástand og horfur í Þýzkalandi, segir að menn séu mjög daufir í dálkinn í Þýzkalandi, og undanhaldið hafi aukið áhyggjur manna. Enginn brosir í Þýzkalandi, seg- ir blaðið, menn eru orðnir þreyttir á að bíða í röðum fyrir utan sölubúðirnar, en leikhúsin eru full, og sýnir það, hversu menn eru afþreyingar þurfi. . . Sænsk blöð gagnrýna æ harð- legar framkomu Þjóðverja í Noregi, einkanlega norskra Myndin til vinstri er tekin í loftárás á Rotterdam. Örin stefnir á flugvél, sem kastar sprengj- um á skipið, sem sést, eu á myndinni til hægri er skipið farið á hliðina eftir árásina.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.