Vísir - 20.12.1941, Blaðsíða 6
6
VÍSIR
SlftLINGAR
milli Bretlands og Islands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Cnlliford ti Clark i,t.i.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONÐON STREET, FLEETWOOD.
I
Le§ið þennan
bokali§ta
og þá getið þéc toara hringt i bókabúðirnar eftir jólagjöf handa
krökkunum. -
En margar þeirra verða aðeins fáanlegar til lielgar, þvi allt
er nú að seljast upp.
MJALLHVÍT,, hin undurfagra litmyndabók, sem gerir jafn-
vel góðu börnin að enn betri börnum.
Krakkar og uuglingar á öllum aldri vilja og þurfa að eiga
þetta fagra listaveric Tómasar og Disney.
GULLROÐIN SKÝ og HÖLLIN BAK VIÐ HAMRANA, eru
falleg æfintýri fyrir unglinga með fjölda mynda. — ÞULUR
Theodóru ineð myndum Guðm. heitins Thorsteinssonar og
FERÐALANGAiR’. eftir Helga Hallgrímsson, lyfjafræðing, eru
að margra áliíi beztu jólabækur unglinga. •
STÁLPAÐIR STRÁKAR þurfa allir að fá KAFBÁTSFOR-
INGJA OG KENNIMANN — BARÁTTUNA UM HEIMSHÖF-
IN — ÆFINTÝRI ODYSSEIFS — FRÍMERKJABÓKINA og
FLUGMÁL ÍSLANDS ---------- en NÝLÆSU KRAKKARNIR
ÆFINTÝRIPÉTURS OG GRÉTU og LJÓTA ANDARUNGANN.
Rétt fyrir jói kemur: SEGÐU MÉR SÖGU, eftir síra Jakob
Jónsson.
Sparið yður ferð ofan í bæ og tafir i jólaösinni. — Símið til
bóksalans eftir þessum bókalista.
Sendisveinn
óskast til léttra sendiferða. — Þarf að hafa hjól. —
Hátt kaup. — A. v. á.
9
Sitroiiiir
b.s. Hekla
SSmi 1515
Góðir bílar
Ábyggileg. af greiðsla
Minn ngarorð um
Guðmund
Matthíasson.
íslendingar hafa á þessu ári
átt á bak að sjá inörgum hraust-
um sjómönnum, og ætla eg mér
eigi að rita um allt það, sem
skeð hefir og alþjóð er kunnugt
af ræðu og riti, lieldur aðeins
með nokkrum orðum minnast
eins þeirra manna, er livarf með
l.v. „Jarliiin“, en það var-stýri-
maður skipsins, Guðmundur
Matthiasson.
Guðmundur var fæddur hér í
Reykjavík 26. janúar 1904, son-
ur merkishjónanna Matthiasar
Þórðarsonar rithöfundar og
konu lians, Sigríðar Guðmunds-
dóttm-.
Guðmundur fluttist ineð for-
eldrum sínum til Danmerkur
og stundaði siglingu á dönskum
slcipum.
Hann tók próf i stýrimanna-
fræði í Kaupmannahöfn og fór
síðan víða um höf sem stýri-
maður á gufuskipum landa i
milli og mannaðist vel.
Árið 1933 giftist Guðmundur
danskri konu, Grete Hansen að
nafni, og eignuðust þau einn
son; ber’hann nafn Matthíasar,
afa sins.
Guðmundur átti til göfugra
manna að telja í báðar ættir,
afi hans í föðurætt var hinn
mæti sveitarhöfðingi Þórður
Runólfsson í Móum á Kjalarnesi
(d. 1906), en kona Þórðar var
Ástríður, systir þjóðskáldsins,
Matthíasar .Tochumssonar.
Um þessa systur sína segir
Matthías í Endurminningum,
sínum:
„Ástriður var eflaust likust
mér, okkar systkina, að gáfum
og lyndisfari, en miklu bráð-
gjörvari. Þegar eg orti eða
þýddi, bar eg ávalt undir henn-
ar dóm, hvernig ort væri, og
notalegi og skarpari ritdómara
liefi eg aldrei haft við hlið mér.“
Guðmundur var heitinn eftir
móðurföður sínum, Guðmundi
Guðmundssyni, útgerðarmanni,
Lambhúsum á Akranesi (d.
1897), og er sú ætt alkunn.
Kona Guðmundar var Guðríður
Teitsdóttir (d. 1919); var hún
dóttir þeirra lijóna, Teits Magn-
ússonar gullsmiðs í Litlabæ á
Álftanesi og konu lians, Krist-
jönu Ilelgadóttur. Systur Guð-
ríðar voru þær Guðrún, kona
Snæþjarnar Þorvaldssonar
kaupmanns og Kristjana, kona
Stefáns Bjarnasonar, hrepp-
stjóra í Hvítanesi. Börn Guð-
mundar og Guðríðar voru þessi,
er upþkoinust: Kristjana, gift
Magnúsi Einarssyni, kaup-
manni á Seyðisfirði; Sigríður,
kona Matthíasar, eins og áður
getur; Guðríður, kona Matthí-
asai- Þórðarsonar, þjóðminja-
varðar; og Teitur, er dó'um þrí-
tugt, ógiftur, drukknaði af ensk-
um togara. Framúrskarandi
duglegur maður og vel látinn.
Guðmundur var mikill dugn-
aðar- og framfaramaður; hann
var lengi i hreppsnefnd og kom
allmikið við opinber mál á
Akranesi á sinni tíð. Hann var
búhöldur góður og vel efnum
búinn á þeirra tíma mælikvarða.
Þegar Danmörk var hernum-
in af Þjóðverjum, var Guð-
mundur Matthíasson staddur í
Bretlandi og var honum því
varnað að komast heim til konu
sinnar og ættingja í Danmörku.
Tók liann þá það ráð, að sigla
til íslands og leita sér atvinnu
hér á landi. Var liann í förum
í ísfiskflutningum og nú síðast
á l.v. „Jarlinn“.
Hinn 3. sept. s.l. sigldu þeir
af stað frá Fleetwood, hinir 11
hraustu og liuguðu sjómenn, í
fullu trausti þess, að koma heim
til ættingja og vina eftir nokkra
daga, en það fór á aðra leið, því
að til skipsins liefir ekkert
Veggalmanök fyrir 1942
illir helgfidagrar
Nóvember
Nóvember
Miðvikudagur
prentaðir randir
Vér íramleiðum dagatöl eíns
og undanfarin ár.* — Spyrjist fyrir
um verð og annað í sambandi
við þau. — Hringið í síma 1640.
Félagrsprentsmiðjaii li.f.
Klapparstíg 30.
er miðstöð verðbréfavið-
skiptanna. — Sími 1710.
spurzt síðan. Þó segja sjómenn
veðurfar liafa verið gott næstu,
daga á eftir á Atlantshafi, og
eru því sterkar likur fyrir því,
að skip og menn hafi farizt af
nernaðarástæðum.
Guðmundur var góðum, gáf-
um ggpddur, stilltur vel og prúð-
menni í allri framkomu, enda
livers manns liugljúfi!
Er mikill skaði, er slikir
menn hverfa frá hálfnuðu dags-
verki í blóma lífsins. Þó er
mestur harmur kveðinn að for-
eldrum hans, systkinum, eigin-
konu og syni, er nú búa í fjar-
lægu landi. En frændur og vinir
senda þeim sínar beztu kveðjur
yfir hafið í tilefni af hinu svip-
lega fráfalli Guðmundar; meiru
fá þeir eigi áorkað. En huggun
er ætíð harmi gegn, því að eins
og sálmaskáldið mælir:
„Þá er jarðnesk bresta böndin,
blítt við hjörtu sorgum þjáð
vonin segir: Heilög höndin
hnýtir aftur slitinn þráð.“
Far þú vel, Guðmundur, til
hærri himinsala. Þar sitja engir
í fyrirsát fyrir varnarlausum
vegfaranda. Þar mun ríkja
friður og réttlæti um alla eilífð.
3. nóÝ. 1941.
Geir Sigurðsson.
Arabiskar
nætur
Æfintýri nr þúsnnd og: einni nott
Ein liin skemmtileggsta og snotrasta æfintýraútgáfa, sem
komið hefir út á íslenzku.
Tómas Guðmundsson og Páll Skúlason eru þýðendur æfin-
týranna, en listamennirnir Eggert Laxdal og Tryggvi Magnús-
son hafa gert um 20 myndir, sem prýða bókina.
Val æfintýranna er vandað.
Lengstu sögurnar eru: Aladdin og töfralampinn, Sagan af
Ali Baba og hinum fjörutíu ræningjum og Ferðir Sindbaðs.
Þetta er bók jafnt fyrir fullorðna og unglinga, því að, eins
og Tómas Guðmundsson segir:
Það endist þér eins lengi og þú lifir
hið ljúfa æfintýr.
Það lagði þér á tungu orð, sem yfir
þeim undramætti býr
að fella rúbínglit ó mýri og móa.
Þú mældir grýtta jörð við pálmaskóga.
Þvi töfraorðið það var æskan þín
og þú varst sjálfur lítill Aladdin.
Arabiskar nætur eru 236 blaðsíður að stærð og kosta aðeins
6 krónur vegna þess að bókin var prentuð áðm: en styrjöldin
skall á, en myndi annars kosta 14—16 krónur, miðað rið nýút-
komnar bækur.
Þau eintök, sem til eru við þessu verði, fást í
Bókaverzlun KRON