Vísir - 20.12.1941, Blaðsíða 2
VÍSIR
VÍSIF?
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Rítstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Leitin
að lyklinum.
jþ I5IR eru þungt hugsandi uin
þessar mundir, kratabrodd-
arnir. Því nú eru góð ráð dýr,
bæjarstjórnarkosningar eftir
mánuð. Þ'eir brjóta heilann dag
og nótt og leita og leita. En
þeim gengur illa að finna. I>eir
eru nefnilega að leita að lyklin-
um að hugum kjósendanna í
Reykjavík. Þeir bafa einhvem-
veginn gloprað bonum út úr
böndunum, á sér og nú er þeim
innanbrjósts svipað manni, sem
stendur út í lirakviðri og kemst
ekki inn, af því að bann hefir
gleymt útidyralyklinum. Hérna
um daginn héldu þeir, að nú
væri lykill fundinn. Það var
hitaveitan. En þeir reyndu brátt,
að þeir böfðu óvart sorfið þá
agnúa á þann lykil, að hann
gekk alls ekki að. Nú á að reyna
að liðka skrána með búsnæðis-
vandræðunum. En ætli það
gangi nokkuð betur?
Fólkið liefir alltaf verið að
streyma til Reykjavíkur. Það
befir meira að segja verið svo
furðulega gálaust, að það hefir
yfirgefið sum helztu sæluriki
sósíalistanna til þess að leita
gæfunnar í þessu útbrópaða „í-
haldshreiðri“. Fyrir nokkrum
árum var talið, að búsnæðis-
þöfinni yrði ekki fullnægt með
minna en 200 nýjum íbúðum á
ári. Framtakssamir menn vildu
fullnaegja jæssari þörf. En j>eir
fengu [>að ekki. Stjórnarvöld
landsins leyfðu ]>að ekki. Þá fór
Alþýðuflokkurinn með völd á-
samt Framsókn. Þegar fram í
sótti gekk ekki hnífurinn á
milli þessara bandamanna i
haftamálunum, Fólkið héll á-
fram að streyma til bæjarins.
En það var ekki bægt að sjá því
fyrir nægilegu búsnæði, af þvi
að Alþýðuflokkurinn og sam-
starfsflokkur bans i rikisstjóm-
inni stóðu því í gegn.
Þessi andstaða gegn auknum
húsakynnum var engan veginn
réttlælt með gjaldeyrisskorti
einum, saman. Haftastefnu
þeirri, er Alþýðuflokkurinn og
Framsókn böfðu sett sameigin-
Jega, var baldið lengi eftir að
gjaldeyrisástandið gerbreyttist.
Eysteinn Jónsson liélt j>ví blá-
kalt fram á miðju sumri 1940,
að fásinrja væri að reisa hús í
Reykjavík. Það væri miklu betra
að safna sterlingspundum i
Bretlandi. Sjálfstæðismenn
héldu því gagnstæða fram. En
j>að var :bara kölluð „kramvöru-
stefna“ og þótti firra mesta.
Allir vita, hvar Alþýðuflokkur-
inn liefir staðið i deilunum um
innflulriinginn. Hann ætti ekki
að reyna að skorast undan á-
byrgðinni í þvi efni. En ein al-
varlegasta afleiðing hinnar
]>röngsýnu haftastefnu er hús-
næðisvandræðin í ]>essum bæ.
Ætla mætti, að Alþýðu-
flokkurinn færi sér hægt í að
ámæla borgarstjóranum í
Reykjavík fyrir afskipti hans
af liúsnæðismálunum. Það eru
14 mánuðir síðan Bjarni Bene-
diktsson skrifaði félagsmála-
ráðherranum, Stefáni Jóh. Stef-
ánssyni, og lagði til, að hann
gæfi út bráðabirgðalög, sem
tryggðu íslendingum forgangs-
rétl að liúsnæði fram yfir út-
lendinga, og bæjarmönnum
fram yfir utanbæjarmenn. Þau
lög eru ókomin enn. Setuliðið
situr enn í milli 60—70 íbúðum.
Betur en þetta hefir Stefáni Jóh.
ekki tekizt að fá framgengt
kröfunum um rýmingu þessa
bráðnauðsynlega húsnæðis.
Það er erfitt fyrir Alþýðu-
flokkinn að finna nokkra fjöð-
ur i hattinn sinn í húsnæðismál-
unum. Ilann hefir löngum liælt
sér af lögunum , um verka-
mannabústaði. En sú er saga
þess máls, að Reykjavík er eina
hæjarfélagið á landinu, sem
fullnægt hefir ákvæðum lag-
anna um framlag lil hyggingar-
sjóðs verkamanna. Bæði ísa-
fjörður og Hafnarfjörður eiga
það eftir, ]x')tt Alþýðuflokks-
menn hafi þar meirihluta í hæj-
arstjórn.
Allir vita, að borgarstjórinn
í Reykjavík verður ekki salcað-
ur um aðgerðaleysi í liúsnæðis-
málunum.. Hann hefir reynt að
fá því til vegar komið, að út-
lendingar rýmdu það húsnæði,
er þeir hafa til umráða, og liaft
forgöngu í að koma upp nýjum
húsum, eftir því sem unnt hefir
verið. Það er ekki honum að
kenna, Iieldur Alþýðuflokknum
og bandamönnum hans, að ekki
var reist meira af húsum, með-
an flutningar voru greiðir. Það
er ekki honum að kenna, að
flutningaerfiðleikarnir hafa
stóraukizt. Það er ekki honum
að kenna, að menn streyma
hingað livaðanæfa af landinu í
Bretavinnu. Það er lionum að
þakka og bæjarstjórnarmeiri-
hlutanum, að tekizt hefir að
koma upp vistlegu ibúðarhverfi
handa hundruðum manna þrátt
fyrir stóraukna erfiðleika. Al-
þýðublaðið heldur að það geti
vakið andúð á þessum fram-
kvæmdum með því að uppnefna
þennan borgarhluta og kalla
„nýju pólana“. En þar tekur það
bara „skakkan pól í liæðina“
eins og svo oft fyrr.
Alþýðuflokkurinn verður að
gera sér Ijóst, að Jiann hefir
ekki enn fundið lykilinn að hug- .‘
um kjósendanna í þessum bæ.
„Hús“-lykillinn gengur ekki að
skránni frekar en hitaveitu-
„dírkarinn". Hann verður enn
um stund að standa úti í hrak-
viðrinu meðan leitað er betur.
Það verður gaman að sjá, hvaða
ryðnagli kemur næst.
a
Messur á morgun.
I dómkirkjunni kl. ii, síra Frið-
rik Hallgrímsson; kl. 2 barnaguðs-
þjónusta (sr. Bjarni Jónsson). Eng-
in síðdegismessa.
Hallgrímsprestakall. í Austur-
bæjar barnaskólanum kl. 5. Síra Sig-
urbjörn Einarsson.
Engin messa i Laugarnesskóla á
morgun, og ekki heldur barnaguðs-
þjónusta, fyr en á annan í jólum.
Fríkirkjan í Reykjavík. Eugin
messa á morgun, en unglingafélags-
fundur i kirkjunni kl. 2. — Sira
Árni Sigurðsson.
Munið Mæðrastyrksnefndina,
Þingholtsstræti 18, opið kl. 2—6.
Blindrafélagið
hefir merkjasölu á morgun til á-
góða fyrir starfsemi sína. Félag
þetta hefir blint fólk stofnað, til
þess að vinna að hagsmunamálum
sínum. Rekur það vinnustofu á
Laugaveg 97 og vinnur blint fólk
þar að burstagerð, vefnaði 0. fl. Þá
hefir það komið af stað nokkurri
garðrækt, sem blindir stunda að
mestu leyti sjálfir. Yms fleiri mál
eru á dagskrá hjá félaginu, svo sem
aukin fræðsla blindra. — I^eykvík-
ingar! Styðjið starfsemi þessa fólks
með því að kaupa merkin.
Látið Vetrarhjálpina
koma gjöfum yðar þangað, sem
þeirra er mest þörf.
íslenzkt námsfólk við Minnesota-
háskóla.
Frá vinstri til hægri: Oddný Björgúlfsd., Þórhallur Ásgeirsson,
Örlygur Sigurðsson, Þorsteinn Thorsteinsson, Edvard Friðrikss.
Hér að ofan hirtist mynd af
fimnx íslenzkum stúdentum,
sem stunda nám við Minnesota-
háskóla. Birtist nýlega grein um
stúdenta þessa í ameriskum
blöðum, ásamt mymd þessari,
en greinin var rituð af Valdimar
Björnsson, sem er éinn af son-
um Gunnars Björnssonar skatt-
stjóra, og er blaðamaður vestra.
Hann liefir dvalið nokkurt skeið
liér á landi og á liér marga vini.
I grein sinni skýrir Valdimar
frá því, að frá íslandi hafi kom-
ið til Vesturheims á þessu ári
30 stúdentar, og sé í hér í raun-
inni um endurfund Islands á j
Ameriku að ræða, með þvi að
Leifur heppni hafi fundið hana
fyrstur manna árið 1000. Ef að
venju hefði látið myndu þessir
íslenzku stúdentar liafa stundað
nám á meginlandi Evrópu eða
Bretlandseyjum, en nú verði
þeir að leita til Vesturheims
vegna stríðsins. Sókn íslenzkra
stúdenta til ameriskra háskóla
færi ört vaxandi. Hafi þar i
Bandaríkjimum og Kanada
stundað nám 17 stúdentar í
fyrra, en 30 séu þar nú. Hafi þó
margvíslegir erfiðleikar orðið á
svegi þeirra, og hafi 15 þeirra a.
m. k. haft frá ævintýraríku
ferðalagi að segja vestur um
haf.
Þessir fimm íslendingar liafi
valið sér Minnesotaháskóla, af
þeim sökum, að þeir hefðu vit-
að, að íslenzk nýlenda var
stofnuð þar — í Lyon-héraði —-
árið 1875, og ættu þeir þar sum-
ir ættingja. I islenzku nýlend-
unni þar eru nú um 200 manns.
Sá af stúdentunum, er fyrstur
reið á vaðið og tók að stunda
nám við Minnesota-háskóla, er
Þórhallur Ásgeirsson, er situr
fyrir miðju á.myndinni, en hin-
ir fylgdu í fótspor hans. á ]>essu
ári.
Geta má þess hér, að Stefanía
Bjarnadóttir, Jónssonar stund-
aði nám í Minnesota, en er nú
komin heim fyrir nokkru.
Valdimar gerir grein fyrir ætt
og uppruna stúdentanna og ber
þeim vel söguna og réttilega.
Víkur liann að því, að oft sé
beint til þeirra spurningum, sem
stafi af fáfræði, um Eskimóana
á íslandi o. fl. o. fl., en gerir þvi
næst glögga grein fyrir þjóðerni
íslendinga, landnámi, bólc-
menntum og menningu. Leggur
hann áherzlu á, að alþýðu-
fræðsla standi hér á mjög háu
stigi og megi margt af þúsund
ára menningu landsmanna læra,
á sama hátt og íslenzkir stúdent-
ar geti aflað sér margvíslegrar
fræðslu i Vesturheimi, er geri
þá færari um að gegna uppbygg-
ingarstarfi, er heim kemur.
Greinin er prýðilega rituð, af
mikilli vinsemd, svo sem vænta
mátti, og ágætum kunnugleik
af lands og þjóðar högum.
Pening'agjafir til Vetrarhj.
E.K. 25 kr. Vinnufatagerð Is-
lands 300 kr. M.Þ. 50 kr. S.Þ. 10 kr.
Starfsfólk hjá Búnaðarbanka ís-
lands 60 kr. A. Bridde 50 kr. A.G.
20 kr. B.S.E. 300 kr. Helgi Magnús-
son & Co. 150 kr. Lesandi „Tím-
ans“ 2 kr. N.N. 500 kr. Þórh. Árna-
son 100 kr. K.B. & S.B. 200 kr.
Bjarni Bjarnason, Framnesvegi 54
10 kr. A.E.J. 50 kr. Sjóklæðagerð
íslands h.f. 150 kr. Starfsfólk hjá
Helga Magnússyni & Co. 110 kr.
Kærar þakkir. — F.h. Vetrarhjálp-
arinnar, Stefán A. Pálsson.
Gjafir til Mæðrastyrksnefndar.
Einar Jónsson 40 kr. Lúðvík 50
kr. S.G., S.H., J.M. 30 kr. N.N.
30 kr. Afh. af J. Ólafss. 10 kr. Da-
víð, Gyða, Erla 300 kr. Steinn 10
kr. R.B. 10 kr. Starfsfólk hjá G.
Helgason & Melsted 225 kr. Áður
augl. kr. 715.00. Kærar þakkir.
Rafskinna.
Vísur þessar hafa Gunnari Bach-
mann borizt fyrir skemmstu:
Rafskinna hún ræður þér
rétt til allra kaupa,
enginn skaða af því ber
eftir henni að hlaupa.
Rafskinna, sem ræður mest
í ríki viðskíptanna,
flytur Merkúrs bóka bezt
boð til allra manna.
Einar Markan.
Munið Mæðrastyrksnefndina,
Þingholtsstræti 18, opið kl. 2—6.
Drengjablaðið „Úti“,
14. árg., kemur út í dag. Af efni
þessa vinsæla drengjablaðs, má
nefna: Hugfang, grein um tóm-
stundir. Fljúgandi dýr eftir Magn-
ús Björnsson náttúrufræðing.
Kennsla blindra barna, eftir Úlfar
Þórðarson lækni. Drengjasaga, er
heitir Neyðarmerki Péturs skip-
stjóra. Umferðarsöngur, eftir Stef-
án Jónsson kennara. Minning f jögra
drukknaðra skáta, eftir Daníel
Gíslason. Hjálp í viðlögum, skrítl-
ur o. fl. Fjöldi mynda prýðir ritið
og frágangur er hinn bezti. Ritstjóri
„Úti“ er Jón Oddgeir Jónsson.
Auglýsendur.
Vísir kemur lit á Þorláksmessu
síðdst fyrir jól. Eru það vinsamleg
tilmœli ritstjórnarinnar, að auglýs-
ingar, sem þennan dag eiga að birt-
ast, verði sendar blaðinu á morgun
og mánudag, eftir því sem við verð-
ur komið.
Útvarpið í kvöld.
19.25 Útvarpstríóið: Einleikur og
tríó. 20.00 Fréttir. 20.30 Gaman-
þáttur: „Útvarp á bærium“, 2. út-
gáfa, aukin og bætt (Brynjólfur Jó-
hannesson, Anna Guðmundsdóttir,
Bjarni Björnsson, og Gunnþórunn
Halldórsdóttir). 21.10 Takið undir!
(Þjóðkórinn — Páll Isólfsson stj.).
22.00 Danslög til kl. 24.
Útvarpið á morgun.
10.00 Morguntónleikar (plötur).
15.30 Miðdegistónleikar (plötur):
Jólalög frá ýmsum löndum. 18.30
Barnatími (sr. Fr. Hallgrímsson).
19.25 Hljómplötur: Andante og til-
I brigði eftir Haydn. 20.00 Fréttir.
20.20 Hljómplötur: Festpolonaise,
| 'eftir Joh. S. Svendsen. 20.30 Upp-
lestrakvöld: a) Helgi Pjeturss, dr.
phil.: Úr „Framnýal“ (Höf. les).
b) Guðfinna Jónsdóttir: Ljpð(Guð-
mundur Finnbogason landsbóka-
vörður). c) Oddný Sen: Undra-
landið Kína (Höf. les). d) Þórir
Bergsson: Vegir og vegleysur (H.
Hjv.) Útvarpshljómsveitin leikur
íslenzk lög. 22.00 Danslög til kl. 23.
LEO & Co. LEO & Co.
Nýkomið
í’jölbreytt úrval aí'
Kápu- og
Kjóla-efnum.
Leikföng' til jólanna. t
Morgunkjólar og sloppar.
Belti, töskur og gardínublúndur.
Erlend hárvötn.
Leo & Co.
Laugavegi 38.
LEO & Co. LEO & Co.
Kventöskup
Innkaupstöskup
Kvenhanskar
Lúffup
Heppahanskap
Buddup
Heppaveski
Riískinnsvesti
Rixskinnsj akkar
Loðkápup
Samkvæmisslá
Silfiirrefip
Skíðaj akkap
Undirföt
Káttkjólar
Sloppar
Kápup
Leðupj akkar
Dragið ekki jólainnkaupin um of, það
getur orðið of seint.
Feldur h.f.
Austurstræti 10 — Sími 5720
Vaka,
félag lýðræðissinnaðra stúdenta,
heldur jólafagnað sinn i kvöld í
Oddfellowhúsinu. Aðgöngumiðar
seldir þar frá kl. 5—7 e. h.
70 ára
verður á morgun, 21. des., Ólafur
Halldórsson bókbindari, frá Grund-
um, Rauðasandshreppi. Hann býr
nú að Lyngholti, Sogamýri.