Vísir - 20.12.1941, Blaðsíða 4
I
t
4
Bæjarstjórn:
Hitaveitan og
Sogsvirkjunin
Yfirstjórn og ungmennadómur.
BÆJARSTJÓRNARFUNDUR
var haldinn í gær og voru
allmörg mál á dagskrá. Fjár-
hagsáætiun bæjarins Var vísað
til annarrar umræðu, rætt var
um hitaveituna, kosin yfirkjör-
stjórn og ýmislegt fleira.
Borgarstjóri skýrði frá því,
að. sér iiefði borizt skeyti frá
sendimönnum bæjai’ins vestan
hafs, bæði Tómasi Jónssyni
Ixn'garritara og Steingrími Jóns-
syni rafmagnsstjóra.
Borgarritari skýrði frá þvi í
skeyti sínu, að í vor hefði farið
fram ahnennt útlxið i hitaveitu-
efnið og liefði þá komið hag-
kvæmasta tillxiðið frá United
Steel í sumt af efninu. Síðan
hefði verið leitað tilboða i aðr-
ar vörur á nýjan leik og eru
komin viðunandi tilboð i sum-
ar þeirra.
í skeytinu frá rafmagnsstjóra
segir svo, að tekizt hafi að lækka
tilhoðið, sem fengið var í 6250
lia. vélasamstæðu úr 290 þús.
dollurum í 281 þús. dollara.
Jafnframt skýrði rafmagns-
stjóri frá því, að hann hefði
fengið tilboð í 8000 ha. véla-
samstæðu. Er nú verið að at-
huga hvort tilboðanna sé hag-
kvæmara.
Þá var kosið í yfirkjörstjóm
fyni’ bæjarstjórnarkosningarn-
ar, sem frain eiga að fara í jan-
úar. Aðalmenn voru kosnir ]>eir
Pétur Magnússon, Geir G.
Zoéga og Ágúst Jósefsson.
Varamenn voru kosnir: Ein-
ar B. Guðmundsson, Ólafur
Sveinbjörnsson og Hallbjörn
Halldórsson.
Þá voru kosnir tveir með-
stjórnendur í ungmennadóm-
inn. Voru þeir Ólafur Svein-
björnsson og Ármann Halldórs-
son kosnir í dóminn til 4ra ára.
Borgarstjóri skýrði frá því,
að búið væri að úthluta 64 fjöl-
skyldum húsnæði i „Höfða-
borg“, en búast má við því, að
eittlivað af því fólki gangi úr
skaptinu.
Björn Björnsson bar fram þá
tillögu, að bæjarstjórh fæli
borgarstjóra að fara þess á leít
við ríkisstjórnina, að hún lilut-
ist til um það við setuliðsstjórn-
irnar, að komið verði upp öfl-
ugum loftvörnum við Ljósa-
fossstöðina. Tillögunni var vis-
að til bæjarráðs til afgreiðslu.
Karl læknir Magnússon
íimmtugur.
Karl Magnússon læknir frá
Hólmavík er fimmtugur í dag,
en nú hefír hann gistivist á
Landsspítalanum, í því augna-
miði að verða enn færari lil
að gegna hinu nýja héraði sínu
— Keflavíkurhéraði, en veit-
ingu fékk hann þar i nóvember.
Karl læknir er sonur Magn-
úsar Ólafssonar ljósmyndara,
sem var Iandskunnur maður
fyrir list sína og öðlingur hinn
mesti í hvívetna. Ólst Karl upp
hér í bænum og naut hér hinna
mestu vinælda, sem þau syst-
kinin öll, enda tók hann mikinn
þátt í margskonar félagslífi.
Var Karl hinn ágætasti knatt-
spyrnumaður og söngmaður
góður og starfaði t. d. í Karla-
kórnum „17. júní“.
Eg minnist þess, að fyrstu
kynni mín af Karli lækni, ef
kynni skyldi kalla, voru þau,
að hann gegndi læknisstörfum
fyrir Magnús Pétursson, þá
lækni i Hólmavíkurhéraði, en
nú héraðslækni Reykjavíkur.
Að sjálfsögðu var aldursmun-
ur okkar Karls svo mikill, að
um engin persónuleg kynni var
þá að ræða, en hins minnist ég
að margir nyrðra óttuðust að
hann myndi lítt reynast til
ferðalaga, sem mjög voru erfið,
vegna vegleysis og snjóþyngsla.
í fyrstu læknisvitjun fram i
Staðardal var Karl læknir sótt-
ur af aikunnum göngugarpi, og
skildiat mér, að nú skyldi reynt
á þolrif hans. Förin varð skjót
og Karf læknir hafði reynst svo
léttur Cil göngunnar, að föru-
nautur hans mátti hafa sig all-
an við að fylgja honum, og
kvartaði mjög um þreytu að
leiðarfokum. Óx við þetta virð-
ing Reykvikingsins til muna í
héraðtnu. Síðar fékk Kari
læknir veitingu fyrir Hólma-
víkurhéraði og hefir gegnt þar
læknisstörfum um 20 ára skeið,
en auk þess gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir Hólmavikur-
hérað og Strandasýslu.
Á sumrinu 1934 bar fundum
okkar saman að nýju og tókst
þá með okkur persónuleg
kynni. Reyndi eg hann þá að sér-
stökum drengskap og vináttu, er
eg kann honum miklar þakk-
ir fyrir og mun æ ineta mikils,
Jjótt fundum okkar liafi sjald-
an borið saman síðar. Er mér
og kunnugt um, að af öllum
]xir nyrðra, sem Karl lækni
þekklu, var hann vel látinn og
talinn tryggur maður og raun-
góður í hvívetna.
Karl læknir er kvæntur EI-
ínu Jónsdóttur frá Kambi í
Reykhólasveit, hinni ágætustu
konu, enda var heimili þeirra
á Hólmavík hið glæsilegasta og
til fyrirmyndar.
Eg óska Karli lækni til ham-
ingju á þessum afmælisdegi, og
eg veit að þeir verða margir
hér og nyrðra, sem gera slíkt
hið sama, og árna lionum og
hans allra heilla í framtíðinni.
K. G.
Næturiæknir.
Daníel Fjeldsted, Laugaveg 79,
sími 3272. Næturverðir í Ingólfs
apóteki og Laugavegs apóteki.
Hjónaefni.
Síðastl. laugardag opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Fjóla Aradótt-
ir, Njálsgötu 100 og Krístinn Ein-
arsson, Hverfisgötu 91.
Látið Vetrarhjálpina
koma gjöfum yðar þangað, sem
þeirra er mest þörf.
Auglýsendur.
Vísir kemur út á Þorláksmcssu
síSast fyrir jól. Eru það vinsamleg
tilmœli ritstjórnarinnar, að auglýs-
ingar, sem þennan dag eiga að birt-
ast, verði sendar blaðinu á morgun
og mánudag, eftir því sem inð verð-
ur komið.
Frá hæstarétti:
Fj árhætt uspilar arnir
dæmdir.
í dag var í hæstarétti kveðinn
upp dómur í málinu réttvísin
gegn Víglundi Kristjánssyni,
Mikael Sigfinnssyni og Ólafi Ól-
afssyni.
Eins og áður hefir verið skýrt
frá, var höfðað mál gegn mönn-
um þessum fyrir að hafa stund-
að f járhættuspil í atvinnuskyni.
Féll dómur í héraði á þá leið,
að þeir voru taldir sannir að sök
um það og hlutu þeir þessa refs-
ingu: Víglundur 4 mánaða fang-
elsi, Ólafur 3 mánaða fangelsi
og Mikael 2 mánaða fangelsi og
var refsing hans skilorðsbundin.
Hæstiréttur staðfesti Jxíssa
dómsniðurstöðu.
Skipaður sækjandi málsins
var hdm. Magnús Thorlaeius og
var þetta þriðja prófmál hans
fyrir Iiæstarétti, en skipaður
verjandi var hdm. Einar Ás-
mundsson, sem lauk með máli
þessu prófraun sinni fyrir
hæstarétti og á nú rétt á leyfi
til þess að verða liæstaréttar-
málflutningsmaður
Laun fyrir lánsútveg-
un sem ekki varð af.
Á mánudag var uppkveðinn
dómur í hæstarétti í málinu
Adolph Bergsson gegn Bygging-
arsamvinnufélagi Reykjavíkur
og gagnsök.
Tildrög máls þessa eru þau,
að áfiýjandi gerði kröfu til
þóknunar frá stefnda fyrir að
hafa útvegað því félagi lán
snennna á þessu ári. Fyrirsvars-
menn Byggingarsamvinnufé-
Iagsins töldu liinsvegar, að Jieir
hefðu aldrei undirgengizt að
greiða neina slika þóknun til
Adolphs. Heldur hefðu þeir
Adolph og Guðlaugur Rosen-
kranz, sem eru formenn sinn í
hvoru byggingarfélagi, komið
sér saman um að atliuga mögu-
leika til lánsútvegunar handa fé-
lögum sínum.
Hæstiréttur gerði Byggingar-
samvinnufélaginu að greiða
Adolphi kr. 2000.00 og kr. 500.00
í málskostnað og segir svo í for-
sendum liæstaréttardómsins.
„Aðaláfrýjandi og formaður
gagnáfrýjanda virðast snemma
á þessu ári liafa orðið á það sátt-
ir, að aðaláfrýjandi aflaði til-
boða um lán handa gagnáfrýj-
anda jafnframt tilraunum til út-
vegunar láns lianda félagi því,
sem, aðaláfrýjandi svarar fyrir.
Þetta tókst aðaláfrýjanda, og
samþykkti gagnáfrýjandi að
taka tilboði í. þessa átt, er fram
kom fyrir atbeina aðaláfrýj-
anda. Formaður gagnáfrýjanda
verður ekki talimi hafa haft
næga ástæðu til þess að ætla, að
aðaláfrýjandi ynni endur-
gjaldslaust að öflun lánstilboða
til handa gagnáfrýjanda, og
ineð því að gagnáfrýjandi gekk
að tilboðinu og hagnýtti sér
þannig verk aðaláfrýjanda,
enda þótt tilboðsgjafi leysti
gagnáfrýjanda síðar undan sam-
þykki hans, þá verður að telja
aðaláfrýjanda, sem ekki hefir
atvinnu af málflutningsstörf-
um, eiga kröfu á hendur gagn-
áfrýjanda um sanngjarna þókn-
un fyrir starf sitt, sem þykir
hæfilega ákveðin kr. 2000,00
með 5% ársvöxtum frá 11. á-
gúst 1941 til greiðsludags.
Eftir atvikum þykir rétt, að
gagnáfrýjandi greiði aðaláfrýj-
anda samtals kr. 500,00 i máls-
kostnað fyrir báðum dómuin.“
Adolph flutti mál sitt sjálfur,
en hrm. Guðmundur í. Guð-
mundsson flutti málið af hálfu
stefnda. ,
30 daga fangelsi
fyrir bókaþjófnað.
45 daga fangelsi fyrir
fölsun.
í fyrradag var maður nokkur
hér í bæ dæmdur í 30 daga fang-
elsi, skilorðsbundið, fyrir að
stela bókum úr bæjarbókasafn-
inu.
Hafði hann alls stolið 23 bók-
um, er hann var að velja sér
bækur á safninu til lesturs, og
stal þeim smátt og smátt, en
seldi síðan til fornbóksala og
þar fundust ]>ær.
Þá var dómur upp kveðinn yf-
ir manni einum fyrir fölsun.
Svo var mál með vexti, að fyr-
ir nokkuru kom maður einn inn
á skrifstofu heildsala nokkurs
hér í bæ, og framvísaði þar miða
með undirskrift nafnkennds
bónda úr nágrenninu, er var
góður viðskiptavinur lieildsal-
ans. Á miðanum fer bóndinn
fram á það við lieildsalann, að
hann greiði liandliafa miðans 25
krónur gegn greiðslu í gærum
seinna. Maðurinn fékk pening-
ana greidda, en síðar kom upp
úr kafinu, að nafn bóndans
hafði verið falsað. Hafðist uppi
á manninum og hlaut hann 45
daga fangelsi óskilorðsbundið.
Hefir liann áður verið dæmdur
fyrir auðgunarbrot og fyrir ölv-
un á almannafæri.
Lólcs var þriðji maðurinn
dæmdur í 30 daga fangelsi ó-
skilorðsbundið og sviptur kosn-
ingarétti og kjörgengi fyrir ó-
lögleg kaup af setuliðinu, hylmr
ingu og bruggun.
Mikið tjón í Hólma-
vík og nágrenni.
Vísi hefir nú horizt skeyti frá
fréttaritara sínum á Hólmavík,
þar sem sagt er nánara frá
tjóni því, sem varð í fyrri nótt.
Skeytið, sem er dagsett í gær,
hljóðar svo:
„I nótt kl. 4 skall á suðvest-
an aftakarok,- er stóð til kl. 10
í morgun. Slitnuðu tveir mót-
orbátar, er lágu á legunni, upp
frá legufærum og rak þá á land.
Brotnuðu þeir mikið og liðuð-
ust, og má telja annan þeirra
gjöreyðilagðan.
Þá fyllti tvo trillubáta og
sukku þeir. Brotnaði annar
mikið áður. Þriðju trilluna rak
á land og brotnaði Iiún í spón.
Tjón af völdum ofviðrisins
varð einnig mikið hér í ná-
grenninu. Opinn trillubátur
brotnaði í Ilamarsbæli. Hey
fauk á nokkrum stöðum á Sel-
strönd, og að Hafnarhóhni
brotnaði bryggja allmikið.
Kristján."
Vísir
er átta siður í dag.
Vetrarhjálpin
aðstoðar yður við að gleðja gamla
og sjúka um jólin.
Gjafir til Mœðrastyrksnefndar.
O.G.N. 15 kr. og fataböggull.
N.N. 50 kr. Svana 10 kr. Jón Hilm-
ar 10 kr. Lalla 5 kr. Ekkja 10 kr.
Móðir io kr. N.N. 500 kr. Safnað
hjá starfsfólki Landssimans 105 kr.
Einar Jónsson 40 kr. Kærar þakkir.
Látið Vetrarhjálpina
koma gjöfum yðar þangað, sem
þeirra er mest þörf.
Gjafir til Mæðrastyrksnefndar.
Guðlaug (áheit) 10 kr. J.S. 30
kr. Jónína Pétursd. 25 kr. N.N. 50
kr. Svava Þórhallsdóttir 15 kr. N.N.
10 kr. Th.Th. 10 kr. Á.Í.K. 150 kr.
Kærar þakkir.
Auglýsendur.
Vísir kemur út á Þorláksmessu
síðast fyrir jól. Eru það vinsamleg
tilmæli ritstjórnarinnar, að auglýs-
ingar, sem þennan dag eiga að birt-
ast, verði scndar blaðinu á morgun
og mánudag, eftir þvi sem við verð-
ur komið.
Bókarfregn.
Jón frá Ljárskógum:
SYNGIÐ, STRENGIR - -
Útg. Fjallkonuútgáfan.
Ljóðelskir menn hafa vafa-
laust fylgst með Jóni frá Ljár-
skógum frá því er fyrst tóku að
birtast Ijóð eftir hann í stúdenta-
blöðum eða söngskrám stúdenta.
Það var strax auðséð, að Jón
var gott efni, hvort sem rækt
myndi við lögð eða ei. En með
bók þeirri, er hér birtist, fer
Jón fram úr þeim góðu vonum,
sem ýmsir gerðu sér um hann
sem skáld, enda mun þetta ljóða-
safn eitthvert hið þezta, er byrj-
endur liafa látið frá sér fara á
síðari árum.
Jón er „lyriskur“ prýðilega,
liðugt um rím og framsetningu,
hefir kynnt sér hvernig á að
yrkja og fer prýðilega með
marga hluti. Tökum dæmi:
„Það streymir inn í hug minn i
hundrað leifturmyndum
hið hljóða næturljóð,
það glitrar úti á sundum, það
tindrar yfir tindum
i tunglskins silfurglóð,
það hljómar frá þeim strengj-
um, sem liann bærir,
næturblærinn,
með blíðri, léttri hönd,
það ómar í þeim ljóðmn, er hann
sjmgur, dulur særinn,
við sendna fjarðarströnd.“
Eða þetta erindi úr ljóði um
„Vora mestu menn“:
„Þeir ortu í Ijóðum ævintýri
iss og báls
og lýstu hljóma- og litatöfrum
landsins sjálfs,
þeir ófu saman silfurþræði
sögu og máls
og sungu kjark í sína þjóð
unz svarf til stáls.“
Þau erindi, sem hér hafa ver-
ið greind, sýna rímleikni höf-
undarins, en hann er einnig
þroskaður i hugsun og heil-
steyptur í skoðunum, eins og
ungir íslendingar eiga að vera.
Ljóðið „17. júní“ endar á
þessu erindi:
„Mitt land! Nú vil eg vinna þér
mitt heit
og vígja þér minn innsta hjarta-
reit,
nú vil eg krjúpa á kné á þinni
grimd
og kyssa þina mold á helgistund,
nú finn eg að hver liáleit hug-
sjón mín
er helguð sonarástinni til þin,
nú veit eg, að þú átt mitt hjarta-
blóð,
minn æskuþrótt, minn frama-
dramn, mín ljóð.“'
Þau eru fleiri ljóðin í sama
anda, — ekki aðeins til ættar-
landsins, heldur og til liinna
fögru byggða Breiðafjarðar,
sem úr eru ættuð ýms af okkar
höfuðskáldum, mestu höfðingj-
um og afreksmönnum þjóðar-
innar.
Það er von mín, að Jón frá
Ljárskógum feti dyggilega í fót-
spor beztu skálda Breiðafjarð-
ar, — til þess hefir hann öll
skilyrði, ef hann ávaxtar jafn
vel það pund, senj honum lief-
ir veitt verið, og honum hefir
verið gefið það. Hitt er mér ljóst
að ýmsa galla gæti hver sá til
tint, sem löngun hefði til þess
að gagnrýna þessa fyrstu bók
höfundarins, en hún á allt ann-
að skilið en slíka meðferð.
K. G.
Keisarinn í Iran.
Þegar Bretar og Rússar höfðu
lagt Iran (Persíu) undir sig,
sagði keisarinn af sér og við
tók sonur hans Mohammed
Reza Palilevi. Birtist hér mynd
af lionum. Hann er kvæntur
systur Farouks, Egiptakonimgs.
| Munið eftir
jólasöfnun Mæðrastyksnefndar.
Vetrarhjálpin
aðstoðar yður við að gleðja gamla
ofx sjúka um jólin.
Snjríliörur frá
H0LLYW000
LONDON
nýkoinnar
Sími 4637 — Austurstræti 5,
nýkomnar í öllum stærðum og mörgum litum.
GEYSIR
FATADEILDIN.