Vísir - 22.05.1942, Side 2
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 60 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmi'ðjan h.f.
Sorphreinsun
og gatnagerð.
Ð EYKJAVÍK verður vafa-
laust taliu af öllum, sem
til þekjtja óþrifalegasti bær á
Norðurlöndum og þótt víðar
væri leitað. Að nokkru er þetta
afleiðing þess, að allar götur eru
meira og minna sundurtættar
vegna hinnar væntanlegu liita-
veitu, en öllu öðru frekar er hér
um að kenna almennum óþrifn-
aði og vanhirðu frá hendi bæjar
og borgara i óskiptri og sameig-
inlegri sök.
Hér í blaðinu i gær ræddi
heilbrigðisfulltrúi nokkuð um
tillögur þær, sem liann hefir lagt
fyrh- heilbrigðisnefnd og aðal-
lega varða hreinsun gatna i bæn-
um. Vakir fyrir honum að fjölga
nokkuð starfsliði þvi, sem að
götuhreinsun starfar og bæta
við hestvagni, til þess að aka
drasli burt af götum bæjarins.
Slík ráðstöfun er allsendis Ót
fullnægjandi, enda mun bæjar-
stjórn liafa falið bæjarverk-
fræðing nú í vetur að kaupa
vestanhafs fyrirmyndar bifreið-
ar, í þessu augnamiði, en ekki
er kunnugt um hvað þeim mál-
um líður.
Að þvi er varðar sorphreins-
unina má fullyrða að hún er
framkvæmd í senn á rangan
hátt og á röngum tíma. Þeir
sein að þessu starfa, vinna aðal-
lega að sorphreinsun á daginn,
að þvi er virðist algerlega skipu-
lagslaust, þannig að hending
ein ræður hvar og hvenær unn-
ið er á hverjum stað. Það kann
vel að vera að einhverjar ráð-
stafanir hafi verið gerðar til þess
að skipuleggja þetta, en á þær
virðist 'mjög bresta, enda eru
þess mörg dæmi að borgararnir
hafa beinlínis orðið að kvarta
til hlutaðeigandi bæjarvalda, til
þess að fá sorp á brott telcið frá
húsum, sem safnast hafði upp
um langt skeið. Ekki leikur
heldur vafi á því, að sorphreins-
unina á' að framkvæma á nótt-
um, þegar litil eða engin um-
ferð er, með því að hún er i raun
og sannleika óframkvæmanleg,
eftir að fram á daginn kemur og
umferð er á öllum götum þótt í
misjöfnum mæli sé. Þetta þarf
ekki skýringu við. Það skýrir
sig sjálft.
Sorplireinsunin er einnig út
af fyrir sig ófullnægjándi. Við
það eitt er látið sitja, að hirða
bréfarusl og annað drasl af göt-
unum, og hreinsa rennur, en
þótt moldarbingir séu á gang-
stéttum ár. eftir ár, er ekkert um
þá hirt, en jieir látnir vera farar-
tálmi fyrir fótgangandi menn
algérlega óátalið og óumhirt.
Einkum kveður að þessu, þar,
sem byggt hefir verið við hús,
hreinsað íil í görðum o. s. frv.
Við þessa vanhirðu bætist svo
það, að flestar götur bæjarins
eru í þvílíku ástandi að tæpast
getur verjanlegt talist. Viðhald-
ið er svo slælegt, og þannig
framkvæmt að bæjarsjóður bíð-
ur af því stórtjón, með því að
umbætumar verða miklum mun
kostnaðarsamari, þegar loks er
tekið að vinna að þeim. Erlend-
is tíðkast það, að strax og holur
eru komnar i malbik er við þær
gert. Nægir þar að skírskota til
VISIR
Er fækkun þjóðar-
innar að byrja?
ískyggilegap tölup um fækkun fæöiuga
iijá fastlaunastáttum landsins.
Nýmæli um launakjör opinberra starfsmanna. —
Rannsókn á barnafjölda fastlaunastéttanna. — Tæp-
lega eitt barn á framfæri hvers launþega.
Kaupmannahafnar. Hér eru þær
látnar eiga sig, þar til göturnar
mega lieita ófærar, ög verður að
endurnýja malbik á þeim öllum
að meiru eða minna leyti. Þetta
er óheppilegt, enda almenn regla
að bezt er að gera við skemmdir
á hverjum hhit slrax í upphafi,
en bíða ekki eftir því að hlutur-
inn megi heita ónýtur með öllu.
Þótt Jætta megi telja íslenzkan
sið er hann illur og ekki æski-
legt að bærinn gangi á undan í
slíku.
Flestir Reykvíkingar, einkum
þó jieir, sem í nýju hverfunum
búa, hafa leitast við að prýða í
kringum hús sin, ög eru þar víða
fallegir garðar. En sá er galli á
gjöf Njarðar, að þessir garðar
koma að alls engum notum, með
því að í þeim er ekki vært fyrir
göturyki, sem stafar af um-
ferðinni, eða vorvindunum í
þurrviðri. Ef menn vilja sann-
færast um þetta þurfa þeir ekki
annað, en að ganga um
skemmtilegustu gölu bæjarins,
—- Sóleyjargötuna og Hring-
braut að Gróðrarstöð. Þessu er
þó samfara viss áhætta, með
því að heita má að menn gangi
í einum moldarmekki alla leið-
ina frá því er malbiki Fríkirkju-
vegar sleppir. Sé votviðrasamt
eru hnédjúpir pollar á jæssum
götum, en engin gangstétt sýnir
hvar fótgangandi menn eiga
rétt á sér, enda virðast bifreið-
arnar allan rétt eiga og aka ekki
sem hægast á þessum slóðum.
Þótt hér sé þetta dæmi tekið,
með því að fjöldi fólks leggur
leið sina þama um í skemmti-
göngum í Tjarnargarðinum og
grend, og geta því um dæmt af
eigin raun, er þetta vafalaust
allsstaðar svo, þar sem ómal-
bikaðar götur eru en mikil um-
ferð. Ljóst er það, að ekki er
unnt að malbika allar götur í
einu, og vafalaust skortir vinnu-
afl, en aðalumferðargötur á að
malbika og það svo fljótt sem
verða má.
Það ætti í rauninni að vera ó-
þarfi, að blöðin raéddu þessi
málefni sérstaklega, með þvi að
borgarstjórnin ætti að hafa á
þeim fullan skilning, en svo má
misbjóða þolinmæði Reykvík-
inga, að ekki sé unnt að þegja
við. Eftir langan vetur vonum
við að notið verði sumars og sól-
ar. Reynslan er hinsvegar sú að
livorugs verður notið, nema þvi
aðeins að hinum ömurlega
„uppblæstri“ gatnanna verði á
brott rýmt, og til þess er hand-
liæg leið. Bærinn mun eiga svo-
kallaða vatnsbíla einn eða fleiri,
en séu þeir ónýtir ætti að vera
auðvelt að útbúa fullnægjandi
taslci í sama augnamiði, er hent-
uðu venjulegum vörubifreið-
um. Þessar bifreiðar á að láta
fara um göturnar í þurrviðrum
og vökva þær, þar til úr yrði
bætt á annan hátt Reykvíkinga
langar til að fá að draga
andann, án þess að inntaka í
stórum stíl göturykið og óþverr-
ann, sem þyríast upp og allt
færir i kaf.
Mitonche
sýmxtgar hefjast að nýju
Sýningar á Nitouche, óper-
ettunni vinsælu, hefjastaftur að
nýju, og verður sýnt í næsta
skipti á annan í hvítasunnu. —
Enda þótt yfir 20 þús. manns
hafi séð „Nilouche“ og þótt hún
hafi verið sýnd 70—80 sinnum
(65 sinnum í Rvík og 8 sinnum
úti á landi) var aðsóknin að óp-
erettunni aldrei meiri en 10 sið-
ustu skiptin sem hún var sýnd.
Síðan í desembermánuði hafa
sýningar fallið niður vegna
veikinda eins leikarans, en nú
er hann kominn til heilsu aftur
og sýningar geta því hafizt að
nýju. ,
Vísir spurðist fyrir um það
Bandalag starfsmanna ríkis
og hæja fór þess á.leit við Al-
þingi fyrir skemmstu, að út-
horguð laun opinberra starfs-
manna yrðu greidd með 20%
álagi sökum sívaxandi örðug-
leika fastlaunaðra manna að
standast dýrtíðina til jafns við
aðra lauhþega, sem aðgang liafa
að því að bæta liag sinn með
aukavinnu og ýmiskonar fríð-
indum, sem skapast af hinni ó-
skaplegu eftirspurn eftir vinnu-
afli. Frumvarp þessa efnis var
flutt í efri deild Alþmgis, en féll
þar með jöfnum atkvæðum. Var
frumvarpið flutt sem breyting- ,
artillaga við lögin um verðlags-
uppbót, sem liggja fyrir til
framlengingar. Við aðra um-
ræðu um verðlagsuppbótina í
neðri deild í gær tóku þeir aftur
breytingartillögur sínar Har-
aldur Guðmundsson og Einar
Olgeirsson til þriðju umræðu,
en hreytingartillögurnai’ hnigu
að því, að greidd yrði 10—20%
álag á laun opinberra starfs-
manna. Ilinsvegar skýrði Jón
Pálmason, er sæti á í fjárhags-
nefnd efri deildar, frá því, að
stjórn Bandalags starfsmanna
rikis og bæja hefði átt fund með
nefndinni og á fundinum hefði
komið fram tillaga til úrlausnar
á þeim vanda, sem steðjar að
opmberum starfsmönnum,. —
Hefði verið hent á þá leið, að
greiða starfsmönnum ríkis og
hæja uppbætur á laun miðað við
Fjöldi manns í írska frírík-
inu, eða Eire eins og það nefn-
Ist nú, vill að Þjóðverjar verði
hlutskarpari í þessari styrjöld,
en samt sem áður er þetta sama
fólk því mótfallið, að vera undir
yfirráðum Þjóðverja.
Það eru þrjár höfuðástæður
fyrir þessari samúð manna með
Þjóðverjum:
1) Aldagömul andúð gegn
Bretum.
2) Sú vissa manna, að ef
Bretar sigri, þá muni þeir herða
tökin á Eire og verða verri við-
skiptis.
3) Sú trú manna, að ef Þjóð-
verjar verði hlutskarpari, þá
muni Eire fá Norður-írland, sem
nú er undir algerri brezkri
stjóm.
Með þessu er þó ekki sagt, að
allir þessir menn sé beinlínis
nazistar eða mundu vera stuðn-
ingsmenn nazistahreyfingar, ef
hún væri til í landinu. Það er
skoðun kunnugra, að i landinu
sé nokkurar þúsundir raunveru-
legra nazistavina. Flestir þess-
an-a manna hafa verið atvinnu-
hjá stjórn Tónlistarfélagsins
hversu oft Nitouche verður sýnd
ennþá. Var því svarað, að vafa-
laust myndi fást aðsókn í 20—
30 skipti ennþá, en sá hörgull er
á, að einn aðalleikarinn fer í
sumar brott úr bænum til lang-
dvalar og verður sýningum þá
hætt að fullu og öllu.
1 haust verður svo ný óper-
etta tekin til meðferðar, en enn-
þá er ekki fullráðið hvaða óper-
etta það verður.
ómagafjölda þeirra, eins og víða
er gert í nágrannalöndum vor-
um. Komi þá til greiðslu kr.
200—250 auk verðlagsuppbótar
á það fyrir hvert barn innan 14
ára aldurs. Myndu slíkar upp-
bætur jafnast á við 10—15%
launahækkun hjá starfsmönn-
um með meðallaunum og 3—5
börn. Uppbótin kæmi þar að
auki réttlátar niður og að hetra
gagni sem dýrtíðarráðstöfun,
heldur en hundraðshluta heild-
aruppbót.
I samhandi við þetta lét stjórn
Bandalagsins fara fram rann-
sókn á barnafjölda á framfæri
opinberra starfsmanna og kom
þá í ljós ískyggileg fækkun
barnsfæðinga í þessum stéttum.
Sapitals náði rannsóknin til
1800 starfsmanna og leiddi hún
í ljós, að þeir hafa að meðaltali
tæplega 1 barn á framfæri sinu.
Einna hæstir voru starfsmenn
Reykjavíkurbæjar; þar voru 268
starfmenn með 382 böm. Næst-.
ir komu 440 kennarar með um
400 börn. Langt þar fyrir neðan
eru svo ýmsir aðrir starfsmenn,
svo sem símamenn 250 að tölu
með 150 börn, 46 útvarpsstarfs-
menn með 31 harn o. s. frv.
Tölur þessar benda til, að hér
þurfi að grípa, til ríkisráðstaf-
ana, því það er viðurkennd stað-
reynd hvarvetna, að barnafjöldi
launastéttanna stendur í beinu
lilutfalli við efnalega afkoinu
þeirra.
lausir og halda, að úr því muni
rætast, ef nazistar fái tækifæri
til þess að heita stjórnaraðferð-
um sínum.
En þeir Irar, eru í miklum
meirihluta, sem óska þess, að
Þjóðverjar sigri ekki, enda þótt
þeim sé ekki fullkomlega vel
við Breta.
Ef þýzkir njósnarar mundu
fara að starfa i Eire mundu þeir
verða fáir, sem fengjust til að
rétta þeim hjálparhönd eða veita
upplýsingar, sem gæti skaðað
málstað Breta og Bandaríkj-
anna. E-n á hinn bóginn má al-
veg eins gera ráð fyrir þvi, að
þeim sömu, sem vildu ekki veita
upplýsingar, er gæti orðið Þjóð-
verjum að gagni, mundi ekki
koma til hugar að koma upp um
njósnarana.
Það mun vera óhætt að segja,
að þetta sé afstaða írska almúga-
mannsins — hann vill vera al-
gjörlega hlutlaus í styrjöldinni.
Á.því mun litill vafi, að ein-
hver fimmtu herdeildarstarf-
semi eigi sér stað í landinu, að
likindum í samvinnu við með-
limi hins óleyfilega írska lýð-
veldishers.
írsku stjóminni er að eins
kunnugt um einn þýzkan erind-
reka, sem látinn var svífa til
jarðar í fállhlif, en það er talið
nokkurnveginn víst, að fleiri
flugumenn Þjóðverja hafi kom-
izt til landsins á þenna sama
hátt.
Þjóðverji sá, sem getur um
hér að ofan, var látinn svifa þar
til jarðar i fallhlíf fyrir meira
en ári síðan og hann lék lausum
hala í niu mánuði. Maður þessi
heitir Herman von Götz og hann
hafði i fórum sínum nákvæmár
skipanir um það, hverja hann
ætti að hitta í Eire. En allar
ráðagerðir hans fóru út um þúf-
ur af því að írar tóku lionum
ekki eins og Þjóðverjar höfðu
búizt við.
Hinn óleyfilegi írski lýðveld-
isher eða Ira, eins og hann er
jafnan nefndur, hefir að mestu
verið brotinn á bak aftur eða
lamaður með handtöku fimm
hundruð forsprakka, sem voru
kjarninn í félagsskapnum.
Engar áreiðanlegar tölur eru
til um meðlimafjölda í Ira og
er því allt ágizkanir, sem nefnt
er í því sambandi. Flestir áætla,
að meðlimir sé um 10.000, en
aðrir fara enn hærra. Engin leið
er að ákveða, hvað réttast er í
þessu efni.
Flestir meðlimir lýðveldis-
hersins eru ungir menn. Félagið
á miklar vopna- og skotfæra-
birgðir fólgnar hingað og þang-
að. Liðið er að visu höfuðlaust,
síðan forsprakkarnir voru
handteknir, en þar með er þó
ekki sagt, að þær aðstæður geti
ekki skapazt, að þeir grípi til
vopna. Ef Bretar héldu með her
inn í landið, til þess að bæta að-
stöðu sína í Atlantshafsorust-
unni og stjóm landsins léti sér
nægja að mótmæla „kröftug-
lega“, mundi lýðveldisherinn
í-ísa upp og verjast innrásinni.
Ríkisstjórnin hefir líka á-
hyggjur af þvi, að horfur eru
erfiðar í matvælamálum. Hún
óttast að lýðveldisherinn kunni
að reyna að stofna til óeirða, ef
aðdrættir verða örðugri og mat-
vælaskammtar almennings
minnkaðir.
I byrjun styrjaldarinnar voru
til nægar matvælabirgðir í land-
inu, en síðan hefir mjög gengið
á þær. Bændur, sem leggja
stund á hveitirækt, hafa ekki
viljað selja uppskeru sina, hafa
ætlað að biða eftir að verðlag
hækkaði, en það hefir leitt til
þess, að miklar hveitibirgðir
hafa eyðilagzt. Nóg er til af
nautakjöti, eggjum og mjólk,
en verðið fer ört hækkandi.
Atvinnuleysi er allmikið i
Eire. Um 25.000 menn fá styrk,
,en tala atvinnulausra er áætluð
50.000. Margir atvinnuleysingj-
ar hafa samúð með lýðveldis-
hemum.
SUNHKNATTLEIKSMÓT
ÍSLANDS.
Ármann vann Ægi í úrslita-
leiknum með 5:2.
1 fyrri leiknum vann KJL B-
lið Ármanns með 5:3, var leik-
urinn nokkuð jafn en K.R.-pilt-
amir duglegri. Stóð leikurinn
2:2 i hálfleik, en K.R. setti 2
seinustu mörkin.
1 úrslitaleiknum komu ó-
venju mörg mörk, því venju-
lega hefir unnist með 1:0 eða í
mesla lagi 2:1, svo jöfn eru lið-
in, en nú setti Ármann 5 mörk
í fyrri hálfleik og Ægir 2 i
seinni og komu því öll mörkin
í sama markið (austurmarkið).
Leikurinn var harður, en ekki
illvigur. Dómari var Jón Ingi
Gjuðmundsson og fórst það vel
úr hendi.
í 50 metra skriðsundi vann
Hörður Sigurjónsson (Æ) á
28.2 sek. og 2. Edvard Færseth
(Æ) á sama tfma, en 3. Rafn
Sigurvinsson (K.R.) á 29.1 sek.
(Stefán Jónsson gat ekki keppt
UNITED PRESS.
írar og afstaða þeirra
til styrjaldarinnar.
Vörur með
Brúarfoss
afhendist í dag, eða f)rrir há-
degi á morgun, þó ekki til
ísafjarðar.
E.s. „Lagarfoss“
tekur vörur til ísafjarðar og
fer um miðja næstu viku. —
A
mánudaginn
frá kl. 11 til kl. 8 verður i
Landakotsskóla sýning á
hannyrðum og teikningUBft.
ALLTAF DETTUR MÉR
í HUG
þegar eg sé fólk á vel burst-
uðum skóm, enda ber
Chcrry Blosisoiii
§kóáborðnr
af, sem gull af eiri.
1 1311! i
nýstandsettur, til sölu og
sýnis á Grettisgötu 27 í kvöld
kl. 7—9. —
Kissar-tiilir
Vil kaupa stóra, góða kassa,
nýtt eða notað timbur tíl að
klæða með sumarbústað. —
Tilboð, merkt: „Tímbur“
leggist inn á afgr. blaðsins
strax. —
Matsvein
vantar á m.b. Már. Uþpl. i
síma 3861. —
Valdimar Bjarnason
i
eins og til stóð).
50 metra bringusund drengja
vann Hannes Sigurðsson (Æ) á
42.5 sek. 2. Harald Halldórsson
(Æ) 43.7 sek. 3. Stefán Hall-
grímsson (Æ) 47.9 sek.
100 metra skriðsund drengja
vann Ari Guðmundsson (Æ) 1
min. 16 sek. 2. Einar Sigurvins-
son (K.R.) 1 min. 18 sek. 3.
Halldór Bachmann 1 mín. 19.9
sek.