Alþýðublaðið - 14.05.1920, Síða 1
Alþýðublaðið
Gefið út af A.1 þýðviflokkiium.
1920
Ijafnarverkfallið.
Khöfn, 13. maí.
Sjálfboðaliðar afferma skip í
Fríhöfnmni, með lögregluvernd.
[Sennilega er hér átt við kolafarma
sem þar hafa legið, samt. 40,000
smálestir.]
Sntheaar hervxðast
gegn pilverjum.
Khöfn, 13. raaí.
Fréttastofa Hvítu-Ruthena til-
kynnir, að bændur þar hervæðist
í miklum móð gegn Pólverjum.
{Hvítu Ruthenar eru rússneskur
þjóðflokkur. Þeim hefir sennilega
runnið blóðið til skyldunnar, er
þeir hafa séð djöfulmóð Pólverja.j
lexikoborg tekia herskildi.
Khöfn, 13. maí. .
Frá Washington er símað, að
uppreisnarmenn hafi tekið Mexiko,
höfuðborg Mexikoríkis, herskildi.
Friflarskilmálar Tyrklands.
Khöfn, 13. maí.
Frá París er símað, að Tyrkjum
hafi verið afhentir friðarskilmálar
þeirra, sem ákveða þeim eins
mánaðar frest. Tjataldjalínan á-
kveður landamæri þeirra að norð-
an. Þeir verða að láta af hendi
Smyrna og Armeníu. Batum verð-
ur alþjóðahöfn. Virkin við Dar-
danellasundið og Bosporus verða
lögð niður. Flota mega þeir eng-
an hafa. Herinn færður í 60,000
Föstudaginn 14. maí
107. tölubl.
manns. Þjóðabandalagið fær vernd-
arrétt yfir kristnum þegnum þeirra.
VerkfSIIin i paris.
Khöfn, 13. maí.
Frönsku vérkföllunum heldur
áfram og eru menn handteknir og
gerðar húsrannsóknir hjá þeim.
Slésvík.
Khöfn, 13. maf.
Það er tilkynt hér opinberlega,
að þýzki sendiherrann hafi stungið
uppá samningi um verndun þeirra
þýzkra manna, sem búa í hinum
danska hluta Slésvíkur og gagn-
kvæmt. Ráðuneytið danska mót-
mælir.
Bankaþj önaverkfall.
Khöfn, 13. maí.
Bankaþjónar í Berlín hafa hafið
verkfall.
Spa-fnnðinum fresiaí.
Khöfn, 13. maí.
Spa-fundinum er frestað þangað
til í júnílok.
pramsal þjöðverja.
Khöfn 13 maí.
Bandamenn hafa afhent Þjóð-
verjum fyrsta tramsalslista sinn.
Á honum eru 40 menn (sakaðir
um hernaðarglæpi); Hindenburg,
Ludendorf og krónprinsinn eru þar
ekki.
Ungverjar.
Khöfn, 13. maí.
Frá London er símað, að Horthy
rfkisstjóri í Ungverjalandi hafi boð-
ist til að etja fram herliði (vara-
sveitum) í sókninni gegn Rússum.
3rsku morðin.
Khöfn 13. maí.
Tilkynt er, að 40 írskir lögreglu-
þjónar og embættismenn hafi verið
myrtir síðan í janúar.
Verzlun Uana.
Áður hefir verið skýrt frá því
hér í blaðinu, að danskir pening-
ar hefðu fallið í verði sökum þess,
að innflutningur hefði verið meiri
en útflutningur. Af eftirfarandi
tölum má sjá, að mismunurinn
hefir verið geysimikiil síðastliðið
ár (1919)
Þá voru innfluttar vörur fyrir
2518 milj. króna, en útfluttar vörur
738 milj. kr.
Mismunurinn á inn- og útflutn-
ingi er því rúml. 1^/2 miljarður,
og er það ekki lítið, hjá ekki
stærri þjóð en Dönum.
Alþýdublaðið
er ódýrasta, fjolbreyttasta og
hezta dagblað landsins.
Kanpið það og lesið, þá
getið þið aldrei án þess verið.