Vísir - 19.04.1944, Side 4
4
V ISIR
Spellvirki
Frú Steinunn og síra Vilhjáhnur liriem.
(Myndin tekin fyrir 50 árum).
Gullbrúðkaup:
Frn Steinunn og síra Vilhjálmur Briem
k sumarbústöðum,
í vetur hafa allmikil brögð
verið að því að framin hafa ver-
ið ýmis konar spellvirki og
skemmdarverk í sumarbústöð-
um á Selási og í grennd við Bald-
urshaga.
Rúður hafa verið brotnar í
sumarbústöðunum, farið hefir
verið inn í þá og framin stór-
felld spellvirki í sumum þeirra,
en ruplað úr öðrum. Kveikt hef-
ir verið i einum sumarbústað og
skemmdist hann verulega áður
en nærstöddum setuliðsmönn-
um tókst að kæfa eldinn.
Rannsóknarlögreglunni hefir
nú tekizt að hafa liendur i hári
spellvirkjanna. Reyndust þcir
að vera drengir tveir, sem eiga
lieima í nágrQnni við sumarbú-
staðina.
Frú Steinunn og síra Vil-
hjáimúr Briem eiga í dag gull-
brúðkaup. Voru þau gefin sam-
an að Görðum á Álftanesi á
sumardaginn fyrsta 1894, en
hann bar þá upp á 19. apríl.
Síðan hafa þau jafnan minnzt
sumardagsins fyrsta sem hjóna-
bandsafmælis, og munu einnig
minnast hans á morgun ef að
vanda lætur, enda þótt nokkur-
ir vinir og ættingjar þeirra ætli
að halda þeim samsæti i kvöld.
Brúðkaup þeirra fór fram
frá heimili þeirra hjónanna frú
Frederikke og Gunnlaugs Briem
i Hafnarfirði, bróður Vilhjálms.
En þau kynntust á heimili
þeirra frú Halldóru og lÓlafs
Briem að Álfgeirsvöllum, enda
var frú Stemunn systir frú
Halldóru og Vilhjálmur bróðir
Ólafs. ;
Sumardaginn síðastan í vetri
hafði síra Vilhjálmur vígzt til
Goðdala í Skagafirði, og reistu
ungu hjónin þar bú i fardögum
um vorið. Þar búnaðist þeim
vel, þvi að þau voru samhent
og vinnusöm, og öfluðu þau
sér brátt mikilla vinsælda
sóknarbarna. Myndu þau hafa
búið þar lengi, ef veikindi hefðu
ekki neytt síra Vilhjálm til að
sækja um lausn og bregða búi.
Varð hann 1899 að leita sér
lækninga, fyrst i DanmÖrku,
síðan í Skotlandi, og dvaldi frú
Steinunn í Kaupmannahöfn
þann tíma.
Aldamótaárið komu þau
aftur heim, og var síra Vil-
hjálmi veittur Staðastáður á
Snæfellsnesi (Staður á öldu-
hrygg) vorið 1901. Reistu þau
þar hið mesta myndarbú og
undu hag sínum hið bezta. En
þau urðu aftur að bregða búi
1912, safcir vanheilsu síra Vil-
hjálms, og flytja til Reykjavík-
ur. Gerðist hann þá gæzlustjóri
Landsbankans til 1916, en var
síðan starfsmaður bankans til
1937, er hann lét af störfum
fýrir áldurs sakir. Um svipað
leyti þafði hann verið ráðinn
gjaldkéri Söfnunarsjóðs íslands,
en forstjóri hans var hann kos-
inn af Alþingi 1921, er prófess-
or Eiríkur Briem, fyrsti for-
stjóri sjóðsins lét af störfum.
Því ábyrgðarmikla starfi gegnir
sira Vilhjálmur enn, og er það
margra mál, að það starf sé í
góðum höndum, meðan hans
nýtur við.
Þeim hjónum hefir orðið
þriggja barna auðið. Elzti son-
ur þeirra, Eggert, nam verk-
fræði og síðan flugfræði og
gerðist flugmaður vestan hafs.
Hann er nú verkfræðingur í
vopnasmiðju. Gunnlaug dóttir
þeirra er gift Bjarna Guð-
mundssyni blaðamanni, og eiga
þau þrjár dætur og einn son.
Unnur dóttir þeirra er teikni-
kennari í Miðbæjarskólanum. 5
Árið 1895 tóku þau tveggja ára
gamlan fósturson, Sigurð Eyj-
ólfsson Birkis söngstjóra, sem
kvæntur er frú Guðbjörgu Jón-
asdóttur, og eiga þau eina dótt-
ur. Árið 1918 tóku þau fóstur-
dóttur, Kristínu Jónsdóttur, en
hún andaðist 1932 aðeins 17
ára að aldri. | -
Síra Vilhjálmur hefir vei'ið
sænxdur riddarakrossi Fálká-
orðunnar fyrir sín opinberu
stöi’f.
Gullbrúðhjónin eru með af-
brigðum mikils metin af kunn-
ugum jafnt sem ókunnugum.
Eaga þau margt vina og ætt-
ingja víða um land, sem fagna
með þeim á þessum merku
tímamótum. Óþarft er að rekja
ættir þeirra og arfleifð, því að
þau hafa sjálf með lífi sínu
unnið þau afrek og skipað það
rúm, að þeirra mun lengi getið
að trúmennsku, diængskap og
þjóðhollustu.
Danmörk í viðjum:
Kjör og viðhorf
Dsiiði
t Fyrirlestur Kiillerichs.
Fólk á Akureyri berst
um aðgöngumiða að
Gullna Hliðinu.
Gullna hliðið eftir Davíð Ste-
fánsson frá Fagraskógi hefir nú
verið letkið 7 sinnum á Akur-
eyri við sérstaklega góðar við-
tökur.
Leikx'itið er sýnt á hverjum
degi og berSt fólkið um að-
göngumiðana. Auk Akureyringa
sjálfra streymir fólkið að úr
nærsveitunum til að sjá leikrit-
ið. Meðal annars kornu um 40
Siglfirðingar með Esjunni síðast
til Akureyrar til að sjá leiki’itið.
Frk. Ai'ndís Björnsdóttir hefir
farið með hlutverk kerlingar-
innar í leikritinu. Hún mun
ekki getað dvalið nema tak-
markaðann tíma á Akureyri og
verður þess vegna að hraða leik-
sýningunum svo sem unnt er.
Ole KiiIIericli ritstjóri flytur
fyrirlestur um kjör og viðhorf
Dana eftir hernámið í Tjarnar-
bíó á sunnudaginn kl. 1%. Hefir *
hann eins og kunnugt er haldið
marga fyrirlestra um svipað
efni í ýmsum félögum hér í
bænum en ekki fyrr fyrir al-
menning. Það eru Norrænafé-
lagið, Dansk-islenzka félagið og
O (—...
félög Dana, sem gangast fyrir
fyrirlestrinum, en háskólaráð
hefir lánað kvikmyndahúsið ó-
keypis.
Aðgöngumiðar verða seldir
hjá Eymundsen, og vilja vænt-
anlega margir nota þetta ágæta
tækifæri til að fræðast um á-
standið í Danmörku og líðan
dönsku þjóðarinnar.
Scrutator:
O
QoAAh. afljneiwwfys
Sumargjöf.
Barnavinafélagið Sumargjöf átti
fyrir skemmstu 20 ára starfsafmæli.
Var það stofnað í því skyni að hafa
á hendi f jársöfnun til uppeldisstarfs
meðal æskulýðs borgarinnar, og
fjárrsöfnunardagurinn var valinn
sumardagurinn fyrsti. Fáum menn-
ingarfélögum hefir fylgt slík gifta
sem Sumargjöf, og má þakka það
einkum tvennu: Félagið hlaut frá
öndverðu óskiptan velvilja almenn-
ing, sem vil kunni- að meta þjóð-
nytjastarf þess, og til forystu réðust
þegar ötulir menn og konur, sem
töldu enga fyrirhöfn eftir, ef unnið
var í þágu hugsjóna félagsins.
Reynslan hefir sýnt, að fjársöfnun
félagsins á fyrsta sumardag, hefir
farið sívaxandi, og náði hún há-
marki í fyrra. En að þessu sinni
þarf að setja nýtt met, því að aldrei
hefir starfsemin aukizt leins að
vöxtum og á þessu ári, síðan
Reykjavíkurbær lagði félaginu til
barnaheimilið Suðurborg. Hinsveg-
ar hækkar opinber styrkur til fé-
lagsins einungis í hlutfalli við starf-
semina. Það er því augljóst, að til
þess að standa straum af útgjöldum
verður félaginu að berast hlutfalls-
lega aukin hjálp almennings.
Börnin.
Börnfn efu vaxtarbroddur þjóð-
félagsins, og ekkert þjóðfélag hefir
ráð á að vanrækja uppeldi barna
sinna. Á síðustu árum hafa skapazt
vandammál um uppeldi, sem áður
voru hverfandi eða óþekkt. Með
auknu borgarlífi hefir skapazt auk-
inn sollur. Með aukinni eftirspurn
vinnuaf.ls hefir dregið úr þeirir
hjálp, sem hægt er að láta húsmæðr-
um í té, svo mjög að víða horfir
til vandræða. Það er óhætt að full-
yrðá,. að margar húsmæður gætu
ekki annað störfum sínum, ef þeim
hefði ekki gefizt kostur á að koma
börnum sínum fyrir á dagheimilum
Sumargjafar, og mörg er sú ekkjan
og ógifta móðirin, sem getur þakk-
að guði fyrir að hafa getað falið
barn sitt í umsjá hinna ágætu smá-
barnaheimila félagsins, meðan hún
vinnur sjálf fyrir lífsuppihaldi sínu
og barnanna. — Af þessu er það
ljóst, að félagið innir af hendi þýð-
ingarmikið þjóðnytjastarf af fórn-
fýsi og skörungsskap. En hitt er
þó miklu meira, sem forráðamenn
félagsins telja ógert og að beri að
stefná að í náinni framtíð. En full-
vist má telja, að forysta Sumar-
gjafar mun reynast happadrjúg i
framtíðinni, svo sem hingað til, enda
verður starf þess seint fullþakkað.
Gleðilegt sumar.
Veturinn hefir verið harður, og
það er engin furða, þótt íslending-
ar fagni nú sumri af meiri hug
og bjartsýni en endranær. Vorið er
þegar tekið að keppast við að græða
sár vetrarins, en því miður eru mörg
sárin dýpri en svo, að á einu vori
grói; Veturinn kostað þjóðina mörg
mannslíf og dýr. En þeim mun
xyngri er skylda hinna, sem eftir
ifa að létta eftir föngum byrðar
þeirra, sem um sárt eiga að binda
vegna ávstvinamissis og fyrirvinnu.
Umfram allt er það skylda þjóð-
félags og borgara að búa svo um,
að börnin hljóti alla þá alúð og
kærleika, sem er nauðsynleg undir-
staða framtíðar þeirra og skapgerð-
ar. Þau eru vorið og framtíð þeirra
er sumarið.
Vísir
er átta síður í dag. — Blaðið
kemur ekki út á morgun. Næsta blað
kemur út á föstudag.
Barnadagsblaðið
verður selt á götunum í dag. Höf-
undar, sem skrifa í blaðið, eru m.
а. Freysteinn Gunnarsson, Bjarni
Benediktsson, Steingrímur Arason,
Laufey Vilhjálmsdóttir, Aðalbjörg
Sigurðardóttir, Lúðvíg Guðmunds-
son, Rannveig Kristjánsdóttir,
Stefán Júlíusson, auk yfirlitsgrein-
ar og dagskrár hátíðahaldanna. Er
blaðið fagurlega úr garði gert og
forsíðumynd þess af hinu nýja
barnaheimili Suðurborg. Blaðið
/verður selt aðeins þennan eina dag.
Ameríska sýningin.
í grein um sýninguna á 2. síðu
í blaðinu í dag hefir misprentazt
að hljómleikar eru sagðir verða ann-
að kvöld, en á að vera í kvöld.
Útvarpið í kvöld. •
Kl. 20.20 Kvöldvaka háskólastú-
denta: Ávarp: Páll S. Pálsson,
stud. jur., form. stúdentaráðs. Stú-
dentakórinn (Þorvaldur Ágústsson,
stud. med., stjórnar). Erindi: Bárð-
ur Daníelsson, stud. polyt. Upplest-
ur: Kvæði: Eiríkur Hreinn Finn-
bogason, stud. mag. Háskólaþátt-
ur: Helgi J. Halldórsson, stud.
mag. Kórsöngur. Leikrit: „Mis-
skilningurinn" eftir Kristján Jóns-
son, 2. og 4. þáttur. 22.00 Danslög
til miðnættis.
Útvarpið á morgun.
Kl. io.oo Gleðilegt sumar! 12.10
—13.00 Hádegisútvarp. iS-3°—
16.30 Miðdegistónleikar.: a) Björn
Ólafsson og Árni Kristjánsson leika
sónötu fyrir fiðlu og píanó, Op. 24
(vorsónötuna) eftir Beethowen. —
(Tónléikar Tónlistarskólans). b)
15.55 Iiljómplötur: Ýms lög. 18.40
Barnatími. 19.25 Hljómplötur: Vor-
ogsumarlög. 20.20 Sumarmála-vaka:
Söngvar. Kvæði. Hljóðfærasláttur.
22.00 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar): Vals-
ar og marsar o. fl. 22.30 Danslög til
miðnættis.
Ferming
í Fríkirkjunni sumard. fyrsta,
sra Jón Auðuns fermir: Ragnar
Kjartansson, Þórsgötu 5. Sverrir
Símonarson, Bergþórug. 2. Óskar
Ingi Ingvarsson, Tjarnargötu 10 B.
Sigurjón Einar Ingvarsson, Tjarn-
arg. 10 B. Ragnar Guðni Gunnars-
son, Sunnuhvoli. Knútur Kristján
Gunnarsson, Sunnuhvoli. Ketill-Áx-
elsson, Laufásvegi 79. Gísli Er-
lendur Marinósson, Eiríksgötu 17.
Erling Valdemarsson, Leifsgötu n.
Kolbeinn Guðjón Oskarsson, Stór-
holt 32. Ólafur Guðmundsson, Með-
alholt 13. Reynir Sigurþórsson,
Laugavegi 42. Grímur Óskar Magn-
ússon, Kárastíg 13. Einar Péturs-
son, Vatnsstíg 10. Emil Richter,
Grettisgötu 42 B. Guðmundur Borg-
ar Gíslason, Sunnuhvoli. Sigurður
Steinsson, Rauðarárstíg 17. Gunnar
Jónsson, Höfðaborg 2. Hafdís Jóns-
dóttir, Eiríksgötu 13. Sigríður Jó-
hanna Lúðvíksdóttir, Rauðarárstíg
42. Kristín Guðmundsdóttir, Leifs-
götu 11. Unnur Hafdís Einarsdótt-
ir, Kirkjustræti 6. Helga Ingunn
Kristinsdóttir, Grettisgötu 75. Sara
Jóþannsdóttir Bakka. Sigurlaug
Kristjánsdóttir, Rauðarárstíg 11.
Erna Arnar, Smáragötu 12. Björg
Eyjólfsdóttir, Jófríðarstaðaveg 15.
Elin Sigurðardóttir, Bergþórugötu
4. Guðrún Kristinsdóttir, Skóla-
vörðustígi9. Ástbjörg Halldórsdótt-
ir, Hringbraut 36. Auður Maria
Sigurhansdóttir, LaugaVegi 93. Þór-
björg Gísladóttir, Karlagötu 19.
Gjafir
til Slysavarnafélags íslands: —
Kvenfélagið „Keðjan", Reykjavik
500 kr. Samskot í Borgarhreppi, að
Brunnastöðum 226 kr. Þorm. Eyj-
ólfsson, Sigluf., til björgunarbáts
1000 kr. Ingimar Ingimarsson,
Hverfisgötu 16A 10 kr. Bjöm Bene-
diktsson og Guðriður Jónsdóttir, til
minningar um Jón Gunnar Björns-
son, er fórst með bv. „Sviði“. Gef-
ið í tilefni af 20 ára afmæli Jóns
Gunnars, 1000 kr. — Samtals kr.
2736,00. Kærar þakkir. J.E.B.
Messur á sumardaginn fyrsta.
V umarmálaguðs þjómista í Frí-
kirkjunni kl. 6. Síra Árni Sigurðs-
son. ,
FrjáUslyndi söfnuðurinn, messað
kl. 2. Síra Jón Auðuns fermir.
/ dómkirkjunni: Guðsþjónusta kl.
б. Gunnar Sigurjónsson cand. theol.
prédikar. Kl. 11 Skátamessa. Síra
Jón Thorarensen.
Guð er oss hæli og styrkur
Eftir séra Friðrik Friðriksson.
Vormaður Noregs
Ævisaga Hans Nielsen Hauga.
Eftir Jacob B. BuII.
Þetta eru góðar bækur tilvaldar til fermingagjafa og annarra
tækifærisgjafa handa ungum og gömlum.
Bókag’crðiri Olja
Dagblaðið V/sir
fæst á eftirtöldnm stöðnm:
Bergstaðastræti 10 — Flöskubúðin.
Bergstaðastræti kO.
Ávaxtabúðin — Týsgötu 8.
Stefáns Café — Skólavörðustíg 3.
Hverfisgötu 69 ■— Flórtda.
Hverfisgötu 71 — Verzlunin Rangá.
Laugaveg 34 — Tóbak og sælgæti.
Laugaveg 45 — Kaffistofan.
Laugaveg 72 — Svalan.
Laugaveg 126 — Holt.
Laugaveg 139 — Verzlunin Ásbyrgi.
Þorsteinsbúð — Hringbraut 61.
V esturgötu 16.
Konfektgerðin Fjóla.
Vesturgötu 45 — West End.
Vesturgötu 48 — Svalan.
Blómvallagötu 10.
Bókastöð Eimreiðartnnar.
Nýkomin ritsöfn
.. eftir
Chailes Dickens,
Edgar Allan Poe.
Guy de Maupassant,
Nathanael Hawthoine,
Rudyaid Kipling.
Hvert verk er 10 bindi, innbundið í smekklegt band og kostar
aðeins 50 krónur.
II.F. LIÍIFTI R
Tryggvagötu 28. — Sími 5379.
Lnðra§veit
úr ameríska hernum
undir stjóm John Corley og corp. Gomer Wolf, bary-
tónsöngvari, skemmta kl. 21,30 i kvöld á Amerísku
málverkasýningunni i Sýningarskálanum.
Lúðrasveitin leikur tónverk eftir Humperdinck,
Dringó, Iwanow,.Halvorsen og Karl ó. Runólfsson.
Gomer Wolf syngur íög eftir Hándel, Schubert,
Passard og Morgan.
BEZT AÐ AUGLÝSA 1 VÍSI.