Vísir - 16.06.1944, Síða 3

Vísir - 16.06.1944, Síða 3
inririttiviirni VISIR 5 ..........................................................................................................iiiiiiiii............ t t : VerðlaunaljóS Þjóðhátíðarnefndar. = Heill, feginsdagur, heill frelsishagur. Heil, íslenzk ættargrund. Heil, norræn tunga meS tignarþunga, hér töluð frá landnámsstund. Heil, öldin forna með höfðingja horfna, og heilir, þér góðu menn, er harmaldir báruð, sem svanir í sárum og sunguð, svo hljómar enn. Heil, nútíð fögur, með söng og sögur og sumar um dal og strönd, með ættstofn vænan og gróður grænan og hróður um höf og lönd. Heill göfgum fræðum og fögrum kvæðum, heill framtaki, útsjón og dug. Heill bóndans garði og úthafsins arði og sjómannsins hetjuhug. Kom, blessuð stund, þegar björg og grundir bergmála fagnaðarsöng. I öllu landi að sjávarsandi er sungið af barnanna þröng: Heil, móðir góða! Þú, landið ljóða og laga — nú ertu frjáls. Syng, foss og lind, syngið, sunnanvindar og svanur með hvítan háls. * Skín, blessaða frelsi, um fjörð og dal. Við fögnum þér, ljósið hreina, sem allt gerir bjart í bæ og sal og brauð gefur fyrir steina. Við unnum þér heitt frá ómunatíð gegnum allt, sem við hlutum að reyna. — 1 úthafi bláu lá ónumið land, þar alfrjálsir straumar sungu. Einn dag lentu hugdjarfar hetjur við sand með hrundir og börnin sín ungu. Þeir námu héruð og nefndu all^ á norrænni skáldatungu. Og eylandið fagra varð ættjörð góð þeim unga og týhrausta lýði, sem gaf á móti sinn ásthug og óð og örlög — í friði og stríði. Þeir hófu upp Alþing við hásumarsdýrð í hraunsalar fagurprýði. Þó háfossar tímans hrynji í sæ, af heimi ei gleymist sú tíðin. Það eyland varð sælt við eld og snæ og alfrjálsan hetjulýðinn. Það land er Island — er okkar land. Og ennþá er fegurst „Hlíðin“. Þú heilaga jörð með sögu, söng og sólstafi frelsis bjarta. Hve örlög þín síðar urðu ströng við ánauðarmyrkvann svarta. Sem djúpsærð hetja þú varðist varg, með vordraumsins ljós í hjarta. Og aldir liðu með álög mörg. En eilíf er frelsisþráin, sem nam okkar land við brim og björg og blessaði skipgengan sjáinn. Hún geymdi sín vé og hof og hörg unz harðstjórn og fals voru dáin. — Skín, blessaða frelsi, um Island enn. Við elskum þig, morgunstjarna. Þér heilsa fagnandi frjálsir menn og fagurskær söngur barna. Við heitum að vernda þig ókomin ár og örlagaslysum varna. * Hver á sér fegra föðurland, með fjöll og dal og bláan sand, með norðurljósa bjarmaband og björk og lind í hlíð? Með friðsæl býli, ljós og ljóð, svo langt frá heimsins vígaslóð? Geym, drottinn, okkar dýra land er duna jarðarstríð. ZT~ Jún í Z/Ú44 Hver á sér meðal þjóða þjóð, er þekkir hvorki sverð né blóð, en lifir sæl við ást og óð og auð, sem friðsæld gaf? Við heita brunna, hreinan blæ og hátign jökla, bláan sæ hún unir grandvör, farsæl, fróð og frjáls — við yzta haf. ó, ísland, fagra ættarbyggð, um eilífð sé þín gæfa tryggð, öll grimmd frá þinni ströndu styggð og stöðugt allt þitt ráð. Hver dagur líti dáð á ný. Hver draumur rætist verkum í, svo verði íslands ástkær byggð ei öðrum þjóðum háð. Svo aldrei framar Islands byggð sé öðrum þjóðum háð. * Syng, frjálsa land, þinn frelsissöng. Syng, fagra land, þinn brag um gæfusumur, ljós og löng, um laufga stofna, skógargöng og bættan barna hag. Syng unaðssöngva, íslenzk þjóð, syng um þitt föðurland, með fornar sögur, frægan óð, hið frjálsa Alþing, menntasjóð og norrænt bræðraband. Syng, íslands þjóð, — og þakka afl í þúsund ára raun. Við ólög þung og ölduskafl var unnið þinnar gæfu tafl og langþreyð sigurlaun. Syng frelsissöngva, frjálsa þjóð, við fánans bjarta þyt. Lát aldrei fölskvast æskuglóð, ver öllu þjáðu mild og góð. Lát ríkja ró og vit. Hulda. laugað bláum straumi: eilíft vakir auglit þitt ofar tímans glaumi. Þetta auglit elskum vér, — ævi vor á jörðu hér brot af þínu bergi er, blik af þínum draumi. Hvíslað var um hulduland hinzt í vesturblænum: hvítan jökul, svartan sand, söng í hlíðum grænum. Ýttu þá á unnarslóð Austmenn, vermdir frelsisglóð, fundu ey og urðu þjóð úti í gullnum sænum. Síðan hafa hetjur átt heima í þessu landi, ýmist borið arfinn hátt eða varizt grandi. Hér að þreyja hjartað kaus, hvort sem jörðin brann eða fraus, — flaug þá stundum fjaðralaus feðra vorra andi. Þegar svalt við Sökkvabekk sveitin dauðamóða, kvað í myrkri um kross og hlekk kraftaskáldið hljóða. Bak við sára bænarskrá bylti sér hm forna þrá, þar til eldinn sóttu um sjá synir vorsins góða. Nú skal söngur hjartahlýr hljóma af þúsund munnum, þegar frelsisþeyrinn dýr þýtur í fjalli og runnum. Nú skal fögur friðartíð fánann hefja ár og síð, varpa nýjum Ijóma á lýð landsins, sem vér unnum. Hvort sem krýnist þessi þjóð þyrnum eða rósum, hennar sögur, hennar ljóð, hennar líf vér kjósum. Ein á hörpu íss og báls aldaslag síns guðamáls æ hún leiki ung og frjáls undir norðurljósum. Jóhannes úr Kötlum. i „„...........................íf..............................................................................................................

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.