Vísir - 29.09.1944, Blaðsíða 2
t
SjúkrahúBsmálið á Akureyri:
Nefnd manna komin
hingað til viðræðna
við Alþingi.
Nýtcf/a hefir verið lagt fgr-
ir ueðri deild Alþingis frum-
varp tit laga iim bygging og
rekstur sjúkrahúss Akureyrar.
Er flidningsmaður þessa frv.
Sigurður E. Hlíðar, þingmað-
ur Akureyringa.
1. gr. frv. þessa hljóðar svo:
„Reisa skal og reka fullkomið
sjúkrahus á Akureyri fyíir
NorðIendingafjórðung.“
Mikill áhugi er ríkj andi með-
al Norðlendinga um að koma
þessu framfaramáli sem allra
'fyrst á rekspöl, enda er nú orð-
in svo brýn þörf fyrir aðgerð-
ir á þessu sviði, að ekki verður
'öllu lengur beðið. Norðlend-
ingar hafa nýlega kosið nefnd
sem komin er hingað til hæj-
arins, fil þess að eiga viðræður
um sjúkrahúsmálið við þing-
ið. I þessa nefnd hlutu þessir
menn kpsningu. Af hálfu bæj-
arstjórnar Akureyrar Steinn
Steinsen, bæjarstjóri og Gunn-
ar Jónsson, spítalaráðsmaður.
Af hálfu sýslunefndar Eyja-
fjarðarsýslu Sigurður Eggerz,
sýslumaður og af hálfu sýslu-
nefndar Þingeyjarsýslu Júlíus
Havsteen, sýslumaður. Kvenfé-
lagið Framlíðin, sem af mikl-
um dugnaði hefir unnið að
framgangi þessa máls kaus þær
frú Gunnhildi Ryel, Önnu Kvar-
an, Málfríði Friðriksdóttur og
Laufeyju Pálsdóttur sem sína
fulltrúa.
Hér fer á eftir greinarerð sú,
sem fylgdi frumvarpi Sigurðar
iHIíðar á Alþingi:
Fyrir alllöngu var Akureyr-
arspífali af dómbærum mönn-
um álitinn með öllu ófullnægj-
andi. Yar það hvort tveggja í
senn, að gamlí spítalinn var
talinn nálega ónothæfur sakir
elli og hrörnunar og að hann
fullnægði ekki kröfum tímans,
hvað útbúnað snertir. Auk þess
var hann allt of lítill, því að
aðsókn að honum hefir alltaf
verið mikil víðsvegar af land-
inu. Nýbygging sjúkrahúss á
Akureyri liefir því um langt
skeið verið efst á baugi hjá for-
ráðamönnum og heilbrigðis-
stjórn Akureyrarkaupstaðar.
Akureyrarbæ var einum um
megn að reisa nýtt og fullkpm-
ið sjúkrahús nægilega stórt fyr-
iir Norðlendingafjórðung. Var
iþví horfið að þvi ráði að end-
urbæta gamla spítalann, svo að
hann mætti teljast nothæfur
fyrir sjúklinga í bili, en sam-
timis var ráðizt í að byggja
álmu nægilega rúmgóða fyrir
skurð-, ljóslækninga- og röntg-
enstofur, og er hún hugsuð sem
liður í væntanlegri nýtizku
sjúkrahúsbyggingu. Þessi ný-
bygging liefir að vísu bætt úr
bráðustu þörfinni. En þrátt fyr-
ir það er öllum orðið ljóst, að
hygging nýs sjúkrahúss' má
’ekki dragast lengur. Háværar
raddir úr bæ og byggðum Eyja-
tfjarðar hafa iðulega heyrzt um
þessa knýjandi þörf, en nú er
svo komið, að almennur áhugi
er vaknaður um allt Norður-
land á þessari sjúkrahúsbygg-
ingu. Um þrjú þúsund alþing-
iskjósendur úr Akureyrar-
kaupstað, báðum Þingeyjar-
sýslum, Eyjafjarðar- og Skaga-
fjarðarsýslu hafa þegar sent
Alþingi áskorun um það, að
ríkið láti nú reisa og reka ný-
tízku sjúkrahús á Akureyri, er
fullnægi sjúkrhúsþörfum Norð-
lendingafjórðungs. En auk
þessa veit eg, að á leiðinni eru
samskonar áskoranir frá mörg
liundruð alþingiskjósendum, og
verða þær lagðar fram á Al-
þingi, jafnóðum og þær koma.
Útgáfubækur Reykholts h.f., Heims'
kringlu og Máls og menningar í haust.
IJókaútgáfurnar Reykholt h/f, Mál og menning og Heims-
® kringla gefa út allmargt ágætra bóka fyrir jólin í ár. Hefir
Vísir fengið upplýsingar um nokkurar helztu útgáfubækur
þessara fyrirtækja hjá Kristni E. Andréssyni magister.
Bækur -þær, sem Reykholts-
útgáfan gefur út, er m. a. bók,
sem heitir Hugsað heim, eftir
frú Rannveigu Schmidt. Er
þetta greinasafn, sem frúin hef-
ir skrifað, en formála að bók-
inni skrifar Halldór Kiljan Lax-
ness. öimu'r bók frá sama for-
lagi er 2. bindið af „Þúsund og
einni nótt“ í þýðingu Stein-
gríms Thorsteinssonar. Báðar
þessar bækur eru komnar i
bókaverzlanir.
Frá Máli og menningu og
Heimskringlu kemur m. a. út
bók eftir Eyjólf Guðmundsson,
eins konar framhald af bók
hans, „Afi og amma“, sem kom
út fyrir nokkurum árum. Heit-
ir þessi „Pabbi og mamma“ og
er frásaga af föður hans, Guð-
mundi Ólafssyni á Eyðihólum,
sem var alþekktur sjósóknai’i,
og móður hans, Guðrúnu Þor-
steinsdóttur. Er þetta einskonar
hetjusaga og stórmerkilegt rit.
„Pabbi og mamma“ er félags-
bók Máls og menningar. Tvær
jfélagsbækur eru þegar kornnar
út á áiinu, en það eru „Þrúgur
reiðinnar“, síðara bindi, og
„Tímaritið“.
„Undur veraldar" heitir mik-
ið rit og merkilegt um nútíma-
vísindi og þróunarsögu þeirra,
sem nú er verið að þýða. Að
þýðingunni vinna þeir Ágúst H.
Bjarnason, Pálmi Hannesson,
Steindór Steindórsson, Kristín
Ólafsdóttir, Guðmundur Thor-
oddsen, Björgólfur Ólafsson,
Björn Franzson, Símon Jóhann
Ágústsson, Theresía Guðmunds-
son, Hákon Bjarnason og
Trausti Einarsson. Það er ekki
búizt við að þetta rit geti kom-
izt út fyrir áramót.
„Leit eg suður til landa“ er
heiti á ævintýrum og helgisög-
| um frá miðöldunum, sem dr.
Einar Ól. Sveinsson hefir fekið
saman. Er það hliðstæð bók við
„Fagrar heyrði eg raddirnar“,
sem kom út á s.l ári.
Þá er von á bók sem heitir
„Tólf norsk ævintýri“ eftir As-
björnsen og Moe, í þýðingu frú
Theodóru Thoroddsen. Hún
verður skreytt teikningum.
Tvær ljóðabækur eru á döf-
inní. önnur er eftir Guðmund
Böðvarsson skáld á Kirkjubóli,
en hann stendur nú á fertugu.
I Hin bökin er eftir Snorra
I Hjartarson forstjóra Alþýðu-
! bókasafnsins, og mun sú bók
i vekja mikla athygli imeðal Ijóð-
! elskra manna.
Miklu fleiri bækur eru á döf-
inni, en vegna þess hve óvíst er
um prentun og annan undir-
búning, verða hér ekki taldar
/fleiri.
VISIR
50 ára.
Þonsteinn J.
^iffDrðiKon
kaupmaður.
Þorsteinn J. Sigurðsson,
kaupmaður liér í bæ er fimmt-
ugur í dag. Þorsteinn er fædd-
ur á Seyðisfirði þ. 29. sept.
1894 og er sonur merkishjón-
anna Sigui'ðar , Grímssonar,
prentara og konu hans, Jó-
liönnu Jónsdóttur Norðfjörð.
Þorsteinn er svo kunnur
Reykvíkingum og það að góðu
einu, að ekki vmðist nein á-
stæða til þess að lýsa honum
hér, en ekki verður þó svo á
Þorstein minnst, að maður
hljóti ekki að minnast einnig
á hugðarmál hans, bindindis-
liireyfinguna. Frá unga aldri
liefir Þorsteinnn unnið ötullega
að framgangi Góðtemplara-
ÞORSTEINN J. SIGURÐSSON
þingtemplar, flytur ræðu á út-
hiæiðslufundi á ísafirði í sum-
reglunnar liér á landi og mun
með réttu óhætt að fullyrða, að
fáir menn eða jafnvel engir
hafi staðið eins grandvarir og
öruggir á vei'ði fyrir bindindis-
málinu, sem hann hefir gert.
Hann liefir frá fyrstu tíð fylgt
Góðtemplarareglunni eftir af
lífi og sál og aldrei hefir hann
hvarflað frá þeirri stefnu, sem
hann tók sér sem ungur og á-
hugasamur maður, Betra, að
landið okkar ætti sem flesta
slíka menn, stefnufasta og á-
hugarika um bindindismálin.
Þorsteinn er kvæntur Þór-
önnu Símonardóttur,, hinni
ágætustu konu, sem liefir ávallt
verið ein af fremstu konurn
Góðtemplarareglunnar ogerlxún
nú stór-vai’atemplar. Er heimili
þeirra hjóna hið ánægjulegasta
heim að sækja og ekki leikur
vafi á því, að margir verða
þeir, vinir, kunningjar og
starfsbræður Þorsteins sem
heilsa upp á hann í dag og
færa honum árnaðaróskir í til-
efni þessara merkilegu tíma-
móta í lífi hans.
i Vinur.
Sum hverfl flæjarins
rafmagnsiaus í melri
en 20 tíma.
Skömmu fyrir hádegi í gær
brann í sundur háspennu-
strengur frá spennistöð við
Grettisgölu og Bókhlöðustíg.
Orsakaði bilun þessi straum-
leysi í öllum Vesturbænum, Mið-
hænum og hluta af Austur-
bænum. Hafizt var þegar í stað
handa um viðgerð og kom raf-^
magnið smám saman í hin
ýmsu hverfi bæjarins. í Ing-
lólfsstræti kom rafmagnið kl.
rúmlega 8 i morgun.
Þegar bærinn varð raf-
magnslaus skömrnu fjmir há-
degi í gær varð mörgum bæj ar-
búum það fyrst fyrir að hringja
til Rafveitunnar og spyrjast fyr-
ir um hvenær rafmagnið kæmi
aftur. En þar voru ekki greið
svör á x-eiðum höndum. Oftast
var svarið: „Það kemur bráð-
um.“
Þótt vitað sé, að Rafveitan
gerir allt sem í hennar valdi
stendur til að gera sem fyrst
Þing F.F.S.Í. rteöir
endurnýjun skipa-
stólsins.
8. Sambandsþing Farmanna
og fiskimannasambands Islands
^erður sett í Kaupþingssalnum
í Reykjavík laugardaginn 30.
sept. kl. 13.30. Þar verða mætt-
ir 40 fulltrúar frá skipstjórnar-
og stýrimannafélögum víðsveg.
ar að af landinu. Auk fastra
dagskrárliða sambandsþingsins
eru á dagskrá fyrsta fundar eft-
irtalin mál:
Dýrtíðai’rráðstafanir og verð-
uppbætur.
Viðhorf F. F. S. í. til þjóð-
mála. f
Nýbyggingar fiskiflotans og
hagnýting sjávarafurða.
Sjávarútvegsmál fyrir Al-
þingi.
Öryggi sjófax'enda.
Húsbyggingamál sambands-
félaganna.
Samanburður á launakjörum
hlutarsjómanna og annarra
launþega.
Önnur mál.
Farmanna og fiskimanna-
samband íslands hefir frá þvi
fyrsta látið sig ixiikið skipta öll
menningar- og velferðarnxál
sjómannastéttarinnar í heild og
m. a. lagt fyrir Alþingi mark-
verðar tillögur í þeim efnum,
auk þess sem það lxefir eðlilega
í því sambandi látið sig almexm
mál sjávarútvegsins allmikið
skipta. Og í því sambandi sent
Alþingi ályktanir viðvíkjan^i
aukningu og endurnýjun skipa-
stólsins, og um aukna. hagnýt-
ingu sjávarafurða.
Eins og öllum er kunnugt er
það alvai'legt áhyggjuefni allra
hugsandi maixna, hve skipastóll
okkar íslendinga er nú orðinn
úr sér genginn og að sjávarút-
vegnum þrengt á ýmsa lund. Á
sambandsþingi F. F. S. í. koma
saman fulltrúar, sem flestir eru
starfandi menn á veiðiskipa-
flota okkar og hafa því manna
bezta aðstöðu til þess að þekkja
ástand lians eins og það raun-
verulega er. Enda munu þeir
hafa liug á því, að fá nú úr því
skorið hjá Alþingi, hvaða í'aun-
hæfar ráðstafanir það vilji
gera til þess að tryggja endux’-
nýjun skipastólsins.
Auk þeirra mála, sem snerta
þannig alþjóðarheill eins og
sjávarútvegsmálin, liggja og
fyrir Sambandsþinginu nxarg-
vísleg innanfélagsmál.
við slíkar bilanir eins og þessa
í gær, er það ekki nema sann-
lgjörn krafa bæjarbúa að þeim
sé gefin greið svör þegar þeir
hringja til Rafveitunnar og
spyrja um ástæðu. Fjöldi bæj-
arbúa á atvinnu sína og af-
komu undir rafmagninu, svo að
ekki er nema eðlilegt að nokk-
ur áhugi ríki fyrir að fá að
hvað valdi slíkum bilunum og
þessum.
Kvölddagskrá útvarpsins.
Rangt er frá sagt um kvöld-
dagskrá útvarpsins í kvöld í
bæjarfréttum í dag. Birtist hér
leiðrétting, þar eð þegar var far-
ið að prenta blaðið er blaðinu-
barst leiðrétting frá útvai'pinu.
Dagskráin verður eins og til stóð
fyrir fimmtudagskvöld áður en
úlvai’psumræður voru ákveðnar
og er því rétt svona: |
19.25: Þingfréttii’.'19.40: Les- 1
in dagskrá næstu viku. 20.20:
Útvarpshljómsveitin (Þóx-arinn
Guðmundsson stjórnar): a)
La; aflokkur úr „Elverhöj“ eftir
Ku! !au. b) Vals eftir Linke. c)
Rú sneskur dans eftir Tschai-
kovsky. 20.50: Frá útlöndum
(Jón Magnússon). 21.10: Kvöld
Sá) bands íslenzkra berlda-
sjúl linga: Ávörp (Oddur Ólafs-
soi ’æknix', Jóhann Þ. Jósefsson
alþingismaður, Sigurður Nordal
prófessor). Tónleikar.
Föstudaginn 29. sept. 1944.
Imsnæðf.
Stór salur í miSbænum, hentugur fyrir hluta-
veltur, er til leigu næstu 2 mánuði. — Þeir,
sem hafa hug á þessu, sendi umsóknir fyrir
þriðjudagskvöld á afgreiðslu Vísis, merkt
„Hlutaveltuhúsnæði*
Trésmíðaverkstæði,
með nýtízku vélum og nokkrum efnis-
birgðum, er til sölu nú þegar. Semja
ber við
Ólaf Þorgrimsson hrl.,
Austurstræti 14. — Sími 5332.
BEZTAÐ AUGLÝSA I VlSI
VEKJARAKLUKKUR
nýkomnar.
Guðmundur Þorvarðsson
Öðinsgötu 12. — Sími 4132.
........1 "7... ------------------------------
Frá Laugarnesskólanum.
öll börn, sem stunda eiga nám í Laugai’nesskóla í vetur,
mæti í skólanum þriðjudaginn 3. október sem hér segir:
Börn, sem voru í skólanum s. 1. vetur
t
kl. 9, börn fædd 1931 og 1932 og eldri, ef einhver eru
— 10, — — 1933 —1934
— 11, — — 1935 ——1936
— 14, — — 1937 og önnur börn, sexri voru í sjö ára
deildxmi s. 1. vor.
Kl. 15 mæti öll börn, sem stunda eiga nám í skólanum í
vetur, en voru ekki í honum s. 1. vetur eða vor.
öll nánari fyrirmæli fá börnin í skólanum þegar þau mæta.
Ef einhver börn eru forfölluð að mæta á tilsettxnn tíma,
verða aðstandendur að mæta fyrir þau, eða gera lögmæta grein
fyrir fjarvist þeirra.
Sérstök athygli skal vakin á því, að börn, sem heima eiga
ofan Elliðaár og börn úr þeim hluta Mosfellssveitar, sem eru
í umdæmi Reykjavíkur, eiga skólasókn í Laugarnesskóla.
Kennarafundur verður mánudag 2. okt. kl. 14.
Laugarnesskóla, 27. sept. 1944.
♦
Skólastjorixtn.
Nendi§veinn
óskast strax eða fyzsta október.j
FATAGERÐIN
Hverfisgötu 57.
HÚS
á bezta stað í Höfðahverfi til sölu. Lóð rækt-
\
uð og afgirt. — Nánari upplýsingar gefur
Guðl. Þorláksson
Aus^urstræti 7. — Sími 2002.
f