Vísir - 08.11.1944, Side 1
Ritstjórar;
Kristján Guðlaugsson 1
®~3ii
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur;
Félagsprentsmiðjan (2. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn
Auglýsingar
Gjaldkeri
Afgreiðsla
Slmli
1660
5 llnui
J
34. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 8. nóvember 1944.
224. tbl.
ROOSEVELT
KJÖRINN í FJÖRÐA SINN.
Filippseyjar:
440 japanskar flug-
vélar eyðllagðar.
Japanir hafa misst 440 flug-
vélar í tveggja daga árásum
Bandaríkjamanna á Manilla í
Filippseyjum.
Er iþað bersýnilegt, að Banda-
ríkjamenn ætla að gera bæki-
stöðvarnar við borgina Japön-
um ónothæfar, áður en sótt
verður lengra norður eftir eyj-
unum. Hefir einkum verið ráð-
izt á tvo flugvelli við borgina
og margar byggingar brenndar
til ösku.
I tilkynningu frá Nimitz
flotaforingja um þetta segir og,
að sex skipum hafi verið sökkt,
en 24 hafi orðið fyrir margvís-
legum skemmdum. Tjón varð
og á hafnarmannavirkjum.
Burma:
Bandamenn ná mikil-
vægum íjallstindi.
Bandaríkjamenn hafa náð
Kennedy-tindi í Burma, 25 km.
fyrir suðaustan Tiddim.
Japanir höfðu búið þarna vel
um sig, því að með stórskota-
hríð af fjallinu var hægt að
hindra allar samgöngur í
grennd við það. Þeir lirökluðust
samt á brott fyrir fyrstu árás-
um bandamanna.
Næsta marlc bandamanna er
Fort White, bækistöð'innrásar
Japana í Indland.
Franklin D. Roosevelt
forseti.
Henry Truman
varaforseti.
|Kyrrð á víg-
stöðvunum.
Kyrrð hefir nú færzt yfir á
flestum vígstöðvum Evrópu, en
stendur að líkindum ekki lengi.
Bandamenn búa sig undir að
fara yfir Maas og eru að hreinsa
til i Walcheren. Innan Þýzka-
lands eru við og við gerð smá-
vægileg áhlaup.
Rússum hefir borizt liðsauki
til Budapestvígstöðvanna. Þeir
eru nú að reyna að umkringja
borgina.
Ný vatnsveita á
Slglufirðl.
Siglfirðingar eru í þann veg-
inn að hefjast handa um nýja
vatnsveitu fyrir Siglufjarðarbæ,
og mun vatnið væntanlega verða
tekið úr Skarðsdalsá.
Bæjarstjóri og bæjarstjórn
munu þegar vera farin að hefja
nauðsynlegan undirbúning, og
talið líklegt, að ráðizt verði í
mannvirki þetta strax og tök
verða á.
Búlgarski flugherinn, sem
berst gegn Þjóðverjum, beitir
gegn þeim steypiflugvélum, sem
Þjóðverjar höfðu látið þeim í
té.
Ólafsfirðingar hafa kom-
ið sér upp hitaveitu.
Ný sundlaug byggð þar í sumar.
Svíar lána Norð-
mönnum 100
millj. kr.
Sænska útvarpið sagði í gær,
að Svíar mundu lána Norð-
mönnum 100 millj. króna.
Norska stjórnin ætlar að
verja fé þessu til að standa
straum af ýmsum útgjöldum í
Svíþjóð á næstu sex mánuðum,
svo sem greiðslu fyrir uppihald
flóttamanna og fleira.
Tryggve Lie, dómsmálaráð-
herra Norðmanna, er kominn
til Moskva frá Stokkhólmi.
Verkföll í Manchester
Verkfall stendur yfir í gas-
stöðvum í Manchester á Eng-
landi. v
Hafa starfsmenn þar neitað
að vinna næturvinnu, en verka-
málaráðuneytið hefir heitið
þeim lögsókn, ef þeir snúi ekki
aftur til vinnu. Herlið heldur
gasstöðvunum gangandi eins og
sakir standa.
Hinn frægi læknir og vísinda-
maður Alexis Carrel er látinn
í París. Franskir læknar neit-
uðu að stunda hann í banaleg-
unni, því að hann hafði starfað
'fyrir Vichy-stjórnina.
★
Frariskur hershöfðingi hefir
verið dæmdur í ævilanga þrælk-
un fyrir að safna liði til að berj-
ast með Þjóðverjum.
Nýlega hefir verið tekin í
notkun hitaveita Ölafsfjarðar
og hefir Vísir haft tal af Þor-
steini Símonarsyni lögreglu-
stjóra í Ólafsfirði um málið.
Heita vatnið kemur frá jarð-
hilasvæði, sem er um 4 km. frá
bænum. Jarðliitasvæði þetta er
stórt um sig og þurfti ekki að
hora þar fyrir heita vatninu,
heldur aðeins að moka ofna af
því. Vatnið er um 52 gráðu
heitt og vatnsmagriið um 10
sekúndulítrar.
Valnið er leitt til bæjarins i
5 þumlunga víðum asbeströr-
um, sem eru einangruð með
reiðingstorfi og tjörupappa. Inn
í húsin er það svo leitt í járn-
rörum. Þegar er húið að leiða
heita vatnið í um 50 íbúðir, en
alls munu íbúðirnar vera um
150. Alls munu um 700 manns
njóta heita vatnsins, en auk Ól-
afsfjarðarkaupst. eiga tveir
bæir rétt til valnsins, bæirnir
Garður og Skeggjabrfekka.
Ráðgert er að ljúka öllum irin-
lögnum fyrir áramót.
Lengi hafði verið vitað um
jarðlritasvæði þetta og var það
íþróttafélag Ólafsfjarðar sem
fyrst vakti máls á því að nota
þetta heita vatn til sundlaugar-
gerðar.
Árið 1938 , var svo hafizt
handa um að grafa á svæðinu
og rannsaka málið nánar. Að
tilhlutun hreppsnefndar gerði
Trausti Einarsson efnafræðing-
ur rannsóknir þarna og árið
1942 liófust framkvæmdir und-
ir stjórn Sveinbjörns Jónsson-
ar Jiyggingameistara og Hösk-
uldar Baldvinssonar verkfræð-
ings. Kostnaðarhlið hitaveit-
unnar var í upphafi áætluð um
200 þús. kr. en mun að sjálf-
sögðu fara eitthvað fram úr á-
ætlun vegna breytinga á kaup-
gjaldi og verði á efni.
Sundlaugin, sem íþróttafé-
lagið vakti máls á að byggð
yrði er nú komin upp. Er það
nýtízku sundlaug, 8 X 25
metrar að stærð og var hún
tekin í notkun í sumar. Ekki
eru enn fullgerðir búningsklef-
ar, en ætlunin er að ljúka bygg-
ingu þeirra á næsta ári.
Útflutningsverzlun
Breta á að verða
meiri en 'nokkuru
sinni.
Sir James Grigg, hermálaráð-
herra Breta, hefir flutt ræðu
um atvinnumöguleika í Bret-
landi eftir stríð.
Kvað hann Breta mundu
verða að flytja miklu meira út
eftir stríð en áður, og væri
það sérstaklega nauðsynlegt,
þar sem ætlunin væri að bæta
lífsskilyrði manna með ýmsum
ráðum, sem mundu kosta mik-
ið fé. Með því að auka fram-
leiðsluna ætti að vera liægt að
skapa atvinnu handa 3 milljón
fleiri mönnum en fyrir stríð.
Frá b^ingamálasýningtmni
Þessar tvær myndir frá byggingasýningunni sýna ekki nema lítinn
hluta hennar og eru þær báðar teknar úr austurálmu hennar. Efri
myndin sýnir, auk útstillinga frá einkafyrirtækjum, líkan af mið-
hluta Reykjavíkurbæjar (á miðri myndinni), uppdrætti o. fl.
Neðri myndin sýnir útstillingar frá tveimur einkafyrirtækjum.
(Sjá frásögn á 2. síðu).
Bœjap
íréWit
Kvenfélag frjálslynda safnaðarins.
Dregið verðuij/i félagshappdrætt-
inu á næsta fundi, sem verður 14.
nóv. n.k. Konur, sem eiga eftir að
skila af sér miðum, eru beðnar að
gera það, sem allra fyrst til Maríu
Maack, Þingholtsstræti 25 og Guð-
rúnar Eiríksdóttur, Thorvaldsens-
stræti 6.
Happdrætti Háskóla fslands.
Dregið verður í 9. flokki á föstu-
dag. Athygli skal vakin á því, að
engir miðar verða afgreiddir á
föstudagsmorgun, og eru því síðustu
forvöð að endurnýja í dag og á
morgun.
70 ára
er í dag Guðmundur Davíðsson
fyrrv. umsjónarmaður Þingvalla.
Brúðuheimilið.
Sú prentvilla varð í frásögn um
,,Brúðuheimilið“ í blaðinu í gær,
að þar stóð Notu í stað Nóra.
Leikfélag Hafnarfjarðar
sýnir Ráðskonu Bakkabræðra í
65. sinn í kvöld kl. 9. Fara nú að
verða síðustu forvöð að sjá þenna
vinsæla gamanleik, því að hann
verður leikinn í aðeins örfá skipti
enn. Aðgöngumiðar eru seldir í
Goodtemplarahúsinu frá kl. 4 í dag.
Næturakstur
frá kl. 6 í kvöld annast Bifröst,
simi 1508.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.30 Kvöldvaka: a) Fyrsta
kirkjuferðin", frásöguþáttur eftir
séra Ásmund Gíslason (Árni Sig-
urðsson prestur). b) „Fimm ára
kom eg fyrst að Stað,“ kvæði eftir
Matthías Jochumsson (Þulur flyt-
ur). c) Upplestur: „Sjómenn“,
bókarkafli eftir Peter Tutein
(Hannes Sigfússon). d) Kvæði
kvöldvökunnar: „Erfðir“ eftir Step-
han G. Stephansson (Jónas Þor-
bergsson útvarpsstjóri). e) Mandó-
lin-hljómsveit leikur (Sigurður
Briem stjórnar).
Ilyrtnr ffyrir
dráplð á sr.
Kaj Hnnk.
Maðurinn, sem talinn er hafa
átt upptökin að morði Kaj
Munks, hefir verið ráðinn af
dögum.
Maður þessi var í þjónustu
Þjóðverja, en hafði áður verið
leynilögregluþjónn í Kaup-
mannahöfn. Hitti hann morð-
ingja síra Kaj Munks rétt áður
en þeir fóru og frömdu morð-
ið. Segir Frit Danmark, að hann
hafi nú sjálfur fundizt skotinn.
Síðustu íréttk
Síðustu fréttir af forsetakosn-
ingunum í Bandaríkjunum
herma, að Roosevelt hafi feng-
ið 18 Vz milljón og Dewey 16(4
milljón atkvæða. Roosevelt hef-
ir meirihluta í 34 fylkjum með
407 kjörmenn. Hann hefir unn-
ið New York (47 kjörmenn),
Pennsylvaníu (35), Illinois (28)
og Kaliforníu (25). Dewey hef-
ir m. a. Öhio 25).
Demokratar vinna
sæti í fulltrúadeikl-
inni.
Einangrunarsinnai:
falla.
J>að er nú sýnt’ að Roosevelt
forseti hefir verið endur-
kjörinn forseti, þótt úrslita-
tölur sé ekki enn fyrir hendi.
Miklar likur henda til þess,
að Roosevelt hafi verið kosipn
með stærri meirihluta en árið
1940, er Willkie var í framboði
gegn honum. Kjörsókn hefir
líka verið meiri en dæmi eru
til áður og er talið, að um 50
milljónir manna hafi neytt at-
kvæðisréttar síns.
Fólk sótti kjörfund snemma
dags, einkum í ýmsum stórhorg-
um, svo sem New York, Fila-
delfiu, Baltimore og víðar, enda
var sókniri mest þar.
Aðstaðan lík
og árið 1940.
Þegar byrjað var að telja at-
kvæðin, var aðstaðan í fyrstu
mjög lík og árið 1940. Fyrstu
tölur voru frá Iíansas, Ken-
tucky og New Mexico. Dewey
hafði þá betur í Kansas, enda
er það fylki gamalt virki re-
publikana. Hann var sömuleiðis
lítið eitt á undan Roosevelt í
New Mexiko. Hinsvegar var
Roosevelt sterkari i Kentucky,
enda er það eitt Suðurríkjanna,
sem eru traust í fylgi sínu við
demokrata og eru jafnan nefnd
„Solid South“ í því sambandi.
Dewey tapar
sínu fylki.
Eins og menn vita er Dewey
fylkissijóri í New York-fylki,
en honum hefir samt ekki tek-
izt að halda meirihluta þeim,
sem hann liafði við fylkiskosn-
ingarnar. f fyrstu þafði liann
meirihluta, en síðan fór Roose-
velt fram úr honum. Gekk þetta
sitt á hvað, unz Roosevelt tók
sprettinn frá Dewey og hefir nú
unnið fylkið. Þar fær hann 47
kjörmenn, stærsta liópinn úr
einu fylki.
Einangrunar-
sinnar falla.
Tveir liarðsvíraðir einangrun-
arsinnar liafa beðið osigur í
þessum kosningum. Er annar
þeirra Hapiilton Fish, sem var
fulltrúi fyrir eitt kjördæmi New
York-fylkis, og öldungadeldar-
þingmaSurinn Gerald Nye, seiu
sat á þingi fyrir fyrir N.Dakota
fylki. 1 hans stað var kosinn
John Moses, fylkisstjóri, mikill
fslendingavinur.
Dewey kannast
við ósigurinn.
Dcwey var í kosningamið-
stöð republikana í alla nótt, en
þegar sýnt þótti, að Roosevelt
hefði horið sigur úr hýturn,
talaði Dewey í útvarp og skýrði
þjóðinni frá þvi. Óskaði hann
Roosevelt til hamingju og hét
á þjóðina að styðja hann í bar-
Frh. á 4. síðu.