Vísir - 18.01.1945, Side 4

Vísir - 18.01.1945, Side 4
4 V1 S I R Fimmtudaginn 19, janúar 1945. V í S I R DAGBLAÐ Utgefandi: BLAÐAtTGÁFAN VÍSIR H/F Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 Símar 1 6 6 0 (fimm línur). Verð kr. 5,00 á mánuði. Lausasala 40 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f Tíu ndlljónii í ari ®löð núverandi stjórnarilokka liafa vissulega ^ ekki sleppt neinu tækifæri til að sanna al- menningi hvernig fyrrverandi rikisstjórn hafi verið komin með allan rekstur þjóðarhúsins á barm glötunarinnar. Allar tillögur stjórnar- innar, sem miðuðu að því að liefta útþenslu verðbólgunnar, voru stimplaðar sem hatramar tilraunir afturhaldsins til að koma á atvinnu- leysi og hruni. Það vakti því talsverða athygli, er núver- andi fjármálaráðherra upplýsti það á Alþingi í gær, er hann var að gefa yfirlit yfir ástæð- ur ríkissjóðs í sambandi við hin nýju skatta- frumvörp, að fjTverandi ríkisstjórn hefði skil- að hvorki meira né’minna en 10 milljón krón- um í ríkissjóði í hendur núvcrandi stjórnar. Þannig var viðskiliu^ður heirra manna, sem stuðningsblöð núverandi ríkisstjórnar töldu allt til foráttu og áttu engin orð yfir sem við- vaninga í meðferð atvinnu- og fjármála. En fróðlegra en þó að hera saman nokkrar stað- reyndir, sem sýna meginþættina í fjármála- stefnu fyrverandi ríkisstjórnar og þeirrar stjórnar, er nú-situr að vöhlum, og hvað þær stefnur þýða fyrir almenning í framkvæmd. Fvrverandi ríkisstjórn har fram á Alþingi í haust frumvarp til laga um stöðvún verð- hólgunnar. Samkvæmt því frumvarpi skyldu allar stéttir þjóðfélagsins leggja nokkuð að sér til að unnt yrði að hefta frekari þenslu verðbólgunnar, en jafnframt fól frumvarpið í sér ákvæði til tryggingar þeirri meginstefnu jiáverandi ríkisstjórnar, að ekki þyrfti að í- þyngja þjóðinni með frekari skattaálögúm en ])á var orðið. Þetta frumvarp og önnur úrræði stjórnarinnar, er lutu í sömu átt, sættu ein- úngis fyrirliíningu þeirra aðila, er styðja nú- verandi ríkisstjórn, og í staðinn fyrir að veita þessum tillögum nokkurt brautargengi á Al- þingi, tóku þrír stjó'rnmálaflokkar við stjórn rikisins, til að „bjarga þingræðinu“. Hin nýia rikissíjórn byrjaði feril sinn með því að gleyma dýrtiðinni, eins og hún hefði aldrei verið til. Árangurinn kom líka fljótt í ljós. Gangstætt stefnu fyrverandi ríkisstjórn- ar heíir hún látið nýjum skattafrumvörpum rigna yfir ])ingið lil samþykktar, og það sem er eftirtektarverðast, til að gera ríldssjóði mögulegt að standa undir útgjöldum, sem stjórnin hefir sjálf skapað þörf fyrir með alls konar hrossakaupum við hinar og þessar stétt- ir og samanlagt nema íugum milljóna króna. Hi nar tíu milljón krónui-,. sem fyrverandi rík- isstjórn eftirlét hinni nýju ríkisstjórn í arf, nægja ekki nema að lillu Jeyíi til að standast hin sívaxandi gjöld, er núvcrandi stjórnar- stefna í fjármálum og atvinnumálum leggur á herðar ríkisins og alls almennings í landinu. Enn er mælirinn ekki fullur: Enn vantar tekj- ur í ríkissjóð, og jafnframt heldur verðbólgan áfram hröðum skrefum upp á við. Fjármála- ráðherra gat þess í ræðu sinni í gær, að ef til ,vill yrði þörf fyrir láníiikuheimild handa rík- issjóði á haiistþinginu. - m ráðgert er að komi saman í september næsfkomandi, til að unnt væri fyrir ríkið að standa við allar skuld- bíndingar sínar um fjárgreiðslur. Þannig er fjármálum lslands stjórnað á á- byrgð mikils meiri hluta þingmanna, á einu mesta velgengistímabili, sem þjóðin hefir lifað. Aðalfundnr Bandalags kvenna í Reykjavík. Á aðalfundi Bandalags kvenna í Reykjavík, sem haidinn var þriðiudaginn 5. des. síðastl., gerðist þetta meðal annars: Ákveðið að myndu nefnd til fjáröflunar fyrir kvenna- heimilið Hallveigarstaði. Var frú Guðrún Jónasson kosin formaður nefndarinnar, en hvetju félagi sem er í Banda- laginu, ger.t að skyldú að til- nefna eina konu hvert í nefndina. Kosin var þriggja kvenna nefnd til þess að gera tillög- ur til heilbrigðis— og lirein- lætisnefndar bæjarins um ýmislegt það, er konum þyk- ir ábótavant á þessu sviði bæjarlífsins. Skyldi nefndin einnig gera tillögur um ým- islegt, er varðar fegrun bæj- arins. í nefndina voru kosn- ar: Jóhanna Knudsen, hjúkr- unarkona. Kristín ólafsdóttir, læknir. María J. Knudsen. Fundurinn fól stjórn bandalagsins að reyna að koma þvi til vegar, að haldn- ir yrðu fyrirlestrar fyrir al- menning nú í vetur um mat- vælaskemmdir, matvæla- geymslu og næringargildi hinna ýmsu fæðutegúnda. Svohljóðandi tillaga var samþykkt með öllum greidd- um atkvæðum: „Aðalfundur Bandalags kvenna i Reykjavík, haldinn 5. des. 1944, skbrar á bæjar- stjórn Reykjavíkur að ætla fé á fjárhagsáætlun næsta árs til námskeiða fyrir ung- ar stúlkur í almennum heim- ilisstörfum.“ í sambandi við tillögu þessa var því beint til IIús- mæðrafélags Reykjavikur og starfsstúlknafélagsins „Sókn- ar“, að þau beittu sér fyrir framkvæmdum þessa máls. Þá var svohljóðandi álykt- un samþykkt einróma: „Fjölmennur fundur Bandalags kvenna í Reykja- vík mótmælir eindregið þeirri ráðstöfun, að lagt verði niður annað embætti kven- Iögreglu í Reykjavík, en tel- ur þvcrt á móti, að full á- stæða sé lil, að þessum starfskonum sé fjölgað.“ Svofelld ályktun var sam- þykkl í einu hljóði: „Fjölmennur fundur Bandalags kvenna í Reykja- vík lýsir ánægju sinni yfir ])\í, að fu 11 vissa er fengin fyrir þvi, að hafizt verði handa með byggingu Fæð- ingardeildar við Landspít- alann á næsta vori og þakkar borgarstjóra Reykjavíkur og hlutaðeigandi ráðherra drengilega aðstoð þeirra.“ Viðvikjandi umræðum um skólamál var svofelld sam- þykkt gerð: „Fjölmennu fundur Banda- lags kvenna i Reykjavík skor- ar á skólastjóra við barna- skóla bæjarins að sjá um, að áherzla sé lögð á að kenna börnum háttvísi og snyrti- lega framkamu, og telur þörf á því, að lil beirrar kennslu sé varið sérstökum tima.“ Stjórn Bandalagsins skipa frú Aðalbjörg Sigurðardótt- ir formaður, Guðrún Pétur- dóttir ritari og Guðlaug Bergsdóttir gjaldkeri. Ertendur skipsíjóri heiðraður fyrir björgui „Stockholms Tidningen“ hirti 11. nóvember s.l. for- ystugrein um islenzku báta- kaupin í Sviþjóð, og telur ])au gleðilegt vitni um það, að Island vilji halda áfrain nánum samskiptum við Svi- þjóð og Norðurlönd. Segir m. a. i greininni: „Sendifulltrúi Islands, sem gert hefir ])essa miklu pönt- un, - hina mestu, sem Island hefir gert til þessa ----- segir að hún sé aðeins byrjunin á ])róun, sem vænta megi að orðið geti til góðs fyrir lönd- in bæði. Landar hans hyggja á mikil viðskipti við Svíþjóð á ýmsum sviðum. Opnast hcr markaður fyrir sænskt fram- tak í eyjarlýðveldinu, en vér getum um leið fært oss fram- leiðslu þessa í nyt. I kjölfar viðskipta fylgja jalnan menn. ingarsamskipti, og vér vitum að á sviði andans hefir Island upp á meira að bjóða en fólksfjöldi ]iess hefir hug- mynd um.“ Ríkisstjórn Islands fól sendiráðinu í London að af- henda Mr. Alexander Ston- ers, skipstjóra á enska hotn- vörpungnum Limeslade, gull- úr að gjöf, sem þakklætisvolt fyrír framkomu hans og skipshafnar hans, Jiegar ráð- ist var á „Súðina“ fyrir Norð- urlandi í júni 1943. Veittn brezku sjómennirnir hinum særðu og deyjandi íslenzku sjómönnum þá mikla aðstoð og umönnun. Hr. James A. I-acy, vara- ræðismaður Islands í Hull, af- henti Stones skipstjóra gull- úrið á skrifstofu sinni laugar- daginn 14. desember s.l., að viðstöddu fjölmenni, ]). á m. Ólafi S. Björnssyni sendiráðs- ritara, Guðmundi Jörgensýni útgerðarmanni og mörgum helztu útgerðarmönnum borgarinnar. Var ])esa getið ýtarlega i blöðunum „Daily Mail“ í IIull, „Fishing News" og „Fish Trades Gazette“. I nóvemberhefti ameríska ímaritsins „Soil Conservatic“ hirtist grein cltir Hákon Bjarnason skógræktarstjóra um íslenzka skógrækt og landgræðslumál. Greininni fvlgja ágætar myndir, í sama . hefti ergrein um Pál Sveins-1 son, frá Vík i Mýrdal, sem leggur stund á landgræðslu við Minnesotaháskólann. - Þeirri grein fylgja einnig myndir af Páli að vmsum at- ( hugunum. (Frétt lrá ríkis- stjórninni.) ÞjóSvcrjar óltast uri SheíS-húsið í Höín. Þjóðverjar hafa flutt marga þekkta Dani til Kaup- mannahafnar frá fangabúð- um í Þýzkalandi. Hafa þeír menn Jiessa í haldi á efstu hæð Shell-húss- ins, sem er hin alræmda að- albækistöð Gestapo í Kaup- mannahöfn. Tilgangurinn með þessu er si, að fæla Breta frá því að gera loft- árás á húsið, eins og þeir gerðu á aðalbækistöðina i há- skólanum x Árósum. BERGHAL Háskólinn. Fimm kennaraembætti við háskól- ann verða veitt eftir nokkrar vik- ur. SiSán skólinn fluttist í hið glæsilcga hús sitt fyrir fáeinum árum, hefir hann verið í örum vexti, fært út kviarnar ,á ýmsmn svið- um. Allir góðir menn munu' fagna þyí, að þessi æðsta menntastofnun landáins skuli taka þessum framförum, J)vi að með því móti ræt- ast vonir þeirra, sem litið hafa svo á, að skól- inn mundi þá fyrst geta farið að fullöægja þörfum þjóðarinnar, þegar hann hefði fengið sómasamlegt húsnæði og nemendur og kenn- arar gætu staifað við viðunandi skilyrði. ■f Fleiri Síðustu árin hefir verið stofnuð hag- deildir. fræðideild við skólann og síðan verk- fræoideild, eða grundvöllur lagður að henni, og tannlækningadeild. Af þessu leiðir, að þeir stúdentar, sem hafa ekki efni ti), að stunda nám árum saman erlendis, en vilja þó leggja inn á aðrar brautir en þær, sem nú eru troðnastar í háskólanum, hafa mun betri aðsiöðu en áður. Þeir geta hafið nám hér heima, en vilji þeir afja sér meiri kunnáttu, þá verða þeir að vísu að fara út fyrir landsteinana, en þurfa ekki að vera eins lengi og ef ekki hefði verið hægt að býrja hér. Þetta er mikils virði fyrir stúdentana og þjóðina í heild, þar sem efnilegir en efnalitlir námsmenn hafa þá betri aðstöðu til að komast álram. Með timanum vcrður deildunum vafalaust fjölgað enn og sú stund kemur vonandi og á- reiðanlega, að háskólinn verður slík merinta- miðstöð, að hún standi að öllu eða flcstu jafn- fætis erlendum skúlum. * Ailtaf hægt Það hringdi til mín í gær mað- að fá áfengi! ur nokklir liér í hænuin, út áf hréfi, sem hann skrifaði mér um áfengismálin. Hann er á móli þeim þrem, sem hafa þegar fengið Jínur sinar birtar. Hann — G. S. — var farinn að vcrða óþolimnóður ■ fir ’ : ð eg skyldl ekki vera húinn að birta pistiiinn hans, þótli víst hindindismennirnir of dugíeglr við skriítir, en játaði þó, að þeir 1,-íði oein liinu lil þeirra en hínir, sem v;e:u að sh\e.i:i i sig. Iiaun fór nú eiginlega fram aíi ig hyrjaði á bréfi hans, en cg veit, að það verður iesið, þótt það ræki lestina. G. S. segir: „Eg er einn hinna írjálslyndu manna, sem vilja að enn ein hreyting verði gerð á áfengis- sölnnní. Mín skoðun er sú, að ekki þýði að loka alveg fyrir, þvi að alltaf er hægt að fá áfengi, ef nienn eru nógu duglegir eða þyrstir. * Bjórinn á Ef menn ná ekki í vín, þá er hara dagskrá. byrjað að drekku óþverra, eins og t. d. hristing,- scm meun kannasl vel við. Sumir eru sagðir drekka gasmjóJk, eins og upplýst var í sölum Alþingis á sinum tíma. Þess vegna er tilgangslaust að Ioka. En eg er ekki sérstaklega að berjast fyrir viriinu. Eg vil að lcyft verði að brugga lijór, sterkari en nú er leyfður, tii néyzlu meðal Is- leiidinga, eða á horð við setuliðsbjórinn, sem iiyrjað var að framleiða fyrir hrezka setuliðið fyrir nokkurum árum. Ef á annað horð er ieyft að selja áfengi, hvers vegna éiá þá ekki selja þá tcgundina, sem veikust er, og liægt inundi að gera með útflutning fyrir augum? Þegar menn ræða um bjórinn., þá keraur alltaf einhvern tím- ann að þvi, að minnzt sé á það, að hægt mundi að afla lalsverðs gjaideyris með útflutuirigi á bjór úr hinu ágæta vatni okkar. - Það skai að lokum fúslega jótað, að áfengis- neyzlan er að verða hættuieg, en eg efast mjög um, að hægt mundi að draga úr hénui með þvi að banna áfengissölu með öllu, jafnvél þótt það yrði samþykkl við þjóðaratkvæðagreiðslu. -I1 Einræði Jafnvel þótt sú lýðræðislega að- meirihlutans. ferð yrði höfð, að láta þjóðina grciða atkvæði um þáð, hvort hún vildi láta séija áfengi i lándinú eða ekki, þá yri i framkvæmdín aldrei lýðráeðsleg. Að visu mtindi meirihlutinii ráða, eins og sagt er að só hið eina rctta, en hvað yrði mn minnihlut- ann? Hann yrði í öllu að heygja sig fyrir meiri- hlutanum, ])ótt hann væri ekki nefna rétt nægi- legur til að koma vilja sínum fram. Þar yrði því í rauninni ekki uni annaii en einræði meiri- hlutans að læða. í stjórnmálum þykir þao ekki drengilegt að hegða sér þannig, þótt enginn liiki við að gera það, þegar liann heldur að hann ge.ti látið kné fylgja kviði á andstæðing- unum. Þess vegna er alger lokun ’ekki rétta lausnin.’'

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.