Vísir - 05.04.1945, Page 3
7ISIR
3
Fimmtudaginn 5. apríl 1945
GÖMLU VESTUR-ÍSLENDINGARNIR ERU OFT MEÐ
HUGANN HEIMA Á ÍSLANDI.
íslenzkir námsmenn
í boði, er Hallgrímur Benediktsson efndi til í San Francisco
og nokrir aðrir gestir íslenzkir, er þá dvöldu þar í borginni.
Islenzkur gestur fær
ekki að fara án þess
að þiggja kaffisopa.
Viðtal við Lárus Bjarnason.
^ísir hefir fyrir skemmstu
átt tal við Lárus Bjarna-
son, sem nýlega er kominn
heim frá Bandaríkjunum,
þar sem hann lagði stund á
landbúnaðarnám.
Hvar stunduðuð þér nám
vestan hafs? spyr tíðinda-
maðurinn.
Eg var i búnaðarháskóla í
horginni Fargo í Norður-
Dakota-fylki. Það er eingöngu
landbúnaðarland, og er mest
ræktað þar liveiti og kar-
töflur. Iðnaður er þar svo
að segja enginn. Þó eru mikil
kol þar í jörðu og væntanlega
rís mikill iðnaður þar upp,
þegar lokið verður við virkj-
un Missouri-árinnar, en á þvi
verki er nú byrjað.
Ibúar ríkisins eru flestir
Norðurlandabúar, einkum
Norðmenn, Nokkuð er þar
eftir af IndjánUm, sem búa á
afmörkuðum landsvæðum
(reservation), er stjórnin
hefir úthlutað þeim.
I Islendingabyggðunum.
Heimsóttuð þér ekki ís-
lendinga á þessum slóðum?
Norðaustan til í ríkinu eru
Islendingabyggðirnar.Kom eg
þangað nokkurum siiínum og
mætti þar allstaðar hinni
gamalþekktu íslenzku gest-
risni, ekki að tala um að fara
án þess að fá kaffisopa, og
oft urðu bollarnir margir, og
margt var rabbað, margar
sögurnar sagðar, af eldra
fólkinu, þegar það hafði ver-
ið heima, hungur og hafis
gleymdist, aðeins fallegasla
minningin eftir. Gaman var
að heyra hve vel þeir héldu
við íslenzkunni, jafnvel þeir
af þriðju kynslóðinni, og ná-
búarnir, sem voru aðallega
Norðmenn og Skotar, gátu
bölvað og ragnað svo reip-
rennandi á islenzku, að vart
mundi nokkur hér standa
þeim á sporði.
Margt af hinu eldrá fólki,
er flutzt liafði að heiman,
lifir meira í málefnum Is-
lands, en málefnum Ame-
ríku. Margt af því, og eins af
yngri kynslóðinni, ætlar að
heimsækja gamla landið að
stríðinu loknu.
Islenzkar guðþjónustur eru
haldnar þar um hverja helgi,
og kringum kirkjuna hefir
skapazt stérkasti félagsskap-
ur á meðal landa vestra . Oft
er og þröng í búðinni að
„Garðar“, slæþzt og rabbað
að gömlum íslenzkum sið.
Ilvernig vegflar Vestur-ís-
lendingum ?
Yfirleitt vegnar löndum
vestra vel. Flestir stunda bú-
skap, óg enda þótt margir
hinna fyrstu landnema hefðu
— vegna ástar sinnar á hæð-
um og fjöllum — eigi stað-
næmzt á hinum frjósömu
sléttum, heldur haldið norð-
ur að sandhólunum, ])á eru
margir þeirra í röð fremstu
bænda í Norður-Dakota.
Sumir mestu kartöfluræktar-
menn þar í ríki eru Islend-
ingar.
Kartöfluræktin.
Var ekki verklegt nám við
skólann í Fargo ?
I fyrravor vann eg við nið-
ursetningu kartaflna, á veg-
um tilraunadeildar skólans.
I Norður-Dakota er nær ein-
göngu Jiotað j'itsæði, sein
hefur verið viðui'kennt af
tilraunabúum, sem ríkið
kostar. Öll vinna við nið-
ursetninguna er framkvæmd
með vélum. Mesta vinn-
an var i því fólgin, að
skera niður kartöflurnar. Svo
að segja hvert auga er not-
að, og auk sparnaðar af
þessari aðferð er sprettan
talin fljótari, en jarðvegur
verður vitanlega að vera
nokkuð hlýr, ef þessi aðfreð
á að hlessast.
IJm haustið var eg á sömu
slóðum við kartöfluuppsker-
una. Sökum þess, hve jarð-
vegur þarna er þungur'eru
ekki notaðar upptökuvélar
þær, er sekkja kartöflurnar
jafnóðum. Er það því mikið
vinnuafl, sem þarf til að tína
kartöflurnar í sekki. Sum-
staðar sá eg um hundrað
manns á sama akrinum við
tínslu. Eru ]iað mest megnis
„Mexikanar“, en af þeim er
mikið víða í Bandaríkjunum,
vegna skorts á vinnuafli.
Færa þeir sig stað úr stað,
eftir því hvar uppskeruvinnu
er að fá. Þeir eru að heita má
þeir einu, er nú ferðast um
landið i einkabílum, því að
stjórn Bandaríkjanna sér
þeim fyrir benzíni.
í Idaho og' Arizona.
. Ferðuðust þér ekkert um
landið?
Eg dvaldi einnig um tíma
bæði í Idaho og Arizona. I
sumar fórum við Jónas Árna-
son frá Múla og unnum um
tíma við skógarhögg í fjöll-
um norður Idaho. Það voru
dásamleg viðbrigði að sjá
Klettafjöllin, eftir að hafa
verið um ár á sléttum
Dakota, þar sem hvergi sést
mishæð, svo að talizt geti. Þó
var útsýni ekki mikið þaðan,
sem við vorum, greniskógur
hvert sem litið var; þó vor-
um við í 2000 m. hæð.
Kúabúin þar sem annars-
staðar í Bandaríkjunum hafa
aðeins hreinræktaðar mjólk-
urkýr af stofni, sem flutlur
hefir verið af Bretlandseyj-
um og Hollandi aðallega. -—
Bankar vestra lána eigi
bændum fé til mjólkurfram-
leiðslu, nema bændur liafi kýr
af þekktum stofni. Kýr voru
þar, sem komizt höfðu í 40
lítra á dag.
Við héldum suður til Mor-
mónaborgarinnar Salt Lake
City, sem er fegursta borg,
sem eg hefi séð.
Hvar kunnuð þér hezt við
yður ?
I Arizona var eg í nóvem-
ber s.I. Þar var daglega dá-
samleg blíða og stóð appel-
sínu- og döðlúuppskeran þá
sem hæst, er eg fór þaðan. Eg
vann þar á stórum búgarði,
er danskur maður átti, og
ræktaði harin aðallega græn-
meti. Verkafnenn voru þar
nær eingöngu Mexikanar og
spænska er mikið töluð, cnda
tilheyrði landsvæði þetta
Spánverjum um langan tíma
og í hverri Ixirg eru kvik-
myndahús, er sýna bæði
mvndir á ensku og spænsku.
I Arizona kunni eg einna
bezt við mig af þeim stöðum,
er eg kynntist í Bandarikj-
unum. Þar er mikil veður-
bliða, stórkostlegt og fallegt
landslag, sólarlagið næstum
því eins fallegt og í Reykja-
vík, en eg kýs þó heldur að
liorí'a á það úti við Gróttu.
Landbúnaður í Ameríku.
llvað viljið þér svo segja
að lokum um landbúna'ð
vestra og hér?
Aðstaða til landbúnaðar
víðast hvar í Ameríku er ger-
ólík því, sem hún er hér, en
þó má þar margt læra. Við
verðum að horfast í augu við
]iá staðreynd, að landbúnað-
urinn iiér verður að taka
miklum stakkaskiptum frá
því, sem nú er, ef hann á að
halda því sæti, er honum ber
meðal atvinnuvega þjóðar-
innar. Við höfum ekki efni á
að dreifa vinnuafli okkar á
staði,^ þar sem vinnan er
vpnulaus barátta og baggi á
þjóðarbúskapnum, eða nota
verkfæri, sem tilheyra horf-
inni líð. Við höfum eignazt
auð, og ef við eigum að halda
honum og ávaxta hann handa
komandi kynslóð, þá verð-
um við að taka nútíma tækni
i þjónustu atvinnuveganna.
Prestastefna verður
20.-22. júni næstk.
Prestastefna Islands hefst
hér í Reykjavík 20. júni n.
k. og stendur til 22. júní. —
Prestastefnan hefst með
Vinna hafin við
vatnsveitu
Sighifjarðar.
Hafin er vinna við hina
stóru vatnsveitu Sigluf jarðar
úr Leyningsá. Gert er ráð
fyrir að veitan kosti um hálfa
milljón króna.
Ain verður stífluð alllangt
uppi í dalnum, og verður
vatnið tekið úr þeirri uppi-
stöðu. Verður það leitt í líu
þumlunga víðum pípum nið-
ur í geymi á Hafnarhæðinni.
þumlunga víðum pípUm í
höfuðleiðslu hæjarins. Alls
verður vatnsveita þessi um
4,5 kílómctra á lengd.
Aírek
Sunderland-báta.
Ástralskir Sunderland-
flugbátar hafa unnið eitt
mesta flugafrek sitt í stríð-
inu nýlega.
Voru þeir sendir með þung-
an flutning nauðsynlegra her-
gagna yfir 2000 km. leið, þar
sem hvergi var hægt að nauð-
lenda alla leiðina. Fóru þeir
til herstöðva við Chindwin-
ána, og fóru þeir m. a. yfir
fjallgarð, sem sagt var að
væri 2700 m. hár, en reyndist
3600 m., er yfir hann var
flogið. Komust bátarnir heilu
og höldnu með farm sinn og
tóku hermenn, sem áttu að
fara í leyfi, til baka.
Sóknin í Asíu.
Innrás Bandaríkjamanna á
Okinawa gengur að óskum.
Hafa þeir þegar sjötta hluta
eyjarinnar á valdi sínu. Jap-
anar á eyjunni hafa sezt að
í ramgerðum virkjum um 7
kílómetra frá höfuðborg
hennar, Naha.
Bandarikjaherinn, sem
berst á Filippseyjum, hefur
náð á sitt vald eyjunni Mas-
báte við suðurodda Luzon.
Lofffloti Bandaríkjamanna
á Kyrrahafi gerði loftárásir
á ýmsar stöðvar óvinanna,
meðal annars hafnarmann-
virki í Hongkong og liern-
aðarbækistöðvar á Formosa.l
Á Arakan-vígstöðvunum í
Burma hefur 15. Indlands-
herdeildin innikróað marga
herí'lokka Japana. 14. herinn
hefur fært út yfirráðasvæði
Ný skóverksmiðja
sett á stoSn.
Þann 14. febrúar síðastlið-
inn var stofnuð hér í hænurii
ný skóverksmiðja.
Skóverksmiðja þessi heilir
„Hænir“. Hlutafé hennar er
63 þúsund krónur. Ætlun
hennar er að framleiða aíls-
konar inniskó. Þegar ástæður
leyfa verður svo hafin fram-
leiðsla á allskonar öðrum
skófatnaði. Verksmiðju-
stjórnin er skipuð af þessum
mönnum: Jón Bergsson,
Reykjavík, formaður, Árni
Mathiesen, Hafnarfirði og
GunnarThorarensen, Reykja-
vík.
guðsþjónustu í dómkirkjunni
kl. 1 e. h. Dagskrárliðir
prestastefnunnar hafa ekki
verið ákveðnir enn, en munu
verða hirtir áður en langt um
líður.
Árbók Ferðafélagsins
kemur út í þessum
mánuði.
Árbók Ferðafélags Islands
fyrir 1944 er væntanleg inn-
an skamms. Er unnið að
prentun hennar þessa dagana,
og er búizt við að prentun og
heftingu verði lokið í þessum
mánuði.
Þetta er ein of glæsilegustu
og fegurstu Árbókum, sem
Ferðafélagið hefir gefið út.
Fjallar hún um Fljótsdalshér-
að og hefir Gúrinar Gunnars-
son, rithöfutídur að Skriðu-
| þeirra serprentaðar a vandað-
an myndapappír. Ljósmynd-
irnar liafa þeir Björn Björns-
son, kaupmaður á Norðfirði,
og Gísli Gestsson, bankamað-
ur í Rvík, tekið, en þeir eru
■ báðir alkunnir áhuga-ljós-
1 myndarar.
Árbókin er samtals um 180
bls. lesmáls og mynda og
verður tvímælalaust meðáí
fallegustu bóka, sem út hafa
komið síðustu mánuðina,
enda vandar Ferðafélagið yf-
irleitt mjög til Árbóka sinna.
Ferðafélag Islands er eitt
fjölmennasta félag landsins
og hefir lelagatala þess hrað-
vaxið með hverju ári. Eru fé-
lagar nú orðnir á 6. þúsund
talsins og þarf ekki að efa,
að enn mun félagatalan auk-
ast til muna, þegar hin nýja
fallega Árbók kemur út, og
i'erðir félagsins á vorinu eru
að hefjast.
Skákþingið:
8 umferðir búnar.
Á Skákþingi Reykjavíkur
hafa nú verið tefldar 8 um-
ferðir, og eru þessir efstir í
meistaraflokki:
Guðmundur Ágústsson 6V2
vinning, Magnús G. Jónsson
og óle Valdemarsson 6 vinn-
inga, Sturla Pétursson 5
vinninga . og Steingrímur
Guðmundsson I V2 vinning. —
Þeir Guðmúndúr og Sturla
hafa engri skák tapað.
Finmi umferðir eru eftir.
Þátttakendur eru 14 alls.
í fyrsta flokki eru efstir
Róbert Sigmundsson, Þórður
Þórðarson og ólafur Einars-
son með 5 vinninga liver.
Þrjár umferðir eru eftir. —
Keppendur eru 12.
1 2. flokki er efstur Eirik-
ur Bergsson með 5 vinninga.
Tvær umferðirt eru eftir. —
Þátttakendur eru 0.
Loftvamabyigi liiin.
Fyrir nokkru var byrjað að
rífa loftvarnaskýli þau, sem
reist voru á sínum tíma á
ýmsum stöðum í miðbænum.
Búið er að hreinsa til að
baki Oddf ellowh ú si 1111, þar
sem stórt skýli hafði verið
gert. Einnig cr búið að rífa
skýlið, sem gert var fyrir
sunnan Tjarnargötu 11, og
skýlið í porti Miðbæjarskól-
ans hel'ir einnig verið rifið.
Þessa dagana er verið að rífa
skýlið á horni Bankastrætis
og Lækjargötu og skýlið þar
fyrir sunnan fer að öllum lik-
indum sömu leiðina, þegar
hitt er alvcg horfið.
Skýli þessi munu ckki vera
nauðsynleg lengur og mun
því almennt fagnað, að þau
skuli nú hverfa, því að þau
voru sízt til fegurðarauka
fyrir bæinn.
Þaðan verður það leitt í átta
Maustri, skrifað hana. 1 bók-
inni er á annað hundrað
mynda, ljósmynda og teikn-
inga og ]iar af eru margar