Vísir - 07.06.1945, Blaðsíða 6

Vísir - 07.06.1945, Blaðsíða 6
6 Notið gróðurinn. Nú er yfirstandandi sáðn- jngar o,g gróðursetningar- tíminn. í haust flytjum við uppskeruna heim í búrið okkar. Holi og nærandi grös sem reynslan og vísindin hafa sýnt að maðurinn má ekki án vera, ef lionum á að líða veL Það eru margar jurtir sem íslenzk náttúra ber okkur á borð, hara ef við vildum og kynnuin að notfæra oklcur þær sem skyldi. Hvönn þekkja allir. Hún er bráðþroska og auðræktuð. Blöðin eru holl og nærandi, ágæt í súpur og jafninga. Bragð hennar er sérstaklega lystugt og aðlaðandi. Vallhumall ætti að vera borðaður miklu meira en gert er. Það er sérstaklega lioll og græðandi jurt. Magaveikt fólk fær oft bata sem neytir vallhumals. Skarfakálið er einnig al- islenzk planta, auðræktuð og þolgóð. Skarfakál ætti að vera á liverju borði. Það er mjög nærandi, jafnast á við síírónur að næringargildi. Það er ein sú auðugasta ís- lenzk jurt af vílamínum, sem elin er. Margir þjást af vítamínleysi og er því rétt að neyta þeirra í skarfakálinu, en láta ekki snjó og frost ræna því þar sem það er til og lítt notað. Gras'aukur er afar hollur og læknar ýmsa kvilla í blóði og hjarta. Er okkur nauðsyn að.neyta hans í ríkum mæli. Hann er okkur hollari en flest annað sem móðir nátt- úra ber oss á borð. Salat og spínat eru Ijúffengir kál- réttir og hollir. Þessar jurtir, sem liér hafa verið nefndar, eru auðfengnar og einnig auðræktaðar. Við ættum að nota meira af grænum grös- um til manneldis og neyta minna af þurrkuðum úllend- iiim ávöxtum. Sumir álíla það kannske ekki eins fínt að borða íslenzka jurtarétti, en ~hoIlustan og gæðin eru trygg- ing fyrir þvi að hreysti og fjöri er okkur ekki úthlutað í ríkari mæli en þar. Al'ar þessar jurtir er hægt að fá vlijá flestum garðyrkjumönn- um. Flestum verður mjög létt um að rækta þær svo óþarft er að fjölyrða meira um þá hluti. Túnsúra, eða réttara rótarblöð túnsúrunnar, er ágætis ætijurt sem gerir fólk friskt og fjörugt. Margar fleiri islenzkar jurtir voru etnar i gamla daga svo sem njóli, blóðberg og rjúpnalauf. Einir var soðinn og seiðið drukkið i te stað. Þótti það ágætl te. Allar grænar jurtir, nýteknar áf jörðunni, eru fullar af fjörefnum og er mikill fengur að ná í þær og ættum við að neyta þeirra svo lengi sem auðið er. Jón Arnfinnsson, garðyrkjumaður. íslendingur ferst með erl. skipi. Fyrir skömmu barst sú harma- fregn hingað að íslenzkur sjó- maður, Helgi Helgason að nafni, hafi farist með ertendu vöru- flutningaskipi. Hetgi heitinn var íæddur 5. júlí 1912 og var því að- eins 32 ára er hann fórst. Hánn var sonur hjónanna Helga Jóns- sonar frá Tungu og Friðrikku Pétúrsdóttur, og eru þau hæði látin. K. R. vann 2. flokks mótið. Fór úrslitakappleikur fram i gærkveldi milti Vals og IÍ.R. og fóru leikar þannig að K.R. sigr- aði með 2 mörkum gegn einu. Friðarfögnuður veldur skemmdum á fiski, í blaðinu „Press and Journal“, 11. maí 1945, birt- ist grein um mistök, er urðu á afgreiðslu fiskiflutninga- skipa i Aberdeen dagana 8.—10. maí, vegna fagnaðar- ins, er friði var lýst i Evrópu. Segir þar m. a.: „Af friðar- fögnuðinum leiddi leiðinleg mistök á fiskimarkaði í Aberdeen. Vegna afturkall- aðra pantana kaupenda suð- ur um land, varð að fleygja um 125 smálestum af fiski í sjóinn í gær. Má búast við að meiri fiskur f.ari sömu leið, ef matvælaráðuneytið tekur élcki strax í taumana.“ í greininni er þess gelið, að i Aberdeen sé aðeins hægt að afgreiða 7—8 skip á dag, en að um þær mundir bíði um 30 skip afgreiðslu. Þess er VISIR getið, að meðal þeirra, sem biða, séu skip frá Aberdeen, Færeyjum og íslandi. Mörg blöð í Englandi geta um þessi tíðindi og krefjast róttækra aðgerða í því skyni að forða verðmætri nauð- synjavöru frá skemmdum. Reyltjavík, 5. júní 1945. Norðmenn flytja út Sskniðursnðn í ár. Samkvæmt „Bergens Tid- ende“ hefir fiskimálastjóri Norðmanna látið svo um mælt, að líkindi séu fyrir því, að Norðmenn geti farið að flytja út fiskniðursuðu strax á þessu ári. Hann segir, að þegar sé bú- ið að útvega umbúðir undir 190 þúsund dósir af smásíld og þar að auki sé von um 350 þúsund dósir til viðbót- Sumarferðalög Breið- firðingafélagsins. Eins' og undanfarin sum- ur Stofnar félagið til nokk- urra ferða. Nú þegar hefir ein ferð verið farin, var það gönguför um Seltjarnarnes á annan í hvítasunnu. Þátttak- endur voru 22. Gnnur ferð verður 9. og 10. júní í Jósefsdal. 30. júní og 1. júlí gengið á Esju. Tjaldað lijá Mógilsá. 7.—9. júlí farið að Hvera- völlum og tjaldað í Árskarði við Kerlingarfjöll. 21. júlí til 3. ágúst sumar- leyfisferð í Búðahraun á Snæfelslnesi. 4.—6. ágúst (verzlunar- mannahelgin) Dalaferð: Á ’augardaginn verður ekið að Kjarlaksstaðaá á Fells- strönd og tjaldað þar. 18. og 19. ágúst Þingvalla- ferð. Siðasta ferðin verður sunnudaginn 2. september: Berjaferð í Botnsdal. (Ef leyfi fæst). Að undantekinni berja- ferðinni hefjast allar ferðir frá Iðnskólanum kl. 2 e. h. á laugardögum. Aðgöngu- miðar verða seldir i Hattabúð Reykjavíkur, I.augavegi 10. Nánari upplýsingar gefnar ef óskað er alla virka daga í síma 2973. Fimleikasýning ísfiizku stúlknanna. Isfirzkar stúlkur úr Gagn- fræðaskóla Isafjarðar sýndu leikfimi síðdegis í gær í Iðnó, undir stjórn Maríu Gunnars- dóttur leikfimikennara. Sýningin tókst hið ágæt- asta í alla staði. Var frammi- staða stúlknanna mjög róm- uð, enda að verðleikum. Vonandi verður sýningin endurtekin, því hún er svo nýstárleg og skemmtileg, að unun er að horfa á. I byrjun sýningarinnar á- varpaði Hannibal Valdimars- son skólastjóri sýningargesti. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlof- un sina ungfú Stefanía Ágústs- dóttir, Ásum í Gnúpverjahreppi, og Guðmundur Ámundason, Bar- ónsstíg 27, Reykavík. Gamla Bíó sýnir í kvöld kl. 9 kvikmynd- ina Leyndarmál Mörthu. Aðal- hlutverk leika Marsha Ilunt og Richard Carlson. Kl. 7 sýnir það myndina Uppreist í Arabíu með George Sanders í aðalhlutverk- inu. Þá er sýnd aukamynd frá fangabúðum Þjóðverja í Belsen og Buehenwald, sem sýnir glögg- lega hina hrottalegu meðferð Þjóverja á föngum sinum. ar. Kjötverzlun og pylsugerð til sölu. Nánári uppíýsingar geíur Málflutningsskrifstoía Ein- ars B. Guðmundssonar og Guðlaugs Þorlákssonar, Austurstræti 7. Símar 2002 og 3202. K. F. U. M. Skógarmenn VATNASKðGUR Sumardvalaflokkar munu verða á vegum K.F.U.M. í sumar í Vatnaskógi sem hér segir: 1. fl. 14. júní—21. júní 5. fl. 18. júli—25. júlí 2. II. 28. júm—4. júK B. 11. 25. júlí—3. ág. (10 daga) 3. fl. 4. júlí—11. júli 7. fl. 8. ágúst—15. ágúst 4. fl. 11. júlí—18. júlí 8. fl. 15. ágúst—22. ágúst. í 3.—6. fl. verður ekki hægt að taka yngri drengi en 12 ára og í engan flokkinn yngri en 9 ára. — Piltum er að öðru leyti heimil þátttaka, á meðan rúm leyfir, hvort sem þeir eru meðlimir í K.F.U.M. eða ekki. ■ ÞÁTTI'ÖKUGJALD i vikuflokki verður kr. 90,00 fyr- ir 14 ára pilta og eldri, en kr. 75,00 l'yrir yngri drengi. Sé dvalið lengur en viku bætist við kr. 8,50 á dag fyrir pilta, en kr. 7,50 fyrir drengi. UMSÖKNUM er veitt móttaka í skrifstofu K.F.U.M., Amtmannsstíg 2B, sími 3437, alla virka daga kl. 5— e. h. Þar eru einnig gefnar allar nánari upplýsingar. Stundin er komin Á bókamarkaði vorum fáið þér óhemju af úrvals lesmáli fyrir litla peninga, — til dæmis: Heimsstyrjöldin, eftir Þorstein Gíslason. Ragnar Finnsson, eftir Guð- mund Kamban, Skuggasvein, eftir Matthías Jochumsson. Enn fremur mikið úrval af bókum eftir Kiljan, Einar H. Kvaran, Guð- mund Friðjónsson, Sigurjón Jónsson, Gunnar Benediktsson, Þórberg Þórðarson, Þorgils Gjallanda,'Kristmann, Hagalín og marga fleiri. Bókaveizlun Guðmundar Gamalíelssonar, Lækjargötu 6A. — Sími 3263. — Pósthólf 156. Fimmtudaginn 7. júní 1945 BÆIABFBETTIR □ Kaffi 3—5 alla virka daga. Veðurhorfur í dag. Næturlæknir er i Læknavarðsioiunni, simi 5030. Næturvörður er i Lyfjabúðinni Iðunni. Leiðrétting. 1 frásögn af aðalfundi Flugfó- lags íslands í blaðinu í gær var ranghermt að Eimskip hefði á- kveðið að lána F. í. 1,5 milljón kr. Upphæðin sem hér um ræðir er ekki nema ein milljón. Þetta leiðréttist hér með Næturakstur annasl bsf. Bifröst, sími 1508. Áttræð verður í dag Katrín Ásbjarnar- dóttir frá Skrauthólum, nú tiL heimilis á Túngötu 42. j Bifreiðaskoðunin. í dag eiga bifreiðarnar nr. 2501 —2000 að koma til skoðunar. Á morgun hifreiðarnar nr. 2001— 2700. Leikfélag Reykjavíkur sýnir skopleikinn „Gift eða ó— gifl“ annað kvöld kl. 8. Blómsveigur var lagður á leiði Axels heit.. Tuliníusar í gær. Voru það stjórn- ir 1. S. í. oð Bandalags ísl. skáta, sem gerðu það. Axel heitinn var forseti 1. S. 1. i 14 ár og skáta- höfðingi í 12 ár. Biskup íslands mun sækja fund biskupa í Kaupmannahöfn og hefst hann 29. júní næstk. Kom skeyti frá Damgaard Sjálandsbiskupi. Auk hans og biskups íslands, munu aðrir biskupar Danmerkur sækja fundinn svo og Berggrav Noregs- biskup, Eidem Svíabiskup og. Lehtonen Finnlandsbiskup. Útvarpið í kvöld. 19.25 Hljómplötur: Söngdansar. 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar- inn Guðmundsson stjórnar): a) Lagafiokkuf úr óperunni Carmen eftir Bizet. b) Krolls-valsinn eft- ir Lumbye. c) Marz eftir Hein- ecke. 20.50 Sögur og sagnir (Guðni Jónsson magister). 21.15 Hljómplötur: Frspgir fiðluleikar- ar. 21.25 Frá útlöndum (Björn Tranzson). 21.45 Hljómplötur: Chaliapine syngur. 22.00 Fréttir. Dagskrárlok. KR0SSGATA nr. 67. Skýringar: Lárétt: 1 Traust, 3 nagdýr, 5 ógn, 6 öðlast, 7 þræll, 8 rómv. tala, 10 talað, 12 dá, 14 allslaus, 15 auð, 17 biskup, 18 villt. Lóðrétt: 1 Töluorð, 2 slá, 3 hnettir, 4 minnka, 6 fram- koma, 9 deigt, 11 vænn, 13 dýr, 16 fleira. Ráðning á krossgátu nr. 66: Lárétt: 1 Föt, 3 búk, 5 al„ 6 lo, 7 fýl, 8 dá, 10 sarp, 12 ali, 14 ráp, 15 aða, 17 Na, 18 ógagni. Loðrétt: 1 Falda, 2 öl, 3 bolar, 4 kroppa, 6 lýs, 9 álag„ 11 ráni, 13 iða, 16 Ag.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.