Vísir - 14.06.1945, Blaðsíða 3

Vísir - 14.06.1945, Blaðsíða 3
Fimmtudaginn 14. júní 1945 VISIR 3 Snæfeliingafélagið hyggst að starf rækja sumargistihús að Búðum. I Búðahrauni er einhver íegursfi sumar- dvalarsfaður landsins. Viðtal við Ásgeir Ásgeirsson frá Fróðá. Frá Vestmannaeyjum: Mestu folksflutningar frá Eyjum síðan Ameríkuferðir lögðust niður. FlugvoSlurinn. — Hreinlætisvika. — Kúabúið. Samtök fólks úr einstökum héruðum hér í Reykjavík, sem í flestum tilfellum bera nafn sýslnanna, sem viðkom- andi fólk er frá, hafa yfirleitt margskonar áform á prjón- unum til að, styðja menning- ar- og framfaraviðleitni hér- aðanna heima fyrir. Eitt þessara félaga er félag Snæfellinga. Vísir hefir ný- lega átt tal við formann þess Ásgeir Ásgeirsson frá Fróðá o ginnt hann eftir helztu nýj- ungum, sem félagið hefir á , döfinni. Héraðssagan. — Eins og skýrt hefir ver- ið frá áður, segir Ásgeir, lief- ir verið unnið undanfarið að útgáfu héraðssögu Snæfells- ness á vegum félagsins. Kem- ur 1. og 2. hefti sögunnar út í haust. Fyrsta heftið fjallar um landnám héraðsins og er sá þáttur ritaður af próf. Ólafi Lárussyni. AnnaíLheft- ið, sem einnig kemur út í liaust fjallar um Helgafell og Helgafellsklaustur er ritað af próf. Guðbrandi Jónssyni. Framhald útgáfunnar kemur svo á næstu missirum. Þriðja heftið kemur sennilega til með að fjalla um jarðfræði- leg efni og lýsingu á Snæfells- nesi út frá jarðfræðilegu sjónarmiði. Það hefti er ritað af Jóhannesi Áskellssyni. Sumargistihús að Búðum. — Eitt af þeim nýmælum, sem Snæfellingafélagið liefir ennfremur á iprjónunum og er eitt af þess allra stærslu framtíðarmálum í svipinn er bygging og rekstur sumar- gistihúss að Búðum. 1 þessu tilliti hefir félagið fest kaup á stóru verzlunarhúsi að búð- um, sem það hyggst að láta breyta í sumargistihús. IIús þetta er mjög vandað og mun vera tiltölulega auðvelt að breyta því en tekur að sjálf- sögðu sinn tima. Búðir eru sem kunnugt er sögufrægur staður. Sumar- fegurð á þeim slóðum er við- brugðið. Rétt við gistihúsið verður forkunnar fagur og hentugur sjóbaðstaður. Fr sandurinn þar í fjöruborðinu mjúkur og ljós að lit. Skjól er svo að segja fyrir öllum áttum og hraunvikurnar á ströndinni, sem sjórinn fellur upp í eru óvenju fagrar og hentugir liaðstaðir. Búðahráún, sem umlykur svæði það sem aðallega verð- ur notað fyrir baðslað er tal- ið eitt gróðursælasta hraun landsins. Gróður þar er svo f jölskrúðugur að þess munu. ekki vera dæmi úm hraun annarsstaðar hér á landi. Undanfarin ár hefir féiagið ásamst skógrækt ríkisins unnið að ]iví að friða hraunið og græða það frekar upp. Ilefir mikið úuiinizl í þeim efnum þótt iiminn sé ekki langur sem hraunið hefir vei - ið friðað. Má vissulega vænla þess að mikill skógargfóður biómgist í hrauninu, er frá iiður. Skíða-„sport“ allt árið — Fyrir ferðamenn er þessi staður sem gistiliúsið stend- ur á og umhverfi hans mjög ákjósanlegur fyrir íerða- menn. Fögur héruð eru þar á báðar hendur en sérs'.aklega hefir það löngum verið yndi ferðamanna að ganga a Suæ- fellsjökul. Á jöklinum er auk þess möguleiki til að iðka sldðaiþróttir alit árið. Er ekki nema steinsnar frá gislihús- inu upp í jökulinn. i suraar er áformað að fullgera þjóðveginn vestur Staðarsveit og Fróðárheiði og ennfremur veginn vesiar uúi Breiðuvik að Slapa. Má gerú ráð fyrir að fferðanianna- straumur vestur um þessai’ slóðir hefjist þegar á na;sta vori. Verðiii' þörfin í'yi’ir sumargistihúsið að Búðum þá þegar mjög hrýn. Nú cr ver- ið að leggj aveg fyrir vvbaina félagsins frá aðalveginum niður að gistihúsinu og verð- ur þeirrí vegagerð væntanlega lokið á hausti komanda. Heimsóknir. — Félagið hefir liafl það fyrir reglu að fara að minnsta kosti eina ferð heim í hérað- ið á liverju sumri. Yið slík tækifæri er efnt til stórra samkvæma í héraðinu. Að þessu sinni verður mót þella sennilega haldið að Búðum. Sú regla að fara slíkar kyim- isferðir heim i héraðið hefir verið mjög mikill styrkur fýrir félagið og tengt höndn æ fastar milli þeirra Snæfell- inga, sem búsettir eru liér i bænum og þéirra sem búselt- ir eru héima i héraðinu. Sam- vinna milli félagsins og hér- aðshúa lieima fyrir hefir líka alllaf verið með ágætum og hefir það styrkt féLagið mik- ið í þeirri viðleitni þess að Nýlega liélt Rögnvaldur Sigurjónsson píanóleikari hljómleika í National Gallery of Art í Washington. Um eitt þúsund manns hlustuðu á hljómleikana og létu þeir hrifningu sína óspart í ljós. Listdómendur Washing- tonhlaðanna ijúka einróma miklu lofsorði á píanóleik Rögnvaldar Sigurjónssonar. „Times IIerald“ skrifar: „Tónlistarlíf íslands hlýtur að liafa þróazt á mjög Iiátt stig til að skapa listamann (virtuoso) sem sýnir jafn mikinn tekniskan og tón- rænan þroska og Rögnvaldur Sigurjónsson. Þessi ungi pianóíeikari liefir gífurlegt vald yfir nótrahorðinu og leikur með kraftniiklum lón þó að hann eigi einnig til mýkt. Hann þekkir margar listastefnur og virtist einkuni una sér við músik Prokofi- eff’s.“ „Daily News“: „Sonur íslands hlaut inni- legan fögnuð að launum fyrir píanóleik sinn i gærkveldi. Niðursuðuvörur unn- ar úr fiskúrgangi. Á undanförnum árum lief- ir mestum hluta af úrgangT frá flökunarstöðvum og hrað- frystihúsum á íslandi verið beinlínis fleygt, eða þá að mjög ófullkomnar verkunar- aðgerðir hafa verið notaðar til þess að gera úr lionum mjöl eða áburð. Efnatap sem af þessu hefir leitt hefir verið mikið og margra milljóna verðmæti hafa farið forgörð- um. í eambandi við nýtingu þessa úrgangs er horfur á því, að framleiðsla fóður- mjöls muni gefa beztu úr- lausnina. Jakob Sigurðsson ráðunautur Fiskimálanefnd- ar iiefir að undanförnu gert tilraunir á þessu sviði og hef- ir liann einkum lagt áherzlu á það, áð gera niðursuðuvör- ur úr fiskúrgöngum. Ýmsar vörur getur komið til mála að gera úr þessu hráefni. Ilafa nokkrar þeirra þegar verið reyndar og eru alíar horfur á að þær geti verið mjög vel markaðsliæfar ,og að sama skapi hentugar fyrir þann markað, sem húast niá við að verði i Evrópu í ná- inni framtíð. Ef verksmiðjur verða reistar til þess að nýla þann úrgang, sem nú fer for- görðum, má gera ráð fyrir, að þær gælu um leið sinnt mikilvægum störfum á öðr- um sviðum. Að lokum má gela þess, að nokkur hundr- uð dósir af tveim vöruteg- undum úr þessum fiskúr- gangi hafa þegar verið niður- soðnar og er gert ráð fyrir að þær verði notaðar sem sýnis- horn hér og erlendis. Þeir að- ilar sem kynnu að liafa áliuga á að kynnast nánar þessari framleiðslu, snúi sér til skrifstofu Fiskimálanefndar, sem gefur aliar hér að lút- andi upplýsingar. verða að sem mestu Iiði í framfara- og mennihgarmál- um héraðsbúa í lieild. Rögnvaldur Sigurjónsson kann í framtíðinni að verða talinn einn af hinum miklu meisturum píanóleiksins, því að í lionum húa voldugir píanistahæfileikar“. „Evening Star“: „Ungur og gáfaður islenzk- ur pianóleikari, Rögnvaldur Sigurjónsson, liéll í gærkveldi hljómleika í National Gallerv of Art, og injnnti leikur hans á glæsileik og meistaraleg til- þrif (virtuosity) liðinna tíma. Þó að Rögnvaidur Sigurjóns- son sé enn ungur að aldri, þá er hann þegar þaulkunnugur mörgum mismunandi lista- stefnum og músik ýmissa tíma, sem hann leikur af miklum myndugleik.“ Brandur Brynjólfsson lögfræðingur Bankastræti 7 Viðtalstimi kl. 1.30—3.30. Sími 57i3 Eftirfarardi fréttabréf hef- ir Vísir fengið frá fréttaritara sínum í Vestmannaeyjum: Talið er að um 20 fjöl- skyldur fiytji hcðan búferl- uín á þessu ári. Mun aldrei fyr jafn margt fólk hafa flult héðan í burtu, nema þá ef vera kynni þegar Ameríku- ferðirnar voru sem tiðaslar. Margt af þessu fólki er á bezía skeiði og hefir lcomist hér vel af og er þvi mikil eftirsjá í því fyrir byggðar- lagið. Flugvöllur. Hinn nýskipaði flugmákt- stjóri, var hér á ferð í marz- mánuði s.l. til þess að athuga hér flugvallarstæðið. I april- mánuði dvaldi svo Björn Fanö, verkfræðingur, liér um 3ja vikna tíma við mælingar og athuganir á flugvallar- stæðinu. Hinum væntanlega flugvelli er ætlaður staður i svonefndu Ofanleitislandi. Ekki er mér kunnugt um niðurstöður af athugunum þessara manna, en menn liér vænta sér hins bezta af komu þeirra liingað og gera sér von- ir um að nú komist veruleg- ur skriður á flugvallarmálið. Um þörfina fyrir Vestmanna- eyjar að komast í flugsam- band við meginlandið þarf ekki að ræða, hún er hverjum manni ljós, sem eilthvað til þekkir. Hreinlætisvika og utanhúsamenning. Á dögunum var fyrirskipuð hér hreinlætisvika. Virðist hún hafa borið góðan árang- ur. Utanhúsamenning hér hefir stórum balnað hin seinni ár. Margir liafa girt áf lóðir sínar og jafnvel komið upp sncjtrum skrúðgörðum. Sumarbióm þrifast hér á- gællega, en trjárækt liefir gefist misjafnlega og kenna menn sjávarseltu um. i öllum stærri hæjum á landinu munu nú fagrir lysti- garðar, sem ætlaðir eru íhú- unum til yndis og ánægju auk þess, sem slíkir griðreit- ir eru hvarvetna hin mesta hæjarprýði. Bæjarstjórn á- ætlaði á siðustu fjárhags- Biíreiðaskoðtudn. í fyrradag var síðast aug- lýsti dagur bifreiðaskoðunar- innar í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, en hún hófst 2. m,aí s.l„ og hefir því staðið í 6 vikur. Aliflestar hifreiðar í hæn- unx voru skoðaðar en ein- hverjir munu h.afa fengið frest vegna viðgerða á hif- reiðum sínum, en eins og menn vita er miög erfill að fá bifreiðar viðgerðar um Jiessar mundir og tekur í flestum tilfellum langan tíma. Nokkrai’ hifreiðar voru tekpar úr umferð, ]>ar sem þær fullnægðu ekki settuni •skilyrðum um öryggi. Þeir hifreiðaeigendur, sem eiga eftir að korna með bif- reiðar sinar til skoðunar, eru beðnir að gera það sem allra fyrst. áætlun til almenningsgarðar og verður þess vonandi ckki langt að bíða að Eystra Stakagerðistúnið verði lagt undir plóginn og hlóma- og trjárækt hafin, en garðinum er ætlaðúr staður þar. Kúabúið. Kúabúið. Bæjarsjóður liófst á síðasta ári að reka kúabú. Lét hann reisa fjós og lilöðu fyrir 50 kýr í túni Dalajarðarinnar, sem liann hafði keypt i Jiessu augnamiði. Byggingunm var ekki lokið að fullu um ára- mótin e nunnið hefir verið að því að ljúka henni nú. Allt óræktað land, sem jörðinni fylgdi hefir verið tekið til ræktunar. Búið á nú 40 kýr. Um rekstur búsins er lítiö hægt að segja, liann er ennþá í bernsku. Talið er þó að relcstur þessi muni ekki fjár- liagslega hera sig, hinsvegar verður sá hagnaður, sem af því leiðir að bæta úr mjólkur- skortinum í hænum, ekki metinn til fjár. J. ó. ó. 27 þúsand Bretar deyja í fangabúð- um Japana. Txtttugu og sjö þúsund brezkir hérmenn, sem teknir voru til fanga af Japönunx i Singapore 1942, liafa dáið í fangabúðum í Thailandi og á Malakkaskaga. Meir en 73 þúsund Bretar vorxi teknir til fanga í Singa- pore. Bandaríkjamenn leystLi nokkura þeirra úr haldi, er þeir gengu á land á Luzon. Og gáfu þeir þessar upplýs- ingar um dánartöluna. Fangarnir vol’xx látnir vinna að lagningu járnbraut- ar í frumskógum Thailands. Orsök þssearar ótrúlegu tölu dauðra var sumpart hrotta- skapur Japana og ill meðfei’ð og einnig máttleysi livíta mannsins gagnvart liitaheltis- sjúkdómum. Sérhver þeirra sjöliu manna sem Bandaríkjámenn leystu úr haldi, þegar þeir konxu til Luzoneyjár, hefir fengið malariu oftar en einxx sinni og þekkir liörnxungar heri-beri og hefir þjáðst af taugaveiki. Þeim, sem hjargað var, eru allir á hata vegi, því þeir fengu þegar i stað alla þá hjúlci’un sem kostur var á. Þeir eru nokkuð gxilir á hörund, en það er af notkun meðalsins attrahin sem notað er við malariu. Ilver og cinn þessax-a manna liefir efni i slóra hók um ráunir þær sem liann lief- nianna tíefir efni í stóra bók, verður aldrei skrifxið því allir vilja þeir heldur gleyma þess- um æfintýrum sínxmi og taka lieldur upp þráðinn aftui* eins og skilið var við hanii í Bretlandi fyrir 4 árum. Nýir kaupend u r Vísis fá blaðið ókeypiá til næstu mánaðamóta. Hringið í síma 1660 Hljómleikar í Washington: Rögnvaldur Sigurjónsson fær glæsi- lega dóma. . . . „einn af hmum miklu meisturum“ . . . (“Daily News”).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.