Vísir - 20.06.1945, Page 6
6
VISIR
Miðvikudaginn 20. júní 1945-
=víðsjá =
Um fjörutíu þúsund að-
fluttir franskir Gijðingar eru
komnir aftur til Parísar eft-
ir fjögurra ára útlegð.
Þessir menn gera nú kröf-
ur til þess að fá aftur í hend-
ur eignir þær, sem af þeim
voru teknar, er þeir voru
'reknir í útlegðina.
Þeim til mikilla vonbrigða
og undrunar virðast þeir
hvorki geta fengið húsa-skjól
né mat, eftir því sem Arthur
Greenleigh framkvæmdar-
stjóri úthlutunarnefndar
Bandaríkjanna segir.
Hann segir, að franska
stjórnin hafi álmeðið, að all-
ir sem hafi eignir Gyðinga
undir höndum beri að skila
þeim aftur, en þó með þrem-
ur mikiluægum undantekn-l
ingum. Undanþegnar eru
fjölskyldur þeirra, sem flutt
ir hafa verið úr landi, striðs-
fanga og þeirra sem settir
voru í nauðungarvinnu. En
fólk sem svo er ástatt um sil-
ur nú i a. m. k. helmingi
húsnæðis þess, sem Gyðingar
áttu í Paris.
Greenleigh segir ennfrem-
ur að hinn helmingurinn séu
Frakkar, sem af einhverjum
orsökum neiti að láta þessar
eignir af hendi og eigi að ná
eignunum úr vörzlu þeirra,
verði löglegir eigendur að
fara í mál og sé það bæði
dýri og tímafrekt, taki allt
að tveimur árum. Franska
stjórnin hefir í ráði laga-
setníngu, sem flýti slíkum
málum og hefir nefndin, sem
líthlutar. peningagjöfum í
Paris, lagt að stjórninni að
gera það eða á einhvern hátt
ráða bót á þessu.
Samt sem áður verður erf-
itt að eiga við þessi mál, því
mörg dæmi eru þéss, að fólk-
ið segi að Þjóðverjar hafi
stolið húsmunum og ýmsum
' verðmætum jafnvel þótt við-
komandi eigendur þekki þá í
fórum fólksins, sem svo
kennir Þjóðverjum um. Gyð-
ingar sam eru biínir að vera
, f jögur ár í útlegð eru tregir
á að fara að gera reki-stefnu
út af slikum málum.
Fimm Gyðingar búa oft
saman í einu herbergi. Vegna
þcss að það er auðveldara að
draga fram lifið í sveitum,
hafa nefndirnar í smábæj-
unum varað Gyðinga við að
flytja þangað fyrst í stað.
Þeir 20 þúsund Gyðingar sem
í París eru, eiga miklu erf-
iðara með að litvega sér mat-
væli en Frakkar sjálfir, því
þeir eiga enga ættingja, sem
senda þeim matarböggla of-
an úr sveit, sem títt er með
aðra Frakka.
Nefndin rekur þrjú gisti-
hús og 15 matsöluhús fyrir |
heimilislausa Gyðinga, og
" þár að aúki styrkir hún j
fjölda þeirra, sem ekki hafa
getað fengið vinnu ennþá.
Nefndin hefir einnig stofn-
sett skóla fyrir áhugaflokka
í ýmsum iðngreinum og rek-
ur sömuleiðis hvíldarheim-
ili fyrir Gyðinga.
. Greenleigh segir að áirið
1930 hafi verið 300 þúsund
Gyðingar i Frakklandi. Síð-
an fluttú 50 þúsund til við-
bótar til Frakklands frá nær-
liggjandi löndum, fyrsta ár
stríðsins. Þjóðverjar fluttu
burt nímlega 127 þúsund, af
þeim voru skotnir eða dóu í
fangabúðum um 10 þús.
Kringum 50 þúsund telur
hann að hafi fluttzt til ann-
<7rra landa.
500,000 Japanar
í úlfakreppu.
Rúmlega hálf milljón jap-
anskra hermanna á sér ekki
undankomu auðið frá Java,
Súmalra, Malakka-skaga og
fleiri Iöndum þar um slóðir.
Með þvi að bandamenn
hafa náð öruggri bækistöð á
norðvesturströnd Borneo er
siglingaleiðin frá Japan til
Austur-Indía Hollendinga
rofin raunverulega, þótt ein-
staka hraðskreitt skip kunni
ef til vill að geta komizt leið
þessa, þegar veður eru svo
slæm, að flugvélar geta ekki
haldið vörð.
Talsamband
opnað við
Daiunörku.
Talsímasamband var opn-
að í fyrradag við Danmörku,
og fór fyrsta samtalið fram
milli Ólafs Thors forsætis-
ráðherra og Jóns Krabhe
sendifullltrúa.
Ráðherrann hóf samtalið
með því að segja að íslend-
ingum væri það gleðiefni að
kringumstæðurnar væru nú
orðnar svo breyttar í Dan-
mörku, að bægt væri að tala
í síma milli landanna. Þá
bað hann sendifulltrúann
skila kveðju til allra íslend-
inga í Danmörku frá forseta
ísland og ríkisstjórninni, enn-
fremur að flytja konungi
Dana, rikisstjórn, og dönsku
þjóðinni samskonar kveðjur.
Jón Krabbe kvað öllum ís-
lendingum líða vel og bað
forsætisráðherra fyrir kveðj-
ur sínar og allra íslendinga í
Danmörku til fósturjarðar-
innar. Samtalinu lauk með
þvi að ráðherrann þakkaði
Krabbe fyrir störf hans í
þágu íslands nú á stríðsárun-
um, en Krabbe kváð sér það
jafnan hafa verið mikil á-
nægja að starfa að málefnum
íslands. (Frá ríkisstjórninni).
Reykjavíkur-mótið.
Valur vann Fram með 1:0.
Þriðji leikur Reykjavíkur-
mótsins fór fram í gærkveldi
á íþróttavellinúm. Fram og
Valur kepptu.
Veður var óhagstæt, all-
hvass á suðaustan og dálitil
rigning öðru hverju.
Valur lék fyrst undan
vindinum, sem að visu var
aðeins skáhallt með. Setti
Guðbrandur (Val) mark, er
16 mín. voru af fyrri hálf-
leik, en annars gerðist lítið
markvert.
Enda þótt almennt væri bú-
izt við að Fram myndi jafna
í siðari hálfleik, þar sem þeir
höfðu vindinn með sér, kom
allt fyrir ekki og tókst hvor-
ugum að skora. Skorti þó
ekki tækifæri á báða bóga.
í heild sinni var leikurinn
mjög jafn, en langt frá því
að vera vel leikinn. Mun
veðrið liafa valdið þar miklu
um.
Dómari var Sigurjón Jóns-
son.
Næsti leikur mótsins er í
kvöld. Keppa þá IvR. og Vík-
ingur.
SlMA
í tvö ár getur sá fengið,
sem getur leigt tvö her-
bergi og eldhús, helzt í
austurbænum. Fyrirfram-
greiðsla. Tilboð, merkt:
„Sími“ sendist afgr. Vísis
fyrir 23. þ. m.
Údýrt leirtau.
Stakir diskar, djúpir og
grunnir, desertdiskar og
bollapör.
Pétur Pétursson,
Hafnarstræti 7.
Sími 1219.
Vantai vélviikja
og menn vana véla og mótor-viðgerðum.
Hamai h/f.
Yfir sumar-
mánuðina
er skrifstoíum vorum lokað kl. 5 e. h.
alla daga nema íaugardaga, bá kl. 12 á
hádegi.
Kolavezzlanir í Reykjavík.
SJÖMENN!
Matsvein og nokkra vana liáseta vantar á síldveiði-
skip. Upplýsingar í símum 5580 og 1324 eftir kl. 6 í
kvöld og næstu kvöld.
VÖRUBIRGÐIR
til sölu:
Vörubirgðir verzlunarinnar á Grettisgötu 74 eru
til sölu:
Matvara,
Þurrkaðir ávextir,
Niðursuðuvörur,
Nærfatnaður og Silkisokkar,
Smávara, ýmiskonar o. m. fl.
Vörurnar eru til sýnis í verzluninni í kvöld og
næstu kvöld eftir kl. 8. — Tilboð afhendist á sama
stað.
Tjöld,
Sólskýli,
Svefnpokar,
Bakpokar,
Sport- og ferða-
fatnaður, allsk.
„GEYSIR'h/i
Fatadeildin.
BÆJAEFRÉTTIR
Næturlæknir
er í Læknavarðstofunni, símL
5030.
Næturvörður
er í Laugavegs Apóteki.
Næturakstur
annast B. S. R., sími 1720.
Skipafréttir.
í gær kom leiguskip Eimskipa--
félagsins, Eastern Guide. Þá koni
Lagarfoss frá Halifax. Hafði hann
verið 9 daga á leiðinni að vest--
an.
Sala togaranna í s.l. viku:
Kópanes 103 smál. fyrir 9.626
stpd. Drangey 166 smál. fyrir
9.571 stpd. Geir 154 smál. fyrir
9.048 stpd. Ilaukanes 185 smál.
fyrir 10.709 stpd. Belgaum 187
smál. fyrir 10.496 stpd. óli Garða
182 smál. fyrir 11.131 stpd. Kári
185 smál. fyrir 10.504 stpd. Bán
124 smál. fyrir 7.268 stpd. Þór-
ólfur 212 smál. fyrir 12.164 stpd.
Venus 233 smál. fyrir 13.318 stpd.
M.s. Esja
var í morgun kl. 10 stödd 120
mílur suðaústur af Portlandi.
Hjónaefni.
Þann 17. júní opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Áslaug Sigurz
(Sig. Sigurz), skifstofumær, Ás-
vallagötu 31 og Árni Jónasson
(Ben. Jónasonar verkfr.), teikn-
ari hjá Hamri h.f.
Kveðjur milli þing-
forseta.
Forseti sameinaðs Alþing-
is, Gísli Sveinsson, sendi stór-
þingi Noregs, þegar það kom
saman 14. þ. m., svo látandi
kveðjuskeyti:
Eg óska liinu frjálsa norska
stórþingi heilla og blessunar.
íslendingar fagna því, aö
samvinna geti bafizt milli
frændþjóðanna beggja, sem
nú njóta fulls frelsis.
Þessu skeyti svöruðu for-
setar stórþingsins, Hambro
og Monsen, hinn 17. júní, á
þessa leið:
Stórþing Noregs sendir Al-
þingi kveðju á frelsisdegi ís-
lands, með þöklc fvrir ó-
gleymanlega hjálpsemi og ör-
læti og fagnar hinni bróður
legu samvinnu, sem fram
undan er, í fullu trausti þess,.
að aldrei týnist vegur milli
vina.
KROSSGATA m. 74.
Skýringar:
Lárétt: 1 Fugl, 3 lindýr„.
5 drykkur, 6 skip, 7 húsdýr,
8 ending, 10 sögn í spilum, 12
efni, 14 fæðu, 15 rúmlega, 17
tveir eins, 18 drýpur.
Lóðrétt: 1 Vökvi, 2 band, 3
í perum, 4 töpuðu, 6 drekk, 9
deigla, 11 Óhreinindi, 13
klæði, 16 tveir eins.
Ráðning á krossgátu nr. 73:
Lárétt: 1 Væl, 3 ham, 5 of,
6. N.E., 7 mey, 8 gá, 10 frek,
12 aða, 14 afi, 15 urr, 17 L.N.,
18 hramma.
Lóðrétt: 1 Volga, 2 æf, 3
heyra, 4 merkin, 6 nef, 9-
áður, 11 efla, 13 Ara, 16 R.M.