Vísir - 25.06.1945, Síða 3
VISIR
3
Mánudaginn 25. júní 1945
Héraðs- og gagníræðaskólastjórar
vilja stofna menntaskóla í sveiL
Vilja, aS útgáfa kennslubóka verði frjáls og að nem-
endurnir eigi bækurnar sjálfir._________
^ fundi skólastjóra héraðs-
og gagnfræðaskóla, sem
haldinn var hér í bænum
dagana 11.—13. júní síð-
asth, var rætt um frum-
varp það um gagnfræða-
nám, er milliþinganefnd í
skólamálum hafði samið.
Á fundinum voru m. a.
samþykktar eftirfarandi til-
lögur:
„Fundur héraðs- og gagn-
fræðaskólastjóra beinir þeim
tilmælum til milliþinga-
nefndar í skólamálum, að
hún geri það að tillögu sinni,
að menntaskóli verði stofn-
aður í sveit liið fyrsta til þess
að auðvelda æskumönnum
sveitanna menntaskólanám“.
„Fundurinn telur, að út-
gáfa kennslubóka eigi að
vera frjáls og öllum heimil,
því að þann veg verði bezt
tryggð eðlileg þróun i vali og
útgáfu námshóka, enda verði
fræðslumálastj. jafnan á
verði um, að ekki skorti
nauðsynl. kennslubækur. Þá
telur fundurinn einnig rétt,
að nemendur kaupi og eigi
þær bælcur, er þeir nota við
nám; einnig lítur hann svo
á, að æskilegast sé, að
fræðslumálastjóri annist út-
vegun erlendra kennslu-
tækja og kennslubóka“.
„Fundurinn telur, að hér-
aðs- og gagnfræðaskólar
skuli ekki starfa lengur en
7*4 mánuð á ári hverju, til
þess að æskumenn þeir, er
skólana sækja, slitni ekki úr
tengslum við lífrænt at-
vinnulíf þjóðarinnar“.
Svohljóðandi tillaga sam-
þykkt með öllum atkv.:
„Fundurinn samþykkir að
kjósa þriggja manna nefnd,
er vinni að þvi við fræðslu-
málastjóra, kennslumálaráð-
herra og Alþingi, að laun
héraðs- og gagnfræðaskóla-
kennara og kennara Eiða-
skóla verði greidd eins og
ákveðið er í 16. og 29. gr.
launalaga, þótt kennslutími
skólans sé styttri en 9 mán-
uðir. Má henda á það, að
skólarnir geta að öðrum
kosti húizt við því, að beztu
kennarar hverfi frá þessum
skólum og leiti sér starfs,
þar sem kennslutími er lengri
og árslaun því hærri. Þá fel-
ur fundurinn nefndinni að
beita sér fyrir því, að héraðs-
skólakennarar verði færðir í
sama launaflokk og gagn-
fræðaskólaeknnamr."
í nefndina voru kjörnir
samhlj.: Þórir Steinþórsson,
Ilanníbal Valdimarsson og
Sigfús Sigurhjartarson.
„Fundur héraðs- og gagn-
fræðaskólastjóra, haldinn í
Rvk. dagana 11.—13. júní ár-
ið 1945, leyfir sér að skora
á Iiið háa Alþingi að sam-
þykkja frumvarp það um
gagnfræðanám, er millþing.a-
nefnd í skólamálum hefir
lagt fram.“ —
Auk þessa, sem að framan
gétur vpru samþvkktar
nokkurar tillögur um breyt-
ingar á frumvarpi milli-
j)inganefndar.
Blaðaummæli um
Rögnvald Sigurjóns-
son.
Herloginn af Gloucester,
landstjóri í Ástralíu, er far-
inn í heimsókn til ástralskra
Jiersveita á N.-Guineu.
Undir fyrirsögninni
„Píanóhljómleikar Rögn-
valds Sigurjónssonar liljóta
mikið lof“, skrifar dr. Glenn
Dillard Gunn í „Times-Her-
ald“ í Washington 11. júni.:
„Tónlistarlíf íslands hlýt-
ur að hafa náð talsvert háu
stigi, úr því að þar hefir skap-
azt annar eins meistari í
tækni og tónlistartilþrifum
og Rögnvaldur Sigurjóhsson,
sem lék í gærkveldi i National
Gallery.
Þessi ungi píanóleikari hef-
ir gifurlegt vald yfir nótna-
borði slaghörpunnar. Hann
hefir geysi-kraftmikinn tón
og á samt yfir mikilli mýkt
að búa. Hann þekkir margar
listastefnur og virðist eink-
um geðfellt að leika liina
glæsilegu kafla Prokofieffs.
Efnisskráin var samin ut-
an um hina miklu H-moIl
sónötu Liszts. Hver sá sem
ræðst í að leika þetta steigur-
mikla listaverk með þeim
kjarki, skilningi og tðekni,
sem það krefst, hlýtur að
vekja virðingu kunnugra
manna, enda þótt á kunni að
greina um einstök atriði í
meðferðinni.
Þessi sónata hefir inni að
lialda næstum hvert einasta
af vandasömustu atriðum
píanóleiks og virðist sjá fyr-
ir flestum musikstefnur nú-
timans. Um leið er liún há-
markið í þeirri list að fara
með stef og umhreyta þeim.
Það er ekki hægt að fullyrða
að Sigurjónsson hafi útskýrt
fyllilega hinn mikla boðskap
þessa verks. En hann hvikaði
ekki frá neinu af erfiðleikum
þess og birti niikið af hinni
glóandi rómantík þess. Hinar
háðslegu mótsagnir i skerz-
óinu fóru heldur ekki fram-
hjá honum.
Næstur Liszt að háðslegri
andagift er Prokofieff, og er
hún áberandi í laginu „Sugg-
estion Diabolique“, sem Sig-
urjónsson lék af skapi og
innblæstri. Á undan Proko-
fieff lék hann tvær prelúdíur
eftir Debussy, hina loft-
kenndu „Bruyeres" og gam-
ansömu „General Lavine“.
Með Chopin sýndi Sigur-
jónsson -æsku sína og þær
takmarkanir, sem skólagang-
an hefir sett. Hann lék F-dúr
Nocturne með hlýju, syngj-
andi tón og fallegum stil.
En lionum tókst miður með
mazúrkana op. 7 nr. 5, op 41
nr. 4 og op 63 nr. 5. Ef til vili
hefir hann ekki heýrt hina
slavnesku listamenn Rach-
manioff og Horowitz leika
þessa gimsteina slavnesks
tónskáldskapar.
Hann virtist taka pedala-
hendingar hinna þýzku útgef-
enda alvarlega, þótt þær séu
í mótsögn við stíl Chopins í
mazúrkum og völsum. Efnis-
skránni lauk með tokkötu
Schunvmns."
Barn
dettur
í hver
Síðastl. fimmtudag vildi
það hörmulega slys tjl að
þriggja ára gamalt stúlku-
barn féll í hver á Reykja-
völlum í Biskupstungum
með þeim afleiðingum að
það beið bana af.
Slysið vildi til um kl. 2
um daginn og mun barnið
hafa verið að leika sér
skammt frá hver þeim er
það féll í. Var brugðið
fljótt við og náð í lækni á
Eyrarbakka en barnið lézt
skömmu eftir %ð hann
kom.
Svíai sigruðu Dani
með 2:1.
f gærdag fór fram milli-
landakeppni í knattspymu
milli Svia og Dana. Sigruðu
Svíar með 2 mörkum gegn
einu.
Fyrra hálfleik lauk nieð
sigri Dana, einu niarki gegn
engu, en í seinna hálfleik
tóku Svíarnir að spjara sig
og tókst þeim að setja 2
niörk og vinna þannig leik-
inn. Keppnin fór fram i Svi-
þjóð og voru áhorfendur
geysimargir. Leikn.um var
útvarpað og var hann mjög
skemmtilegur og spennandi.
Neskirkju berst höíð-
ingleg gjöf.
Nýlega hefir sóknarprest-
inum, sr. Jóni Thorarensen,
verið afhent höfðingleg gjöf,
að upphæð 2000 krónur —
tvö þúsund krónur — lil
minningar um lijónin Jón
ölafsson og Sigríði Ólafs-
dóttur, er bjuggu að Bústöð-
uní í Seltjarnarneshreppi nær
50 ár.
Var Sigriður fædd 20. sept.
1850, dó 20. nóv. 1931, en
Jón var fæddur 24. júní 1845,
d. 13. marz 1924 og þvi liðin
100 ár frá fæðingu hans, en
i tilefni þessa aldarafmælis
1 færa börn hinna mætu hjóna
Neskirkju þessa höfðinglegu
gjöf til minningar um for-
eldra sína, sem bjuggu svo
lengi hér i Seltjarnarnes-
hreppi i nágrenni Reykjavík-
ur.
Fyrir hönd kirkjunnar færi
eg gefendunum heztu þakkir.
Guðm. Ágústsson,
(p.t. féhirðir).
í „Evening Star“ skrifar
Elena de 'S'ayn á þessa leið:
.... „Leikur lians minnti
á hin meistaralegu tilþrif
(virtuosity) liðinna tíma.
Framh. á 6. síðu
Ærnar dóu ór hungri.
Nýlega fundust nokkrar ær
dauðar úr hungri skammt frá
Útvarpsstöðinni.
Menn, sem fór ofan í jarð-
hús, sem herinn hafði haft
þar, fundu ærnar. Virðast
þær hafa leitað skjóls i jarð-
húsjnu einhvern tímann, j)eg-
ar veður var illt, en liurðin
siðan fallið að stöfum, svo að
kindurnar hafa ekki komizt
út aftur og látið þarna lif
sitt.
Kappreiðar Fáks í gær:
Kolbakur, eip Jéhanns Guðmunds
sonar, setti nýtt, glæsilegt met
1350 metra stökki,
Skemmdir á símahringmgaráhöldum
Skeiðvallarins.
& kappreiðum Fáks, sem
fóru fram á Skeiðvellinum
við Elliðaár í gærdag’
kepptu 19 hestar í fjórum
flokk ujn, en úrslitasprettir
voru þrír. Nýtt met var sett
í 330 m. hlaupi.
Einn aukasprettur varð að
fara fram, vegna þess að
ekki var hægt að taka tim-
ann nákvælega. Höfðu ein-
hverjir skemmdarvargar
gert sér leik að því í fyrri-
nótt að eyðileggja síma-
hringingaráliöldin, sem cru
þarna á staðnum og notuð
eru við mælingu tima. Var
strax tekið til við að lag-
færa simann, en það tók
nokkra stund og var ekki i
lokið nógu tímanlega, til
þess að hægt væri að notast
við hann.
Hér fer á eftir yfirlit yfir
hlaupin.
Skeið, 250 metra:
Fjórir hestar tóku þátt í
skeiðinu og fóru leikar þann-
ig í fyrra hlaupinu:
1. Gletta (Vilborgar Guð-
mundsd.) 24.7 sek.
2. Randver (Jóns í Varma-
dal) 24.8 sek.
3. Þokki (Friðriks Hannes-
sonar) 25.5 sek.
Þessir þrír hestar kepptu
svo til úrslita og lauk þeim
þannig:
1. Randver á 24.2 sek., en
það er mettimi.
2. Gletta á 24.3 sek.
3. Þokki á 25.0 sek.
300 m. stökk.
Á 300 metra stökki voru
reyndir 9 hestar og var
keppt í tveim riðlum. i fyrra
riðli varð fyrstur Hrímnir
(Jóhanns Guðm.) á 24.8 sek.,
annar Freyfaxi (ól. Þórar-
insson) á 24.8 og þriðji
Geysis (Kristins Einarss.)
á 24.9, en i seinna riðii varð
fyrstur Sörli (Ásbjörns Sig-
urjónssonar) á 22.5 sek.,
annar Hrimfaxi (Sig. Hall-
bjarnarsonar) á 22.6 sek. og
þriðji Jarpur (eign Happdr.
Hestm.fél. Hafnarfj.) á 22.8.
Úrslit á þessu sprettfæri
urðu sem hér segir:
1. Freyfaxi 22.9 sek.
2. Geysir 23.0 —
3. Hrímnir 23.0 —
4. Jarpur 23.2 ~
350 m. stökk.
Revndir voru 5 hestar,
þeir fljótustu, sem til munu
vera hér á landi núna.
Timi náðizt ekki í tveimur
fvrstu sprettunum (annar
aukasprettur), en þess má
geta, að Hörður (Finnhoga
Einarssonar) vann báða
sprettina með sóma. Eins og
fyrr gelur var það vegna
skemmda á simahringingar-
áhöldunum, að ekkFnáðizt
tími á þessum sprettum, en
úrslit urðu þessi:
1. Kolbakur (Jóh. Guð-
mundssonar) á 25.5 sek.,
sem er nýlt met á þessu
sprettfæri, en fyrra met-
ið átli Drottning (Þor-
geirs i Gufunesi) 25.6,
sett þ. 6. júni 1938.
2. ör (eign h.f. Sprettur)
25.8 sek.
3. Kolbakur (Ásbj. Sigur-
jónssonar) 26.2 sek.
4. Hörður (Finnboga Ein-
arssonar) 26.0 sek.
í öllum sprettunum,-sem
að framan greinir tóku þátt.
nokkrir nýir hestar og jók
það á skemmtun áhorfenda,
en jx'ir voru frekar fáir.
Veðbankinn starfaði og
gaf hann mest 25-faldan
hagnað| á Kolbak (Jóh. Guð-
mundssonar).
Kappreiðarnar fóru vel
fram og var veður mjög hag-
stætt til keppninnar.
Finnbjörn Þorvalds-
son setur nýtt met í
200 m. hlaupi.
Finnbjörn Þorvaldsson
setti nýtt met i 200 metra
hlaupi á Innanfélagsmóti
1R. s. 1. laugardag. Illjóp
hann á 23.0 sek., sem er ein-
um tiunda úr sek. betra met
en Sveins Ingvarssonar, KR.
frá 1938.
Finnbjörn vann cinnig 60
mctra híaupið og hljóp þáð
á nákvæmlega sama tima og
metið — 7.1 sek., — en það
var sett af Jóhanni Bcrnhard,
KR. 1943.
í gær liélt innanfélagsmót
ÍR. áfram og var þá keppt i
4x100 m. boðhlaupi fyrir
drcngi. Selti A-sveitin nýtt
drengjamet á 47.9 sek. Gamla
metið — 48.0 sek. — átti
drengjasveti ÍR. frá 1943.
Innanfélágsmót Ármanns
hófst einnig á laugardag. Setl
var eitt drengjamet i 110
metra grindahlaupi. Methaf-
inn heitir Ólafur Nielsen,
kornungur piltur og efnileg-
ur. Hljóp hann á 17.5 sek.,
en gamla metið var 17.9 sek.,
sett af Finnbirni Þorvalds-
syni, ÍR. 1943.
Skýrt verður nánar frá
mótinu á morgun.
Ný símaskrá væntan-
leg í ágúst.
Eftir því sem ólafur Kvar-
an, ritsímastjóri hefir tjáð
Vísi, er nú unnið af miklu
kappi að því að prenta nýju
símaskrána.
Sagði ritsimastjóri, að gera
mætti ráð fyrir þvi, að síma-
sktáin niúmli verða tilbúin
seint í ágúst, ef ekki óviðráð-
anlegar ástæður hömluðu.
Sir Hugli Biniréy flötúför-
ingi hefir verið útnefndur
landstjóri í Tasmaniu við