Vísir - 18.08.1945, Síða 4
4
V I S í R
Laugardaginn 18. ágúst 1945
VÍSIR
DAGBLAÐ
Utgefandi:
BLAÐAUTGÁFAN VISIR H/F
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
Símar 16 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 5,00 á mánuði.
Lausasala 40 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Aflabrestur
Síldveiðin Iiefur brugðizt á þessu sumri. Al-
gerlega er óheyrt að verulegar síldargöng-
ur komi eftir þennan tíma, enda gerast veður
rysjótt og því óhægara að stunda veiðarnar.
Þó munu þess dæmi, að skip hafa sótt veiðar
allt til miðs septembermánaðar, en þá hefur
veiðin verið næg út ágústmánuð og sjómenn
- unað vel sínum hlut. Nú, þegar alger afla-
hrestur hefur á orðið, teljá útvegsmenn að
sjómenn séu mjög tcknir að ókyrrast og hugsi
til heimfarar. Þcirra hlu.tur verður rýr á sumr-
inu, og svo verður hlutur alla útvegsmanmi,
sem skaðazt hafa um milljónir króna að öllu
samanlögðu.
Heildarverð síldarafurða mun hafa nupiið
xöskum 40 milljónum króna þegar bezt hefur
látið, en líklegt var talið að þær afurðir yrði
unnt að selja fyrir enn meira á þessu ári, ef
veiði ekki brygðist. Einstaklingar og hið op-
inbera munu beinlínis hafa miðað sumar ráð-
stafanir sínar við sæmilega afkonni á síldveið-
íunum, en sýnilegt er að nauðsyn ber til að
gripið verði til þess varaforða, sem við eigum
í erlendri mynt, til þess eins að afla okkur
lífsnauðsynja, en síðan verða aðrar greiðsl-
ur að ganga þar á eftir, jafnvel þólt hið
opinbera kunni að eiga í hlut. Fisksölur hafa
yfirleitt verið frekar lélegar í sumar á brézk-
um markaði og bætir það á engan liátt horf-
urnar.
Hrvggilegt er hversu afkoman hefur verið
léleg það sem af er árinu. Af því mættu menn
þó læra margt, ef skilningur væri fyrir hendi,
og er það þá fyrst augljóst, að þótt við höf-
um aukið mjög á erlendar inpistæður þjóðar-
ánnar erlendis yfir stríðstímann, eyðist sá sjóð-
:ur fljótlega, þégar af er tekið, en lítið eða
ekkert kemur í staðinn. Við verðum ennfrem-
ur að horfast í augu við þá staðreynd, að all-
ur fiskiskipaflotinn er nú verr undir húinn
að mæta óhöppum en hann var fyrir ári, enda
jafnvel líkindi lil að gera verði sérstakar ráð-
stafanir til þess að bjarga þeim, sem eignazt
liafa skip mcð afarkostum eða ekki í'engið
færi á að greiða skipin niður, en öllu öðru
síður geta útvegsmenn staðizt hallarekstur á
komandi vetrarvertíð, eftir hinar algerlega
misheppnuðu síldveiðar. Er ekki kominn tími
til að menn athhugi sinn gang,' vilji þeir á
annað borð tryggja hag sinn og þjóðarinnar?
Sá tími virðist ekki fjarlaégur* sem l'jármála-
ráðherra vék að í sumar að koma mundi, er
almenningur yrði að horfast í augu við rót-
tækar aðgerðir til þess að verjast að allt yrði
að engu, sem aflazt hefur. Hvort vilja menn
cnn lifa í stundarvímu, eða horfast í augu við
þá staðreynd, að hér er aðeins forboði þess,
æem verða vill?
Þótt eríiðlega haf’i gengið á árinu, er eng-
in ástæða til að örvænta. íslenzka þjóðin get-
ur lifað góðu lífi og tryggt öllum börntlm
sínum örugga framtíð, vilji þau sjálf eitthvað
td þess gera. Engu þarf að fórna, en minnast
jiess eins, að ekki er síður vandi að gæta feng-
ins fjár en afla. Á næstu mánuðum verður
k’erbreyting á afkomu atvinnuveganna, en á
uæstu árum verðum við að standast eldraun-
ina. Fyrsta gangan hefur mörgum reynzt
happarýr. Vonandi verður svo ekki um hið
Unga íslenzka lýðveldi.
I Kvennágullið.
Framh. af 2. síðu.
sínum. Af þvi að eg sá mynd
úr Ben Ilúr uppi á vegg,
beindi eg talinu að þeirri
kvikmynd.
„Mussolini var heldur en
ekki blekktur með þeirri
mynd.* Við tókum hana á
ítalíu og hann hélt að við
ætluðum að sýna glæsileik
Rómaveldis hins forna, svo
að hann vildi allt fyrir okkur
gera. En þegar við vorum
kómin lieim og hann fékk að
sjá kvikmyndina fullgerða,
þá fékk hann næstum því
slag. Iletjan var ungur Gyð-
ingur, áhangandi Ivrists, en
þorparinn Rómverji.“
Eg tók nú upp vasabók og
fór að velta þvi fyrir mér,
með hvaða spurriingu eg ætti
að byrja sjálft viðtalið. En
Bushman var gamalkunnur
gestum eins og mér, svo að
hann tók málið i sínar hend-
ur.
Framtíðar-
fyrirætlanir.
„Það liafa liklega ekki ver-
ið birt fleiri viðtöl við nokk-
urn annan mann en mig,“
tók hann til máls. „En þau
liafa bara öll verið eins og eg
vil liafa þetta dálítið öðru
vísi. Eg fæddist í Baltimore.
Pabbi vildi að eg yrði læknir,
en mamma vildi láta riiíg
verða prest. Þó vildi hún um
fram allt, að eg yrði mikill
maður — að mér yrði reist
minnismerki í Washington.
Eg vildi nú lilca vera mestur
á öllum sviðum.
Fyrsta ævintýri mitt var,
að eg hljóp að heiman með
hringleikahúsi. Eg fannst þó
íljótlega aftur, en þá var eg
orðinn staðráðinn í þvi að
verða leikari. Eg taldi liraust-
an líkama undirstöðu allrar
velgengni í lífinu og byrjaði
þvi á allskönar íþróttum.
Þær leiddu ])ó ekki til annars
en að eg fékk taugaáfall
seytján ára gamall.
Foreldrar minir voru mjög
andvígir öllu leikhúslífi, svo
að eg varð að stelast út á
kveldin, til að kynria niér.
það. Eg var notaður sem
varaskeifa og fékk þannig
smáhlutverk. Eg átti í alls-
konar básli þá, því að eg
kvæntist átján ára gamall og
átti fyrir konu og börnum að
sjá.
Kvikmyndirnar
koma.
Svo komu kvikmyndirnar
og þegar mér gafst tækifæri
til að leika í þeim, fór að
ganga vel. Eg varð frægur,
en eg féklc aldrei neinn frið,
hvar sem eg var staddur,
heima eða erlendis. En svo
kom straumrofið. Hjóna-
skilnaður og sorg — og
fóíkið snéri við mér bakinu.
Eg varð aftur óþekktur og
brautin varð þyrnum stráð.
Lánið brosti aftur við mér
andartak, þegar eg lék í Ben
Húr. en svo var eg aftur út-
skúfaður. Eg sá að eg yrði að
.reyna nýjar leiðir og snéri
mér að útvarpinu. Þar gekk
mér vel. Svo hauðst mér
hlutverk í myndinni Wilson
— örlítið lilutverk — en síð-
an liefir rriér elcki hoðizt
annað. En það er kvikmyridá-
félögunum, sem menn eiga
að vorkenna, þvi að eg hefi
komizt á þann hátind, sem
cnginn mun ná eða kynnást.“
Það var ekkert h'tillæti til
í þessum manni, fannst mér.
Þetta var eins og stórkostleg
leiksýning. Mig langaði til að
klappa honum lof í lófa —
en liann var ekki búinn að
tala út. Ifann sagði mér frá
vinnunni við kvikmyndirnar
i ’gamla daga.
I
Auðvelt að
verða forstjóri.
Essanay, félagið, sem hann
starfaði fyrir keypti handril
að kvikmyndum fyrir tíu til
fimmtán dollara. Ef maður
gat selt því þrjú handrit, þá
var hann gerður að forstjóra.
Það var sama, þótt liann
vissi ekkert um kvikmyndir.
Ef hann gælti þess að eyða
ekki meira en 2000 fetum af
filmu, þá var hann ágætur.
Tveggja þátta myndir voru
teknar á hálfum öðrum degi
og einu sinni var 3ja þátta
mynd gerð á þrem dögum.
Þá eyddi kvikmyndastjóriiin
200 fetum í óþarfa og var
hótað uppsögn fyrir eyðsl-
una!
„í gamla daga varð maður
að LEIIvA,“ segir Buslnnan.
„Það varð að sýna áhorfend-
um við hvað maður átti, þeg-
ar maður skók Jinefann,
brosli eða andvarpaði. Lát-
bragðið var seperanto þeirra
tíma. Nú er ftiinni hraði i
öllu, en það er líka óþarfi að
gera eins mildð úr lilutunum
og áður.
Sér ekki eftir
neinu.
Eg sé ekki eftir neinu og
rriundi lifa lífinu alveg á
sairia hált aftur, ef mér gæfist
tækifæri til þess. Eg lifi ekki
í gamla tímanum, eins og
sumir, heldur skemmti mér
við líðandi stund. Um daginn
fór eg í kvikmyndahús, þar
sem sýndar voru gamlar
kvikmyndir. Eg sá sjálfan
mig og fór að skellihljá. Við
hliðina á mér sat gömul kona,
sem sagði mér, að hafa ekki
svona hátt. „Það skal enginn
lilæja að honum, ef eg má
ráða,“ sagði liún.
Eg veit, hvernig gömlu
konunni var innan hrjóst. Eg
vil heldur ekki að neinn
lilæji að honum. Jafnvel ekki
hann sjálfur. Eg man vel
eftir þvi, þegar eg ^ar að
aura saman, til þess að geta
séð liann í gamla daga.
Baðmullariðnað^
ur Breta ekki
< þ|óðnýttur.
Baðmullariðnaður Breta
mun ekki verða þjóðnýttur,
segir Sir Stafford Cripps.
Ilann er, sem kunnugt er,
verzlunarmálaráðherra í
hinni riýju stjórn Attlées og
var nýlega á ferð í Lanca-
shire, þar sem bómullariðn-
aður Breta hefir aðsetur sitt.
Kvað hann stjórnina mundu !
gera það, sem hún gæti, lil
þess að treysta betur grund-
völí þessa iðnaðar og muridi
opinber nefnd skipuð í þeim
tilgangi. Þá segir Cripps, að
ef til vill mundi stjórnin
verða að draga úr fatnaðar-
skammti almennings.
Forsætisráðherra lepp-
stjórnarinnar í Indo-Kína,
sem Japanar settu þar á stofn
hefir hvatt alla íbúa landsins
til þess að halda áfram bar-
áttunni fýrir sjálfstæði sínu.
Hann hélt ræðu og réðist í
henni á Frakka og sagði að
ekki kæmi lil mála að landið
kæmist aflur undir áhrif
])eirra. Hann sagði, að það
væri skylda hvers manns í
kmdinu, að láta lieldur lífið
í baráttunni gegn yfirráðum
Frakka, en að komast aftur
undir stjórn þeirra.
Ræsi út „Annar einkabílstjóri“ hefir sent
um sveitir. mér umkvörturiarhréf það, sem
her fer' á eftir. Iiann segir: „Eg
sé að einkabílstjóri (G-...) hefir sent berg-
máli kvörtun um ófærð á veginum meðfram
Hafnarfjalli og má segja, að hann liefir lög að
mæla. En hann hcfði vel mátt bæta við kvört-
uri urri fyrirkomulag á ræ’sum eða smábrúm víða
út um sveitir^ en úr þvi að hann hefir ekki gert
það, þá ætla eg að gera það. Eg vona, að þessi
kvörtun beri árangur, því að mörg ræsa þeirra,
sem mikil umferð er um, eru bókstaflega stór-
hættuleg, þegar bílstjórar, sem eru óvanir veg-
unuin, eru á ferð.
*
Ræsin eru Víða háttar svo til, að vegurinn er
of mjó. breiðari en ræsið, sem í honum er.
Hefir hann þá að líkindum verið
breikkaður eftir að hann var lagður uppruna-
lega, en ekki hirt um að breikka ræsin jafn-
framl, svo að öðrum megin er skarð inn í veg-
inn, mismunandi langt. Þess er rétt að geta, að
sums staðar, þar sem svona háttar til, hefir
grjót verið látið við ræsið, til að vara veg-
farendur við hættunni, en því er bara ekki að
heilsa, að þetta sé alltaf gert og skapar það
talsverða hættu, þótt ekki hafi komið að sök, svo
að menn viti. En hættan leynist þar samt
*
Ræsin nái út Það virðist ekki mundu vera svo
fyrir veginn. ýkja kostnaðarsamt, að gera þa'ð
að fastri reglu, að hafa ræsin
alltaf breiðari en veginn, þegar vegir eru lagðir.
Það vita allir, að vegirnir eru alltaf beikkaðir
síðar meir og þá verður komizt hjá þeiiri snún-
ingum, sem i því eru fólgnir að þurfa að breikka
ræsin og þá verður lika bægt burtu liættunni,
sem stafar af því^, að ræsin verða of irijó, þegar
vegurinn er breikkaður. Skal eg svo ekki hafa
þessi orð fleiri um ræsin, en snúa mér lítillega
að útskotunujrf á vegunum.
' *
Þu-rfa aði vera Sums staðar á landinu eru út-
auðkennd. skot á vegum — staðirnir, þar
sem vegir hafa veið breikkaðir
lítið eitt, til þess að auðveldara sé að mætast
—- véí'ið merkt, en þó vantar mjög á, að þetta sé-
algengt. Eg hefi víða farið um landið og liefir
mér allaf fundizt mikill hægðarauki að þvi að
aka þá vegi, þegar jafnan er hægt að sjá, liVort
maður sjálfur eða bíll, sem á móti kemur, er
nær útskoti. Það kenntr lika í veg fyrir tafir,
þégar engin liætta er á því, að bílar mætist
mitt á milli útskota og annara verður að
„bakka“ langar lei'ðir. Ætti að gera það að reglu,
að auðkenna útskot á vegum hvarvetna, á land-
inu.“
'
Gasið. Eg hefi ekki oft heyrt kvartað undari:
gasleysi hér i bænum, en .þó lteld eg,
að það sé nokkuð títt, að lieldur Íítill þrýstingur
sé í gasæðunum. Að minnsta kosti verður maður
stundum var við það hér í prentsmiðjunni, að
illa gengur að halda blýinu nægilega heitu í þeini
bræðslupottum setriingavélanna, scm hitaðir eru,
rriéð gasi. Er það nijög bagalegt, þegar slíkt á sér
slað, þvi að það veldur allskonar erfiðleikuni
í prentsmiðjunni og vekur gremju hjá ölluni,
seiii hlut eiga aS niáli. En sem betur fer, er það
sjaldgæft, að gasskorlurinn sé svo mikill, að
tafir verði af.
*
Gamalt Gasstöðin er nú orðin allgamalt fyr-
fyrirtæki. irtæki og hefir reynzt prýðilega,
siðan hún tók til starfa. En það ér
ekki nema eðlilegt, að húp sé eitlhvað farin að
ganga úr sér og bærinn er nú orðinn svo stór,
að gasstöðin getur engan veginri fullnægt-þeim
kröfum, sem til herinár erú gerðar, þegar raf-
magnið bilar, en eins og allir vita, sér það nú
milflum hluta bæjárbúa fyrir afli til matártil-
húnings. Mun líka hafa verið gripið til þess
ráðs, þegar svo hefir staðið á, að loka alveg
fyrir gasið um tíma, en hleypa síðari' á með
fullum krafti.
*
Aukning og Enda þótt gasstöðin sé ekki leng-
endurbætur. ur eins mikilvægur þáttur í bæjar-
lífinu og áður en rafmagnið komst
í almætti sitt, kemúr þó auðvitað engum til hug-
ar, að liún eigi ekki framtíð fyrir sér við hlið
rafveitunnar. En það virðist líka jafn sjálfsagt,
að aukning og endurbætur fari fam á gasstöðinni,
svo að hún verði ávallt vandanum vaxin, ef raf-
magnið bilar, eins og komið hefir fyrir.