Vísir - 22.08.1945, Side 4
4
V I S I R
Miðvikudaginn 22. ágúst 1945
VlSIR
DAGBLAÐ
Utgefandi:
BLAÐAtTGÁFAN YÍSIR H/F
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
Símar 16 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 5,00 á mánuði.
Lausasala 40 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Aístaða kommúmsta.
|kTýlega var að því vikið hér í blaðinu, að
nágrannaþjóðir okkar fylgdust með nokk-
urri athygli mcð samstarfinu við kommún-
ista hér á landi. Hefðu menn yfirlcitt mis-
jafna trú á því. Nú um helgina hefur afstaða
þessa flokks í ýmsum löndum skýrzt veru-
lega. Danski verkalýðsflokkurinn neita sam-
vinnu við þá, norskir alþýðuflokksfulltrúar
lýsa því jafnframt yfir, að horfur séu þung-
ar um slíka samvinnu í Noregi, utanríkisráð-
herra Breta, Ernest Bcvin, lýsir yfir því, að
i sunnun þeim löndum, þar sem kommúnistar
ráða nú mestu, sé algert einræði ríkjandi, cn
slíkt einræði verði ekki þolað, og loks hefur
verulega skorizt í odda millum ráðamanna
Kínaveldis og kommúnistanna, og fara þar
nú fram athygliverðustu átök, sem háð eru
um þessar mundir við þennan óaldarflokk.
Vitað er, að menn í ýmsum löndum, — og þá
ekki sízt í Bandaríkjunum, -— fylgjast vel
með þessum málum.
Svo er að sjá sem hér heima á íslandi, ■—
og aðeins hér, — séu mcnn algcrlega andvara-
lausir í samstarfinu Við kommúnista. Verka-
lýöurinn hefur að verulegu leyti gengið þeim
á hönd, í þeirri trú, að þar muni hagsmuna
stéttarinnar verða hezt gætt. Sú litla reynsla,
sem þegar er fengin, sannar hið gagnstæða,
og flest virðist benda i þá átt, að vegur þeirra
liggi í framtiðinni um fallanda forað, ekki
•einvörðungu hér heima fyrir, heldur um öll
lÖnd jarðar. Kommúnistar hafa reynt að maka
krók sinn í styrjöld þeirri, sem staðið hefur
yfir, enda farið fram með eindæma offorsi
i flestum löndum, en muna má það, að ósköp
verða ci all-langæ, en þegar tími vinnst til,
verða þeir, sem aðrir ofstopamenn, settir þar
á bekk, sem þeir eiga heima. I frclsishreyf-
ingu Dana reyndu kommúnistar að liefjast til
vegs, en raunin varð sú, að frelsishreyfingin
lætur af störfum, og margir þeir, sem bezt
hafa þar harizt, snúa til fyrri iðju sinnar
sém vonsviknir mcnn. Dönum mun takast að
friða land sitt, en um leið og ]>að er gert,
•dregur úr áhrifavaldi kommúnista, leynt og
Ijóst.
Almenningur hér á landi ætti að fylgjast
vel með þróuninni í alþjóðamálum næstu
mánuðina, ekki aðeins þróuninni hér í Ev-
rópu, heldur sérstaklega í Asíu, og hafa þá
hliðsjón af afstöðu almennings í Bandaríkj-
unum, sem er vel ljóst, hver viðhorfin eru
í dag og munu verða á næstunni. Stórveldi
heimsins hafa harizt fyrir frelsi og lýðræði,
en framar öllu öðru hafa þau barizt fyrir
friði. Skerist eitt stórveldanna úr leik við
friðarsamningana, geta af því sprottið mikl-
ir erfiðlcikar, sem jafnvel geta teflt heims-
iriðinum í voða. Menn vona, að til frekari
átaka þjóða á milli komi ekki fyrsta kastið,
en ljóst er, að fyrir því er engin trygging,
eins og sakir standa.
Jóns Arasonar minning
á Hólum í Ijaltadal.
Fundur presta og Jkeiiifias*&
Norðanlands.
Laugardaginn 11. ágúst
var að Hólum i Hjaltadal
haldinn fundur jiresta og
kennara norðanlands, og er
það 4. fundur þeirra sam-
takp. Fundurinn hófst kl. 9
árdegis með morgunbænum
í dómkirkjunni og flutti þær
sóknarpresturinn, síra Björn
Björnsson. Sjálfur fundurinn
var haldinn heima í skólan-
um og sóttu hann um 30
kennarar og prestar úr Norð-
lendingaf jórðungi. En auk
þeirra sat fundinn Pétur Sig-
urðsson ritstjóri i Reykjavik,
sem er einn af frumkvöðlum
þessara samtaka.
Framsöguerindi fluttu þeir
síra Óskar J. Þorláksson á
Siglufirði: Kirkjan og fram-
tíðin, og Snorri Sigfússon
námstjóri, Akureyri: Eræðslu
mál 1 Norðlendingafjórðungi.
Urðu allmiklar umræður um
hæði erindin og samþykktar
ýmsar ályktanir. Taldi fund-
urinn mikla nauðsyn á að
auka krjstilegt starf með
þjóðinni, gera störf kirkjunn-
ar fjölbrcyttari og auka sam-
starf presta og kennara að
uppeldi æskulýðsins.
Fundurinn var eindregið
samþykkur því að fjölga beri
heimavistarskólum í sveitum
landsins og hafa þá svo stóra,
að nægilegt verkefni sé þar
fyrir tvo kennara, að aukin
áherzla verði Iögð á móður-
málskennslu í barnaskólum,
trúfræðslu og siðgæði, að
fræðslueftirlit verði aukið frá
því, sem nú er.
I fundarlok flutti Hannes
J. Magnússon skólastjóri, Ak-
ureyri, erindi, er hann kall-
aði: Efnið og andinn.
Fundinum lauk kl. 10 um
kvöldið með guðsþjónustu-
stund í dómkirkjunni. Síra
Guðbrandur Björnsson próf-
astur í Hofsós flutti bæn.
A sunnudaginn þann 12.
þ. m. var Jóns Arasonar
minning í dómkirkjunni á
Hólum í Hjaltadal. Síra Frið-
rik J. Rafnar, vígslubiskup
á Akureyri, messaði og síra
Benjamín Kristjánsson flutti
erindi uni hlutverk kirkjunn-
ar. Kirkjukór Akureyrar söng
við messuna og að loknu er-
indi sr. Bcnjamíns. Jakðb
Tryggvason lék á orgelið og
stjórnaði söngnum. Komu
kirkjugestir að víðsvegar lir
héraðinu og var kirkjan full-
skipuð. Athöfnin var öll með
miklum hótíðablæ. Veður var
hið fegursta. Þykir Skagfirð-
ingum enn sem fyrr gott að
koma að Hólum á slíkum
dögum.
Að lokinni messu hélt
Hólanefnd fund. Vinnur hún
að fjársöfnun til minnis-
merkis Jóns Arasonar, sem
reisa skal á 400. ártíð hans
árið 1950.
Siðan var haldinn fundur
í Prestafélagi Hólastiftis. Er-
indi flutti formaður félags-
ins, síra Friðrik J. Rafnar
vígslubiskup. Síra Sigurbjörn
Á. Gíslason var mættur sem
gestur fundarins, og skýrði
hann í'ró fregnum þéim, sem
honum hafa borizt af liag
norskra og danskra presta.
Fundinum láuk með kvöld-
bænum í dómkirkjunni, og
að síðustu flutti vígslubiskup
fundarmönnum kveðjur og
árnaðaróskir.
Ingibjörg Herdís
Sigurðardótfir.
F 2. júní 1920. D. 13. ág. 1945.
Elsku vina. Nú ertu liorfin
þegar lifið er sagt vera að
hyrja. Aðeins 25 ára. En þó
hafðir þú í þögn þinni borið
sorgir heillar mannsæfi,
missi foijpldra og systur og
þín langvarandi veikindi. En
þótt æfin væri stutt og sárin
mörg áttir þú alltaf nógan
skilning til að styrkja. vini
þína í þeirra raunum.
Þú hafðir ástæðu til að
vera eigingjörn eftir þvi sem
árin liðu, færandi þér sorgir,
en i stað þess fór skilningur
og umhyggja fyrir vinum
þinum vaxandi. Og vegna
þessa styrkleika þíns getum
við vinir þínir haldið áfram
að leita huggunar hjá þér
þótt héðan sérlu horfin.
Hver skilningur ó lífsins leið
er ljós bl æfi enda.
Mín sál í sinni dýpstu neyð
mun sorgum þangað venda.
Þ. Á. J.
— •MtipSBBi
Framh. af 1. síðu.
gær 15 þúsund föngum við
þá fangatölu, sem þegar var
tekin. Eangatalan er nú
komin upp í 250 þúsund. Á
meðan hersveitir Rússa
sækja fram og ljúka við að
hcrnema Manclmriu og Sa-
kalilin fara fram viðræður
milli japanskra og rúss-
neskra herforingja um al-
gera uppgjöf allra herja
Japana í Manchuriu, Koreu
og Sakahíin.
Singapore
gefst upp.
1 Singapore hcfir verið til-
kynnt að þangað sé kominn
keisaralegur sendimaður
með fyrirskipun frá keisar-
anum um að hætta allri mót-
spyrnu og senda fulltrúa til
móts við handam^nn til þess
að ræða uppgjöfina. Yfir-
foringinn þar liefir tilkynnt
að eftir þessu verði farið.
Heimsókn í „Gamall skeggur“ sendir
Htjómskálag-arðinn. mér þann pistil, sem hér
•fer á eftir: „Mér varð reik-
að suður.i HljómskálagarS á dögunum. Um leið
og eg gekk framhjá skálanum, leit eg þar tvo
menn á hekk, sem lieilsa mér glaðlega og bjóða
'iuér sæti. Annar maðurinn var garðvörðurinn,
en hinn var blaðamaður, sem eg kannaðist við,
og var liann að „pumpa“ Einar, eins og þeirra
er vandi. Eg sezt aðeins örskamma hríð, kveð
svo og fer og læt þá hafa næði. Það var yndis-
leg „slemning“ yfir umhverfinu. Stafalogn var og
fuglarnir gáruðu vatnsflötinn, um leið og þeir
streymdu frá landi, en aðrir sváfu i sefinu og
stungu nefinu undir væng.
*
Litlr En hvar var hólminn? Hann var í
hólminn, kafi, svo ómerkilegur sem hann er.
En í lians stað sá eg hilla undir
þrjár endur, sem stóðu þar sem hólminn átti að
vcra réttu lagi. Hólminn var nefnilega í kafi,
svo að ekki sá í hann. Hann er ekki burðugri
en þelta, þegar hátt er í tjörninni. Þetta kríli
er enginn hæjarsómi. Þarna i syðri tjörninni
ætti að gera hólma, sem gæfi ekki þeinl eftir,
sem er i nyrðri tjarnarhlut'anum, svo að „fugla-
fólkið“ ætti þar athvarf, þegar stormur er, svo
að það þurfi ekki að standa i vatni með fæt-
uma, þegar það langar til að fara i þurrt land
til hvíldar. 4
*
Garðurinn Fuglarnir munu fijótlega rækta
fegraður. þetta nýja heimkynni sitt á sama
hátt og hinn hólmann, sem er til
niikillar prýði, þótt ekki sé hann stærri en hann
er. — Nú er unnið að þvi af alúð að prýðá
Hljómskálagarðinn með trjágróðri og blómabeð-
um og er hann að varða með yndisleguslu stöð-
um í bænum, sem almenningur á aðgang að,
og aldrei fegri en nú, til heiðurs þeim, sem þar
hafa lagt hönd að verki. En blessaðir, gleymum
eigi fuglunum. Þeir eru til mikillar prýði og
yndisauka þarna og þarf því- að búa vel að
l þeim líka, þessum yndislegu verum, sem ætíð
'. setja lífrænan svip á umhverfi sitt.
*
Vill fá Gaman væri að eiga von á að sjá svan
svan. hér á tjörninni næsta sumar. Hér var
hann áður heimavanur og hin mesta
bæjarprýði. En vera má, að hann kynni illa hin-
um hávaðasömu loftsvönum, sem gerðir eru af
mannahöndum í nágrenni sínu.“ Bréf gamla
skeggs er ekki lengra, en eg tek undir það* sem
hann segir um hólmann í syðri tjörninni, að það
ætti að stækka hann. Hann er ekki stærri en
svo, að það kemst varla meira fyrir á honum i
einu cn ein andafjölskylda. Það þarf sýnilega
að bæta úr „húsnæðisleysinu“ þarna og það ætti
ekki að vera mjög kostnaðarsamt. Og gaman
væri lika að fá að sjá’svani aftur á tjörninni.
*
Bílastæðin. Fyrir nokkurum vikum tók eg eft-
ir því, að byrjað var að hreinsa
til á lóðum ríkissjóðs nyrzt við Lækjargötu. Fyrst
voru loftvarnabyrgin rifin, síðan fóru girðing-
arnar söhiú leið og þegar þvi var lokið, var
byrjað að aka rauðamöl á grasbiettina og loks
var ofaníburðurinn þjappaður og sléttaður, svo
að þarna myndaðist „plan“, sem var næstum þvi
eins og fjalagólf. Þarna áttu menn að skilja eftir
bifreiðar sínar, til þess að daga ús^rönginni á
götum miðbæjarins.
*
Lítill En þetta hefir- borið heldur lítipn
árangur. árangur, því að aðsókn að bílastæðum
þessum hefir verið harla litil og
þröngin í miðbænum ekki minni, svo að séð
verði. Þetta má ekki svona til ganga. Eg hefi
séð standa þarna um tíu bíla, þegar mest hefir
verið, en þó mundu komast þarna fyrir með
hægu móti fjórum eða fimm sinnum fleiri bíl-
ar. Þá mundi þegar rýmka mikið við t. d. Aust-
urstræti, þar sem oft er bíll við bíl frá Lækjar-
lorgi og vestur að Aðalstræti.
*
Skipulagning Eg- liefi heyrt, að innan skamms
bílastæðanna. ínuni verða búið að skipuleggja
bílaslæðin í miðbænum, afmarka
staði fyrir bílana á grunni Iiótel íslands og
einnig þarna við Lækjargötu. Mun þá verða
farið að ganga ríkt eftir því, að bilum ^serði lagt
þar, en ekki á þá staði, þar sem þeir geta vald-
ið truflunum ogx'andræðum. Sér það hver mað-
ur, að bærinn getur ekki varið fé og vinnu í að
láta útbúa þessi stæði, ef þau eiga svo að standa
ónotuð. Ættu menn þvi að fara að venja sig á
að nota þau.