Vísir - 06.09.1946, Side 2
V I S I R
Fótfráasti maður í heimi
leduinadrengurinn, sem ólst
npp með gazeilum.
jórir læknar í Bagdad,
sem skcðað Kafa „Tarz-
andrengmn“ sem tannst í
óbygðum Transjordaníu
segja, að ár mum að
minnsta kosti iíða áður
en hægt verði að kenna
honum að haga sér svipað
því er menn gera.
Aðeins sú staðreynd að
hánn er gæddur mikilli
mannlegri eðlisgreind bend-
ir í þá átt, að hann muni
einhvern tíma síðar geta orð-
ið eins og siðaður maður,
þótt hann hafi lifað 15 ár af
lífi sínu meðal gazelluhjarða.
Aðal vandamálið, sem
læknarnir eiga við að elja.
er að kenna honum að tala,
Sumir sérfræðinganna, sem
hafa skoðað liann telja að
hann hafi verið mállaus frá
fæðingu. Dr. Musa Jalbout
umboðsmaður Iraq olíufé-
J.agsins, sem fyrstur fann
'liann og skoðaði, telur þó að
málleysið sé aðeins tíma-
hundið. Jattbout heldur að
drengurinn hafi misst málið
af því enginn hafi talað við
Iiann, en mögulegt muni með
tímanum að kenna honum að
1,ala.
Fýrsti kjötrétturinn.
Líf hans á spítalanum, þar
sem hann er hafður er bar-
átta milli eðlishvatar þeirrar
sem hann hefir farið eftir
þau 15 ár sem hann bjó með-
al gazellanna, og eðlilegrar
forvitni mannlegs barns.
Stundum grípur hann öll
tækifæri til þess að strjúka
af spítalanum. Hinsvegar
reynir hann einnig stundum
að líkja eftir hátterni þeirra,
sem hann umgengst. Þegar
Iionum var fyrst boðið að
horða kjöt og brauð hafnaði
hann því alveg, hann virtist
vera hræddur um að liann
myndi hafa verra af.Nú segja
Iijúkrunaikonurnar að hann
sé farinn að borða hæði
brauð og kjöt, því hann hef-
ir séð að öðrum verður ekki
illt af.
Margar einkennilegar sögur
eru sagðar um þessa skrítnu
veru sem cr hærð um all-
ann líkamann, og gefur ekki
önnur hljóð frá sér en þau
er gazellan gefur frá sér.
Hann getur hlaupið með 80
km. hraða á klst., en það er
tvisvar sinnum hraðara en
heimsmetið í spretthlaupi á
100 metrunum. Til þessa hef-
ir „Tarzandrengurinn“ að-
eins nærzt á grasi.
Hann er mjög var um sig
og tortrygginn eins og gaz-
ella, sem allaf er á verði gegn
hættum, og er svo horað-
ur að hægt er að telja hvert
einasta bein í líkamamm, en
samt er hann sterkari en full-
vaxinn rraður.
Lifði dýralífi.
Læknunum hefir ekki enn-
þá tekizt' að fá hann til þess
að klæðast fötnm eða sofa í
rúmi. Hann sefur alltaf ber
á gólfinu og skin tortryggni
út úr smáum, dökkum aug-
um hans.
„Tarzandrengurinn“ er
ekkert undarlegri en óbyggð-
irnar, þar sem Lawrence Al-
Skaalan fann hann. Al-Shaal-
an er foringi hins víðkunna
Ruwalla kynþáttar og að-
stoðaði á sínum tíma Arabíu-
Lawrence.
Þessi óþekkta og órann-
sakaða auðn liggur á milli
Iraq, Transjordaníu og Sýr-
lands og kemst hitinn á dag-
inn í nálægt 70 stig og hvergi
er skuggi, en á veturna getur
hitastigið farið niður í nærri
því núll.
Engar mannlegar verur
setjast nokkurn tíma að á
sléttum þessum og jafnvel
Beduinarnir setjast þar ekki
að en fara þar aðeins um
er þeir eru að finna ný beiti
lönd fyrir kvikfénað sinn.
Svíðandi heitir vindar,
sem þurrka húðina að sum-
arlagi og ískaldir stormar að
vetrarlagi gera það að verk-
um að ekkert kvikt hefst
þarna við nema úlfaldar og
gazellur.
Einasta byggðin sem þarna
er, eru dæluhús Iraq
Petroleum Company, sem
dæla olíunni i gegnum
leiðslurnar, sem eiga upptök
sín lengra norðurfrá hjá
landamærum Tyrklands og
Iraq.
Hver stöð fyrir sig er
sjálfri sér nóg að öllu leyti,
sérstakur spítali er í hverri
stöð og skemmtistaðir, kvik-
myndahús lianda starfslið-
inu, sem lifir þarna í algerri
útlegð.
Það var á þessum slóðum
sem „Tarzandrengurinn“
var nærri því búinn að týna'
lífinu, er Lawrence Al-Shaal-
an prins var þar á veiðum.
Prinsinn sagðist hafa orð-
ið mjög undrandi er hann
sá eitthvað sem liktist manni
hlaupa með gazellunum, sem
þeir voru að elta. Hann
sagði samferðamönnum sín-
um, sem voru í öðrum bif-
reiðum, að hætta að skjóta.
Þeir voru þá mjög langt í
burtu, en sáu þó að drengur-
inn hljóp með gazellunum og
jafn hratt og þær. Þeir eltu
hópinn í bilunum í eina
klukkustund og óku 80 kiló-
metra og alltaf hljóp dreng-
urinn með hópnum og virt-
ist ekkert gefa þeim eftir á
hlaupúnúm. Allt í einu hras-
aði hann og féll. „Þegar við
Greinin sem hér fer á
eftir er tekin upp úr brezka
blaðinu „Sunday Express“
og f jallar um 15 ára dreng,
sem fannst í s. 1. mánuði í
eyðimörk, sem liggur milli
Sýrlands og Iraq. Hann
hefir alizt þar upp meðal
gazella og það sem er
markverðast við hann, er
að hann getur hlaupið
hraðar en nokkur mannleg
vera önnur, sem mönnum
er kunnugt um. Veiði-
mennirnir sem náðu hon-
um eltu hann uppi í bif-
reiðum og óku á 80 kíló-
metra hraða, en náðu
honum ekki fyrr en hann
slasaðist á fæti.
lcomum að honum sáum við
að hann hafði meitt sig á fæti
á stórum steini. Hann leit til
okkar með hræðslusvip og
hrökk undan er við snertum
hann og gargaði eins og
gazella."
Síðan var farið með hann
til þorpsins þar sem prinsinn
býr og reynt að gefa honum
að borða og klæða hann i föt,
en án árangurs, hann vildi
hvorugt.
Fyrsta daginn reyndi hann
hvað eftir annað að strjúka
með því að fara út á þak
hússins og stökkva síðan þak
af þaki og síðan niður á
götu. Eitt skiptið tók yfir
tvær stundir að ná honum
aftur, en þá ákvað prinzinn
að fara með hann til dr. Jal-
bout, sem bjó á olíustöðinni.
Fljótasti maðurinn.
Dr. Jalbout vísar á bug öll-
um tilgátum um það að
drengurinn sé að nokkru
leyti óeðlilegur. „Eg er á
þeirri skoðun að móðir hans
hafi skilið hann eftir eða bor-
ið hann út sem barn og siðan
hafi gazellurnar fóstrað
hann eins og hann væri af-
kvæmi þeirra. Eg er viss um
að hann er fljótasta mann-
lega vera sem þekkzt hefir
og öll met í hlaupum er bros-
leg í samanburði við þau af-
köst er hann gæti afrekað.“
Hann hefir í upphafi dreg-
ið fram lífið með því að
sjúga kvendýrin og síðan
lært að nærast á jurtum og
rótum, sem minnast á víð og
dreif um eyðimörkina. Fæð-
an, sein hann hefir fengið er
af svo skornum skammti, að
þótt hann hafi getað lifað á
henni vegna þess hve sterk-
byggður hann er, myndi hún
aldrei hafa nægt til þess að
halda lífinu í venjulegum
manni. Hefði hann ekki fund-
izt svo tímanlega er óvíst
hvort hann hefði getað hjar-
að lengur vegna þess að
líkami hans þarfnast meiri
fæðu en antilópurnar.
Eyðimerkursérfræðingur í
Sýrlandi segir, að þetta sé í
rauninni ekkert undarlegt,
því að það sé algengt að Be-
dúínakonur skilji börn sín
Föstudaginn G. september 194G
Jút þú ert
Cimr
tnim
Það er áreiðan-
legt að án
gæti eg
verið. Þú gerir
tennurnar hvít-
ar og gljáandi,
og.svo ertu
hressandi á
bragðið.
Gerið eins og eg, notið daglega PERLETAND tannkrem.
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
/. MMrynjótfsson & Kvaran
Hafnarfjörður
Okkur vantar nú þegar
afgreiðslumann
fyrir
Hafnarfjörð.
Ðagblaðið VÍSIR
Sími 1660.
Húsgagnaverzlanir
Heildsalar
Sel til húsgagnaverzlana góð og vönduð hús-
gögn frá Danmörku. Allar gerðir. — Sel til heild-
sala mjög vandaða klappstóla. — Gerið svo vel
og leitið tilboða.
Guðni Ölafsson,
Solvænget 1, Köbenhavn ö.
éftir, sem þær ala á fefðalög-
um um eyðimerkurrar og
láti það ráðast, hvort þau lifi
eða deyi. Flest þessara barna
deyja, en í einstaka undan-
tekningartilfellum kemur
það fyrir, að dýr merkurinn-
ar ala þau upp. Sjaldiiast ná
þau þó fullum líkanilegum
þroska.
Glæru
Plastik-kápumar
komnar aftur.