Vísir - 25.03.1947, Side 1
i
37. ár Þriðjudaginn 25. marz 1947 70. tbl.
Þessi mynd var tekin af skákmeisturunum síðasta dag
mótsins, en nú eru þeir Yanofsky og Wade farnir af
Iandi burt. — Á myndinni sjást þeir sitjandi talið frá
vinstri Yanofsky, Eggert Gilfer og Wade. Standandi, Bald-
úr Möller, Guðmundur Ágústsson, Guðmundur Guðmunds-
son og Árni Snævarr. Á myndina vantar Ásmund Ásgeirs-
son skákmeistara Islands, en alls tóku 8 skákmenr. þátt í
Yanofsky-mótinu svonefnda.
Snjéflóð valda stór-
tjóni við ísafjörð.
4 sumarbústaðir og 1 íbúðar-
hús sópast burt.
Geymar hitaveitunnar tæmd-
ust enn á sunnudagskveld.
Farið sparlega með heita vatn
ið og lokið fyrir húsa-
kerfin á kveldin.
20 þús. lesta
skip brennur.
Mikill eldur kom í gær-
morgun upp í 20 þúsund
smálesta skipi í höfninni í
JVewcastle on Tyne í Bret-
landi.
Þetta var farþegaskipið
„Monarch of Bermuda“ og
brann það lengi dags. Varð
rnikið tjón á skipinu og
kemst það ekki úr höfn
næstu mánuði. Nokkur
vindur var og gerði það
slökkvistarfið erfitt. —
ísfisksalan:
Salan í $1 vikn
nam tæpL 2 millj.
króita.
í síðastliðinni viku seldu
sjö togarar ísfisk í Englandi
fyrir tæplega tvær milljónir
króna.
Söluhæsta skipið var Júpi-
v ter, er seldi 3806 kit fyrir
12145 sterlingspund. Næstur
var Ingólfur Arnarson, sem
seldi 4391 kit fyrir 11540 £.
Hinir togararnir seldu sem
hér segir: Þórólfur 4266
vættir fyrii- 10130 £, Skalla-
grimitr 9764 £, Gyllir 9473 £,
Skinfaxi 7895 £, og Júní
7815 £.
Vertíðin:
Afiinn í lok
febrúar -
52 þús. smál.
/ febrúarlok s.l. höfðu á
öllu landinu veiðsl alls 52
þúsund smálestir fiskjar,
miðað við slœcjðan fisk með
haus.
Fékk Vísir þessar upplýs-
jngar Iijá Fiskifélagi íslands
í morgun. A saiiia tima í
ffyrra v u- heildaraflinn í lok-
febrúaj 33 þúsund smálestir
Geta n á þess, að aflinn í
febrúa? mánuði s.l. var 39,700
smálestir.
Fisk r þcssi hefir verið
hagnýt' ir sem liér segir:
Mestur hlutinn liefir verið
hraðfr; .tur, eða 20,800 smá-
lestir, t;l söltunar hafa far-
ið 12,409 smáléstir og loks is-
varinn fiskur sendur út með
togurum 8,700 smáléstir.
I gær féllu þrjú snjó-
flóð úr Eyrarfjalli, við
ísafjörð, og sópuðu burt
a. m. k. fimm *sumar-
bústöðum, einu íbúðarhúsi,
beyhlöðu og auk þess
ýmsum smærri húsum.
Síðastliðna daga hefir
norðan átt með mikilli snjó-
komu verið á ísafirði. Og í
gærmorgun féll snjóflóð
úr sunnanverðu Eyrarfjalli
og sópaði a. m. k. fjórum
sumarbústöðum með sér,
auk heyhlöðu og nokkurum
smærri liúsum. Eigi var búið
í þessum húsum.
Lausf eftir hádegi i gær
féll annað snjóflóð úr fjall-
inu, 2Y2—3 km. fyrir innan
ísafj. og sópaði það snkVfl
með sér nýbýlinu Karlsá, en
það stóð í brekkunni fyrir
neðan Seljalandsveginn. —
Snjóflóð þetta var um 200
m. á breidd og bar það
hluta af húsinu með sér á
sjó út, en það stóð um 70 m.
frá sjó.
f húsi þessu bjó Eggerl
Ilalldórsson ásanlt konu
sinni og þrcm börnum. Var
Eggert ekki beima er þclta
skeði og börnin höfðu farið
á skíðum lil þess að skoða
snjóflóðíð, er fallið liafði
fyrr um daginn. -Þrír gestir
höfðu vérið í heimsókn og
voru nýfarnir er snjóflóðið
féll.
Húsið liðaðist í sundur á
leiðinni, en hluti þess stanz-
aði spölkorn fyrir ofan fjör-
una og var konan í þeim
hluta hússins. Slasaðist hún
nokkuð, en þó ekki hættu-
lega. Sást rélt á húsið upp úr
snjónum.
Er atburður þessi spurðist,
brugðu ísfirðingar fljótt við
og sendu hjálp á veltvang.
Var læknir m. a. i hjálpar-
leiðangrinum.
Þriðja snjóflóðið féll síð-
degis í gær og sópaði það enn
einuin sumarbústað með sér.
Enn er álitin liætta á, að snjú-
Fð blaupi og liefir lögreglan
'’yrirskinað fólki að flytja úr
þcip' búsum, sem á liættu-
svæðinu eru.
Arabar krefjast
sjáífsfæðis
Palestinu.
Samkvæmt fréttum frá
London í morcjun er talið
líklégt að æðsta ráð Araba
muni brálega setja fram
kröfu um algért sjálfstæði
Palestinu.
Mun og í því sámbandi
verða sett fram krafa nm
algert innflutningsbann á
fólki til Palestinu.
Um sexléytið á sunnudag
tæmdust allir geymar hita-
veitunnar á öskjuhíið, svo að
vatnslaust varð í þeim bæj-
arhverfum, sem hæst liggja.
Skýrði Helgi Sigurðsson,
hitaveitústjóri, blaðinu frá
Nýr bátur á sjó
Síðasiliðinn föstudag hljóp
af stokkunum hjá Dráttar-
braut Akraness mjr 67 rúm-
lesta bátiir.
Er liann eign H.f. Bolung-
arvík á Bolungarvík. Bátur
þessi Iieitir Víkingur og er
búinn 193 ha. Allandiesel-
Vél. Öll lögskipúð öryggis-
tæki eru í bát þessum svo
sem dýptarmælir, talstöð og
fleira.
3-4ra m. skaflar á
götum Isafjarðar.
U ndanf arna sólarhringa
hefir hríðarveður geisað á
ísfirði og hafa allar sam-
göngur um bæinn teppzt.
Þriggja til fjögra metra
háir skaflar eru á götunum
og hafa þeir hindrað alla
umferð ökutækja. Nú er
byrjað að hreinsa til á göt-
unuin með snjóýtu.
í morgún kom flutninga-
skip til ísafjarðar og var
ekki hægt að byrja að af-
greiða það vegna snjóþyngsl
anna, en vonir standa til að
það verði hægt innan
skamrns.
Sævar komst
til hafnar.
Eins og’ skýrt var frá í
blaðinu í gær var mb. Sævar
í sjávarháska fyrir Austur-
landi.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðinu hafa bórizt,
komst Sævar af eigin ramm-
Ieik lil Vopnáfjarðar síðari
hluta dágsins í gær og er því
úr állfi liættu.
þessu í gær. Gat Helgi þess
ennfremur, áð þetta hefði
komið fyrir nokkrum sinn-
um í Vetur, er kuldarnir
hefðu verið mestir.
Lokað er fyrir rennslið frá
geymunum á hverju kvöldi
kl. 11,30 og er látið renna í
þá -um nóttina og eru þeir
því að allt vatn úr húsaleiðsl-
morgni. Töluverðum erfið-
leikum veldur það, að fólk
gætir elíki að loka fyrir kerfi
húsa sinna, jafnhliða því er
hitaveitan lokar fyrir rennsl-
ið til bæjatins, cn það veldur
því að allt atn úr húsaleiðsl-
unum er horfið að morgni,
en til þess að fylla þær, þarf
óhemjumikið vatnsmagn.
Virðist þess vegna full
þörf á að minna fólk enn.
einu sinni á að nota ekki
meira vatn en góðu liófi
gegnir, sérstaklega þegar
kuldaköst koma, svo að
íbúar þeirra liverfa er hæst
liggja hafi a. m. k. vatn til
nauðsynlegustu hitunar.
Frystiskip SH
fullgert í lok
apríl.
Afhendingu á hinu nýja
kæliskipi sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hefir
seinkað nokkuð vegna óvið-
ráðanlegra orsaka. Kemur
skipið hingað, að öllum lík-
indum, í apríllok.
Skýrði forstjóri Sölumið-
stöðýarinnar blaðinu frá
þessu í gær. Skipið gelur flult
800 smálestir af hraðfryst-
um fiski og er yfirleitt búið
öllum fullkomnustu lækjum,
sem þekkjast á þessu sviði.
Upphatlega átli skip þctta
að vera tilbúið um áramótin,
en vegna erfiðleika á úlvegua
nauðsynlegs efnis hefir af-
hending þess tafizt, eins óg
fyrr greinir.
Verður mikil bót að skiþi
þessu er það bætist í flota
lándsmanna, því eins o’g
kunnugt er, er ekkerl ski]>
til, ér eingöngu gctur flutt
frystar afurðir.