Vísir - 22.06.1948, Blaðsíða 8

Vísir - 22.06.1948, Blaðsíða 8
JLESENDUR eru beðnir að I athuga að smáauglýs- ingar eru á 6. síðu. Næturlæknir: Sími 5030. — Næturvörður: Reykjavíkuor Apótek. — Sími 1760. Þri&judaginn 22. júní 1948 Eldur í topp- stöðinni. Síðdegis í gær var slökkvi- liðið kailað þrisvar sinnum úl. en ekki reyndist um al- varlega eldsvoða að 'ræða. Kl. 16.20 var mkynnt, að eldur væri í kjöti á vörubií'- reið við liöfnina. Mun eldur hafa komizt í kjötið úr sígar- ettu. Nokkurar skemmdir nrðu á kjötinu. Tveim stund- nm siðar var tilkynnt að eld- ur væri í Landspítalanum. Var nokkur reykur á göng- Hin spítakfns og stafaði liann frá tækjum í röntgendeild- inni.-Var eldurinn slökktur án þess að verulegt ijón hlyt- ist af. Loks i gærkvöldi kl. 21.18 kom brunakall frá toppstöð- inni við Elliðaár. Var nokkur eldur þar í sóti og miklum erfiðleikum bundið að kom- ast fyrir hann. Tók það slökkviliðið alllangan tíma að slökkva eldinn. Skemmdir urðu engar. Bandarikjamenn hafa lóf- að því, að þeir muni ekki neyða Evrópuriki til að knupa munaðarvörur, sem ganga ekki út í landi þeirra Góður gesfur. Ungfrú D. Fischer, er slarfcir hjú Rauða Krossin- um í Hamborg, er nýlega komin hingað til dvalar i hoði Rauða Kross íslands. Unfrú Fischer, sem er mágkona Þórðar læknis Þórðarsonar, er mörgum íslendingum að góðu kunn, sem komið hafa iil Þýzká- lands eftir styrjöldina. Nú liefir stjórn Rauða Kross Is- lands boðið lienni til ís- landsdvalar í viðurkenning- ar- og þakklætisskyni fyrir mikið og gott starf í þágu íslendinga í Mið-Evrópu sið- astliðin þrjú ár. 20 ár frá upphafi síidar- feitar úr lofti hér við land. Um þessar mundir eru lið- in tuttugu ár síðan fyrst var farið að. leita síldar í flug- vél hér á íslandi. Það var í. ágústbyrjun ' 1928, að þáverandi atvinnu- málaráðherraý Tryggvi Þór- hallsson, fól Geir skipstjóra Sigurðssyni að svipast um eftir síld úr flugvél. Var farið í flugvélinni „Súlunni”, er var með einum hreyfli, þýzk, af Junkersgerð. Var það þáverandi Fugfélag Is- lands, sem átti flugvél þessu. Flugmaðurinn var þýzkur, Simon' að nafni, en hann fórst fyrir nokkrum árum i flugslysi við Ameríku- strendur. Sá margar -,síIdartorfur. Var flogið norður yfir Húnaflóa og sá Geir þá mikl- ar síldartorfur og lét jjegar vita af j)eim. Var síldveiði með ágætum á.þeirri vertíð og má Jjakka það að veru- legu leyíi síldarleitinni úr lofli. Um svipað leyti fór Loft- ur Bjarnason útgerðarmað- nr í Hafnarfirði í síidarleit auslur fyrir land. Síðan hefir verið leitað sfldar lir Iofti á ári hverju, eins og kunnúgt er, og þykir nú sjálfsagður hlutur, en fyr- ir tuttugu árum þótti mikið nýjabrum að þessu, eins og nærri má geta. Síðasta sýning í kvöld. Norræna félagið hefir síð- ustu sýningu á Refunum eft- ir L. Hellman I kvöld kl. 8 í Iðnó. Eins og kunnugt er hefir mikil aðsókn verið að þessu Ieikriti og var í fyrstu aðeins ráðgert að hafa sex sýningar á því, en vegna mikillar að- sóknar var þei»i fjölgað. Belgiskt sendi- henahn héi, kom í moigun. Með flugvél AOA í gær komu til Keflavikur fimmtán sænskir jarðfræðingar. Tók Sigurður IVnarinsson, jarð- fræðingur á móti þeim á flugvellinum. Með sömu flugvél kom belgislci sendi- lierrann á íslandi, Charles Vierseth. Hefir hann aðsetur i Oslo. Marsiiallað- stoðin endan- lega samþykkt Skerólrsg óveru- Ieg» Báðar deildir Barídaríkja- þings hafa nú endanlega sam þykkt Marshallaðstoð- ina við Norðurúljn og kem- ur hiin til framkvæmda und- ir eins og Truman forseti hefir undirritað lögin. Búast nfá við að forsetinn lát! ekki standa á undir- skrift sinni, því hann liefir verið einn aðalhvataröaður þess, að Bahdaríkin styrktu frjálsar þjóðir ál'funnar með fjárframlögum. Þúttur Vandenhergs. VandShberg öldunga- deildarþingmaður átti einn mestgn þáttinn í því að Marshallaðstoð lilaut sam- þykki beggja deilda því nær óbreytt. Fulltrúadeildin gefði ýmsar breýtingar á lögunum og vildi bæði lækka fjárframlagið og einnig lengja tímann, sem jiað ætli að ná til, þ. e. a. s. fýrsti hluti þess. Öldungadeildin neitaði að fallast á skerð- ingu fulltrúadeildarinnar á frumvarpinu og varð jiað til jiess að gengið var til sam- komulags um að lánið yrði 4000 milljónir dollara, en forsetinn skyldi sjálfur á- kveða hvort það skyldi ná til jffeestu 12 eða 15 mánaða. 140 skip bíða afgreiðslu í London. Ekki hefir ennþá teldzt að ná samningum við. hafnar- verkamenn í London og skipta þeir nú tugþúsund- um, er lagt hafa niður vinnu. Um 140 skip liggja í höfn og 'fá ekki afgreiðslu og eru sum þeirra með matvæla- farma, sem liggja undir skemmdum, ef ekki verður liægt að fá þau afgreidd fljót lega. Verklýðsleiðtogar liafa -skorað á verkamenn að hefja vinnu á ný, en árang- urslaust. Antonio Marchi, sem var aðsfoðarmaður Marconis við fyrstu útvarpstilraunir hans, en var annars garðyrkjumað- ur hans, liefir andazt í Bol- ogna á Italiu, 106 ára að aldri. Stórkostleg réttarhöld að hefjast í Danmörku. 4 nazistaforsprakkar hernáms- áranna fyrir rétti. Frá fréttaritara Vísis. Kaupmannahöfn. Pyrir nokkrum dögum, þann 16. júní, hófust í Kaupmannahöfn réttar- höld yfir nazistafonngjum þeim, sem fóru meo um- boosstjórn Hitlers í Dan- mörku á hernámsárunum. Þessi réttarhöld verða bæði löng og flókin, en ákærðir eru fjórir háttsettir nazistar, sem fóru með öll völd í Danmörku meðan landið var hersetið af Þjóðverjum. „Niirnbergréttarhöld“. I þessum réttarhöldum, sem Danir kalla „Niirnberg- réttarhöld“ sín, eru fjórir sak- borningar. Dr. Best lands- stjóri Hitlers í Danmöfku, von Hanneken hersliöfðingi og Gestapomennirnir Pancke og Bovensiepen, en þeir tveir síðastnefndu stóðu fyrir flestum hryðjiiverkiinum á hernámsárunum. ' Sterkur lögregluvörður var um rétt- arsaliiln, en fjöldi manna hafði hópazt þar saman um það levti, er von var á að komið yi'ði með sakborning- ana. Ákærurnar. í ákæruskjaíinu, er lesið var upp fyrir sakborningun- um við fyrsta réttarhaldið, eru sakirnar á hendur liverj- um einstökum sundurliðaðar. Dr. Best er ákærður fyrir að hafa fyrirskipað Gyðingaof- sóknir og brottflutning þeirra til Þýzkalands, en þar létu 54 af þeim lífið eftir því sem næst verður komizt. Á- kæran á hendur Bovensiepen er i 227 liðum. Ilann er á- kærður fyrir morð og morð- tilraunir, fyrir að liafa látið sprengja upp ýmsar stór- byggingar í Höfn og fjölda annarra minni liáttar hryðju- verka. Bæði Pancke og Best eru ákærðir fyrir hlutd.eil(l i afbrotum hans. I Manntjón og eigna. I ákæruskjalinu kemur fram, að 90 Danir hafa a. m. k. verðir myrtir af nazistum á hernámsárunum eða hjálp- armönnum þeirra. Bygging- ar og önnur mannvirki verið ei ðilögð fyrir um 85 milljón- ir danskra króna. 21 maður beið varanlega áverka fyrir tilverknað aðstoðarmanna nazista og 51 fórst í járn- brautarslysum, er nazisíarn- ir voru valdir að. Pancke og Bovensiepen eru og ákærðir fyrir misþyrmingar á Dön- um, er teknir voru til yfir- heyrslu. \’iö yfirheyrslur i lækistöðvum nazista varbeitt villimannlegum aðferðum til þess að pína menn lil sagna og er Jieim öllum lýst af mik- illi nákvæmni í ákæruskjal- inu. Réttarhöld þessi munu standa yfir í 2 mánuði. Stribolt. Rússar hyggja á peninga- skipti. Rússar hafa nú i, hijggju að taka upp sömu eð'a svip- aðar aðferðir til verðfesting- ar markinu d hernámssvæðí sinu í Þýzkalandi og gert hefir verið á hernámssvæð- um veslurveldanna. Þýzka öfnahagsnefndin á hernámssvæði Rússa i Þýzka landi hefir nú til athugunar Jiessi mál. Inkallaðir hafa verið allir peningaseðlar frá 20 mörkum í 100 mörk og verða Jieir yfirstimplaðir. Þrátt fyrir nauðsynina á þvi að koma peningamálum Þýzkalands á fastan grund- völl, hefir vesturveldunum ekki tekizt að komast að samkomulagi við Rússa um ])au mál, en orðið að fara sínar leiðir. Sokolovsky mar- skálkur, hernámsstjóri Rússa, hefir lýst því yfir, að liann viðurkenni ekki ijm- köllun seðla i Berlín, þvi borgin sé efnhagslega ná- tengd Sovétríkjunum. Kvöfdferð í kvöld. Ferðaskrifstofa ríkisins efnir íil kvöldferðar um ná- grenni bæjarins í kvöld. Lagt verður af stað frá Ferðaskrifstofunni kl. 8 í kvöld og farið upp að Reykj- um og Reykjalundi; síðan um Hafravatn, Geitháls, Gvend- arbrunna, Heiðmörk, Vatns- endahæð og að siðustu stað- næmzt á Eskihlíðinni. Ferðaskrifstofan efndi til nokkurra kvöldferða um ná- grenni bæjarins í fyrrasum- ar, og urðu þær mjög vin- sælar svo langt sem þær náðu, en urðu færri en áætlað var vegna óhagstæðs veðurs.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.