Vísir - 25.06.1948, Qupperneq 7
Föstudagmn 25, júní 1948
VI S I R
A u g I ý s i n g
nr. 18 1948
frá skömmtunarstjóra.
Samkvæmt heimild í 3. gr. reglugerðar frá 23. sept.
1947, um vöruskömmtun, takmörkun á sölu, dreifingu
og afhendingu vara, hefir viðskiptanefndin ákveðið,
að úthluta skuli nýjum skömmtunarseðlum hinn 1.
júli næstkomandi og skulu reitirnir á þeim seðlum vera
löglegar innkaupaheimildir á tímabilinu frá 1. júlí til
30. sept 1948, sem hér segir:
Reitirnir: Kornvörur 76—90 (báðir meðtaldir) gildi
fvrir 1 kg. af kornvörum, hver heill reitur,
en honum er skipt með ljósbrúnum þver-
strikum i 10 minni reiti, er hver gildi 100 g.
Við kaup á skömmtuðum rúgbrauðum og hveiti-
hrauðum frá brauðgerðarhúsum ber að skila 1000 g.
vegna rúgbrauðsins, sem vegur 1500. g. en 200 g. vegna
hveitibrauðsins, sem vegur 250 g.
Reitirnir: Svkur 28-—36 (báðir meðtaldir) gildi fyrir
500 g. al' sykri, hver reitur.
Reitirnir: Hreiníætisvara 13—16 (báðir meðtaldir)
gildi fyrir þessum hreinlætisvörum: V2 kg.
hlautsápa, eða 2 j)k. þvottaefni, eða 1 stk.
handsápa, eða 1 stk. stangasápa. hver reitur.
Reitirnir: Kaffi 15—17 (báðir meðtaldir) gilda fyrir
250 g. af brenndu kaffi, eða 300 g. af ó-
brenndu kaffi, hver reitur.
Reitirnir: Vefnaðarvara 151—200 (báðir meðtaldir)
gildi frá 1. ágúst næstkomandi og þar til
annað verður ákveðið til kaupa á vefnaðar-
vorum, öðrum en ytri fatnaði, sem seldur
er gegn stofnauka nr. 13, svo og búsáhöld-
um, eftir ósk kaupenda, og skal gildi hvers
reits (einingar) vera tvær kr. miðað við
smásöluverð varanna, Einnig er hægt að
nota þessa reiti við kaup á innlendum fatn-
aði samkvæmt ^iningakerfi því, er um ræðir
í auglýsingu skönnntunarstjóra nr. 1/1948
frá 16. janúar þ, á.
Vefnaðarvörureitirnir í skömmtunarhók nr. 1, sem
bera númerin 51—150 og um ræðir í auglýsingu nr.
6/1948, frá 24. marz s. 1. skulu halda gildi sínu til 1.
ágúst næstkomandi.
Hinn nýi skönuntunarseðill (fyrir júlí til september)
afhendist aðeins gegn því, að úthlutunarstjóra sé sam-
timis skilað framhlið kápunnar af skönuntnnarhók nr.
1, með árituðu nafni og heimijisfangi, svo og fæðingar-
degi og ári, eins og form hennar segir til um.
Fólk er alvarlega áminnt um, að geyma vandlega
alla reitina úr skömmtunarbók nr. 1, sem eltki hafa
enn verið teknir í notkun, því gera má ráð fyrir, að
eitthvað af þeim íai innkaupagildi síðar.
Reykjavík, 23. júní 1948.
tunarA tjcriHH
A u g I ýs i n g
nr. 20'1948
frá skömmtunarstjóra.
Frá og með 24. júní til 1. okt. 1948 eru henzín-
seðlar prentaðir á gulan pjtppij, álctráðir 3. tímaþil ’48,
lögleg innkaupalieimild fyrir benzín fyrir öll skrásetl
ökutæki nema eiukafólksbifreiðar og bifhjól, en þeim
er úthlutað yfirprentuðum benzínseðlum eins qg uni
ræðir i auglýsingu skömmtunarstjóra nr.. 14/1948,
dags. 31-. maí 1948,
Reykjavík, 23. júní 1948.
Shöfnmtunat'itjóri
aLL
-ð í.
Kristbjörn
Einarsson.
Dáinn 18. júnj 1948.
Minning.
Kristbjörn var fæddur hér
í Reykjavik 9. nóv. 1881. —
Ólst liann upp með móður
sinni og mátti segja, að þau
skildu ekki í þau 40 ár, er
luin lifði eftir fæðingu sonar-
ins. Var hún til húsa lijá
Ivristbirni eftir að hann
kvæntist, sem mun hafa verið
*
haustið 1909. Var sú kona
lians Guðrún Jónsdóttir, en
liana missti Kristbjörn 1918
frá 7 börnum.
Ivvæntist Krislbjörn í ann-
að sinn 9. okt. 1919, eftirlif-
andi konu sinni, Söru Krist-
jánsdóttur. Eignuðust þau
eitt barn ,en misstu það að-
eins fárra vikna.
Fjögur börn Kristjáns frá
fvrra hjónabandi munu vera
á lifi, 3 dætur og einn sonur,
Egill, sem er allkunnur
iþrótta- og fjallgöíigumaður.
Annan son sinn, Jón, missti
Kristbjöm um 1930 með svip-
legum liætti, er hann varð
fyrir slysi á íþróttavellihum
við markvörn.
Eg, sem þessar línur rita,
átti þvi láni að fagna að vera
samstarfsmaður Kristbjarn.
ar í full 30 ár eða frá 1910, er
hann gerðist starfsmaður
Gasstöðvarinnar, þar til harin
lét af störfum vegna heilsu-
hrests árið 1943.
Kristbjörn var lærður skip-
stjóri, en hneigðist frá sjó-
mennskunni, er í boði var
annað starf sem hentaði hoii^
um hetur. Sem starfsmaður
var Kristbjörn með ágætum,
hagleiksmaður góður og sér-
lega vandvirkur. Á yngri ár-
um fékkst hann nokkuð við
leiklist .sérstaklega fyrir Góð-
templararegluna og jafnvel
mun liaim hafa komið á svið
hjá Leikfélagi Revkjavikur,
t. d. i „Ræningjununi44 eftir
Scliiller. Eg kynntist Ivrist-
birni fyrst i Goodtemplara-
reglunni og þótt hann yfir-
gæfi haria eftir nokkurra ára
dvöl var liann sannur bihd-
indismaður frá því að hann
hafði unnið sitt heit þar. Það
er ekki ætlun mín að fara að
rita langa lofgrein um Krist-
hjörn heitinn Eiharsson, held-
ur aðeins að áýná honum
þann vött þakklætis að minn-
ast haps irieð nokkurum orð-
um. Eg her þér kveðju mina
'og annara þeirra starfs-
hnanna, sem voru þép sam-
íferða á þiipii; .30 ára göngu
við Gasstöð Revkjavíkur.
Að endingu óska eg þér
góðrar ferðar til fyrirheitna
landsins, scm þú v.arst svo
sæll að trúa að biði- þín. 'frþú
losnaðir frá önn og erju Jifs-
inns.
Góða.nótt og glaðan, riýjan
mórgun.
Reykjavik, 25. júni 1948.
Í-I'.Ú Snorri Eyjólfsson.
Endurminningar Churchills.
Framh. af 2. síðu.
sinni að bráð og bar hún,þann árangur, að kl. 4 um kveld-
ið komu þau auga á reykinn úr flugstöðvarskipinu Glorious,
sem var í för með tveim tundurspillum, Acasta og Ardent.
Þjóðverjar hófu skothríðina kl. 4,30 á 27,000 jards færi.
Á því færi gat Glorious ekki beitt 4-þuml. fallbyssum sín-
um. Tilraunir voru gerðar til að láta tundurslceytaflugvélar
skipsins taka sig á ioft, en áður en af því gæti orðið, lenti
sprengja i fremri flugvélagfeymslunni, kveikti i Hurricane-
vélunum og kom í veg fyrir, að hægt væri að ná tundur-
skeytunum fyrir hinar flugvélarnar upp úr skipinu.
Á næstu hálfri klukkusund varð skipið fyr'ir slikum á-
fölhun, að því varð ekki undankomu auðið. Ivl. 5,20 var
það farið að hallast mikið og skipun var þá gefin um að
menn skyldu forða sér. Skipið sökk um 20 mínútum síðar.
Tundurspillarnir, sem voru þvi til verndar, börðust einn-
ig af hugprýði. Þeir gáfu frá sér reykský, til þess að reyna
að hylja Glorious sjónum fjandmannanna og skutu tund-
urskeytum að skipum þeirra, áður en þeim yar sjálfum
sökkt.
Þarna fórust 1474 sjóliðar og 47 flugmenn. Þrátt fyrir
langa leit var aðeins 39 manns bjargað um borð i norskt
skip. Auk þess hjörguðu fjandmennirnir sex mönnum og
fiuttu til Þýzkalands. Scharnhorst, sem hafði orðið fyrir
miklum skemiridum af tundurskeyti frá Acasta, liélt til
Þrándheimp.
¥
í ölluiri rústunum og' ringulreiðinni hirtist ein mikilsverð
staðrevnd, sem h.afði jafnvel álnif á allan síðari gang striðs-
ins. 1 liinni örlagarílýu haráttu sinni við brezka flotann fórn-
uðu Þjóðverjar flota sínum, svo að lionum varð ekki heitt,
þegar barátlan náði liámarki.
Tjón bandamanna i sjóhernaðinum við Noreg nam einu
(lugstöðvarskipi, tveim beitiskipum, níu tundurspiliUtti og
eínu smáskipi (sloop). Sex beitiskip, átta tundurspillar og
tvö smáskip (sloops) urðu fyrir skennndum, en fengu við-
gerð. Á hinn bóginn voru i þýzka flotanum \ lok júnímán-
aðar 1910 — á mikilsverðum tímamótum — aðeins eitt
beitiskip með 8 þujnl. fallbyssum, tvö létt beitiskip og fjór-
ir tundurspillar. Enda þótt hægt væri að gera við mörg
hinna löskuðu skipa þeirra — eins og oklcar — var þýzki
flotinn til einslcis nýtur, er að þvi kom, að framkvæma
skyldi mikilvægustu liei'naðaraðgerðina — innrásina* í
Bretland.
IVIatsvein
og nokkra vana háseta vantar á gott síldveiðiskip. —
Upplýsingar á Hótcl Garði, herbergi nr. 22 og í síma
188 Keflavík.
ingar
sem birtast eiga í blaðinu á laugardög-
um í sumar, þurfa að vera komnar m skrif-
stofunnar
eigi síöar en kL 7
á föstudögum, vegna breytts vinnutíma
á laugardögum sumarmánuðina.
1 iV'ÍU'í ístí tr Ú ' I:Á . • r;'
Blaðburður
VISI vantar börn, unglinga eða roskið fólk
til að bera blaðið til kaupenda ura
•i
'IO;
TONGÖTU -
SRJ0LIN".
yf
Dagblaðið VÍSItt