Vísir - 16.08.1948, Side 4
4
V I S I R
Mánudaginn 16; ágúst 1948
VðSlE
DAGBLAÐ
Utgefandi: BLAÐACTGAFAN YISIR H/F,
Bttstjórar: Kristján GuQlangsson, Hereteinn Pálason.
Skrifetofa: Félagsprentsmiðjunni.
AfgreiQflla: Hverfisgötu 12. Símar 1660 (fimm iinar).
Félagsprentsmiðjan iuf.
LanflawJa 50 aurar.
Standa kosningar fyrir dyrunt?
Þegar síldveiðar hófust í vor töldu ýmsir sjómenn að
vænlega horfði um veiðarnar, en aðrir töldu litlar
líkur til verulegra veiðifanga og mörkuðu það aðallcga
af lítilli átu i þorski, sem veiddist. I raun og sannleika
runnu báðir aðilar hlint í sjóimi með vísdóm sinn, en svo
virðist, sem síldveiðin ætli að bregðast með öllu. Litlu
munar á síldarsöltuninni, ef miðað er við síðasta sumar,
en síld til vinnslu er fimm sinnum minni að magni, en
gerðist á sama tíma í fyrra. Hefur þá síldarvertíðin brugð-
ist í fjögnr sumur í röð, og stöðugt hefur afköma farið
versnandi.
Ef allt væri með felldíi hefði þjóðin staðist slílc áföll,
])ótt þau hefðu reynst heniii þúng í veiijuiegu árferði.
En að undanförnu hefur i eihu og öllu verið teflt á tæp-
asta vað, en guð og gæfunni falið án mannlegrar forsjá
að ráða fram úr öllum vanda. Hefnir þetta sin þvi þiiiig-
lega þegar svo mjög ber út af, sem nú er orðið. Fýrir
alla útvegsmenn er aflabresturinn drjúgur áfangi itl
•gjaldþrots, en ríkisbúið sjálft stendur litlu betur að vígi.
Alþing hefur krafizt sva óhóflegra útgjalda af ríkissjóði
á undanförnum áruin, að hann er þurrausinn og honum
því algjörlega lun megn að létta undir mcð hrynjandi at-
vinnuvegum. Talið er að ríkissjóður sluildi Landsbankau-
um marga 'tugi milljóha króna, og samkvæmt heiniild Al-
þingis hefur orðið að draga verulega úr útgjöldum, sem
ríkissjóði vai' ætlað að bera samkvæmt fjárlögum. Neyðin
hefur rekið til slíkra ráðstafana, enda gripa menn ekki
til þeirra að gamni sínu. Tollfekjur rikissjóðs hafa brugð-
izt tilfinnanlega vegna mihnkaðs innflutnings og verða
með allra minnsta móti á síðari helmingi þessa árs. Þegar
svo atvinnuvegirnir hregðast innanlands, léttir það sízt
undir með rekstri ríkisins.
Síldarverksmiðjur rikisins hafa verið reknar með stór-
felldu tapi á síðustu árurn, en þó mun tap þeirra hafa
orðið mest á síðasta vetri. Hafði þeim áður verið bundn-
ar þungar skuldabyrðar, sem vafasamt þótti að þær gætu
undir risið í meðalárferði, hvað þá nú þegar algjör afla-
brestur kemur til sögunnar. Bankarnir verða nú ein-
vörðungu að bera útgerðarkostnað smáútvegsins, með því
að olía fæst nú ekki lengur að láni og ei heldur veiðar-
færi eða aðrar nauðsynjar, svo sem matarúttekt o. II.
Töp bankanna hljóta því að verða æði tilfinnanleg eftir
sumarvertiðina, en bankarnir njóta nú allir ríkisábyrgðar,
þannig að raunverulega er um tap ríkissjóðs að ræða, ef
út af ber í rekstri bankanna. Eina vonin er að eitthvað
rætist úr, en sú von fer að verða dauf úr þessu, enda
óvíst hversu útvegsmenn og sjómenn treystast lengi ’til
að halda uppi árangurslausum síldveiðum. Horfurnar verða
því þungar í haust, hvort sem vetrarvertíð kann að hæta
úr þessu eða ekki.
Alþingi og ríkisstjórn geta að vonum lítið gert til úr-
bpta, þégar svo er komið hag þjóðarinnar, sem að ofan
er lýst. Svo virðist einnig sem vænta megi kosninga þá
og þegar. Aliir flokkarnir munu þegar hafa ákveðið fram-
bjóðendur í flestum kjördæmum, en venjulega gætir ekki
slíkrar fyrirhyggju fyrr en líður að kosningum. Sambúðin
rniíli stjórnmálaflokkanna er enganveginn góð og allt í
övissu um stjórnarsamstarf til frambúðar. Liðið er nú
langt á kjörtímabilið og engin ríkisstjóm mun treystast
til raunhæfra aðgerða gegn vaxandi vanda, sem á aðeins
eitt eða tvö ár upp á að hlaupa af venjulegu kjörtímabili.
Benda því allar líkur til að kosningar fari fram að vori,
ef ekki þegar í haust, sem verður þó að telja ólíklegra.
Nýjar kosingar geta verið nauðsyn, en sá bógur fylgir
þó skammrifi, að fari þær fram á vori komanda, cni lítil
eða engin líkindi til að snúist verði gegn ríkjandi öng-
þveiti, með þeim styrk sem vera ber, fyrr en kosningar
eru um garð gengnar. Eru flokkarnir vissulega ekki öfunds-
verðir af því hlutskipti, að eiga að mæta frammi fyrir
dómstóli þjóðarinnar, ef miðað er við allt, sem á undan
*r g<?ngi,ð og þær gyllingar, sein. þjóðinni hal'a verið gerðíu-.
í dag
er inánudagur, 1(3. ágúst,. —
22$. dagur ársins.
SjávarföII.
Árdegisflæði var kl. 04;15, en
siðdegisflæði verður kl. 16,40.
Næturvarzla.
Næturvörður er i Reykjavik-
ur-Apóteki. Næturlæknir er i
Læknavarðstofunni, simi ~ 5030.
Næturakstur i nótt annast B.S.R.,
simi 1720.
Veðrið.
Lægð við Suðúr-Grænland á
hreyfingu norðaustur eftir. Há-
prýstisvæði um ísland og uni mið-
bik Atlantshafs. Hægviðri og
bjartviðri fram eftir degi, en
þykknar upp með kvöldinu. —
Sennilega sunnan kaldi og rign-
ing i nótt.
Mestur Iiiti i Rcykiavik i gær
)ar 13,5 stig, en minnstur Iiiti
i nótt var 4,3 stig. Sólskin var
í gær í Rvík um 9 stundir.
78 farþegar
voru með Esjunni, er hún kom
úr fjórðu ferð sinni til Glasgow
i sumar. Flestir voru þeir brezk-
ir ferðamenn, er nuinu skoða
Reykjavik og nágrenni, eítir
þvi, sem tinii vinnst til.
Bólusetningu
gegii barnaveiki er haldið á-
fram og er fólk minnt á að láta
endurbólusetja börn sín. Má láta
vita um þetta í síma 2781 á
þriðjúdögum og miðvikudöguin. [
Skammtur 6
i skömmtunarbók nr. 1 er ó- i
gildur frá 10. september næstlc. að ,
telja, en iiann er innkaupaheim- 1
ild fyrir skömmtuðu smjöri. Er
alhygli almennings liér með vak-
in á þessu.
Ný niðursuðuverksmiðja
er tekin til starfa i Ólafsfirði.
A hún, þegar hún er fullgerð að
geta soðið niður í 30 þusund dós-
ir á sólarliring. Vélsmiðjan Héð-
inn sá unl niðursetningu véla.
Á föstudagskvöld
sótti Ólafur Baelnnann flug-
maður lítinn sjúkling, aðeins 1
árs, að Hvanncyri og flutti hann
til bæjarins i tveggja sæta einka-
flugvél. Lenti Ólafur á lúninu á
Hvanneyri og þykir vel gert.
Útvarpið í kvöld.
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón-
leikar: Lög úr tónfilmum (plöt-
ur). 20.30 Útvarpshljómsveitin:
hjóðlög frá NorðurJöndum. 20.45
Um daginn og veginn (Gunnar
Benediktsson rithöfundúr). 21.05
Einsöngur (Gunnar Kristinsson):
í') Fegursta rósin i dalniún (Árni
Thorsteinsson). b) Aría úr op.
„La Traviata“ (Verdi). c) Aria
úr op. „Traubadour“ (Verdi).
d) Aría úr óp. „Tannháuser“
(Wagner). 21.20 Þýtt og endur-
sagt: Pálina Bonaparte; bókar-
kafli (Hersteinn Pálsson ritstj.).
21.45 Tónlcikar: l’iðlusónata nr.
1 i g-moll, án undirleiks, eftir
Bafcli (plötur). 22.00 Fréttir. 22.05
Létt lög (plötur). 22.30 Veður-
fregnir.
S k y l d i
það vera Ijúður á ráði
manns að vera Ijóðelsk-
VÍSIR
FYRIR □□ ÁRUM
Fyrir 30 árum var mikið Iiljóm-
Iistarlif i bænum, eftir þvi scm
þá gerðist.
Hinn 10. ágúst 1918 var meðal
aúnars svoliljóðandi auglýsing:
„Hljómlcikar á Nýja landi (vafa-
láust Hótel ísland): Herra Þór-
arinn Guðmundsson (fiðla), Egg-
ert Guðmundsson (flýgel), Stef-
án Guðnason (selló), Eggert Guð-
niundsson (horn). í kvöld og
ntest kvöld til 1. október 1918.
Undir auglýsingunni var a.t-
húgasemdin: Ath.: Salurinn upp-
lýstur með benzínluktuiii,"
í sama blaði var aúglýst, að
bill færi til Keflavíkur á morg-
un og að nokkurir menn gætu
fengið far. Þá var mhférðiii ekki
meiri cn þetta.
Daginn eftir sýndi Gamla Bió
„Fatty á dansleik“, afskáplega
skemmtilegan gamanleik í 2 þátt-
uhi, eins og það var orðað i aug-
lýsingu Visis 17. ágúst.
Kommúnistar
reknir úr
lögregiu.
Tveir menn frá Scotland
Yard eru nýlega komnir tjl
Bogota í Colombia í S.-Ame-1
ríku til að lijálpa stjórninni
þar.
Verður hlutverk þeirra að
hjálpa stjórninni við að end-
urskipuleggja lögregitina,
þvj að það kom á dag’.nn eft-
ir uppþotin í vor ■— þegar
ráðstefna amerisku rikjanna
sat þar — að kommúnistar
áttu marga fluguménn innnn
lögreglunnar. Verða þoir úti-
lokaðir frá þeim og öðrum
opinberum störfum fratn-
Það var siður smápveina að
fara ',,út í haus“, eins og það
er nefnt og dorga. Oft máttí
fá nokkura fiska þarna í róleg-
heitum, og var gáman að. Þetta
var mikið „sport“, eins og þar
stendur, og munu margir Reyk-
víkingar hafa ljúfar endur-
minningar frá þeim tímum, er
þeir voru ungir og andvara-
lausir.
Það tíðkast enn í dag, að strák-
ar fari „út i haus“, eystri hafn-
arvitann, til þess að dorga. En
þetta er mál, sem hafnarstjórn,
eða aðrir málsmetandi aðilar
ættu að láta til sín taka. Ef ein-
hver af þessum litlu samborgur-
um okkar kynni að falla fram af
„hausnum“, hver er þá til a'S
hjarga honum? Ekki er þarna
hjarghring fyrir að fara, því a'ð
næsti bjarghringur cr ekki nær
en á vörugeymsluhúsi, sem er ca.
200—300 m. frá vitanum.
Það gæti hugsazt, að
yrði fullseint að sækja þennan.
bjarghring, ef einhver snáði
dytti þarna í sjóinn. Látum
svo vera, að einhver heyrði
hróp og köll barnsins, ef það
dytti fram af. En það kynni
að vera of seint.
*
Það kom maður að máli við mig
vegna þessa og bað mig að koma
þessu á framfæri og er það gert
líér með. Það verður a'ð vera
bjarghringur til taks úti í vita,
með liæfilegri línu eða kaðli.
Litlir strákar leggja jafnan leið
sína þarna út og hafa gaman af
upsa- og marhnútaveiðum. En
við verðum að gera allt, sem við
getum til þess, að þeir farí sér
ekki að voða. Þá mæti einnig
stinga þvi að hafnarstjórn, að rétt
væri að setja nýja girðingu
þarna um vitann. Á hernámsár-
unum var þarna steinsleyptur
veggur allt í kring, með skothol-
um. Nú hefir þessi veggur verið
rifinn, eins og rétt er, en engin
girðing. er komin i staðinn.Það
getur ekki kostað neina óskap-
lega fjárhæð að setja þarna upp
járngi'indverk.
Flugkennsla
Þyngri vél.
Páll Magnússon,
Sirni 6210.
Maður að uafiii Ivan Irak,
er barðist í landgöngusveit-
uni Bandaríkjaflotans í styrj-
öldinni, er infkill fjallgöngu-
inaður og hefir fyrir hx'agðið
hlotið nafnið „Ivan ósigr-
andi.“
Nú hefir hann á prjónun-
uin áform um að fara til
Alaska og klíla þar Logah-
fjall, næst-hæsta fjall Norð-
ur-Ameríku.
En hann hefir hugsað sér
að klífa þennan fjallstind
með nokkuð frumlegum
hætti. Hann vill fá flugvél til
þess að sleppa birgðum sín-
um í fallhlíf við rætur fjalls
þessa, sem er ca. 6000 metrar
á hæð, eða nær 20 þús, fet-
um. Hingað til liefir honum
ekki gengið vel að fá flug-
menn til þessa starfs.
„Ivan ósigrandi“ mun hafa
fundið fyrstu hvöt hjá sér til
þess að klífa fjöll, er hann
var í herþjónustu á Hawaii
í styrjöldinni, en þá gekk
hann á hið kunna eldfjall
Mauna Kea á tveim dögum,,
en þaðj er ,n(er jM^þú.s. Teta
hátt. Síðan fór liann með
hernámsliði Bandaríkja-
manna til Japan, og þai*
gerði hann það sér til dund-
m's að ganga á Fujiyama, hið
lielga fjall Japana, sem er um
12.400 fet.
Síðan gekk hann á
Whitney-fjall í Norður-
■ Ameríku, sem er eitt hæsta
fjall þar, og talið mjög örð-
u gt fjallgöngumönnum. —
Gckk hann á fjallið á hér-
mannsskóm sínum og við
yenjulegt hermannaviður
væri, eins og það tiðkast í
Bandaríkjunum.
Næst gekk Irak á fjallið
Orizaba í Mexíkó, sem er nær
19 þús. fet. Ótindir dónar
stálu matarbirgðum hans
svo hanh varð að fá auka-
bjrgðir.
Nú ætlar „Ivan ósigrandi“
að reyna við hæsta tind, sem
hann cnnþá hefir fengizt við,
Logan-fjall er yfir 300 mctr-
um hærri en nokkurt það
fjall, sem liann hefir ennþá
klifið. Síðar hefir hann í
►i Frai»h. á. 3. ,6Íð(i. ^ A