Vísir - 27.07.1949, Page 2
V I S I R
Miðvikudaginn 27. júli 1949
Miðvikudagur,
27. júlí, — 208. dagur ársins.
i
Sjávarföll.
Árdegisflóð kl. 7.30. -— SiS-
dggisflóS kl. 19.5°.
Næturvarzla.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni; síini 5030. Nætur-
vörður er í Lyfjabúðinni Ið-
unni; sími 7911. Næturakstur
annast Hreyfill; simi 6633.
CJí
Ungbarnavernd Líknar,
Templarasundi 3, er opin
þriðjudaga og föstudaga kl.
3.15—4 e. h.
Eru á förum.
Dr. Lindsey, skozki þjóö-
hátta- og listfræðingurinn og
kona hans eru á förum héðan,
en þau hafa dvalið hér að und-
anförnu á vegum Handíða-
skólans. Hefir dr. Lindsey hald-
ið hér nokkura fyrirlestra, sem
vakið hafa ntikla athygli.
Gullfaxi
fer aukaferð til Oslóar og
K.hafnar n. k. mánudag og er
komið aftur til Rvk. samdæg-
urs. Skrifstofa Flugfélags ís-
lands veitir frekari upplýsingar
um ferð þessa.
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af sira Hálfdáni
Helgasyni að Mosfelli, ungfrú
Margrét Einarsdóttir, Litla-
iandi og Jörundur S.veiiisson,
Freyjugötu 28, Reykjavik.
Þriðja flokks mótið.
Landsmót í 3. flokki i knatt-
spyrnu stendur yfir um þessar
mundir. Þriðja leik mótsins
vann Fram—K.R. með 2:1.
Fjórða leikinn, sem var milli
Vals og Vikings unnu þeir fyrr-
nefndu með 1 :o. Tveir leikir
eru eftir og standa stig þannig,
að Fram og Vikingur hafa 3
stig hvort, K. R. og Valur 1
stig hvort.
Samband fiskimatsmanna.
Nýlega hefir verið stoínað
hér í Reykjavík samband fiski-
matsmanna, en áður var starf-
andi.hér samband freöfiskmats-
manna, en þetta nýja samband
er fyrir alla þá, er öðlast hafa
réttindi til þess að vera fiski-
matsmenn á hvaða sviði sem
er. — Stjórn sambandsins skipa :
Jakob A. Sigurðsson, Akranesi,
form., Lýður Jónsson, Akra-
tiesi, Viggó Jóhannesson Rvk.,
Helgi Jónsson, Keflavík og
Guðmundur Jóhannsson, Rvk.
I
Aflabrögð
hafa verið ágæt hjá Eyja-
bátum að undanförnu. Bátar
hafa fengið 1—3 lestir af ýsu
yfir nóttina, en flatfiskur hafir
verið tregur. I botnvörpu hefir
einnig afiazt. ágætlega. Fengu
bátar, er þær veiðar stunda, i
fj'rradag 20 lestir af ýsu á 2^/2
sólarhring. Á handfæri Iiefir
verið rýr afli.
Stór hlýri.
1 s. 1. viku fékk m. b. Erling-
ur I. frá Eyjum stærri hlýra, en
menn muna lengi eftir að hafi
veiðzt. Hlýrinn -óg 22 Jvg.,
slægður, meö liaus. Fllýri heitir
ööru nafni steinbitsbróðir.
t
Héraðssamkoma
S næ f ei 1 i nga f él agsi n s ver ð.u r
haldin að B.úðum n. k. sunnu-
dag. Mörg skemmtiatriði.
»
Lingiadenfarar Ármanns
fóru í gær flugleiöis til
Stokkhólms meö Skymaster-
flugvéi Loftleiða „Heklu“, til
þess aö taka þátt i hinum miklu
hátiðahöldum Svía þ. 27.—31.
júlí n. k. Fíokkurinn. mætir fyr-
ir ltönd íþróttasambands ís-
lands og niun hann sýna 2 sinn-
um á Lingiaden. Guðrún Niel-
sen er kennari fl. og stjórn-
andi. Fararstjóri er Jens Gnð-
björnsson.
Æskan,
6.—7. tbl. 1949 er komið út.
Efni blaðsins er m. a. þetta:
Hörður og Gráni, saga eftir
Skúla Þorsteinsson, Það, sem
gefur mönnum lifið, eftir Leo
Tolstoj, leikritið ÁÍfablótið og
margt fleira. Margar myndir
eru í blaðinu.
í
Slökkviliðið
var kallað að Lindargðtu 38
laust fyrir kl. 6 í fyrrakveld, en
ekki var um neinh eldsvoða að
ræða þar. Viö rannsókn kom í
Ijós, að samsláttur hafði orðið
"1 brunaboðanum og orsakaði
það brunakallið.
Tomatar lækka.
S ö 1 u f é 1 ag gar ðy rk j u m a n na
hefir auglýst mikla verðlækk-
un á tomötum, eða um 4 kr.
hvert kg. Hvert kg. af fyrsta
flokks tomötum kostar nú 13
kr. í stað 17 áður og annar
flokkur kostar nú kr. 9.75, en
var 14 kr. áður.
\
Veðrið.
Um 300 km. fyn'r suðaustan
land er lægð. Hæö fyrir noröan
land : Horfur: Austan og norð-
austan gola eða kaldi. _ Dálitil
rigning.
Hvar eru skipin?
Eimskip: Brúarfos kom til
Rvk. 22: júlí frá Gautaborg.
Dettifoss íór frá Cardiff 25.
júlí til Boul.ogpe.qg A.ntwerpen,
Fjallfoss fór frá Leith 23. júlí
til Akureyrar, Siglufjarðar og
Rvk. -GoSafpss er j Vestm.eyj-
um; lestar frosi.nn fisk. Lag'ar-
foss kom til Rvk. 1. júlí frá
Hull. Selfoss fór frá Raufar-
höfn 24. júlí til Antvverpen og
Ivöge. Tröllafoss kom til Nevy
•Ýprk 25. júlí frá Rvk. Vatna-
jökull kom.til Rvk. 24. júlí frá
Hull.
Rikisskip: Hekla er í Glas-
gOW.Tisja er í Ryk.og fer héðah
annaö kvöld austur uni land til
Siglufjaröar. Herðubreiö er á
leið frá Austfjprðum til Rvk.
Skjaldbreið er á Húnaflóa á
suðurleið. Þyrill var i Hvalfirði
í gær.
Til gagns og gamans •
ýr Vtii farír
30 árutn.
Alþingi sat á rökstólunum
þann 25. júlí árið 1919 og fjall-
aði þá m. a. um frumvarp um
eyðingu refa. Þá birtist svo-
hljóðandi klausa í Vísi: Varð
hann hræddur? Við umræður
um refafrv. kom fyrir einkenni-
legt atvik i neðri deild j fyrra-
dag. Sigurður ráðunautur tók
til máls, og kvaðst vilja leggja
afarmikla áherzlu á, að öllum
refum í landinu væri eytt. Lagði
hann svo mikla áherzlu á orðið
,,öllum“, að sjá mátti það á
svip þingmanna og áheyrenda,
að þeir töldu hann eiga einnig
við hina tvífættu. Þegar hann
í annað sinn itrekaði þetta með
ákafa miklum, þá brá svo ein-
kennilega við, að einn þing-
manna gekk mjög sviplega út.
Var það 1. þm. Sunnmýl. (Sv.
Ól.). Eftir þessu tóku margir
og litu hvor á aðra og gáfu
olnbogaskot.
Ucer crti þetta ?
4.
Ofsanum skyldi enginn beita,
of er verst j hverjum hlut,
hófs er bezt og lags að leita,
lánið situr þá í skut,
— legðu nú við námfúst eyra,
neistar fljúga, blástu ei meira.
Hofundur vísu nr. 3 er:
Guðmundur Guðmundsson.
— Stnœlki —
Aldagamall siður er það meö
Austurlandaþjóðum að tengja
liti við aðaláttir. Hvítt er norð-
ur, gult e.r austur, rautt er suð-
ur og svart er vestur. Víða í
Kina hefir þessi hugmynd um
litina haft það í för með sér, að
borgarhliðin eru máluð með
þeim lit sem táknar áttina.
Þetta er síðasta málverkið,
sem eg hefi málað. Bygginga-
menn að vinnu. Það er mjög
eðlilegt.
Já, en þeir eru ekki að vinna.
Veit eg það. Þess vegna er
það eölilegt,
HrcMgáta hr. S/3
rm & i J □
5 rm. m
m L 1 U
s ■ 1 i)
/a 15 ■ IV
I* /(,
IS
Lárétt: 2 Skýli, 5 tóbak, 6
hreysti, 8 ríki, 10 streymdi, 12
grönn, 14 blóm, 15 höfuðborg,
17 líkamshluti, 18 fæddur.
Lóðrétt: 1 Meiddur, 2 óhrein-
indi, 3 jálkur, 4 fyrirsát, 7 tvö,
9 voð, 11 veiðarfæri, 13 rjúki,
16 verzlunarmál.
Lausn á krossgátu nr. 812.
Lárétt: 2 Helgi, 5 Pari, 6
óma, 8 K. E., 10 trog, 12 afl, 14
aka, 15 slúð, 17 in, 18 taska.
Lóðrétt: 1 Uppkast, 2 hró, 3
eimt, 4 inngang, 7 Ara, 9 efla,
11 oki, 13 lús, 16 Ð. K.
Skip Einarssonar & Zoega:
Foldin kom til Hafnarfjaröar í
gærmorgun. Lingestroom er á
leið frá Hull til F'æreyja.
4
Útvarpið í kvöld:
KI. 20.30 Útvaqissaga: ,,Ca-
■talina“, eftir Somerset Maug-
ham; XVII. lestur (Andrés
Björnsson). — 21.00 Tónleikar
(nýjar plötur) : a) Fjórar sjáv-
armyndir úr óperunni „Peter
Grimes‘ eftir Benjamin Britten.
b) „Vor“, symfónísk svita eft-
ir Debussy. — 21.35 Erindi:
F'rá sjöunda landsmóti Ung-
mennafélags íslands (Daníel
Agústinusson, fulltrúi).’— 22.00
Fréttir og veðurfregnir. —
22.05 Danslög (plötur). —-
22.30 Dagskrárlok.
Loffleiðir. — í gær var flog-
ið til ísafjarðar (2 ferðir), Ak-
ireyrar, Patreksfjarðar, Hólma-
víkur og Sands.
í dag er jiætlað að fljúga til
Vestm.eyja, Akureyrar, ísa-
fjarðar, Siglufjarðar, Kirkju-
bæjarklausturs og Fagurhóls-
mýrar.
Á morgup er áætlað að fljúga
til Vestm.eyja, ísafjarðar, Ak-
ureyrar, l3atreksfjarðar, Bíldu-
dals og Sands.
Hekla kom frá Stokkhólmi
i gær kl. 18. Fór kl. 20 til
Stokkhólms. og- K.hafnar. —
Væntanleg aftur um kl. o7 í
dag.
Flugfélag íslands. — í dag
verða áætlunarferðir til Akur-
eyrar (2 ferðir), Vestm.eyja,
Keflavíkur, ísafjarðar, Hólma-
víkur, Seyðisfjarðar og Norð-
fjarðar. Einnig eru átælaðar
ferðir frá Akureyri til Siglu-
fjarðar og ísafjarðar.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar(2 ferðir),Vestm,-
eyja, Keflavíkur, Reyðarfjarð-
ar og Fáskrúðsfjarðar.
í gær var flogið til Akureyr-
ar (4 ferðir),. Kópaskers, Siglu-
fjarðar og Keflavíkur.
Gullfaxi, millilandaflugvél
Flugfélags íslands, er væntan-
leg frá Prestwick og London kl.
18.30 i dag. Flugvélin fer til
Osló í fyrramálið kl. 8.30 með
40 farþega, og er væntanleg
þaðan aftur á föstudag.
17 stúdentar
farnst.
Talið er, að seytján stúd-
entar í Colombia í Suður-
Ameríku hafi orðið undir
hraunflóði og beðið bana.
Fór hópur nítján stúdenta
til að skoða eldstöðvar í
Cordilleras-fjöllunum 40 km.
frá horginni Popayan og hafa
aðeins tveir komizt til
byggða og sagt félaga sína
dauða.
Konan mín,
Guðlaug Einarsdóttir
andaðist 26. þ.m.
Guðjón S. Jónsson,
Helgadai, Mosfellssveit.
Bróðir minn,
lón Magnússon,
Oðinsgötu 11, andaðist að Elliheimilinu
Grund, Iaugardaginn 23. þ.m.
Fyrir hönd vandamanna.
Brynjóífur Magnússon.
Jarðarför mannsins míns og föður okkar,
Haraids Andréssonar,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 29.
þ.m. kl. 1 e.h.
Laufey Einarsdóttir,
Hrafnhildur Haraldsdóttir. Andrés Haraldsson.
Jarðarför móður minnar, tengdamóður, og
ömmu,
Hólmfríðar Benjamínsdóttur
fer fram fimmtudaginn 28. þ.m. kl. 1 e.h. og
hefst með bæn að heimili okkar Haðarstíg 18.
Jarðað verður frá Hallgrímskirkju.
Áðalsteinn Andrésson, Ingibjörg Agnarsdóttir
og börn.
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
Guðbjargar Vilhjálmsdóitur
Háteigsvegi 11.
Ingólfur Waage og börn.