Vísir - 15.09.1949, Síða 2
V I s I R
Fimmiudaginn 15. septcmber 1949
'fSfT':
Fimmtudagur,
15. september, — 258. dagur
ársins.
Sjávarföll,
Árdegisflóö kl. 11.00, — síö-
‘degisflóö kl. 23.40.
Ljósatími
bifreiöa og annarra ökutækja
'er frá kl. 20.25-—6.20.
Næturvarzla.
Næturlæknir er í Læknavarö-
'.stofunni, sími 5030, næturvörö-
ur er í Ingólfs Apóteki, sími
1330, næturakstur annast
Hreyfill, simi 6633. ,
U ngbar navernd
Líknar, Templarasundi 3, er
opin þriöjudaga, fimmtudaga
,og föstudaga kl. 3.15—4 síðd.
- ii.
Bólusetning
gegn barnaveiki beldur áfram
og er fólk minnt á aö láta end-
nrbólusetja börn sín. Pöntun-
nrn er veitt móttaka fyrsta
þriöjudag í hverjum mánuöi kl.
11—12 f. h. í síma 2781.
Heimdallur
heldur kvöldvöku í Sjálfstæð-
ishúsinu í kvöld. Meöal
skemmtiatriða er einsöngur,
Kristinn Hallsson og Nina
Sveinsdóttir mun syngja gam-
anVísur.
Sala happdrættismiða
í vöruhappdrætti Sambands is-
lenzkra berklasjúklinga er haf-
in. Svo sem Vísir hefir áöur
getiö um eru margir eftirsókn-
arverðir vinningar í liappdrætt-
inu og ættu sem flestir aö kaupa
miða og freista gæfunnar.
Póststjórnir
Noröurlandanna, Danmerkur,
Finnlands, íslands, Noregs og
Svíþjóöar, hafa ákveðiö að
minnast 75 ára afmæiis Al-
þjóöapóstsambandsins, hinn 9.
okt. n. k., meöal annars á þann
hátt að taka uþp sérstaka teg-
und póstsendinga, frá þeim
degi, svonefnd „Aerogram’*
(I.oftbréf) sem má senda flug-
leiðis til allra landa fyrir
venjulegt alþjóöa bréfburðar-
gjald, sem nú er 60 aura. —
P>réf þetta er ein örk, sem brjóta
má saman og loka. Ekkert niá
láta innan í það, en sé það
nert, verður bréfið ekki sent
flugleiðis. Bréfsefni þessi, með
áprentuðu (to aura burðargjads-
merki, veröa til sölu í flestum
pósthúsum landsins, og kosta
75 aura.
Hvar eru skipin:
Eimskip : Brúaríoss fór frá
Reykjavík 10. þ. m. til Kaup-
mannahafnar. Dettifoss er í
kaupmannahöfn. Fjallfoss er á
Siglufirði. Goöafoss fór frá
Hull 12. þ. m. til Reykjavíkur.
Lagarfoss var á Bíldudal i gær
ag íer þaðan til Patreksfjarðar.
gærkvöld austur og norður um
land. Tröllafoss íór frá New
York 7. þ. m. til Reykjavíkur.
Vatnajökuíl íór frá Leith 13.
þ. m. til Reykjavíkur.
Rikisskip: Hekla er í Ála-
borg, Esja var á Vopnafirði i
gær á suöurleið. Heröubreið er
1 Vestfjöröum á norðurleið.
Skjaldbreiö er j Reykjavik.
Þyrijl er i Faxaílóa.
Skip Einarsson & Zoéga:
Foldin fermir í Amsterdam í
dag. Lingestroom er i Amster-
dam.
Útvarpið í kvöld:
20.20 Útvarpshljómsveitin
Þórarinn Guðmundssón stjórn-
ir) y Lagaflokkur eftir W’eber.
0.45 Dagskrá Kvæðamannafé-
lagsins Iöunnar; tuttugu ára
afmæli: a) Ávarp fKjartan Ól-
aísson, formaður félagsins). b)
u-rindi Björns Sigfúss. háskóla-
bókav.) c) Upplestur : Kvæði
(Ólafur Þórarinsson) d)
Kvæðalög (Þuríður Friðriks-
dóttir, Jósep Húnfjörö, Sigriður
Friðriksson og Kjartan Ólafs-
son kveða). 21.30 Tónleikar:
SöngdanSar úr óperunni „Prins
Igor“ eftir Borodinc (plötur).
21.45 Á innlendum vettyangi
(Emil Björnsson). 22.05 Sym-
fónískir tónleikar (plötur) :
a);j Píanókonsert op. 21 eftir
Haydn. b) Symíónia nr. 4
e-moll eftir Brahms. 23.10 Dag-
skrúrlok.
Veðrið:
Nálægt Scoresbysundi cr
lægö er hreyfist hægt í austur
og fer dýpkandi-
Horfur: Hægviðri fyrst sið-
an SV-gola eða kaldi. Rigning
eða súld ööru hverju.
Hinn 12. september 1949
skipaði forseti íslands Thor
Thors sendiherra og Þlans G.
Andersen þjóðréttarfræðing ut-
anríkisráðuneyfisins, til að vera
í sendinefnd íslands á fjórða
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna, sem hefst í New York
hinn 20. þ. m. •—- Thor Thors
sendiherra er formaður nefnd-
arinnar.
Meistaramót í handknattleik.
Meistaramót Hafnarfjarðar í
handknattleik fer fram 11. k.
laugardag i Engidal viö Hafn-
arfjörð. Þátttakendur eru:
Fimleikafélag Hafnarfjaröar og
Knattspyrnufélagið Haukar
sem sjá um mótið. Keppt verður
í 4 aídursflokkum, meistarafl.
kvenna og karla og 2. fl.
kvenna og karla. Má eflaust bú-
ast við spennandi keppni í öll-
um flokkum. — Mótið hefst kl.
5 e. h. Ef veður leyfir verður
dansað í Engidal um kvöldið.
Til gagns og gawnans •
MwAAyáta Hr. SS3
z
t/ýe? ctti þetta?
44:
Upp úr hvítum úthafsbárum
ísland reis í möttli grænum.
Iieilluð grét eg helgum tárum
af hamingju og fyrirbærum.
Viö mér lirostu birkihlíðar,
blikuðu fjöll í sólareldi.
Aldrei fann eg fyrr né síðar
fegri tign og meira veldi.
> -iy l'ÆSI
Iiöfundur erindis nr. 43 er:
Stefán frá Hvitadal.
Ut tyiM fyrtt
30 árum.
Menn höfðu fjarska gaman
af að dansa í Reykjavik fyrir
30 árum, ekki siður en í dag,
en svolítið voru danssporin
öðru vísi þá. Sigurður Guð-
mundsson danskennari auglýsti
danskennslu í Vísi hinn 15.
septcmber árið 1919 og voru
þá þeSsir dansar nefndir riý-
tízka í auglýsingu ' hans:
„Two Step með breytingtim.!
One Step með breytingum. Fox
Trot. Pussy Trot. Mississippi
Trot. Bostonvais. Kostervals.
Hesitationsvals. Londónvals.
Honoluluvals. Tango Maxime.
Reck Time o. íl.“ Að sjálfsögðu
kenndi Sigurður fleiri dansa,
svo sem „Steppingu", „scenu-
dansa“og margt fleira.
1 sama tölublaði Vísis var
greint frá þvi, að Egill Vil-1
hjálmsson bifreiðarstjóri ætlaði:
utan bráðlega til þess að læra
fluglist. „Hann er gætinn og á-!
gætur bifreiðarstjóri og vona
menn, að hann reynist vel í
fluglistinni,“ segir ennfremur í
þessari Visisfrétt.
Flugið’:
Fltrgíélag ísiands: j
Innknlándsfíúg: Aætlúnáf-
fcrðir verða farnar í dag til
Akurey rar (2 ferðir)', V’est-
mannaeyja, , Fáskrúðsfjarðar,
Reyðarfjarðar, Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar.
;A morgun eru áætlaðar ferö-
ir til Akureyrar (2 ferðir),
Vestmannaeyja, Kirkjubæjar-
klausturs, Fagurhólsmýrar,
Hornafjaröar og Siglufjarðar.
f gær flugu ílugvélar F. í.
til Akureyrar (2 ferðir),
Blönduóss, Vestmannaeyja,
ísafjarðar og Hólmavíkur. Frá
Ákureyri var flogiö til Siglu-
fjarðar og ísafjaröar.
! Millilandaflug: Gullfaxi,
kom frá London og Prestwick
þl. 18,30 í gær. Flugvélin fer
áætlunarferö til Kaupmanna-
hafnar á laugardagsmorgun.
Loftleiðir:
: - '' A ' 3 '
‘ 'ðí 1 gær-Vár nldgið ! til VésU
mannaeyja (2 ferðir), fsafjar.ö-
ar (2 . ferðir), Akureyrar,
Kirkjubæjarklausturs og Ing-
ólfsfjarðar. Ennfremur var
flogið milli Hellu og Vest-
mannaeyja.
í dag cr áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja (2 ferðir), ísa-
fjarðar, Akureyrar, Patreks-
fjaröar, Bíldudals og Sands.
Á morgun er áætlað aö fljúga
til Vestmannaeyja (2 ferðir),
Akureyrar, ísafjaröar, Þingeyr-
ir, Flatevrar og Blönduóss.
Hekla fer til Prestwick og
Kaupmannahafnar kl. 8 í fyrra-
málið. Væntanleg aftur um kl.
18 á laugardag. Geysir var
væntanlegur í morgun frá New
York.
£mœlki —
Þegar morð hafa verið fram-
in má stundum ráöa það af kúl-
um skotvopnanna hvernig þau
hafa íarið fram. Oft sést það
greinilega á blýkúlum hvers
konar fataefni þau hafa snertá
leið sinni í mark. í frægu moiT
máli frönsku varð byssukúla úr
stáli þess valdandi að glæpurinn
lcomst upp, vegna þess að á
henni sát rispa eftir tönn þess
er veginn var.
-*>*• j
Lárétt: 1 Laglega, 5 mánuð-
ur, 7 samþj'kki, 9 geð, 11 ryk-
agna, 13 verkfæri, 14 missa, 16
ósámstæðir, 17 straumkast, 19
skemma.
Lóðrétt: 1 Kjamsa, 2 sam-
tenging, 3 verkfæri, 4 þraut, 6
veitingahús í Reykjavík, 8
tímabila, 10 látinn, 12 leikfang,
15 sjávardýr, 18 frumefni.
Lausn á krossgátu nr, 852: i
Lárétt: 1 Slanga, 5 far, 7 eK,-
9 fönn, 11 göt, 13 más, 1I4
gröm, 16 Ma, 17 Nói, 19 aug-
anu.
Lóðrétt: 1 Sleggja, 2 af, 3
naf, 4 gröm, 6 ansar, 8 kör, 10
nám, 12 töng, 15 móa,T8 in.
JarSarför fcður okkar og tengdaföður,
Magnúsar Bjarnarsonar,
fyrrum prófasts að Prestbakka,
fer fram frá Prestbakkakirkju á Síðu mánu-
daginn 19. b.m. kl. 2 e.h.
Kveðjuathöfn fer fram að heimiii hans á
Bergstaðastræíi 56, laugardaginn 17. þ.m.
ki. 5 síðdegis, og minningarathöfn í Dóm-
kirkjunni sama dag kl. 5,45 síðdegis.
Björn Magnússon, Ragnheiður Magnúsdóttir,
Charlotta Jónsdóttir, Hermann Hákonarson.
* Móðir og tengdamóðir okkar,
lohanna Pálsdótftif
frá Bíldudal, andaðist 14. þ. m.
Börn og tengdabörn.