Vísir - 05.11.1949, Síða 2
2
V I S I R
Laugardaginn 5. nóvembcr 1949
M,
Laugardagur,
5. nóvember, — 309. dagur
ársins.
Sjávarföll.
Árdegis.flóö var kl. 4.45. —
Síödegisílóö var kl. 17.05.
Ljósatími bifreiða
og annarra ökutækja cr frá
kl. 16.50—7.30.
(
Næturvarzla.
Næturlæknir e’r i Læknavarö-
stofunni; sími 5030. Nætur-
. vöröur er í Lyfjabúöinni Iö-
unni; simi 7900. Næturakstur
aniiast B.S.R.; sími 1720.
Helgidagsíæknir á morgun er
Eggert Steinþórsson, Ljós-
vallagötu 10; sími 7269.
Ungbarnavernd Líknar,
Teplarásundi 3, er opin þriöju-
daga, fimmttidaga og íösttidaga
3-15—4-
Kvöldvaka Fél. ísl. Ieikara
verður í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld kl. 6.30. — Ýmisleg
skemmtiatriöi veröa, og má bú-
ast við góðri skemmtun, eins
og áður á kvöldvökum Leikara-
félagsins, Ætlazt er til, að gest-
ir séu samkvæmisklæddir.
Háskólatónleikar
í tilefni af aldarártíð Chopins
veröa haldnir í hátíðasal Há-
skólans á morgun, og hefjast
kl. 8.30 siöd. Árni Kristjánsson
leikur pianóverk, en Þuríður
Pálsdóttir og Gunnar Kristins-
son syngja nokkur' af sönglög-
um Chopins.
Athygli
skal vakin á því, aö Fél. ísl.
hljóöfæraleikara hefir opnað
ráðningar- og upplýsingaskrif-
stofu að Ránargötu 34, sími
2157. Skrifstofan útvegar hljóð-
- íæraleikara, eftir því, sem ósk-
að er.
Hvar eru skipin?
Eimskip; Brúarfoss,' Detti-
foss, Fjallfoss og Tröllafoss eru
i Reykjavík. Goöafoss fór frá
Leith í gær til Reykjavíkur.
Lagaríoss kom til I.ondon 1. þ.
m. frá Hull. Selfoss er í Gauta-
borg, fermir i Kasko og Kotka
i Finnlandi 7.—12. þ. m. Vatna-
jökull fór frá Hamborg 31. þ.
m„ var væntanlegur til Austur-
landins i gær.
Rikisskip: Esja er i slipp i
Reykjavik, Hekla, Herðubreið
ig Þyrill eru í Reykjavík.
Skjaldbreið er á Húnaflóá á
norðurleið.
Skip Einarsson & Zoéga:
Foldin átti aö fara frá Amster-
dam í kvöld, áleiöis til Reykja-
vikur. Lingestroom er i Am-
sterdam.
Fimmtugur
;r í dag Einar Bæringsson, sjó-
maður, Bjargarstig 5.
Elliheimilið.
Guðsþjónusta verður í Elli-
heimilinu kl. 10 f. li. á ínorgun.
Síra Sigurbjörn A. Gíslason
prédikar.
Útvarpið í kvöld:
20.30 Leikrit: „Glerdýrin"
eftir Tennessee Williams. —
(I.eikendur: Arndís Björns-
dóttir, Regina Þórðardóttir,
Einar Pálsson og Lárus Páls-
son. — Leikstjóri: Einar Páls-
son). 22.20 Danslög (plötur) til
24.00.
Flugið.
Flugfélag íslands: I dag er
ráðgert aö fljúga til Akurevrar.
Siglufjarðar, Blönduóss, Sauö-
árkróks, Hólmavíkur, ísafjarð-
ar, Keflavíkur, Fagúrhólsmýr-
ar, Kirkjubæjarklausturs,
Hornafjarðar og Vestm.eyja.
Á morgun verður flogið til
Akureyrar, Vestm.eyja og
Keflavíkur.
í gær var ílogði til Akureyr-
ar, Vestm.eyja, Reyöarfjarðar
og Fáskrúðsfjarðar.
Messur á morgun.
Dómikrkjan: Messað kl. 11,
síra Jón Auðuns. (Ferming. Alt-
arisganga fyrir fermingarbörn
og aðra). Ekki messað kl.• 5.
Hallgrímskirkja: Messað kl.
11 f. h. Sr. Sigurjón Arnason.
Messa kl. 5 e. h., sr. Jakob Jóns
son. (Ræðuefni: Samfélag heil-
agra á himni og jörð). Barna-
guðsþjónusta kl. 2 e. h., sr. Sig-
urjón Árnason.
Nesprestakall: Messað í kap-
ellunni í Fossvogi kl. 2. Sr. Jón
Thorarensen.
Laugarnesprestakall: Ferm-
ing í Dómkirkjunni kl. 2 e. h.
Sr. Garðar Svavarsson. Barna-
gúðsþjónusta í Laugarneskirkju
kl. 10 f. h.
Fríkirkjan. Messað kl. 2 e. h.
Sr. Sigurbjörn Einarsson.
Elliheimilið. Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Sigurbjörn A. Gislason.
Fríkirkjan í Hafnarfirði:
Messa kl. 2. Sr. Kristinn Stef-
ánsson.
Útskálaprestakall. Messað í
Keflavíkurkirkju kl. 2. Sr. Ei-
rikur Brynjólfsson.
Veðrið.
Vfir Grænlandshafi er all-
djúp lægö, sem er nærri kyrr-
stæð og grynnisf. Djúp lægð
milli Færeyja og íslands á
hreyfingýí norðaustur.
Veðurhorfur: Noröaustan
kaldi, dálitil rigning norðan-
til.
Hjúskapur.
í dag veröa gefin saman i
hjónaband af síra Jóni Thor-
arensen ungfrú Guðný Sigur-
gísladóttir og Gísli J. Ástþórs-
son, blaðamaður. Heimili þeirra
verðttr aö Snorrabraut 40.
í dag veröa gefin saman í
hjónabend af síra Jakobi Jóns-
svni ttngfrú Kristin Bjarnadótt-
ir og Jarl Sigurðsson, Freyju-
götu 11.
Bessastaðakirkja: Messað á
morgttn kl. 2. Síra Garðar Þor-
steinsson.
Hafnarfjarðarkirkja: Sunnu-
dagaskóli K.F.U.M. kl. 10.
Til gagns og gamans *
Hdet crti þetta?
77 ■■
.. Hann geltir ætíð og gólar,
ef gestur um veginn fer,
og sýnir þaö með söngnum
og svipnum, hver það er.
Höfundur erindis nr. 76 er:
Guðm. Guðnutndsson.
Út VíSi forir
30 átuyn.
\'ísir segir frá eftirfarandi
hinn 5. nóv. 1919: „Mótorskip-
ið Ayo lagði af stað fyrir
nokkru frá Kaupmannahöfn, á-
leiöis hingað méð yörur til
kaupmanna. En fyrir nokkrtun
dögum kom skipið inn til Leith,
meö bilaða vél, og hefir legið
þar til aðgerðar siðan. Um-
boðsmenn Ayo, Guðm. Kr.
Guðmundssön & Co., hafa verið
í skeytasambandi viö skipstjór-
ann og fengu frá honum þá
frétt í gær, að vélin yrði reyiid
í gærkveldi, en lagt af stað í
dag, ef hún reyndist vel.
Skeyti kom frá Gttllfossi i
gærkveldi á 10. stundu. Skipið
var þá 9 mílur undan landi. —
stormur nokkur, en allt í bezta
gengi“.
HrcAAgáta ht. &9£
— £tnœlki
Prestur nokkur í vesturrikj-
um Ameríku átti að messa einn
sunnudag sem oftar. Ofsahríð
geisaði 0g fáir komtt til kirkju.
\’ar klerkttrinn að velta því fýr-
ir sér hvort hann ætti aö flytja
langa ræðu, sem hann haföi
samið fyrir þenna dag eða láta
nægja styttii ræðu, gamla. Það
varð þó ofan á, aö hann flutti
ræðtt þá sem ltann liaíöi samið
i vikunni. Eftir messtt spurði
hann bónda, sem komiö haíði
til kirkju, hvernig honum hefði
líkað ræðan.
„Ágætlega, en þegar aðeins
fáar af kindunutn míntun skila
sér heim, ber eg ekki eins mikið
hey í húsin og þegar þær eru
allar," svaraöi karliun.
Lárétt: 1 Karlmaður, 6 vökvi,
7 tvihljóöi, 9 konu, 11 marr, 13
skógarguö, 14 á litinn, 16 ó-
samstæðir, 17 last, 19 raki.
Lóðrétt: 1 Afturgöngur, 2
neyta, bh„ 3 látinn, 4 fals, 5
þrautir, 8 reiðihljóð, 10 mylsna,
12 skinn, 15 nægilegt, 18 skáld.
Lausn á krossgátu nr. 891:
Lárétt: 1 Böggull, 6 kæn, 7
já, 9 runn, 11 ösp, 13 nit, 14
rall, 16 Ð.U., 17 óar, 19 uggar.
Lóörétt: 1 Bújörð, 2 G.K., 3
gær, 4 unun, 5 lentur, 8 Ása, 10
niö, 12 plóg, 15 lag, 18 Ra.
^J^kisidiijUTfssjatqg. Hjek 1 jteru;
í.Reykjavík. Herðubreið fór frá
Reykjavík -vi gærkWÍJst til
Breiðáfjarðar og Vestfjaröar.
Skjaldbreið er á Húnaflóa á
rförðurleið. Þyrill er í Reykja-
.*|>kjp íEinarssoýi - Zoéga t
Foldin er í Amsterdam, fer ]>aö-
an^.væutaplega .siðdegis ;í , dpg,
áleitSis til Reykjavíkur;' Lingc-
stroom er i Amsterdam.
Hér með er skorað á þá
er kröfur eiga á Byggingarsamvinnufélag bankamanna
(Búnaðarbankadeild) að lýsa þeim fyrir hr. Garðari
Þórhallssyni, Búnaðarbankanum, innan 10 daga frá
deginiun i dag að telja.
Reykjavík, 5. nóvember 1949.
Stjórn Byggingarsamvinnufélags bankamanna.
TiMhgnning
Félag íslcnzkra hljóðfæraleikara hefir opnað ráðn-
ingar- og upplýsingarskril'stofu að Bánargötu 34. —
Skrifstofutími er alla daga frá kl. 11 f.h. til 3 e.li.
Sími 2157.
Skrifstofan mun að jafnaði geta útvegað fleiri eða
færri hljóðfæraleikara eftir því sem óskað er.
Þeir félagsmenn og utanfélagsmenn, sem enn hafa
ekki látið skrásetja sig, tali við skrifstofuna hið fyrsta.
, F. í. H.
Herra forstjóri:
Hafið þéi: athugað, að vegna takmarkaðs innflutn-
iugs, eru vörubirgðir yðar miklum mun dýraiætari nú,
en nokkru sinni fyrr. — Það er því auðskilið, að yður
cr ekki einungis nauðsynlegt að tryggja vörubirgðir
yðar í fullu samræmi við núverandi verðlag, heldur
einnig — tryg'gja yður vegna rekstui-sstöðvunar. —
Þér ættuð ekki að láta það dragast að hringja til
SJÓVÁ, og leita nauðsynlegra upplýsinga.
SÍMI 1700.
Þökkum samú& og vinarhug við and-
Iát og útfor föður okkar,
Björns MagnússonaL
Fyrir bond vandamanna,
Sigriður Björnsdóttir,
Magnús Björnsson.
IttS