Vísir - 06.12.1949, Blaðsíða 7
Þriðjudaginn G. desember 1949
V I S I R
7
3
Saktaus
sekur fundinn
Eftir
Richard Macauly.
djarflegt og drengilegt. Hárið Ijósbrúnt, pykkt og fór vel,
og andlitslagið gullfagurt, nema að kjálkabeinin voru i
við hærri en svo, að fullt .samræjni yæri í andlitsfallinu.
Hún svipaðist unr i kerrunm, sem. bafði verið heimili
bennar uudangengna vikú. íyerran vár rúmgóð og útbúin
öllu, sem hægt ér-áð kóma.við a slíku „heimili“. En \-itan-
lega var þarna um þrengslkað ræða, þar sem rými var
ekki mikið. Þegar-Ellen Ieit í kringum sig gat hún ekki
annað en saknað hinnar snotru og þægilegu ibúðar, sem
hún liafði haft í New York, og búið í í fjögur síðastliðin
ár. Þar hafði hún búið svo vel um sig og snoturlega, að
ætla mætti, að um ibúð væri að ræða, sem hún greiddi
fyrir þrefalt hærri leigu en hún raunverulega gerði. En
þessi heimþrá, sem kviknaði i huga hennar hvarf cins
skyndilega og hún kom. Allt, sem i ibúð hennar í New
York var, minnti hana á Sam, — og honum var hún að
revnaað gleyma. A ferðalaginu, er alltaf bar eitthvað nýtt
fj-rir augun, var þó margt, sem ekki minnti hana á Sam,
— en þó stundum. Ef til vill bifreið, sem var eins og sú,
sem Sam átti, eða göngulag einhvers minnti hana á Sam.
Það er oft sagt, að enginn geti flúið sjálfan sig, cf hjart-
að var órótt, en á ferðalaginu hafði þó margt orðið til þess
að sópa burt skýjum minninganna. Og henni fannst gott
að þreytast við aksturinn, en hún ók iðulega 209—400
kílómetra á dag og stundum lengri leið. Og nú var svo
komið, að jafnvel kerruheimilið geymdi minningar, minn-
ingar, sem enginn skuggi féll á.
I>að wttaði fyrir brosi á vörum hennar, er hún minntist
jx'ss með hve furðulegum liætti hún liafði komizt yfir
kerruna. Hún átti vinstúlku Katlúe Burns að nafni. Kathie
var fyndin og skemmtileg og varði öllum fristundum sín-
um i sölum útvarpsstöðva, þar sem skennntanir voru
haldnar, fyrirspurnakeppnir og efnt til getrauna. Þennan
dag var einmitt slik keppni haldin i einum útvarpsstöðv-
arsalnum og Kathie dró Ellen með scr á skemmtunina.
Þetta var skömmu eftir að slitnað liafði upp úr trúlofun
Ellenar og Sams. Ellen langaði ekkert til að fara, en gerði
það þó fyrir bænastað Ellenar.
Ellen var valin, af áhorfendum og áheyrendum, sem
cinn keppenda, og er hún hafði svarað ótal spurningum,
eins og hinir keppendurnir spurningum, sem i augum
menntaðrar stúlku, er fylgdist vel með, eins og Ellen, voru
barnalegar nijög, var henni tilkynnt, að hún hefði borið
sigur úr býtum í *keppninni — og hlotið verðlaunin, —
kerruna, sem nú var heimili hennar.
í fyrstu hugsaði Ellen á þá leið, að ekki gæti hún liaft
nein not af kerru þessari á Manhattan. Það var með hana
eins og flesta New Yrork búa, að hún mátti ekki lil þess
hugsa, að fara úr borginni, nema þá skamman tíma í
senn. En cr hún var orðin cigandi kcrrunnar skaut upp
þessari hugsun hjá. hcnni: Ilvj ekki að nola hana? IIvi
ekki að fara i langferðalag ?
Starf hennar? Ellen hafði unnið i sömu skrifstofunni
í New York í sex ár, eða síðan er hún var átján ára. Hún
hafði fengig starf sem skrifari i skrifstofu tízkutimarits,
og kom fljótt í Ijós, að hún hafði einkar góða hæfileika
til þess að draga tízkumyndir; og varð brátt einhvér bezt
metni starfsmaður tímaritsins i þeirri grein. Húsbóndi
hennar reyndi á allan hátt ag draga úr því að hún færi
i langferðalagið, en féllst að lokum á að veita henni frí
frá störfum ótiltekinn tima, þar sem honum var vel til
hennar, og hann hafði grun um, að henni liði illa, og það
væri á einlivern hátt tengt því, að hávaxinn ungur maður,
sem ávallt hafði komið til hennar i lok skrifstofutíma,
var nú horfinn af sjónarsviðinu. En liúsbóndi hennar
spurði hana ekki neins og Ellen lét kyrrt liggja.
Þannig al\-ikaðist þá, að Ellen fesli kerruna aftan í bif-
reið frá árinu 1940, og var bifreiðin i rauninni fulllétt, til
;
Sjáðu hvað ég get gert
heitir nýútkomin nýstárleg barnabók cftir frú GUÐRONU BRIEM HILT.
Um tilgang bókarinnar segir höfundur svo í bréfi til barnanna, sem
preutað cr fremst í bókinni: •
... . „Nú hef eg útbúið handa ykkúr svolitla bók, sem eg vona ;
að þið gctið dundað við í vetur. Það eru engin ævintýri í þess-
ari bók, og myndirnar eru ekki aðcins til að horfa á þær, heldur !
til þess að búa til úr þeiin ýmsa skemmtilega hluti og þú, sem
cignast þess bók, getur leildð þér að Jieim seinna.“
SJÁÐU HVAÐ EG GET GERT er lita- og leikfangabók, hliðstæð beztu ;
sænsku fyrirmyndum. En höfundur bókarinnar hefir dvalið langdvölum
erlendis og kynnt sér Jiessi mál. Þegar börnin hafa litað myndirnar, eru
blöðin tekin úr bókinni (þau eru öll sérstaklega götuð í Jieim tilgangi) og
leikföng búin til úr blöðunum. Þetta eru leikföngin, sem búa má til: Hús
með blóma- og- trágurði, Rugguhestur með knapa, Bátar með seglum,
Börn á sleðum og skíðum, Vöruflutningabill og- ljósmerki á götu, Jái*n-
brautarlest, Jólasveinar einn og átta ásalnt jólatré, Páskaegg, Hringekja
með titheyrandi. Allt þetta geta lagtækar hendur Iniið til úr blöðum !
bókarinnar.
SJÁÐU HVAÐ EG GET GERT er alger og skemmtilega nýjung í bóka- og
leikfangagerð hér á Iandi. Þau börn, sem Jiegar hafa átt kost á að kynna ;
sér Jiessa bók, eru öll stórhrifin af myndunum og leikföngunum, sem hægt
er að búa til úr þeim.
SJÁÐU HVAÐ EG GET GERT er sjálfsögð jólabók allra barna í ár.
Fæst hjá öllum bóksölum og beint frá útgefanda.
##./. Rjeiftwr
Sími 7554.
— Sandarnir.
Framh. af 2. siðu.
arsandur allur að vera grasi
gróinn og góð slægja komin
á mikinn hluta hans, enda er
nú svo komið, að nytja má
strax nokkuð af nýgræðsl-
unni, þeirri sem fyrst var
byrjað á. Annars á Jiétta
land, Jiegar Jjað er komið í
fulla rækt, að gela gefið
60—80 Jjúsund hesta af hevi.
eða fóður handa allt að 2 þús-
und kúm. — Og á sama hátt
— sagði Helgi að lokum
má græða upp ýmsar mestu
sandauðnir landsins ef veitt
er á Jjær vatni og vilji til
framkvæmda er fyrir hendi.
Jö i€t S k Ú Itlstlfjíi fl 1940
Uvítklædda konan
eftir W. CoMins er stór skáldsaga um ástir og
dularfull criög. Sagan hefir komið út í tugum
útgáfa á f jölda tungumálum og emnig venð kvik-
mynduð.
Kyítkiædda konan er skemmtilegasta þýdca
skáidsagan, sem við hc ímn gefið út.
Mófcfellsút&áfan
Sjóbuxur
(dökkbláar)
nýkomnar, — ennfremiir,
kerrupokar 2 gerðir. —
Sendurn í póstkröfu um
land allt.
REGIO H.F.
Laugaveg 11.
Opið kl. 2—(i e.h.
Sími 4865.
Herbergi óskast.
tvö samliggjandi. cða eitt
stórt herbergi óskast til
leigu nú þegar. - Uppl. í
síma 6004.