Vísir - 07.03.1950, Blaðsíða 1

Vísir - 07.03.1950, Blaðsíða 1
I 4Ö, árg. Þriðjudaginn 7. marz I93C 54, tbl. Andróður Alþýðuflokksins og- kommúnista gegn viðreisnarílillögum stjórnarinnar vekur furðu alfra hugsandi raanna, Afstaða kommúnista er að vísu skiljanleg. Þeir eru algerlega óábyrgir og vilja ekki ann- að en hrun og kreppu. Alþýðuflokkurinn segist ætíð •taka ,Abyrga“ at'stöðu í hverju máli. Hvernig hagar hann sér nú? Hann samþykkti vantraust á ríkisstjórn- ina og lýsti því jafnframt yfir, að hann bæri enga á- byrgð á þvi, þótt ekki væri hægt að mynda stjórn í staðinn. Hann segist vera móti gengislækkun. Jafn- framt lýsir hann yfir að styrkjaleiðin sé ekki lengur 'fær og verðhjöðnunarleiðinni afneitar hann, I-IVAÐ VILL ÞÁ ÞESSI „ÁBYRGI“ FLOKKUR? líann veit að allt er hér að fara í strand. Hann veit að atvinna almennings í landinu getur stöðvasí þá og þegar. Hann veit, að atvinnuvegirnir eru reknir með stórtaþi og eru komnir á lieljarþröm, Hvað vill hann þá gera til bjargaí? Jú, hann hefir eitt „hjargráð“. Það er að taka alia verzlunina í hendur ríkisins, útfluíning og innflutning, og eðlilega þá allan sjávarútveginn líka og stofna hér lítið „soviet“-ríki, Þetta er nákvæmléga það, seiu kommúnistar eru að keppa að, að koma hér upp ráðstjórn, Og nú hefir hinn „ábyrgi“ Alþýðu- l'lokkur í eymd sinni og úrræðaleysi lýst yfir því, að Iiann vilji leysa hin efnahag'slegu vandamál með því að koma hér á kommúnisma, að rússneskri fyrirmynd. Það er enginn furða þótt slíkur flokkur njóti ekki mikils trausts. Hann veit aldrei hvað hann vill. „Það góða sem hann vill, gerir hann ekki, en hið vonda, sem hann vill ekki, gerir liann“. Fyrir nokkru komu sérfræðingar efnahagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna saman á fund í Kaupmannahöfn, en sérfræðingarnli' áttu að.kynrut sér landbúnað í 8 löndum I Norðvestur-Evrópu. Frú Anderson, sendiherra Bandaríkjanna í Kaupmannahöfn sat fundi ráðstefnunnar og sést hún hér vera að fíytja eina ræðu sina. á henni. — qj. Vb. Jén Magnússon ferst nteð allri áhefn. Hannlektir út af vb. Fylki. Vélbáturinn Jón Magnús- son, er getið var í Vísi í gœr að ekkert liefði heyrst til í tv'o sólarhringa. er nú talinn a,f og hafa farizi rneð honuvi sex sjómenn. Vélbátur þessi var frá Hafn ari'iröi og fór hann ásamt öörum bátum á sjó s.l. föstu- dagskvöld og heyröist síðast til hans um klukkan 2 á laug- ardag, en þá var hann að draga línuna og haföi náö inn 17 bjóðum af 34. Síðast hefir ekkert til hans spurzt, en vélbáturinn Eggert Ólafs- son fann hurö úr stýrishúsi á reki út af Garðskaga á iaugardaginn og kom með hana hingað. Voru fengnir kunnugir menn til þess að athuga hurðina og töldu þeir hana vera úr stýrishúsi vél- bátsins Jóns Magnússonar. Skipverjar á Jóni Magnússyni. Á vélbátnum Jóni Magnús-: syni frá Hafnarfiröi voru þessir menn: j Halldór Magnússon, skip- stjóri, Noröurbraut 11 í Hafn i arfiröi. Hann var tæplega 52 ára. Fæddur 4. apvíl 1898. i Sigurður Guðjónsson, stýri ma'öur, Hellisgötu 7, Hafnar- firði. Hann lætur eftir sigj konu og 10 ára barn. Sigurð-1 ur var nýfluttur til Hafnar-j fjarðar, vestan frá ísafirði.! Hann var 37 ára aö aldri. Fæddur 20. nóv. 1912. Guðlaugur H. Magnússon, vélstjóri, Vesturbraut 13, Hafnarfirði, 19 ára, fæddur 4. apríl 1930. Hafiiði Sigurbjömsspn, matsveinn. Hann mun hafa búið í gistihúsi Hjálpræðis- hersins hér í Reykjavík. Ó- kunnugt er um aldur hans. Jónas Tómasson, háseti, Framh. á 2. síðu. Sundmót K.R. og t.R. verö\ ur háð í kvöld í Sundhöll- , inni og hefst kl. SV2. Þátttak- [ endur eru alls 70, þar af 5 utan af landi. I í 100 metra skriðsundij karla eru 13 keppendur/þar á rneðal niethafinn Ari Guð- mundsson, Æ. í 200 metra bringusundi karla eru 12 keppendur. í 100 metra baksundi karla er keppt um bikar er Jónas Halldórsson gaf. _________ í 3X100 metra boðsundi karla keppa sex sveitir og má búast við' mjög spennandi keppni. 1 100 metra skriðsundi kvenna eru fjórir keppendur. í 200 metra bringusundi kvenna eru þrír keppendurj og verður keppt um bikar, er j Magnús Víglundsson, stór- j kaupmaöur gaf. Einnig’ verður keppt í 100 j metra skriðsundi drengja, j 100 m. bringusundi dengja, 50 metra bringusundi telpna og 50 m. skriðsundi telpna. Umraeður ura konuitgsræð- una eru nú bvrjaðar og varj stefna stjórnarinnár, eins ogj hún kom fram í rceðimní, j gag’nrýnd mjög’ af ræðu-j mönnum úr flokkum stjórn- arandstæðinga, m. a. Eden fyrrv. utanríklsríiðherra. — Churchili flytur ræðu í dag’. 1 koiiungsneðunni var ekki vikið að einu aðalstefnumáli Verkalýðflokksins fyrir þing- kosuingam'ar, þjóðnýtingu jþrn- og stáliðnaðarins, og yar stjórnin gagnrýnd fvrir að ininnast ekki á þénnan iðnað, né heldur gera grein fyrir áiorm sin í öðru mikil- vægu máli, húsna'ðismálum þjóðaririhar. Sí jórnin leggnr lil að fram- lög til landvama verði hækk- Áfiasii 1 'I'ekmsr itjm, Hér liggur um þessar mundir hollenzk tankskip, Frisia, skrásett í Rotterdam. Sækir það þurskalýsi og hefir því verifi skipað um borð undanfarna tlaga. Þá hefir einriig legið hér danskt skip, Greeníand, sem skrá- j sett er í Esbjerg. Hefir það verið á linuveiðum hér við land, en afli verið tregur og einhver bilun orsakað einnig landlegu hjá því. Fjórir íslenzkir togarar séldu í Bretlandi í gær og seldu sumir sœmilega og aðr- ir ágœtléga. Kaiisefni seldi afla sinn, 3451 kit í Grimsby, fyrír 10.392 steiiingspund, Jör- undur seldi einnig afla sinn 3067 kit i Grimby, og fékk fyrir hann 10.317 sterlings- pund. í Hull seldi Skúli Mgn ússon 1 gær 3058 kit íyrir 8258 sterlingspund og loks seídi Kári afla sinn í Fleet- wood í gær, en hann var með 4087 vættir og fékk fyrir 9655 sterlingspund. uð um 20 milljónir sterlings- purid, vegria aukinna þarfa flughersins aðallega, sem stafa xn. a. af því að flug- lierinn á að fá margar þrýsti- ioftsflugvélar til umraða. Alls er ráðgert að verja lil landvarna 780 milljónum stérlingspunda. Björgunarsér- fræöiitgarnir fóru í morgun. Menn þeir, sem hingað komu frá Bretlandi, vegna Clainstrandsins. lögðu af stað til útlanda i morgun. Komu þeir nokkru eftir að skipið strandaði í síðara skíptið og áttu þeii* að athuga möguleika á að skiþinu yrði náð út. Muri þeiin ekki liafa þóit það óvinnándi verk í fyrstu, en svd seni getið var i Vísi i gær, er skipið mi.mj.ög lekið að liðast sundur. Hefir það gengið upp um miðjuna og sígið að aftari, einnig far- ið að sjá á því rifur á tiyrð- ingnum, svo að vöiúaúst er með öllu uin björgun. Dráttarbáturinn. . English- man hefir legið hér undan- farna viku ojg í s'. 1. viku kom hingað annar dráttarbátur. Bustler, til að vera til taks, éf reynt yrði að bjarga Clairi. léxir muriu nú sertn á föruiri, þar sem lengri dyöl liér er til einskis.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.