Vísir - 29.04.1950, Síða 2
V
2
V I S
Laugardaginn 29. apríl 1950
Laugardagur,
29. apríl, — .x 19. dagur ársinsi
Sjávarföll.
Ardegisflóö kl. 4.10. — Síö-
degisflóö kí. 16.35.
Ljósatími
bifreiöa og annarra ök'utækja
er frá kl. 22.15—4.40.
Næturvarzla.
Næturlæknir er i Læknavarð-
stofunni; sími 5030. Næturvörö-
ur er í Lyfjabúöinni ISunni;
sími 791 x. Næturakstur ann-
ast Hreyfill; sími 6633.
Helgidagslæknir
á morgun er Guðmundur
Guðmundsson, Vatnsstíg -9;
sírni 80790.
Ungbarnavernd Líknar,
Templarasundi 3, er opin
þriðjudaga og föstudaga kl.
3.15—4 síöd.
Skoðun bifreiða
hefst n. k. þriðjudag og held-
* ur áfram næstu daga, eins og
auglýst hefir veriö í dagblööum
bæjarins. Á þriðjudag verða
.skoðaðar bifreiðir nr. R-i—150.
Barnablaðið Æskan,
3. —4. tbl. 1950 er komið út
og ílytur að vanda margvíslegt
efni fyrir börnin. Nokkurar
ínyndir eru í blaðinu.
ApnThefti
íþróttablaðsins er komiö út
og er í því að finna margskon-
ar fróðleik um íþróttastarfsem-
iqa í landinu. Blaðið er hið
bezta úr garði gert og flytur
margar myndir.
Sjómannablaðið Víkingur,
4. tbl. 12. árg. er komið út
og flytur m, a. þetta efni: Hug-
leiðingar sjómanns, Björgun
353 manna, Hnefana á borðið,
Með Heklu til Skotlands, Þýtt
ög endursagt, Þáttur um sjó-
iþn, Hafnargerð á Patreksfirði,
Deilugreinar Theódórs Páls-
sonar og Sigurðar Sumarliða-
sonar, Skip og vélar og margt
fleira. Margar myndir eru í
blaðinu.
í dag
við setningu listamannaþings-
ins í Þjóðleikhúsinu, verður
fluttur hljómsveitarforleikurinn
„Minni íslands“ eftir Jón Leifs.
Þá verður verk eftir sama höf-
und ílutt í Þjóðleikhúsinu
sunnudaginn 30. marz. Nefnist
það „Sorgargöngulag úr tón-
leikum við Galdra-Loft“.
Áheit
á Strandarkirkju afh. Vísi:
V. L. S. 50 kr. Ó. J. 100 (gamalt
áheit). P. S. 50 kr NJ N 200
kr.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 30.30 Útvarpstríóið: Ein-
leiknr og tríó. — 20.45 Dagskrá
listamannaþingsins: Gömul ís-
lenzk leiklist. Frásagnir og upp-
lesti’ar. (Vilhjálmur Þ. Gisla-
son skólastjóri, Lárus Sigur-
björnsson rithöfundur og Sig-
urður Grímsson lögfræðingur).
— 22.00 Fréttir og veðurfregn-
ir. — 22.05 Danslög (plötur. •—
34.00 Dagskrárlok.
Áætlun Sameinaða.
Sameinaða gufuskipafélagið
hefir nú gefiö út prentaða á-
'ætlun fyrir ferðir m.s. Dr.
Álexanrine milli Faujunanna-
hafnar, Færeyja og íslands.
Gilclir áætlunin til september-
loka.
í byrjun júní hefjast hálfs-
mánaðarferðir milli Kaup-
mannahafnar og Reykjavíkur.
Fer skipið annanhvern laugar-
dag frá Kaupmannahöfn og
Reykjavík.
Einnig er áætlunin prentuð í
vasaútgáfu og verður hún af-
hent þeirn, sem þess óska á
Afgreiðslu félagsins í Tryggva-
götu.
i
i
Messur á morgun:
Dómkirkjan: Messa kl. 11.
Síra Bjarni Jónsson. (Ferm-
ing). Kl. 5, sr. Jón Auðuns.
Laugarneskirkja. Messa kl.
11 f. h. (Ferming). Sr. Garðar
Svavarsson. Messa kl. 2. (Ferm-
ing). Sr. Garðar Svavarsson.
Barnaguösþjónustan fellur nið-
ur vegna ferminganna.
Hallgrímskirkja. Messa kl.
11 f. h. Sr. Jakob Jónsson.
(Ferming). Kirkjan opnuð al-
menningi kl. 10,45. — Kl. 5 e. h.
Sr. Sigurjón Þ. Árnason.
(Ferming).
Hafnarfjarðarkirkja. Messa
kl. 2 e. h. (Ferming). Sr. Garðar
Þorsteinsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði:
Messað kl. 2 e. h. Sr. Kristinn
Stefánsson.
Lágafellskirkja. Messa kl.
14. Sr. Hálfdán Helgason.
Lágafellskirkja. Messa kl. 14.
Sr. Hálfdán Helgason.
Nesprestakall: Messað í Mýr-
arhúsaskóla kl. 2.30. Sr. Jón
Thorarensen.
Elliheimilið: Guðsþjónusta
kl. n f. h. Sr. Sigurbjörn Á.
Gíslason.
Fríkirkjan: Messa kl. 2 e. h.
Síra Þorsteinn BjörnsSon pré-
dikar K.F.U.M.F. kl. io_f. h.
Hvöt,
Sjálfstæðiskvennafélagið,
heldur hinn árlega bazar sinn
þriðjudaginn 2. maí í Lista-
mannaskálanum. Þær konur,
sem eiga eftir að gefa muni á
bazarinn, eru vinsamlegast
beðnar að gera það sem fyrst.
Þessar konur veita gjöfum á
bazarinn móttöku: Dýrleif
Jónsdóttir, Freyjugötu 44,
Þorbjörg Jónsdóttir, Laufás-
Til gagns og gatnans
í(r Vtii fyrír
36 áturn.
Eftirfarandi leiðrétting birt-
t
! ist í Vísi fyrir 30 árum: Iierra
: ritstjóri, viljið þér gera svo vel
] að ljá eftirfarandi línum rúm
í yðar heiðraða blaði:
í Alþýðublaðinu 27. þ. m.. er
greinarkorn með yfirskriftinni
,,Siðleysi“ og þar gerður að
< umtalsefni dansleikur er dans-
| skólinn hélt aðfaranótt sunnu-
j dags s. 1. Þar er svo sagt frá, að
1 iiðsforingjar þeir af „Islands
i Falk“, er þar voru staddir, hafi
verið drukknir með hávaða og
; fíflsskap.
i Þar sem umgetnir l.iðsfor-
j ingjar voru mínir gestir þetta
■ kvöld, finnst mér skylt að mót-
mæla áburði þessum, sem alger-
; lega tilhæfulausuni og er mér
i ánægja að taka það fx'am, að
þeir, eins og allir, sem þar voru
staddir, komu fram sem sið-'
prúðum og kurteisum mönnum'
sæmir. Það er því vonandi AI- ^
_ Jiýðublaðsins vegna, að einhver
hafi logið þessu í það, því eg,
vil ekki ætla því svo illt, að það
sjálft ljxigi á rnenn vömmum og
skömmum.að ástæðulausu. .. .
£tnœlki
Hjón ein r borginni Dalton i
Géorgia-fylki vestan hafs eig'a
hund og kott, sem eta ævinlega
úr sama dalli. Hundúrinn biður
alltaf, meðan kisa etur og tek-
ur fyrst til matar síns, þegar
hún hefir lokið sínúm helmingi.
Churchill er fyndinn maður
og er margt eftir honum haft.
Þegar hann varð 75 ára nýlcga
á hann að hafa sagt: „Eg er nú
reiðubúinn til þess að hitta
skapara minn — en hvort skap-
ari minn er undir þá þolraun
búinn að hitta mig, það er ann-
að mál.“
Vinur: Þú gléymir henni
bráðum og verður hamingju-
samur aftur.
Vpnsvikinn biðill: Ó, nei, eg'
gleymi henni ekki. Eg hef
keypt of mikið handa henni upp
á lcrít til þess.
HnMtfáta ak 1023
Lárétt: 2 Ótta, 5 týjhljóði, 7
ósamstæðir, 8 endúrbætur, 9
tveir eins, 10 tveir eins, n þing-
maður, 13 káta, 15 heiður, 16
gróða.
Lóðrétt: 1 Fjall, 3 gróa, 4
ríki, 6 hljóð, 7 nokkur, 11 spíra,
12 hreyfast, 13 þyngdareining,
14 rykagnir.
Lausn á krossgátu nr. 1022:
Lárétt: 2 U.S.A., 5 al, 7 er,
S tornæmi, 9 U.E., 10 M.M., 11
lim, 13 Ránar, 15 gæs, 16 sól.
Lóðrétt: 1 Matur, 3 sængin,
4 grimm, 6 Lot, 7 emm, 11 lás,
12 mas, 13 ræ, 14 ró.
Ásta Guðjónsdöttir,
»•0111 35, og María Maack,
oltsstræti 25. Hún veitir
ig árgjöldurn félagskvenna
1 i' ökuj
í leikdómi,
sem birtist hér í blaðinu i gær
úm „íslandsklukkuna“ féll nið-
ur nafn frú Eddu Kvaran, sem
lék Staðarkonu nijög laglega,
en þar er um lítið hlutverk að
ræða. Fallið hafði niður hluti
af setningu, er skyldi hljóða:
„... . að smáþjóð verði að var-
ast afskiftasemi stórvelda, með
því að geri hún það ekki, þá
verði hún gléyþt í einum bita“.
Loks liafði fallið níður'eitt orð
í setningu, er átti að liljóða svo:
„Ævar Kvaran og Valdemar
Helgason fóru báðir vel meö
hlutverk sín.
Hvar eru skipin?
Brúarfoss fór frá K.höfn 27.
apríl til Gdynia. Dettifoss koni
til Rvk. 27. apríl frá Hamborg.
Fjallfoss fór frá Rvk. 17. apríl
til Halifax, N.S. Goðafss fór frá
Rvk. í gær til Vestm.eyja, Hull
Antwerpen og' Rotterdam.. Lag-
aríoss er í Rvík. Selfoss er í
Borgarnesi; fer þaðan til Akra-
ness og Rvk. Tröllafoss fór frá
Baltimore 18. apríl; væntanleg-
ur til Rvk. á sunnudagsmorgun,
30. apríl. Vatnajökull er á
Spáni. Dido lestar áburð í Nor-
egi til Rvk.
Skip SÍS: M.s. Arnarfell fór
frá Réýkjavík á miðvikudag á-
leiðis til Grikklands. M.s.
Hvassafell fór frá Cadiz á
•mánudag áleiðis til Akureyrar.
Eimskipafél. Rvíkur H.f.:
M.s. Katla er í Reykjavík.
Ríkisskip: Hekla átti að fara
frá Akureyri í gærkvöldi vest-
ur um land til Akureyrar. Esja
fer frá Rvk { kvöld austur um
land til Siglufjarðar. Herðu-
breið fór frá Rvk. kl. 24 í gær-
kvöldi austur um land til Bakka-
fjarðar. Skjaldbreið átti að fara
frá Akureyri síðdegis í gær
vestur um laud til Rvk. Ármann
fór frá Rvk í gærkvöldi til
Vestm.eyja.
Skip Einarssonar & Zoéga:
Foldin fór frá Algier á mið-
vikudag ále.iðis til Englands.
Lingestroom er í Færeyjum.
Veðrið:
Um 1200 kilómetra suðvest-
ur i hafi er alldjúp og víðáttu-
mikil lægð, er þokast austur og-
noröaustur eftir. Hæð yfir N-
grænlandi.
Horfur': A-k.aldi, skýjað en
úrkomulaust.
Hvað viltu vita?
Námfús spyr: Viltu geva
svo vel að svara eftirfarandi
spurningíim mínum ? 1)
Hvað er aldurstakmark við
inngöngu í Kennaraskólann?
2) Á hann, samkvæmt nýju
fræðslulöggjöfinni, að út-
skrifa studenta? 3) Ilve liátt
er skólagjaldið? 4) Hvaða
námsgreinar eru kenndar i
1. og 2. bekk Verzlunarskól-
ans? 5) Hvernig finnst þér
skriftin min?
Svar: Aldurstakmarkið er
18 ár og skilyrði gagnfræða-
próf. Námið er fjögur ár skv.
reglugerð, en jafngildir ekld
stúdentsprófi, þótt lcennsla
sé i Ivennaraskólanum meiri
í sumum námsgreinum.
Kennslugjald er ekkert frek-
ar en í öðrum rikiskólum. í
t. bekk Verzlunarskólans eru
þessar námsgreinar kenndar:
íslenzka, danska, enska,
reikningur, bókfærsla, nátt-
úrufræði, saga, landafræði,
vélritun, skrift og leikfimi.
í öðrum bekk eru sömu
námsgreinar kenndar nema
bælt við þýzku og hætt við
kennslu í náttúrufræði.
Skriftin er bæði skýr og
áferðarfalleg.
Sjómaður spyr: Mun það
rétt orð yfir þá báta er sækja
sjó Iiéðan úr Reykjavík og
öðrum verstöðvum og koma
að Iandi með afla sinn emu
sinni á sólarliririg að kalla þá
landi’óðrabáta. Eg hefi van-
izt orðinu útróðrabátur og
bið blaðið um að skera úr því
fyrir mig hvort muni réttara
vera?
Svar; íslenzkufræðingur,
sem „Hvað viltu vita?“ leitar
oftast til, þegar um svipaðar
spurningar um íslenzkt mál
er að ræða, telur ekki skakkt
að tala um landróðrabáta, þól t
honum sjálfum finnist orðið
eldvi vera fallegt. Aftur á
móti segir hann að útróðra-
bátar eigi yfirleitt við bála
er stunda útróðra, hvort sem.
þeir gera að afla í landi eða
ekki, en áður fvrr komu bát-
ar jafnan að landi einu sinni
á sólarhring. íslenzkufræð-
ingurinn liefir þó lieyrt aim-
að orð yfir svonefnda land-
róðrahóta, er harin telur bezt,
en það er dagróðrabátar.
k¥u phölliF
er miðstöð verðbréfavið-
skiptanna. -- Sími 1710.
Jarðarför mannslns míns,
Einars Þorgrimssonar,
forstjóra,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðiudaginn 2. maí
kl. 2 e.h. Athöfninni verður útvarpað.
Elín Þorgrímsson.