Vísir - 15.05.1951, Síða 8
<9_
Þriðjíidaginn 15. maí 1951
líeiiigTiáiiIsfar u
Kóreu ureð Vi
Sameinuðu þjóðirnar hafa nó ekkert
iið norðan 38o breiddarbaug.
1 Kommúnistar í Kóreu'
Jialda áfram liðflutningum1
sínum suður á bóginn í átt-
ina til 138. breiddarbaugs,
þrátt fijrir ákafar árásir flug
véla Sameinuðu þjóðanna á
flulningalestirnar.
Þykir sýnt, að kommún-
istar nndirbúi nýj'a sókn af
kappi, og muni koma í ljós
sem fyrr, að jieir muni ekki
hika við að fórna miklu í
von um árangur. í fyrradag
voru gerðar yfir 800 flug-l
yélaárásir á flutningalestirn |
ar, í gær milli 450—500. Tal-j
ið er, að kommúnistar hafi
allt að liálfa milljón mánna
tiltæka til sóknar.
Könnunarflokkar Samein
uðu þjóðanna hafa þreifað
fyrir sér á vígstöðyunum
allvíða, án þess að verða
varar könunúnísta, og
hvergi liefir komið til átaka
að ráði seinustu daga nema
austarlega á vígstöðvunum,
milli kommúnista og Suður-
Kóreumanna.
Neyddust hinir síðar-
nefndu til að yfirgefa slöðv-
ar sínar norðan 38. hreidd-
arbaugs og hafa Samcinuðu
Jjjóðirnar nú ekkert lið norð
an baugsins.
1 Bandaríkjunum hefir
verið veizt nokkuð að Suð-
ur-Kóreumönnum fyrir slæ-
lega frammistöðu í seinustu
sókn kommúnista. Van Fleet
yfirmaður 8. hersins hefir
tekið svari þeirra drengi-
lega. Kvað hann þá hafa har-
izt af lmgrekki hæði á vest-
ur- og austurvígstöðvunum,
og á austurvígstöðvunum
einum hefðu þeir fellt 5000
kommúnista á 5 dögum.
Bandarík jamenn
gramir.
Yaxandi gremju gætir nú
í Bandaríkjunum yfir því,
að Bandaríkin verði að hera
liita og þunga dagsins i har-
dögunum i Kóreu ásamt
Suð u r-Kó reumö nn um. Til
dæmis hefir Nýsjálending-
um verið horið á hrýn, að
þeir hafi lítið lagt af mörk-
um, en því ncita Nýsjálend-
ingar, og segja, að miðað við
íhúatölu þurfi þeir ekki að
fvrirverða sig fyrir þátttök-
una, því að þar sc Banda-
ríkjamenn og Suður-Kóreu-
menn að cins þeim í'remri.
Marshall hefir tilkynnt, að
Bandaríkin geti frá því i
næsta mánuði flutt rúmlega
heilt herfylki mánaðarlega
til Kóreu, án þess að draga
úr skuldbindingum annars
staðar.
Marshall sagði i gær, að
Ridgway hershöfðingi væiri
algerlega samþykkur stefnu
Trumans í Asíumálunum.
Æ fgfreiösiea
VÍSIS
ej* íratnvefýis í
Ingólfsstræti 3.
■
Agætur karfaafli.
Togwri Síobm til ÆSiB'etness
wtteö 373 Íestiw• inteítt.
Togararnir hópast nú inn,
sumir eftir fremur skamma
títivist, til þess að losa afla
isinn og komast út afttur fyr-
|r fimmtudagskvöld.
Þá hefst verkfall á mið-
íiætti, ef ekki næst samkomu-
Jag milli félaganna, sem verk-
fall hafa boðað, og vinnu-
veitenda.
Er þeirra meðal, sem
iunnugt er, verkamannafé-
lagið Dagsbrún.
Togararnir, sem á karfa-
yeiðum eru, afla nú fyrirtaks
vel. Bjarni Ölafsson kom til
Akrancss í gær með cinhvern
mesta, cf ckki mesta afla,
sem hann nokkurn tíma hef-
ir fengið á karfaveiðum, 373
lestir. Mestur hluti aflans
var karfi.
Togarinn Fylkir kom einn-
ig iil Akraness. Hann vár
með fullfermi og landaði 100
lestum á Akranesi, en fór
mcð hitt lil Hafnarfjarðar.
Loks kom togarinn Nep-
túnus til Akraness með full-
fermi. Þorskafli er tregari. —
Til Reykjavíkur hafa komið
af veiðum Þorsteinn Ingólfs-
son, Uranus og Hallvcig
Fróðadóttir og Vestmanna-
eyjatogarinn Elliðaey mcð
brotið spil. Skúli Magnússon
og Ölafur Jóhannesson fóru
á veiðar laugardag s.I.
S.l. föstudag ók drukk-
inn maður á vörubifreið hjá
Sætúni 8. Við rannsókn kom
í Ijós að auk þess sem mao-
urinn var drukkinn var hann
einnig ökuréttindalaus.
Þetta skeði laust fyrir kl.
11 um morguninn. Sá sem
álti vöruhílinn ákvað strax
að ná í lögregluna, er hann
sá hve ölvaður maðurinn var.
Bað liann félaga sinn að gæta
mannsins á meðan, en þegar
hann var farinn vildi sá
drukkni endilega fara á bif-
reiðaverkstæði Hrafns Jóns-
sonar og lcvaðst eiga þangað
hiýnt erindi. Taldi gæzlu-
maðurinn sér ekki annað
fært en leyfa honum það, ók
honum þangað og skildi hann
þar eftir. Þegar sá drukkni
hafði staldrað þar við ofur-
litla stund hélt hann áfram
og fyrir bragðið varð að líon-
um allmikil leit.
Loks fann rannsóknarlög-
reglan manninn á ákveðnum
matsölustað hér i bænimi og
tók hann þar fastan. Við
rannsókn málsins kom í ljós
að maðurinn var ökurétt-
indalaus.
Skemmdir á farartækjun-
um voru litlar.
Ví og ASÍ ræð-
ast við enn.
• Nefndir vinnuVeitenda
og verkalýðsfélaganna,
sem boðað hafa verkföll
koma sarnan á fund í dag
kl. 4. Þær komu einnig
saman á fund | gær kl.
21/2 og stóð hann fram
eftir degi.
KI. 11 árd. á Iaugardag
fóru 3 fulltrúar úr hvorri
nefnd á fund ríkisstjórnar-
innar og ræddu við hana,
en kl. 2 á laugardag var
svo fundur haldinn og
varð þar samkomulag urn
áð leggja málið í hendur
sáttasemjara.
Frá viðræðum þessum
er ekki unnt að segja nán-
ar á þessu stigi1 málsins, en
ar því sem hér hefir verið
sagt má sjá að leitast er
við að finna samkomulags-
gtrundvöll.
Myndin hér að ofan er frá einni af sigurförum þeim, sem
MacArthur hei-höfðingi fór í Bandarikjunum við ltomu
sína þangað. Er myndin tekin í San Francisco og eru
Warren fylkisstjóri og Robinson bcrgarstjórii með honurn
í bílnum.
Eldur hjá tveim kaupféiögum.
Bæði á Þsngeyri og Vopnafiröi og tjón meira þar.
Fyrir hvítasunnu kom upp
eldur í vörugeymslum
tveggja kaupfélaga — sitt á
hvoru landshorni — og varð
tjón all-mikið.
Snenima á laugardags-
morgun kom upp eldur í
vörugeymslu Kaupfélags
Dýrfirðinga á Þingeýri. Vann
slökkvilið staðarins ötullega
að slökkvistarfinu, en ekki
var þó húið að kæfa hann
fyrr en kl. 8 um morguninn.
Varð talsvert tjón á vörum
Kaupfélagsins, hæði af eldi
og vatni.
Laust eftir hádegi á laug-
ardag kviknaði einnig í vörú-
geymslu kaupfélagsins í
Vopnafirði. Þar voru m. a.
geymdir 200 hesthurðir af
töðu og kom éldurinn uþp í
heyinu. Vatn var horið á
heyið, en meðan eldinúm í
því var haldið í skefjum, var
unnið að því að ryðja öðr-
um varningi úr húsinu. Hey-
Ullarverð í Ástralíu lækk-
ar enn, Iiefir lækkað um %
miðað við verðlag i marz, er
það náði hámarki.
ið eyðilagðist en öðrum vör-
um varð bjargað með þessu
móti og þótt húsið standi enn
er það ónýtt með öllu. Hefir
tjón því orðið tilfinnanlegt
þar eystra.
Óvíst er um eldsupptölc á
báðum stöðum.
Nýrrar gerðar tvíhreyfla
orustuflugvéla hefir orðið
vart yfir Norður-Kóreu. Þetta
eru þrýstiloftsflugyélar af
rússneskri gerð.
f
Ingólfur Gíslason
lækriir.
Ingólfur Gíslason læknir
létzt á sjúkrahúsi í gær-
kveldi.
Ingólfur var fpeddur að
Þverá í Þingeyjarsýslu 17.
júlí 1874. Hann lauk stúd-
entsprófi 1896, en skipaður
læknir í Reykdælaliéraði
1901. Sama ár var hoiium
veitt Vopnafjarðarhérað og
Borgarneshérað 1923. Hann
fékk lausn l'rá embætti 1941
og fluttist skömmu síðar
hingað til Reykjavíkur.
Ingólfur - var gáfiunaður,
skáldmæltur og ritfær í
hezta lagi. Hann hefir skrif-
að tvær minningahækur, sem
notið hafa mikilla vinsælda,
„Læknisævi“ og „Vörður viö
veginn“ og í útvarpi þótti
hann hinn skemmtilegasti
fyrirlesari.