Vísir - 29.05.1951, Side 2
a
V I S 1 R
Þriðjudaginn 29. maí 1951
Hitt og þetta
K. C. Wu, sem nú er forseti á
Formósu kom árið 1923 til
Princeton og setlaði að nema
þar hagfræði og stjórnmál. Var
Tiann aðeins 20 ára að aldri.
Hann stóð andspæns Andrew
Fleming West, rektor, sem þyk-
ir all-ægilegur og tekur sjálfur
á móti öllum, sem leita inngöngu
í skólann. Rektor virti fyrir sér
ásjónu piltsins, sem var kringlu-
leitur og barnalegur á svip.
„Ungi maður,“ sagði hann
eftir andartaks þögn. „Þér eruð
nokkuð óþroskaður."
„Herra,“ sagði pilturinn,
„það, að dæma þroska manna
eftir aldri þeirra, er í sjálfu sér
óþroskuð hugsun.“
Rektor veitti piltinum þegar
viðtöku.
Stúlka ein, sem var þrítug aS
aldri, vann í banka en þangað
kom oft velefnaíSur bóndi, sem
hún var kunnug. Nú kemur
hann einn dag og hafði þá ekki
sézt þar um tíma. Segir hann
við afgreiðslustúlkuna: „Mér
sýnist þú hafa gildnað dálítið.“
Hún segir: „Veiztu þaS ekki,
að þú mátt aldrei hafa orð á
því viS konur, aS þær sé aS
fitna?“
„Nú,“ segir hann hissa. „Eg
hélt nú að stúlku á þínum aldri
stæSi á sama um slíkt.“
Auglýsingaspjald á veiðilandi:
Veiðimenn! Gætið að hvað
þið gerið. Gerið svo vel að
skjóta ekki á neitt sem kvikar
ekki. Það gæti verið vinnumað-
urinn minn.
••••••••*
Cihu Mmi
Áfengismálin voru einnig
talsvert rædd í Reykjavík um
þetta leyti fyrir 35 árum. Vísir
birti t. d. eftirfarandi hinn 29.
maí 1916:
Bannlagabrot.
Sögur ganga um þaS í Hafn-
arfirSi, aS tveir heldri menn úr
Reykjavík muni hafa gert sig
seka um bannlagabrot þar í
FirSinum, daginn, sem Flóra
var þar. Sagt er, aS annar
þeirra hafi misst niSur flösku
og þeir báSir handleikiS flösk-
ur. En enginn veit, hvaS í flösk-
unum var, nema hvaS þeir full-
yrSa sjálfir, aS „Hansbrugg“
(meinlaust öl) hafi veriS í
þeim. Og þaS standa þeir sjálf-
sagt viS. — Kæra hefir engin
komiS fram gegn þeim, en þó
mun máliS verSa rannsakaS.
Símfrétt.
Haganesvík í gjer. — Ágætt
veSur í hálfa aSra viku og
hlákur. í Vestur-Fljótum er
snjólítiS, en í Austur-Fljótum
mikill gaddur, þó nokkur kinda-
snöp. Hákarlaskipin eru aS
koma og er aflinn ágætur. Lifr-
artunnan er 50 kr. og hlutur-
inn 50 kr.
'&FnpFK?***' .—
Þriðjudagur,
29. maí, — 149. dagur ársins.
Sjávarföll.
ÁrdegisflóS var kl. 1. —
SiSdegisflóS kl. 13.40.
Hæturvarzla.
Næturlæknir er i LæknavarS-
stofunni, sínxi 5030. NæturvörS-
íir er í LyfjabúSinni ISunni,
sími 5030.
Sjómannablaðið „Víkingur",
maí-heftiS, er nýkomiS út, fjöl-
breytt aS efni og fróSlegt. Á
(forsíöu er mynd af „Jökulfelli",
hinu nýja skipi SlS. Forystu-
grein ritsins heitir aS þessu
sinni: „Hefjum sókn í land-
helgismálinu“, eftir Gils GuS-
mundsson ritstjóra. Annars
flytur „Víkingurinn“ margar
góðar greinar og frásagnir, eft-
ir innlenda menn og erlenda.
Þessir menn íslenzkir eiga grein-
ar í heftinu: Grímur Þorkels-
son, Júlíus Ólafsson, Hólm
steinn Helgason, Runólfur Jó-
hannsson, auk ritstjórans.
Margar myndir prýSa ritiS.
Hvar eru skipin?
Einxskip: Brúarfoss er i
Hamborg. Dettifoss kom til
Hull 19. þ. m„ fer þaSan í dag
til London, Leith og Reykja-
víkur. Fjallfoss er í Kaup-
mannahöfn. GoSafoss kom til
Antwerpen á laugardag, fór
þaSan væntanlega í gær til
Reykjavíkur. Gullfoss fer frá
Kaupmannahöfn í dag til Leith
og Reykjavíkur. Lagarfoss kom
til Reykjavíkur á sunnudag frá
New York. Selfoss fór frá
Reykjavík á laugardag vestur
og norSur. Tröllafoss er í New
York. Katla fór frá Reykjavík
25. þ. m. til Gautaborgar.
Ríkisskip: Hekla er væntan-
leg til Glasgow í dag. Esja var
á Akureyri síSdegis í gær.
HerSubreiS fer frá Reykjavík
i dág til BreiSafjarSar og Vest-
fjarSa. SkjaldbreiS er væntan-
leg til Reykjavíkur á miSnætti
í nótt, aS vestan og norSan.
Þyrill er í Reykjavík.
Skip SÍS: Hvassafell fór frá
Akureyri 22. þ. m. áleiSis til
Grikklands. Arnarfell er
Genova. Jökulfell er í New
York.
HrcMyáta m*. /33S
Lárétt: 2 frásagnir, 6 fjandi,
7 biti, 9 málmur (skammstöf-
un), lo stafur, 11 heil, 12 þys,
14 tónn, 15 linda, 17 veiSir.
Lóðrétt: 1 fegra, 2 leit, 3
ránfugl, 4 tveir ólíkir, 5 ringl-
aSa, 8 fisks, 9 mjög, 13 fæSa,
15 belti, 16 í sólargeisla.
Lausn á krossgátu nr. 1334:
Lárétt: 1 símar, 6 sál, 8 róa,
10 Ari, 12 ær, 13 ör, 14 kal, 16
öSu, 17 err, 19 smána.
LóSrétt: 2 ísa, 3 má, 4 ala,
5 rækt, 7 lírur, 9 óra, 11 röS, 15
lem, 12 örn, 18 rá.
Sumardvöl barna.
Þeir, sem ætla aS senda um-
sóknir til RauSa kross íslands
um sumardvöl barna í sveit,
ættu aS gera þaS nú þegar. Um-
sóknum er veitt móttaka í Iön-
skólanum í dag og á morgun
kl. 14—18. Hér er um aS ræSa
sumardvöl barna, sem fædd eru
árin 1944, 1945 og 1946.
Leikskólinn
í Grænuborg tekur til starfa n.
k. laugardag. Innritun í Grænu-
borg kl. 13—17 i dag og á
N. L. F. í.
starfrækir hressingarheimili i
HveragerSi í sumar, eins og
Vísir liefir áSur skýrt frá. FæSi
þar verSur eingöngu mjólkur-
og jurtafæSi, en dvalarkostnaS-
ur 50—55 krónur á dag, lækn-
isskoSun og lækniseftirlit inni-
faliö.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritiS „SegSu steinin-
um“ í ISnó kl. 8 í kvöld. Er
þetta síðasta sýningin á því á
þessu vori.
„Tordenskjold“,
norskt kaupskiþ, sem hingaö
lconr um daginn méS efni í
fisktrönur og hjalla, lestar nú
karfamjöl frá Faxaverksmiöj-
unni.
„Þyrill“,
oliuflutningaskip SkipaútgerS-
arinnar, vár tekiS upp í slipp í
gær til smávegis viSgerSar og
eftirlits.
Reykjalundur
fær rausnarlegar bókagjafir.
Nýlega barst bókasafni
Reykjalundar rausnarleg bóka-
gjöf frá Jóni GuSbrandssyni
framkvæmdarstjóra Eimskipa-
fél. íslands í Kaupmannahöfn.
Er hér um aS ræöa marga tugi
góSra danskra bóka í vönduSu
bandi.
ÁSur hafa bókasafninu bor-
izt danskar bókagjafir frá Axel
V. Nielsen kaupmanni, Óla
Vilhjálmssyni framkvstj., Önnu
Stephensen skrifstofumær hjá
sendiráSi Islands og Ólafi Al-
bertssyni kaupmanni, öllum í
Kaupmannahöfn.
Hin danska deild saínsins er
nú þegar allvel skipuS bókuin
og er hirium rausnarlegu gef-
endum svo fyrir aS þakka.
Orsökin til þess að safniS
liefir fengiS allar þessar bóka-
sendingar er sú, að Ólafur
Gunnarsson blaöam. frá Vík í
Lóni hefir aS undanförnu kynnt
Reykjalund á NorSurlöndum,
meS flutningi fjölda fyrirlestra
og blaðagreina. Jafnframt hef-
ir hann hvatt vini og kunningja
til aS efla bókasafn staSarins
meS bókagjöfum svo þaS yrSi
sem fyrst Reykjalundi sam-
boöiö.
S.t.B.S. biSur Vísi aS flytja
gefendum kærar þakkir fyrir
bókasendingarnar og Ólafi
Gunnarssyni fyrir ágætt kynn
ingarstarf, sem veriö hefir sam-
bandinu til ómetanlegs gagns.
Veðrið.
Fyrir noröan land er grunn
lægö, en hæS milli íslands og
Skotlands. Uin 1000 km. suS-
vestur í hafi er lægð á hraöri
hreyfingu norSaustur.
VeSurhorfur; Sunnan og suð-
austan kaldi, rigning með köfl-
um.
Ben. G. Wáge sat
Ólympíuþing í Vín.
Ben. G. Wáge, forseti ISÍ,
er nýkominn til landsins frá
Vínarborg, þar sem hann sat
alþjóða-ólýmpíuþing sem
fulltrúi Islands.
Hafði hann þá verið ytra
í tæpan mánuð, fór fyrst á
hina miklu Bretlandssýnigu,
sein nú stendur yfir í Lon-
don, en sat síðan ólympíu-
þingið í Vínarborg, eins og
fyrr getur.
Þing þetta hafði til með-
ferðis ýmis mál varðandi
undirbúning undir sumarleik-
ina, scm verða í Helsingfors
næsta sumar og vetrarleikina
í Oslo næsta vetur. Þingið
sátu 38 fuíltrúar 29 þjóða,
þar á meðal Rússar og Þjóð-
verjar, í fyrsta skipti eftir
styrjöldina, hvað Þjóöverja
Kórea
Framh. af 1 síðu.
því leyti, að auðyeklara er
áð lála flugvélarnar liækka
flugið ört. Þrýstiloftsflug-
vélar þær, sem kommúnist-
ar nota í Kóreu, eru sem
kunnugt er smíðaðar í
Rússlandi, sennilega að fyr-
irsögn þýzkra vélfræðinga,
en Rússar hafa margt þeirra
í þjónustu sinni. Vandenberg
sagði, að brezkar og handa-
rískar flugvélaverksmiðjur
hefðu nú fengið allar þær
upplýsingar, sem fyrir hendi
eru, um gerð rússnesku
þrýstiloftsflugvélanna. Þrátt
fyrir aðstöðumuninn hefði
flugher S. þj. jafnan haft
betur í hverri raun og mætti
þakka það, að flugmenn
þeirra væru betur þjálfaðir,
skyttúrnar markvissari og
flugmennirnir leiknari í
stjórn og áræðnari.
áhrærir, en Rússa liafa aldrei
átt fulltrúa á ólympiuþingum
áður.
Forseti þingsins er Svíinn
Edström, en hann er 81 árs
að aldi’i, og liefir gegnt þessu
virðingarembætti íþrótta-
manna um árabil.
Útvarpið í kvöld:
20.20 Tónleikar (Björn Ólafs-
son, Josef Felzmann, Jón Sen
og Einar Vigfússon leika). —
20.45 Erindi: VerSa vandamál
atvinnulífsins leyst meS auk-
inni tækni? II.: Efnaliags-
vandamálin eru ævarandi (Gylíi
Þ. Gíslason prófessor). 21.10
Tónleikar fplötur). 21.20 Upp-
lestur: SteingerSur GuSmunds-
dóttir leikkona les þulur. 21.35
Tónleikar (plötur). — 21.40
Lausavísnaþátturinn (Vilhj.
Þ. Gíslason skólastjóri). 22.00
Fréttir og veSurfregnir. 22.10
Vinsæl lög (plötur) til 22.30. —
„Askur“
kom hingaö í fyrradag. HafSi
bilaS „spil“.
Hvítasunnukeppni
GolfkL Rvíkur.
Fyrsta umferð í Hvíta-
sunnukeppni Golfkl. Reykja-
váltur er nú Iokið.
Ólafur Ólafsson vann Gísla
Ólafsson, Arnkell Guðmunds-
son vann Ásgeir Ólafsson,
Thor Hallgrímsson vann
Jónas Lilliendahl, Ólafur
Loftsson vann Gunnar Böðv-
arsson, Ólafur Gíslason vann
Jón Thorlacius, Þorvaldur
Ásgeirsson vann Brynjúlf
Magnússon, Halldór Magnús-
son vann Ólaf Bjarka, Sigur-
jón Hallbjörnsson vann
Björn Pétursson.
önnur umferð verður á
þriðjudag og miðvikudag.
Gœfan fylgir hringunum fré
SIGURÞÓR, Hafnarstræti 4,
Margar gerOir fyrirliggjandi.
Minningarspjöid
Kratíbameinsfél. Beykjavíkur
fást l Versl. Bemedia Aust-
urstrœti og skrifstofu Elli-
og hjúkrunarhelmillslns
Grundar.
Vantar yðnr
husnæði?
. í ' . V>-. ■ 7 . ■■
Sniáaugiýsinðárl Visis
. aiigiýsa beit.
Jarðarför
Margrétar Mristjáiasdóttísr
frá ísafirði,
fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn
30, maí kl. 1,30.
Kristín Björnsdóttir og börn.
Guðmundur B. Guðlaugsson.