Vísir - 07.12.1951, Side 4
V I S I R
Föstudaginn 7. desember 1951
D A G B L A Ð
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur Ingólfsstræti 3.
Utgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Síniar 1660 (fimm línur).
Lausasala 1 ki'óna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Vetrarhjálpin tekur til starfa.
|jrátt fyrir sæmilega afkomu almennings á undanförnum
árum og þótt tryggingarkerfi þjóðarinnar só komið í
viðunandi horff, fer ekki hjá því að ýmsir verða afskiptir
við úthlutun veraldargæða. Því ber heldur ekki að neita
að hagur láglaunamanna er venjulega þrengstur um miðs-
vetrarleitið, enda atvinna þá stopulust vegna skammdegis
og veðráttufars. Má það því teljast góður siður, sem við-
gengist hefur hér í bænum undanfarin ár, að efnt hefur
verið til fjársöfnunar fyrir opinbert frumkvæði, en fé því,
sem safnast er miðlað þurfandi mönnum, sem ávallt eru
einhverjir og stundum margir.
Á síðasta ári úthlutaði stjóni Vetrarhjálparinnar gjöfum
til 593 fjölskyldna og einstaklinga. Var þar sumpart um að
ræða beinar fjárgreiðslur, en þó aðallega nauðsynjar, svo
sem matvæli af ýmsu tagi, ennfremur fatnað, eldsneyti og
aðrar nauðsynjar. Gera má ráð fyrir að þörfin fyrir slíka
aðstoð hafi frekar aukist en rénað, sem leiðir beinlinis íif
því, að atvinnu má nú heita stopulli en í fyrra og auk þess
hafa nauðsynjar hækkað í verði, aðallega vegna verð-
hækkunar erlendis, en einnig verðlagshreytinga hér á landi
og aukips framleiðslukostnaðar.
Vetrarhjálpin leitar nú á náðir bæjarbúa og mælist til,
að þeir láti gjafir af hendi rakna hver eftir sinni getu.
Fjárgjafir einar er ekki um að ræða, þeldur og fatnað, mat-
væli eða aðrar nauðsynjar, sem jafngilda fjárframlögum
og bætt geta úr þörfum hins bágstadda fólks. Þeir, sem
slíkra gjafa njóta munu aðallega vera aldrað fólk, einstæðar.
mæður eða barnmargar fjölskyldur. Vafalaust er mönnum
Ijúft að létta byrðar bágstaddra, enda hafa Reykvíkingar
sýnt það, að þeir búa yfir einstæðum manngæðum, sem ber
að meta að verðleikum, þótt hin gjöfula hönd ætlist til engra
þakka. Gefendum nægir að gera öðrum hátíðarnar gleðilegar.
Vasidratað meðalhéL
j^ikissjóður hefur safnað allmiklu af lausaskuldum á und-
anfömum ámm, sem ekki getur talist óeðlilegt vegna
rikjandi öfugstreymis í fjárhagsmálum þjóðarinnar og
taumlausrar kaupstreitu flestra stétta, sem aftur leiddi af
sér hækkandi verðlag. Á þessu ári má hinsvegar búast við
verulegum tekjuafgangi, sem talið er að nema muni yfir
eitt hundrað milljónum króna. Þingmenn Alþýðuflokksins
bera þungar áhyggjur vegna ráðstöfunar þessa fjár, sem
ætti fyrst og fremst að renna til greiðslna á skuldum ríkis-
sjóðs, auk þess, sem ætlun ríkisstjórnarinnar mun vera
að verja nokkru fé til að útrýma heilsuspillandi íbúðum,
sem fólk verður nú að hýrast í. Mun Alþingi fá færi á að
f jalla um það mál, að því er fram kom við 2. umræðu fjár-
laganna af ríkisstjórnarinnar hálfu.
Skattabyrði sú, sem á almenningi hvílir er orðin ískyggi-
lega þung, enda hafa ýnisar raddir verið upp um, að skatta-
löggjöfinni yrði að breyta í heilbrigðara horf. Lífskjör al-
mennings hafa þrengst og þungar skattaálögur eru að verða
mönnum ofviða. Frekari sparnaðar gætir nú en áður, sem
birtist fyrst og fremst í því að menn neita sér um munaðar-
vörur og óþarfavarning. Þessu til sönnunar mætti nefna,
að mjög hefur dregið úr áfengissölu og vafalaust einnig úr
sölu annars óþarfa. Telur forstjóri Áfengisverzlunarinnar
að í nóvembermánuði einum, verði tekjur verzlunarinnar
um kr. 400 þús. lægri en á sama títtia í fyrra og mun ]iað
engin harma. Hinsvegar bregst þarna tekjustofn ríkissjóðs,
•sem hefur verið óþarflega notadrjúgur undanfarin ár.
Þingmenn Alþýðuflokksins lögðu til við 2. umræðu fjár-
laga að söluskatturinn yrði felldur niður með öllu, og hefði
það verið vel þegið af almenningi. Að því ráði var hinsvegar
ekki liorfið að þessu sinni og verður skatturinn innheimtur
á næsta ári með sama hætti og tíðkast hefur. Með því móti
er séð fyrir tekjuþörf ríkissjóðs, að því er bezt verður séð.
En þess ber að gæta að óhóflegar skattaálögur skapa kreppu,
'Sern leitt getur til alvarlegasta atvinnuleysis. Ríkið getur
■aldrei tekið við hlutvcrki einstaklingsins 1 atvinnurekstri,
ien það ætti að reynast mönnum hvatning til að aflétta skölt-
'nm, sem nú eru að verða óbærilegir. I þessu efni er vand-
i yatað meðalhófið, en skattþegnamir eiga líka nokkurn rétt.
Kennarar við barna- og ung-
lingaskola eru samtals 577.
Mkvae aaslaakt*aa utr erm saaaaaitais 14*2
14* peirrta sk&iasijaárttr.
Starfandi kennarar við
barna- og unglingaskólana í
landinu eru 560 talsins, i
einkaskólum 17, og þuí sam-
tals í ríkis- og einkaskólum
577,
Skólastjórar eru að sjálf-
sögðu meðtaldir, þar sem
þeir hafa kennslu með hönd-
um auk skólastjórnar. Eru
þeir 125 talsins, þar af 120
skólastjórar rikisskóla, en 5
einkaskóla, og skólarnir að
sjálfsögðu jafnmargir. í 16
ríkisskólum eru konur
skólastjórar og 2 í einka-
skólum, en alls eru 149 kon-
ur kennarar í ríkisskólum
og 13 i einkaskólum. Sam-
tals eru þær því 162.
Af 560 kennurum í ríkis-
skólunum eru 93 farkenn-
arar. Hefir tala farkennara
verið svipuð undangengin
2-d ár.
Skólahverfin, sem hafa
|
farskóla, stefna nú að því
að hafa lieimavistarskóla, þ.
e. að skólinn verði hafður á
einum og sama stað. I sum-
um farskólahverfum liefir
böjnum fækkað svo, að 11
farkennarar kenna í 2 skóla
hverfum hver, og 3 kenna í
3 farskólahvei'fum. í 5 skóla
hvei’fum eru svo fá börn nú
orðið, að börnunum er kom-
ið fyrir í öðrum skólaliverf-
ujn eða þau njóta heima-
fræðslu (Staðar-skólahverfi
í Húnavatnssýslu, Grímsey,
Öxarfj arðar-skólahverfi, Sel
vogur og Grunnavíkur-skóla
hverfi í Jökulfjörðum).
Skólunum er sem kunn-
ugt er skipt í 3 flokka, lieim-
angönguskóla (þeirra með-
al eru að sjálfsögðu barna-
og unglingaskólarnir í bæj-
um og kauptúnum) og eru
þeir 87 samtals, heimavist-
arskólar 33 og farskólar 89.
Undangengin ár liafa
nokkrir menn, sem ekki
hafa kennararéttindi, verið
ráðnir farkennarar, þar sem
inenn með kennararéttindi
fengust ekki, en réttinda-
lausum farkennurum fer
fækkandi. Geta má þess, að
meðal farkennara í ár eru
2 stúdentar.
Við fasta skóla voru 20
réttindalausir kennarar í
fyrra, en ekki nema 11 núna.
Réttindalausir kennarar
voru. samtals 62 í fyrra, en
55 núna. Af fyrrnefndum 11
réttindalausum kennurum
við f asta skóla • eru 5 stúd-
entar, ráðnir til kennslu á
unglingastiginu, hinir eru
flestir gagnfræðingar.
Hinir réttindalausu far-
kennarar (55) kenna alls
287 mánuði eða tæplega ð'/s
að meðaltali á niann. Þeir
hafa flestir stundað nám. i
gagnfræðaskólum, eða not-
ið hliðstæðrar menntunar.
Þess skal gelið, að aldrei
eru ráðiiir kennarar sem
ekki hafa kennararéttindi,
ef völ er á kennurum, sem
hafa þau, en yfirleitt hefir
tekist ágætlega nieð. val á
ré11inda 1 ausum kennurum.
Stærsti heimavistarbarna-
skóli i landinu er í Arnar-
neshreppi í Strandasýslu
(Finnbogastöðum). Ilafa
alll af verið þar 2 kennarar
undangengin ár.
Stærstu heimangöngu-
skéilarnir í sveit eru í Brú-
arlandsskólinn í Mosfells-
sveit og lionuni næstur Fljóts
hlíðarskólinn.
í ár þurfti ekki að auglýsa
íins margar kennarastöður
og vanalega.
Churehill bóndi
st»íacir hýar súnar.
London (UP). — Nýlega
seldi bóndinn Winston Chur-
chill 80 af kúm sínum.
Fyrir kýrnar fengust um
260,000 kr., sem bóndinn ætl-
ar að nota til kaupa á naut-
gripum af öðrum stofni. —
Heimilisfang Churehills
bónda er nú að Downing'-
stræli 10.
Ófeigur J. Ofeigsson,
læknir.
Hvftir benélar
skábönd ýmsir litir, hvítur
og mislitur teygjutvinni.
Freyjugötu 26.
Nýkomnir útlendir
kvenskór
VERZl.^1
f,
Gœfan fylgir hringvnum frá
SIGURÞÖR, llafnarstræti 4
Margar gerðir fyrirliggjandi
RafmagnsSielmilistæki
Þvottavélar
Hrærivélar
Ryksugur
Bónvélar
Hraðsuðukatlar
Brauðristar
Straujárn
Rafmagnsklukkur
(vekjara)
Rafmagnsklukkur ?
Jólatrésljósakeðjur
Suðuplötur
I-Iitapúðar
Véla- og raftækjaverzhmin
Bankastræti 10, sími 6456.
Tryggvag. 23, sími 81279
♦
Þegar þetta er ritaÖ t>íða
hinir yngstu borgarar bæjar-
ins þess í ofvæni, sem verða
vill um jólatrén langþráðu,
og raunar fullorðna fólkið
líka, því að því er nú einu
sinni þannig varið, að mönn-
um finnst einhvern veginn,
að jólin séu ekki komin, ef
ekkert sést jólatréð, enda
þótt almanakið segi, að 24.
desember sé kominn.
v *
Auðvitað hljóta allir að sætta
sig við, ef innflutningur verður
ekki leyfður . á trjánum vegna
hættu í sambandi við gin- og
kiaufaveikina. Engum dettur í
hug' að bjóða þeim vagesti
heim, sem vitað er, að myndi
leggjast miklu þyngra, á ís-
lenzkan búfjárstofn en annars
staðar, vegna þess, að veikin
hefir ekki borizt hingað áður.
Ef heilbrigðisyfirvöldunum
sýnist svo, munu allir sætta sig
við, að jólatrén vanti. og reyna
að vekja á annan hátt þann hug-
næma blæ, sem annars einkenn-
ir þessa mestu hátíð ársins. Ef
til vill er líka .aðalatriðið að
halda jól hið innra með sjálfum
sér.
En í sambandi við jóla-
trén, sem eru og verða ómiss-
andi þáttur jólahátíðarinnar,
er gaman að geta þess, að
Akureyringar hafa nú á
prjónunum allmerkilegar
ráðagerðir um það að rækta
greniíré þar nyrðra og verða
inhan skamms tíma sjálfum
sér nógir um jólaíré. Er það
skemmtileg tilhugsun fyrir
þá, að geta í náinni framtíð
glaðzt við íslenzk jólatré.
*
Þetta gefur tilefni til ýmissa
hugleiðinga. Vonir standa til,
aö á Heiðmörk, friðlandi Reyk-
víkinga, eigi eftir að dafna
þróttmikill barrskógur, og virð-
ist fullkomin ástæða til að ætla,
að einhvern tíma, meira að
segja í okkar tíð, sem nú lifum,
verði unnt. að sækja sér fallega
hríslu til jólanna iun í lieið-
mörk. Á undanförnum áruin
hafa fjiilmargir starfshópar og
einstaklingar sett niður ógrynni
plantna þarna austur frá, og
með tíð og tíma eiga þær eftir
að gleðja íbúa þessa bæjar. þótt
hörgull kunni að verða á jóla-
trjám í ár.
*
Líklega ver'ða Akureyring-
ar á undan okkur í þessum
efnum, enda betri skilyrði
þar nyrðra að ýmsu leyti. En
vel getur verið, að þeir geti
líka liðsinnt okkur í þeim
efnum, þar til Heiðmerkur-
trén koma. Hver veit? ThS.