Vísir - 04.01.1952, Blaðsíða 5
Föstudaginn 4. janúar 1952
V í S I R
5
Savoy-ættin fær milljón punda.
JF&rsJúEni fsfas «#/ immegafn
faewnnr sér &&i9 þegtijr
hmwHna'r ú eEœlmmm-
Ee SSretai* gerllu ekki géSan
95l8usiiiaeisiS.
London (UP). — Nú ríkir
gleði í Savoy-ættinni, hinni
landlausu konungsætt Ítalíu.
Fyrir nokkrum dögum
greiddi nefnilega enskt vá-
tryggingafélág prinsum og
prinsessum ættarinnar mill-
jón punda, sem kemur í góð-
ar þarfir, þvi að efnin eru
eklci mikil.
Þeir, sem fá milljónina til
skipta, geta þó ekki þakkað
þetta Viktor Emanuel kon-
ungi eða Umberto syni hans,
r.iðasla konungi æltarinnar.
Maðurínn, sem þakka ber
fyrir þétta gullregn, er nefni-
Icga látinn fyrir 51 ári. Hann
var Umberto I., konungur
Italíu, sem myrtur var í
Monza þ. 29. júlí 1900. Hann
liafði tryggt sig gegn slikum
dauðadaga fyrir milljón
punda.
Var þegar
dauðadæmdur.
Gengið kafði verið frá líf-
fryggingu konungs snernma í
janúar árið 1900. Umberto I.
var þá 56 ára gamall, en við
beztu heilsu. Sennilegá hefir
honum þó þótt hyggilegra að
trvggja sig með þessum hætti,
af þvi að stjömleysingjár
Iböfðu myrt franska forsetann
Carnot nokkrum árum áður,
svo og Elisabetu, drottningu
Austurrikiskeisara. Sjálfum
hafði honum verið sýnt til-
ræði í Napoli 14 ái’um áður,
■og hafði þá sloppið með
naumindum. Hvorki konung
né brezka tryggingafélagið
grunaði hinsvegar, að kon-
ungur ætti svo skammt ólifað
eða að hann væri raunveru-
lega dauðadæmdur, þegar
gengið var frá tryggingunni.
Hann borgaði nefnilega ið-
gjaldið aðeins einu sinni, og
í Englandi er þetta kallaður
lélegasti „business" brezks
tryggingafélags.
Illutkesti var
látið ráða.
Eins og þegar er sagt, hafði
kouungur þegar verið dæmd-
txr til dauða, er hann tryggði
Kig'. Fámennur hópur ítalskra
stjórnleysingja kom saman á
fund í sináborginni Paterson
i Xew Jersey-fylki í Banda-
rikjunmn, og afréð að ráða
konung af dögum. Siðau var
Idutkesli látið ráða, hver úr
hópnum skyldi halda til
Ína á níræðum ungling.
Italíu og fullnægja dóminum.
Evrst dró merkta miðann
taaður að nafni Carbone, en
þorði svo ekki að fara og tók
|>á þetta að sér annar maður
að nafjii Gaetgno Bresci.
Konungur uggði ekki að
sér og naut samvistanna í
Róm við frillu sina, hertoga-
frúna Evgeníu Litta Bologn-
ini.
Drottningin
aðvarar konung.
Þ. 29. júlí 1900 ætlaði Um-
berto að vera viðstaddur
íþróttakeppni. Drottning
hans hafði grun um, að illt
gæti af því leitt og bað hann
um að fara hvergi. „Þarna
verður einungis ungviði,“
mælti Marglierita drottning,
„sem mun skemmta sér bet-
ur, ef þú ert hvergi nærri.“
F.n Umberto hafði lofað að
koma og fór á vettvang. Með-
an á keppninni stóð, var
morðinginn væntanlegi að
rölta í grennd við konungs-
stúkuná, en lét ekki til skarar
skríða, fyrr en konungur hé' t
á brott í vagni sínum. Var
Umberto rétt kominn upp í
vagninn, þegar hlejpt var af
f jórum skotum. í fyrstu liéldu
menn, að flugeldar hefðu
sprungið, enda hæfðu ekki
tvö fyrstu skotin, en hin síð-
ari lentu i brjósti konungs.
Gat hann aðeins skipað öku-
manni sínum að aka af stað,
áður en hann var örendur.
Af morðingjanum er það
uð segja, að múgurinn ætlaði
að ganga af honum dauðum,
en lögreglan náði honum, og
var liann dæmdur í ævilangt
fangelsi.
Gekk ekki eftir
greiðslimni.
Viktor Emanuel, rikiserf-
inginn, settist nú í hásæti, og
við hlið hans hin dáfagra
drottning hans, Elena, sem
ættuð var úr Svartf jallalandi
— Montenegro. Ilann vissi
vitanlega um tryggingu föður
síns, en þar sem hann liafði
sjálfur úr nógu að spila, hirti
hann ekki um að krefja
brezka félagið um greiðslu
tiyggingarfjárins — milljón-
ar sterlingspunda. Má og ætla,
að hann hafi talið heppilegt
að eiga eitthvað fé i öðrum
íöndum. Hvað um það —
ekki hafði einu sinni verið
la-afið um greiðslu trygging-
arinnar, þegar síðari heims-
Gtyrjöldin skall á, og ítalir
gengu i lið með Þjóðverjum
gegn Bretum.
En í London gripu menn
þegar tækifærið til að fiysta
þetta fé, eins og aðrar inni-
stæður Itala í brezkum bönk-
um og stofnunum.
Fjárhaguriim
þrengist óðum.
Eftir striðið varð Viktor
Emanuel að leggja niður
Völd, og fluttist hann til
Egyptalands, en Umberto II.,
sonur hans, var aðeins kon-
Ungur í fáa daga og varð þá
einnig landflótta. Margir góð-
ir gripir Savoy-ættarinnar
iirðu þá eign ítalslca ríkisins,
en enn gátu erfingjar Um-
bertos I. gert kröfu til mill-
jónar sterlingspunda — þótt
Verðgildið hefði rýrnað um
helming.
Krafa var gerð um greiðslu,
en brezka félagið átti óhægt
Um vik við að snara út slíkri
fúlgu í einni svipan. Var þá
höfðað mál gegn brezka rík-
inu, og þegar uppliafið var ó-
friðarástand við Ítalíu, var
ekki framar vafi um úrslitin.
Og nú liefir greiðsla farið
fram, og hún kemur í góðar
þarfir fyrír fjölda prinsa og
prinsessa, sem voru farin að
bera kvíðboga fyrir framtíð-
inni.
GERMANIA
SKEMMTIEVÖLD
heldur félagið „Germania“ næstkomandi sunnudag 6.
þ.m. í Tjamarcafé kl. 8,30.
Til skemmtunar verður:
1. Prófessor Guðbx-andur Jónsson flytur erindi:
„Die Heiligen Drei Könige in Köln“.
2. Adolf Fei’ber og Robert A. Ottosson leika
þriðja Honxkoixzert i Es-dúr eftir W. A.
Mozart.
i 3. Ei’nst Nonnan, Paul Pudelski og Robert A.
I Ottosson leika Trio fyrir flautu, óbó og píanö
I eftir J. J. Quantz.
| 4. Dans.
ý 5. Ei’nst Ruhnxling skemmtir.
& Félögum er heimilt að taka með sér gesti og nýjum
rfélögum vei’ður veitt viðtaka.
I Aðgangseyrir er kr. 20.00 og verða aðgöngumiðar
ji seldir í Tjai’nai’café á sunnudaginn kl. 4—6 og við inn-
I ganginn.
Félagsstjórnin.
Skemmtifirndur
í Germanía.
Germania heldur skemmti-
fund í Tjarnarcafé næstkom-
andi sunnudag.
Þar mun próf. Guðbrandur
Jónsson flytja erindi, er diann
nefnir „Die Heiligen Drei Kön-
ige in Köln“. Þá leika hljóm-
listarmennirnir Robert A.
Ottósson, Adolf Ferber, Ernst
Norman og Paul Pudelski, en
auk þess mun Ernst Ruhmling
skemmta, en að lokum verður
stiginn dans.
fLœhntashipti
Fi’á og með 1. þ.m. hætta eftirtaldir læknar að gegna
heinxilislæknisstörfum fyrir Sjúkrasamlagið:
Baldur Johnsen,
Haukur Kristjánsson og
Sigmundur M. Jónsson.
Þess vegna þui’fa allir þeir, sem hafa haft einhveru
þeirra fyrir heimilislækni að koma í afgreiðslu sam-
lagsins, Tryggvagötu 28, með samlagsbækur sínar, fyrir
lok þessa mánaðar, til að velja sér nýjan lækni.
Þá eru þeir, sem þurfa að velja irý jan lækni í staðinn
fyrir Friðrik Einarsson, sem hætti heimilislæknisstörf
um 1. sept. s.l., áminntir um að gera það fyrir lok þessa
mánaðar.
Skrá yfir samlagslækna þá, sem velja má um, ligg-
ui’ frammi í afgi’eiðslu samlagsins.
Reykjavík, 2. jan. 1952.
Sjúkrasamlag’ Reykjavíkui*.
BH
® i
PÓLAR rafgeymar
Undanfarna mánuoi hafa hinir íslenzku PÖLAR rafgeymar verið í
notkun í ýmsum tegundum bifreiða. Hafa þeir reynzt mjög vel og í
engu gefið eftir beztu legundum erlendum.
PóSar ralgeymarmr eru framleiddir í öllum algengum stærðum 6 og
12 volta. Ennfremur framleiðum við eftir pöntun dieselraígeyma 12
volta upp í 240 amperstundir.
Þegar þér þurfið að endurnýja rafgeymxnn, þá spyrjið fyrst um nafn-
ið POLAR og tryggið yður kraftmikinn og endingargóðan geymi.
Eflið innlendan iðnað, kaupið og notið íslenzka framleiðslu, sem í
engu stendur erlendri að baki.
LeitiS frekari upplýsinga hjá okkur.
Rafgeymaverksmiðjan jPélar h.f.
Hverfisgötu 8^. — Sími 81401.