Vísir - 16.01.1952, Page 6
V í S I B
Miðvikudaginn 16. janúar 1952
;:S ____________________
Firmakeppni I bridge í
Hafnarfirði.
. •'i- .-VÁÍV.. '• 5
Eftií* 'þrjái*' dmferðir í firma-
keppni Bridgefélags Hafnar-
fjarðar, standa leikar þannig
að Verzlun Ólafs H. Jónssonar
er efst með 158 % stig.
Er nú aðeins ein umferð eftir.
Röð og stig 16 efstu fyrirtækj-
anna, er sem hér segir:
Vezl. Ól. H. Jónss. 158%,
Raftækjavinnustofa Jóns og
Þorvaldar 151%, Vélsmiðjan
Klettur h.f. 150, Dvergasteinn
h.f. 150, Verzl Geirs Jóelssonar
149 %, Kaupfélag Hafnfirðinga
148%, Ekko h.f. 148, Dvergur
h.f. 147%, Bæjarútgerð Hf.
145%, Akurgerði h.f. 145%,
Ragnar Björnsson 143%, Bæj-
arbíó 142%, Verzl. Jóns
Mathiesen 142, Áætlunarbílar
Hafnarfjarðar 141%, Stefnir
h.f. 141%, Apótekið 140.
Síðasta umferð verður spiluð
á miðvikudagskvöldið kemur í
Alþýðuhúsinu og hefst kl. 8.
RitgerBasamkeppnl um
kristiiegt efni.
Hin íslenzka þjóðkirkja efn-
ir til riígerðasamkeppni í gagn
fræða- og héraðsskólum lands-
ins o. fl. um efnið „Dæmisögur
Krists í guðspjöllunum.“
Herra Sigurgeir Sigurðsson
biskup skýrði fréttamönnum í
gær frá ofangreindri sam-
keppni. Þátttakendur eru nem-
endur gagnfræðaskóla, héraðs-
skóla, kvenna- og húsmæðra-
skóla, sjómannaskóla, iðnskóla,
samvinnu-, verzlunar-, kenn-
ara- og menntaskóla. Þriggja
manna nefnd dæmir ritgerðirn-
ar, en þeim sé skilað fyrir maí-
lok og verði eigi lengri en 1200
orð. Verðlaun verða þrenn:
Ferð til Glasgow, Norðursjáv-
ar- og Miðjarðarhafshafna.
Ritgerðasamkeppni þessi er
einkum gerð til þess að glæða
áhuga æskunnar fyrir Ritning-
unni, en vel má vera, sagði bisk
up, að samkeppni þessi verði
vísir að stærra og meira átaki
i þessum efnum.
íburðarmikii tónfistar-
mynd í Tjarnarbíó.
Tjarnarbíó frumsýndi s. 1.
laugardag íburðarmikla, enska
tónlistarmynd, sem nefnd var
„Ævintýri Hoffmanns“ (The
Tales of Hoffmann).
Meðal gesta á frumsýning-
unni voru ráðherrar, sendi-
he'rrar erlendra ríkja, ýmsir
embættismenn o. fl.
Mynd þessi er byggð á óperu
Offenbachs, og er því tónlistin
1 henni ekki af verri endanum,
en Sir Thomas Beecham stjórn-
ar The Royal Philharmonic
Orchestra, sem leikur í henni.
Má af því sjá, að hið brezka
kvikmyndaféiag, sem tók
myndina, hefir lítt til hennar
sparað, enda er hún vafalaust
með því glæsilegasta, sem hér
hefir sézt af þessu tagi.
Efni myndarinnar verður
ekki rakið hér, en þar er margt
fyrir auga og eyra, glæsilegir
ballett-dansar, mikill söngur,
en öll er myndin gerð í eðlileg-
um litum. Mikið úrval leikara
af ýmsum þjóðuny leikur í
myndinni, en mest ber á þeim
Moira Shearer, Robert Ronse-
wiHe eg, Robert Ilelpmann.
Þjóðminjasafnið
fær p&a gjöf.
Sigurður Guðmundsson dans-
kennari hefir nýlega gefið Þjóð-
minjasafninu bréfaþvingu
forna, sem var í eigu Jóhanns
Sigurjónssonar skálds.
Bréfaþvingu þessa hafði Inge-
borg heitin Sigurjónsson, ekkja
Jóhanns, gefið Sigurði, en hann
var henni vel kunnugur og naut
oft frábærrar gestrisni og hlý-
hugs frú Ingeborg, eins og fleiri
íslendingar, en það er kunnara
en frá þurfi að segja. Bréfa-
þvingu þessa, sem mun vera
brot af steinaldarexi, notaði
Jóhann sjálfur við ritstörf sín,
og er þetta allmerkilegur grip-
ur.
óbiianlegMr*
Fulltrúar Alþjóðabankans eru
farnir frá Teheran.
Engu tauti varð komið við
Mossadegh, sem vildi ekki
breyta afstöðu sinni, svo samn-
ingar gætu tekist.
Við sendiherra Breta sagði
hann, að stjórn landsins hefði
samþykkt kröfuna um að ræðis-
mannsskrifstofum Breta 1 Pers-
íu yrði lokað fyrir 23. þ.m., og
gæti hann engu þar um breytt.
Ítalir aidta stál-
framlelðslu.
Við Genúa á Ítalíu er nú langt
komið að reisa stálsmiðjur
miklar, sem gerbreyta aðstöðu
Italíu til stálframleiðslu.
Er ráðgert, að þar megi fram-
leiða 1 millj. lesta. af stálþynn-
um árlega, en þó eigi nema %
millj. lesta fyrst í stað.
Verksmiðjan er reist þar sem
áður var sjó og var land fyllt
þar. Hafa 7000 manns unnið
við framkvæmd verksins, en
3000 eiga að fá þarna varanlega
atvinnu. Verk þetta var í raun-
inni hafið fyrir styrjöldina, e»i
svo hirtu Þjóðverjar allar vél
ar og fluttu til Þýzkalands, en
80 % hafa náðst aftur. Níu
miilj. dollara hafa verið lagðar
fram til fyrirtækisins af Mars-
hallfé og 5 millj. munu verða
lagðar fram til viðbótar til þess
að ljúka því.
Minmng:
Sigurður Saldvinsson,
póstmeistari.
Varstu gróður, fræða, fannst,
falinn sjóður, strengur.
Barstu hróður víða, vannst,
valinn góður drengur.
Man eg við mættumst
og mál saman áttum.
Geymi eg góðsvip þinn,
göfugi maður.
Var sem í vorblæ
við þig að tala,
fagur í fasi,
og fegurð í máli.
Lágú þér Ijóðin,
létt á munni,
var þér og vísa
á vörum þýð.
Ort gastu á máli
Egils og Grettis.
Fann eg þinn fróðleik
í fornum þáttum.
Veit eg að mannstu,
sem vísindamaður,
við akra pndans
óðs og sögu.
Góð vísa geymist,
og gott kvæði.
Saga þín Sigurður
sýni það gleggst.
Lengi mun, lifa
á landi sögu,
nafn þitt og nými
í nákvæmu starfi.
Syrgjendur sakna þín,
samtíðin kveður þig.
Fylgja þér fararheill
til framtíðarlandsins.
Lárus Salómonsson.
StrandaEiirkja á[
ínær
Strandarkirkja er langsam-
lega ríkust allra kirkna á ís-
landi, á um eina millj. króna
í reiðu fé.
Á síðastl. ári bárust kirkj-
unni áheit, er námu samtals kr.
138.720.58, en alls á kirkjan nú
kr. 968.865.81. Fer það mjög í
vöxt, að fólk heiti á kirkjuna, en
í því sambandi má geta þess,
að í ársbyrjun 1939 átti kirkj-
an ekki nema tæpl. 164 þús.
krónur.
Menn úr varnarliðinu
í flugsiysi.
Eins og getið var í fréttum
fyrir rúmri viku, varð flugslys
í Englandi sunnudaginn 6. þ.m„
tvær flugvélar lentu í árekstri.
Önnurflugvélin hafði verið á
,leið hingað,. en verið snúið við
■vegna ofviðrisins hér og lenti
þá í árekstri í lendingu. Flug-
vélin, sem átti að fara hingað,
var ein &f eftirlitsflugvélum
ameríska flotans, er hafa bæki-
stöð í Keflavík, og meiddust í
henni tíu menn, brenndust
meira og minna. White Falcon
segir um þetta á laugardag, að
mennirnir séu allir á batavegi.
Eftirlætl Faruks
kemur við hér.
Shari, uppáhaldsdansmær
Faruks konungs, var veðurteppt
í Keflavík í síðustu viku.
Er hún gift amerískum manni
syni olíukonungs. í Texas, og
var hann í för með henni. Ekki
fékkst dansmærin til að sýna
listir sínar þar syðra, lét sér
-nægja að dansa „nýju dansana.“
Ráðstefna um efna-
hagsmál í London.
Samveldisráðstefna iim fjár-
hags- og efnahagsmál situr nú
í London og er Butler fjár-
málaráðherra Breta í forsæti.
Fimm ráðherrar frá samveld-
islöndunum eru komnir tál
Lundúna, frá Pakistan, Rhodes-
iu og víðar að.
STOFA, með eldhúsað-
gangi, til. leigu-, 500 kr. ■ á
mánuði með ljósi og hita.
Tilboð, merkt: „Strax—
34.1“, sendist blaðinu fyrir
laugardag. (204
IBÚÐ. 2 herbergi, stórt
eldhús og bað, í miðbænum
til leigu, nýstandsett. Fyrir-
framgreiðsla nauðsynleg. —
Tilboð, merkt: „Kjallari“
se.ndist afgr..Vísis fyrir laug-
ardagskvöld. (214
TEK PRJÓN, Njálsgötu
87. — (220
LAGHENTUR unglingur
óskar eftir atvinnu. — Uppl.
í síma 2689. (211
TEK að mér að vera hjá
sængurkonum. —■ Uppl. í
\ sírna 7831. (209
HERBERGI óskast. Ein-
hleypur maður í fastlaunaðri
stöðu (starfsmaður hjá
Reykjavíkurbæ) óskar eftir
her.bergi með sérinngangi.
Má vera lítið. í eða sem næst.
miðbænum. Tilboð, merkt:
„Strax — 342“ sendist Vísi.
(219
HERBERGI til leigu fyrir
reglusaman einhleyping. —
Uppl. í síma 4172. (216
HERBERGI til leigu á
Grenimel 4, kjallaranum. —
(217
GOTT forstofuherbergi til
leigu nú þegar. Hraunteig
19. — (215
LÍTIÐ herbergi til leigu,
gegn húshjálp. — Uppl. á
Hverfisgötu 32. (221
EYRNALOKKUR, með
konumynd á svartri plötu,
tapaðist á sunnudagskvöld
frá Hótel Borg með Sund-
laugavagni að Skúlagötu og
Laugavegi. Vinsaml. hring-
ið í síma 5222. (205
SÍÐASTL. sunnudag tap-
aðist poki með gúmmístakk
og stígvélum milli Reykja-
víkur og Sandgerðis. Vin-
saml. skilist á Bifreiða-
afgreiðsluna í Sandgerði. —
Fundarlaun. (210
MJOLKURBRUSI tapað-
ist nýlega, sennilega á
Hverfisgötu. Uppl. í síma
3180. (212
FRÖNSKUKENNSLA. —
H- A. Blöndal. Sími 3718.
(202
VELRITUNAR námskeið.
Cecelia Helgason. — Sími
81178. (311
Víkivakaflokkar Ármanns.
Æfingar falla niður í kvöld
\regna álfadansins og brenn-
unnar.
FRAM-
ARAR.
SKEMMTÍ-
FUNDUS í
í félagsheimilinu í. kveld■ kl.
9. — Fjölmennið og takið
með ykkur gesti. — Nefhdin.
Skylmingafélag Reykjavíkur
Æfing í Miðbæjarskólanum
í kvöld kl. 7.
ATHUGIÐ. Tökum blaut-
þvott; einnig gengið frá
þvottinum, Sanngjarnt verð.
Allar uppl. í síma 80534. —
Sækjum. — Sendum. (208
SAUMASKAPUR. Sauma
allskonar kvenfatnað. Fljót
og: ódýr afgreiðsla. Sníð
einnig fyrir fólk. Geri
hnappagöt, zig-zaga allt
mögulegt. Uppl. í Barmahlíð
42, IL hæð. (207
PLISERINGAR, hull-
saumur, zig-zag. Hnappar
yfirdekktir. — Gjafabúðin,
Skólavörðustíg 11. — Sírni
2620.
S AUMAVÉLA-viðgerðir.
Fljót afgreiðsla. — Sylgjr,
Laufásvegi 19. — Sími 2656.
Gerum við straujárn og
önnur heimilistæki.
Raftækjaverzlunin
Ljós og Hiti h.f.
Laugavegi 79. — Sími 5184.
AXMINSTER-góIfteppi,
alveg nýtt, stærð 3x3 yards,
til sölu. Uppl. á Vitastíg 3.
(218
KVENSKIÐI með stál-
köntum og gormabindingum,
til sölu. Uppl. í síma 6476.
(213
RADIOFONN til sölu í
sæmilegu standi. Hagkvæmt
verð. Uppl. í dag milli kl.
7—10 í Barmahlíð 42. (206
BÍLÖXULL. Framöxull,
með bremsum og stýrisút-
búnaði, til sölu. — Uppl. í
Bílaviðgerðin Drekinn. Sími
80200. (203
VEGGTEPPI, dívanteppi,
gluggatjaldaefni, húsgagna-
áklæði. Sauma- og vefstofan
Ásar, Fjólugötu 19 B. (580
MORGUN SLOPP AR,
morgunkjólar, lök og kodda-
ver. Sauma- og vefstofan
Ásar, Fjólugötu 19 B. (579
MÁLUÐ húsgögn til sölu.
Gerum gömul húsgögn sem
ný. Málarastofan Barónsstíg
3. Sími 5281. (127
TÆKIFÆRISGJAFIR:
Málverk, Ijósrnyndir,
myndarammar. Innrömmum
myndir, málverk og saumað-
ar myndir. — Setjum upp
veggteppi. Ásbrú, Grettis-
götu 54.
PLÖTUR á grafreiti. Út-
vegum áletraðar plötur á
grafreiti með stuttum fyrir-
vara. Uppl. á Rauðarárstíg
26 (kjallara). — Sírni 6126.