Vísir - 16.01.1952, Blaðsíða 8

Vísir - 16.01.1952, Blaðsíða 8
WE Miðvikudaginn 16. janúar 1952 JV&r&MB'líSBtdasýnitttjféBB é IS&éFi: Samsýning tómstundamálara opnuð í næsta mánuði. I undirbúningi stafnun Sambands fónt- sfundamáiara á ftiorðurliSndum. í næsta mánuði verður opn- uð í Reykjavík málverkasýning tómstundamálara á Norður- löndunum fimm, Danmörk, Finnlandi, íslandi, Noregi og Svíþjóð. Tildrögin að þessari sýningu eru þau, að á s.l. sumri efndu tömstundamálarar á Norður- löndum til sameiginlegrar sýn- ingar, sem opnuð var í Dan- mörk í júlímánuði s.l. Voru það félög og félagasambönd áhugamanna í hinum ýmsu löndum, er efndu til sýningar- innar og stóðu að henni. í sept- embermánuði í haust er leið var sýningin flutt til Osló og var opin þar fram í októbermánuð. Nú hefur náðzt samkomulag um það að fá sýningu þessa til íslands og eru myndirnar þegar komnar til Reykjavíkur. Hún verður opnuð í Listamanna- skálanum í næsta mánuði. Það voru 11 íslendingar sem tóku þátt í sýningunni í Dan- mörk og Noregi, en nú getur farið svo að þeir verði fleiri ,ef húsrúm leyfir. Um það er ennþá ekki vitað. Hinsvegar verður aukin þátttaka, ef til hennar kemur, eingöngu bund- in við meðlimi í Myndlistafélagi áhugamanna. Nú er á döfinni að stofnað verði samband félaga tóm- stundamálara um öll fimm Norðurlöndin og er það mál í undirbúningi. Verður samband þetta m.a. stofnað í þeim til- Nýr endurvarps- sendir fullgerður. Eins og kunnugt er hefir verið væntanleg hingað til lands ný endurvarpsstöð, svipuð og Eiðastöðin, sem ætlaður er staður á Akureyri. Útsendingar útvarpsstöðvar- innar hér hafa heyrst mjög illa víða norðanlands og einkum í sveitum. Á sumum bæjum má heita, að lítil sem ekkert gagn hafi verið að því að hafa út- varpstæki vegna þess, hve skilyrði hafa verið slæm. Hefir þetta ástand jafnvel orðið til þess að fólk hefir hætt við að hafa útvarp, enda fækkaði út- varpsnotendum nokkuð á árinu 1950. Skýrslur eru ekki fyrir hendi um útvarpsnotendur á s.L ári, en trúlegt þykir, að þeim hafi a. m. k. ekki fjölgað. Endurvarpsstöðin, sem sett verður upp á Akureyri, er nú tilbúin til afhendingar og vænt- anleg hingað til lands í næsta mánuði. Verður hún sett upp í sumar og má þá búast við að skilyrði til útvarpshlustunar foatni verulega á Akureyri og í sveitum norðanlands. Endur- varpsstöðin nýja er 5 kw. gangi að auka innbyrðis kynni hinna einstöku meðlima, efla samvinnu þeirra í milli og auka þekkingu þeirra á málaralist- inni. Þá myndi sambandið enn- fremur beita sér fyrir samsýn- ingum tómstundamálara á Norðurlöndum og yfirleitt vinna þeim hvert það gagn sem verða má. Hæsti wimtisigigr ■nr. 53.915 Dregið var í happdrættisláni ríkissjóðs B-flokki í gær og kom hæsti vinningurinn, 75 þúsund krónur, á nr. 53.915. Hér fara á eftir hæstu vinn- ingarnir: 75.000 krónur: 53.915. 40.000 krónur: 84.447. 15.000 krónur: 11.689. 10.000 krónur: 15.543, 119.812. 134.276. 5.000 krónur: 6.605, 22.183, 64.668, 92.302. 101. C— 00 ■ <M 2.000 krónur: 9.448, 12.034, 13.283, 20.222, 31.284, 35.588, 39.290, 41.497, 59.039, 87.370, 91.482, 96.346, 120. 048, 120. .079, 144 .210. Þegar þingmaður andast vestan hafs, er ekki efnt til nýrra kosninga, heldur út- nefnir fylkisstjórinn, þar sem þingmaðurinn hafði verið kos- inn, nýjan þingmann, er situr til Ioka kjörtímabilsins. Konan hér að ofan var gift Frank Buchanan þingmanni fyrir Pennsylvaniu-fylki, en er hann andaðist, var hún útnefnd þing- tnaður í hans stað. Heitir hún Vera Baerr Buchanan. Faruk eign- ast son. HlúskapuirinrB hefir náð tilgangi sénum. Tilkynnt hefir verið í Kairo, að drottning Farúks konungs hafi alið honum son. Verður drengurinn rík- isarfi Egyptalands, og hefir Farúk boðað, að piltur verði látinn heita eftir Fuad kon- ungi, af hans. Eins og kunnugt er af fregnum á sínum tíma og blaðagreinum um Farúk, skildi hann við fyrri drottn- ingu sína sakir þess að hún hafði ekki alið honum son. Núverandi drottning, Narri- man Sadek, var trúlofuð ungum Egypta, efnismanni, er Farúk sá hana fyrst, en trúlofuninni rift, og hlaut Farúk víða mikið ámæli fyrir framkomu sína. SA.-Asía: Bretar ætla að láta skríða tíl skarar. í gær var tilkynnt í London, að Sir Gerald Templer liers- höfðingi, hefði verið skipaður landstjóri Breta á Malakka- skaga og yfirhershöfðingi og verður skipaður vara-Iand- stjóri honum til aðstoðar. Þetta er ein af þeim breyt- ingum, sem til athugunar hefir verið síðan Oliver Lytttleton fór fyrir hönd brezku stjórnarinn- ar til SA-Asíu, til að kynna sér ástand og horfur. Einnig hefir verið skipt um landstjóra í Singapore. Templer er væntanlegur til London í dag frá New York, ásamt Anthony Eden, en vestur fór Templer til viðræðna við Churchill um hið nýja hlutverk sitt. SkoflutBð a«isýam£|alls. Haiin var ekki ai vígur niHiirskiii'lli. Æm Ímmbmss milg&é ímtm imemm til mitmwis. Hinn 23. des. s. 1. gerðist ó- vanalegur atburður á bæ ein- um ausíanfjalls. Átti að taka þar kindur nokkrar til niðurskurðar, . en bóndinn greip kindabyssu og skaut í rúður og hjólbarða bif- reiðarinnar, sem nota átti til brottflutnings kindanna, og varð þá ekki af því, að kind- urnar væri teknar. Mikil rekistefna hafði áður orðið út af þessum kindum, og með öllu móti reynt að ná sam- komulagi með góðu. M. a. var sáttafundur reyndur, og kvaðst bóndi ekki vera mótfallinn nið- urskurði, . en setti fram ýmis furðuleg skilyrði um fram- garig mála, sem eru niðurskurð- inum algerlega óviðkomandi og var ein krafan, að séð væri um, að 2 nafngreindir menn væru látnir ganga til altaris! Náðist ekkert samkomulag, en daginri eftir tilkynnti bóndi, að liann vildi losna við kindurnar, og var þá Brynjólfi Melsteð vegavinnuverkstjóra falið að sækja þær, og fór hann á bæinn í stórum bíl og hafði 3 menn með sér, en viðtökurnar urðu þá sem að ofan greinir. Þegar svo var komið skrifaði forstöðumaður sauðfjárveiki- varnanna sýslumanni Árnes- sýslu og.fór fram á, að þar sem allar aðrar leiðir hefðu verið reyndar árangurslaust, að kindurnar' væru teknar með fógetavaldi. Um seinus.tu helgi var ekki búið að sækja þær, enda illfært eða ófært víða á vegum í upp- sveitum Árnessýslu, en þar býr bóndi sá, sem hér um ræðir. Aflí landróðraháta sæmilegur. Allir landróðrarbátar voru á sjó í gær og var afli þeirra sæmilegur. Bátar eru allir á sjó aftur í dag og auk þess er Helga farin á togveiðar og mun hún fyrsti togbáturinn, sem byrjar hér Vertíð. í fyrra hófu togbátar ekki veiðar héðan fyrr en fyrstu dagana í febrúar. Landróðrar- bátar, sem byrjaðir eru vertíð héðan eru 6, og mun 7. báturinn bætazt við í vikunni. Afli bátanna var sem hér segir: Hagbarður 3280 kg., Ás- geir 2040 kg., Dagur 1750 kg., Víðir 1600 kg., Svanur 3500 kg., Einar Þveræingur 3330 kg. Rafmagnslaust á Akranesi. Rafmagnslaust var á Akra- nesi í gær vegna einangrunar- bilunar á línunni við ósana, sem svo eru nefndir, en þar er mjög langt haf milli staura og að- staða til viðgerðar erfið. Vonir standa til, að þessari viðgerð verði lokið í dag. í s.l. viku varð að takmarka hér raf- magn og var kauptúninu skipt í hverfi og fengu þau rafmagn til skiptis. Þessi takmörkun var framkvæmd vegna stíflu í að- rennslisskurðinum við virkjun- ina, en færðist aftur í betra horf um helgina. Heilsufar er gott á Akranesi og ný mænuveikitilfelli hafa ekki komið til sögunnar undan- gengnar vikur. Samlð um vlðskipti veð Vestur-Þýzkaland. Nýlega var framlengdur við- skiptasamningur íslendinga og Vestur-Þjóðverja. Samkvæmt honum geta ís- lendingar aukið innkaup sín á járni og stáli frá Þýzkalandi, og auk þess geta íslendingar keypt á næstu sex mánuðum 1500 lestir af kolum og koksi þaðan, þar í móti munu V.-Þjóðverjar kaupa meira af okkur af fiski- mjöli og lýsi, ennfremur hesta fyrir kr. 650.000. Vilhj. Finsen aðalræðismað- ur undirritaði samninginn fyr- ir hönd íslands. HöggmyEndasýn- ÍRig e Llstvina- salnum. í dag verður opnuð í List- Vinasalnum við Freyjugötu sýning Sigurjóns Olafssonar á safni mannamynda. Myndirnar eru 18 talsins, flestar úr gifsi, nokkrar úr eir, brenndum leir, gabbró og ein úr vír. Myndirnar eru allar af kunnum mönnum úr þjóðlífinu. Þá er á þessari sýningu mynd- in Kroppinbakur, sem áður hefir verið sýnd og ný mynd:: Hendur, frumkast úr brernid- um leir. Á höggmyndasýningu þess- ari eru einungis mannamyndir. Afmælismót HKRR: Austurbærinn sigraði. Bæjarhlutakeppninni í hand- knattleik lauk í gærkveldi með því að Austurbær sigraði bæði í karla- og kvennaflokki. í kvennaflokki kepptu að- eins tvö hverfi, Austurbær og Vesturbær. Sá leikur fór fram í gærkveldi og lyktaði honum með sigri Austurbæjar, 5:3. I karlaflokki fóru tveir leik- ir fram í gærkveldi. Var annar þeirra úrslitaleikur og sérstak- lega spennandi því þar höfðu liðin yfirhöndina til skiptis meðan á leiknum stóð og lykt- aði með jafntefli, 10:10. Var þetta leikurinn milli Austur- bæjar og Kleppsholts. Hinn leikurinn var milli Vesturbæjar og Hlíðahverfis og bar Vesturbær sigur úr býtum með 18 mörkum gegn 12. Stig bæjarhlutanna í karla- flokki urðu þau að Austurbær hlaut 5 stig, Kleppsholtið 3, en Hlíðarnar og Vesturbærinn sín 2 stigin hvort. Áhorfendum ber saman um það að þessi handknattleiks- keppni hafi verið óvenjulega skemmtileg og spennandi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.