Vísir - 13.02.1952, Blaðsíða 2
2
Hitt og þetta
Norskt blað átti viðtai við
er þar hafði
verið úm sk'éið. tíuií'komst m.
a. svo að orði við blaðamanninni
„Norðmenn ■-.e$u: , leiðinlegir
elskliugar. Þeir vilja ævinlega
byrja á aðalréttinum!"
Líklega hefir enginn þjóð-
höfðingi lifað í annarri eins
dauðans hræðslu um líf sitt
eins og Abdul Hamid II, sem
var Tyrkjasoldán frá 1876 til
1909. Þá var hann rekinn frá
völdum og í útlegð. Allsstaðar
Yildiz, í Konstantinopel og
hann talaði aldrei við menn
öðru vísi en gegnúm hlíf, eða
skýli á svölum, svo að þeír
gæti ekki séð hann. í einkaher-
berginu hans voru allsstaðar
þjófabjöllur, faldar skamm-
byssur, fallhurðir og 'speglar,
sem spegluðu allt, sem fram
fór. Einnigjroru líkön af hon-
um í líkamsstærð. Stóðu þau
Við glugga, sátu í stól eða lágu
á legubekk og vonaðist hann þá
til að að þeim yrði stefnt þeim
rýtingslögum eða byssukúlum,
sem honum væri ætlaðar.
Þegar Bahbek fékk riddara-
krossinn, þurfti hann vitanlega
að halda hátíðlegt tækifærið
l,já Lars Mathiesen, vert á j
Friðriksbergi. Þangað kom
„allur bærinn“ þá. Þegar vert-
inn hafði óskað gesti sínum til
liamingju, sagði hann:
„Heyrðu, Rahbek. Veiztu
hver er munurinn á þér og
asna?“
„Nei,“ sagði Rahbek.
„Hann er sá,“ sagði vertinn,
„að asninn ber sinn kross aftan
ó sér en þú þinn að framan.“
En Knud Lyhn Rahbek var
ekki alveg af baki dottin.
„En þú þá Lars, veizt þú þá
hver er munurinn á þér og
asna?“
„Nei, það veit eg reyndar
ekki.“
„Eg veit það ekki heldur,“
sagði Rahbek, þurrkaði sér um
munninn og fór.
Maður einn reiddist er hann
gat ekki komið bifreið sinni af
stað, stakk í hana tveim stöng-
um af sprengiefni og kveikti í.
Bifreiðin flaug af stað — í all-
ar áttir.
>•••••••••
Cim Mmi var,...
Hinn 13 febrúar 1922 var m.
a. þetta í bæjarfréttum Vísis:
Geir
kom úr Vestmannaeyjum í
morgun með botnvörpunginn
Travemunde, sem þar strand-
aði fyrir nokkru. Farþegi var
Karl Einarsson alþingismaður.
Otur
heitir nýr botnvörprmgur,
smíðaður í Þýzkalandi, sem
hingað kom í morgun. Eigendur
eru Otur h.f.
Upplestur
sá, sem Schoubye varð að
fresta á dögunum, verður hald-
inn í Bárunni annað kvöld. Að-
göngumiðar fást í bókaverzlun
ísafoldar í dag og á morgun og
í Bárunni í kvöld og annað
kvöld eftir kl. 7.
Miðvikudaginn 13. febrúar 1952
; L r.
,oK.aoro. -— 21.50 Tónleikar
tþíötur). — 22.00 Fréttir'ög
veðurfregnir. — 22.10 Passíu-
sálmur nr. 4. — 22.20 „Ferðin
til Eldorado", saga eftir Earl
Derr Biggers. (Andrés Krist-
jáhsson blaðamaður). X. —
22.40 Svavar Gests kynnir
dansmúsik.
VÍSIR.
Nýir kaupendur Maðsins fá
það ókeypis til mánaðamóta.
Vísir er ódýrasta dagblaðið,
sem hér er gefið út. — Gerist
áskrifendur. — Hringið í síma
1660.
Prentarinn,
blað Hins ísl. Prentarafélags er
nýkomið út. Að þessu sinni
koma fjögur tölublöð út sam-
tímis, 7.-8. og 9.—-10. f blöð-
unum eru ýmsar greinar varð-
andi prentarastéttina m. a.
grein um 40 stunda vinnuviku,
dánarminning um látinn prent-
ara o. fl. Ritstjórar eru Hall-
björn Halldórsson og Sigurður
Eyjólfsson.
Vísitalan.
Kauplagsnefnd hefir reiknað
út vísitölu framfærslukostnað-
ar í Reykjavík hinn 1. febr. s.
1. og reyndist hún 155 stig, mið
að við grunntöluna 100 hinn 1.
marz 1950.
Kauplagsnefnd hefir enn-
fremur reiknað út kaupgjalds-
vísitölu fyrir febrúar með tilliti
til ákvæða 3. mgr, 6. gr. laga
nr. 22/1950, og reyndist hún
vera 148 stig.
Veðrið á nokkrum stöðum.
; Grunr. laigð fyrir austan land
á hreyfingu til suðausturs. —
Önnur grunn lægð suður af
Grænlandi á hreyfingu til
norðurs. — Veðurhorfur fyr-
ir Suðvesturland, Faxaflóa
og miðin: Norðan kaldi eða
stinningskaldi og skýjað í dag,
en hægari og léttir .til 1 nótt.
Veðrið kl. 8 í morgun: Reykja-
vík NNV 5, -fl, Sandur NNA
4, 1, Stykkishólmur VNV 4,
“1, Hvallátur N 4, Galtarviti
NA 4, Kjörvogur N 4, -5-3, Horn
bjargsviti logn, --3, Blönduós
N 2, -i—l, Hraun á Skaga NNA
3, -í-1, Siglufjörður NV 2, frost-
laust, Loftsalir NV 1, +1, Vest
.mannaeyjar NV 9, +3, Reykja-
jnesviti NV 4, +2, Þingvellir
logn, -5-1, Keflavíkurvöllur NV
4, 4-1.
Grindavíkurbátar.
Afli er nú mjög, að glæðast í
Grindavík og fengu bátar sæmi
legan afla þar í fyrradag. í gær
voru allir bátar þar á sjó, en
10 bátar eru gerðir þaðan út,
auk aðkomubáta. Mun afli
þeirra hafa verið frá 5 lestum
í IVí lest og er það betri afli
en bátar hafa átt að venjast í
vérstöðvum hér í grennd.
Skipaútgerðin.
Hekla er á Austfjörðum á
norðurleið. Þyrill er í Faxaflóa.
Ármann var í Vestmannaeyjum
í gær. Oddur átti að fara frá
Reykjavík í gærkvöld til
Grundai'fjarðar og Vestfjarða.
Togararnir.
Togarinn . Marz kom í nótt
með fisk í frystihúsin, sennilega
um 250 lestir. ísólfur kom af
veiðum og siglir hann með afla
sinn til Englands. Fer héðan í
dag.
Austfjarðarbáturinn Valþór
seldi ísfiskafla í Aberdeen 5. þ.
rn., 828 vættir (662 kit) fyrir
1773 stpd. — Þetta er eini ísl.
vélbáturinn sem selt hefir í
Bretlandi um alllangt skeið.
Reykjavíkurbátar.
Landróðrabátaij voru á sjó í
gær og hefir afli þeirra lítið
skánað. Einar Þveræingur var
með 4600 kg., Dagur 2780 kg.,
Steinunn gamla 3220 kg., Skeggi
2100 kg., Svanur 2430, Hagbarð
ur 5150 kg„ Ásgeir 1830 kg.,
og Víðir 3430 kg. Togbáturinn
Marz kom í nótt með 4—5 tonn
eftir 3 daga. Sæfell (áður Sædís
frá Akureyri) kom í nótt með
28 lestir eftir 5 lagnir. Helga
kom með 12 lestir eftir um viku
útivist.
Skip Eimskip.
Brúarfoss er í Antwerpen,
fer þaðan 16./2. til Hull og
Reykjavíkur. Dettifoss kom til
Gautaborgar 10./2., fer þaðan
til Reykjavíkur. Goðafoss fór
|frá Reykjavík 8./2., til New
jYork. Gullfoss kom til Reykja-
J víkur 11./2., frá Kaupmanna-
höfn og Leith. Lagarfoss fór frá
Reykjavík á miðnætti sl. nótt
til Breiðafjarðarhafna og Vest-
mannaeyja. Reykjafoss kom til
Hull 11./2., fer þaðan til Ant-
werpen og Hamborgar. Selfoss
fór frá Kristiansand 9./2. til
Siglufjarðar og Reykjavíkur.
Tröllafoss kom til Reykjavíkur
í nótt, skipið kom að bryggju í
morgun.
Skip S.Í.S.
Hvassafell er væntanlegt til
Fáskrúðsfjarðar á morgun, frá
Gdynia. Arnarfell er í London.
Jökulfell er í Reykjavík. Fer
héðan væntanlega í kvöld, til
Djúpavogs.
HwMfáta w. 154?
Miövikudagur,
13. febrúar, — 44. dagur árs-
ms. ■ ' '
Sjávarföll.
Árdegisflóð var kl. 6.50. —
Síðdegisflóð verður kl. 19.05.
Ljósatími
bifreiða og annarra ökutækja
er kl. 17.00—8.25.
Næturvörður
er í Ingólís apóteki; sími
1330.
Ungbarnavernd Líknar.
Templarasundi 3, er opin
þriðjud. kl. 3.15—4 og fimmtud.
kl. 1.30—2.30.
Kveldlæknir L. R.
er Kristján Þorvarðsson,
Læknavarðstofunni; sími 5030.
Næturlæknir L. R.
er Bjarni Jönsson, Lækna-
vai'ðstofunni; sími 5030.
Aðalsteinn Jónasson
annast leiksviðsstjórn, en
ekki leikstjórn, í Þjóðleikhús-
inu í forföllum Yngva Thor-
kelssonar, eins og misritazt
hafði í Vísi í gær.
VÍSIR.
Nýir kanpendur blaðsins fá
það ókeypis til mánaðamóta.
Vísir er ódýrasta dagblaðið,
sem liér er gefið út. — Gerist
áskrifendur. — Hringið í síma
1660.
Utvarpið í kvöld.
Kl. 20.30 Útvarpssagan:
„Morgunn lífsins“, eftir Krist-
mann Guðmundsson. (Höfund-
ur les). XII. — 21.00 íslenzk
tónlist (plötur). — 21.20 Vett-
vangur kvenna. — Minnzt ný-
liðins áttræðisafmælis Gunn-
þórunnar Halldórsdóttur, leik-
konu: a) Brynjólfur Jóhannss.
leikari flytur ávarp. b) Gunn-
þórunn Halldórsdóttir leikkona
les smásögu: „Við bakdymar“
eftir Þóri Bergsson. c) Frú
Steinunn H. Bjarnason flytur
Lárétt: 1 Áhugalaus, 6 verk-
færi, 8 snemma, 10 hreppur
sunnanlands, 12 í nauðum, 14
klæðast margir, 15 glata, 17
það herrans ár, 18 fugl, 20 lin-
ar.
Lóðrétt: 2 Hæð, 3 dráttur, 4
fugl, 5 kílómetra, 7 góður, 9
fara á flot, 11 gælunafn, 13
spottakorn, 16 mannsnafn, 19
væntanlegur.
Lausn á krossgátu nr. 1546.
Lárétt: 1 Ötull, 6 dró, 8 ÓF,
10 Amor, 12 SOS, 14 Ask, 15
Elís, 17 ÁI, 18 Róm, 20 banana.
Lóðrétt: 2 TD, 1 úra, 4 lóma,
5 Móses, 7 Örkina, 9 fól, 11 ósa,
13 síra, 16 Són, 19 MA.
Akranesbátar.
Bátar voru yfirleitt ekki á
sjó fyrri hluta sl. viku, en al-
mennt var róið á fimmtudag.
Afli hefir verið lélegur. Tveir
útilegubátar, Böðvar og Heima-
skagi, eru gerðir út frá Akranesi
og hefir afli þeirra verið svip-
aður og landróðrabáta, þegar
miðað er við lagnir. Togarinn
Bjarni Ólafsson veiðir nú fyrir
brezkan markað. Akureyin
veiðir fyrir frystihúsin á staðn-
um.
Fiskverð aðeins
skárra.
FiskverS á brezkum markaði
er enn lágt, en var þó dálítið
skárra í gær en í fyrri viku.
Askur seldi í .gær í Grimsby
3880 kit fyrir 9256 stpd. og
Karlsefni 3190 kit fyrir 7732
stpd.
Hvalfell seldi í morgun í
Grimsby 3203 kit fyrir 9515
stpd.
Bezt að auglýsa í Vísi.
I sjóþyngslum og hálku er meiri þörf en nokkru
sinni að aka varlega. Þá er hættan á árekstrunum mest
og slit á bifreiðum getur þá orðið mjög mikið. Treystið
ekki um of á hemlana, því að þeir eru hvergi nærri
öruggir þegar stöðva þarf bifreið snögglega. Djúp hjól-
för í snjó og hálku hafa nú undanfarið vcrið orsök fjöl-
margra árekstra. Með því að liafa keðjur á framhjól-
um má auka mikið öryggi og auðvelda stjórn á bif-
reiðinni.
Bezta ráðið til þess að forðast árekstra og koma í veg
fyrir óþarfa slit á bifreiðinni, er að aka varlega.
Samvinnutryggingar
BIFREIBASTJÓRAR