Vísir - 13.02.1952, Blaðsíða 4

Vísir - 13.02.1952, Blaðsíða 4
V I S I K Miðvikudaginn 13. febrúar 1952 DAGBLAÐ Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofur Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (finam línur). Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. Togarastöðvunie. Alþýðusamband íslands hefur tilkynnt fyrir hönd sex sjó mannafélaga, að verkfall muni hafið og togararnir stöðvaðir frá og með 21. þ.m., hafi samningar ekki verið undirritaðir fyrir þann tíma. Ef til kemur nær verkfallið til togara í Reykja- vík, Hafnarfirði, Patreksfirði, ísafirði, Siglufirði og Akureyri, en hinsvégar nær verkfallið ekki til bæjarútgerðar Neskaup- staðar, þar sem kommúnistar eru allsráðandi og ei heldur til Vestmannaeyja, en þar synjuðu sjómenn tilmælum Alþýðu- sambandsstjórnar um heimild til stöðvunar. Sáttasemjari ríkis- ins, Torfi tollstjóri Hjartarson, hefur átt fund með samninga- nefndum útgerðarmanna og sjómanna, en þar hefur svo mikið á milli borið, að samningar hafa ekki tekist, enda óhætt að fullyrða að þeir eru ekki líklegir, ef sjómenn slaka ekki á kröfunum. Virðist deilan standa fyrst og fremst um hvíldar- tíma sjómanna og önnur fríðindi, sem er hið sama og launa- hækkun eða undir öllum kringumst.æðum stórfelld útgjalda- hækkun fyrir útvegsmenn. Samkvæmt skýrslum, sem birtar hafa verið í blöðum að undanförnu virðast laun sjómanna á síðasta ári hafa numið frá kr. 50 þús. allt upp í kr. 70 þús. á árinu og myndu margir gera sig ánægða með minna, en þó ekki sízt hlutasjómenn á vélbáta- flotanum. Eru kjör þeirra allt önnur og lakari en kjör togara- sjómanna og aðbúð öll sýnu verri. í þessu sambandi er einnig vert að vekja athygli á, að Bretar hafa komið sér upp togara- flota, sem má teljast sambærilegur við nýsköpunartogarana. Notast þeir við 20 manna áhöfn, en hér munu um 30 menn vera á hverjum togara, en myndu verða a. m. k. 36, ef orðið yrði við kröfum sjómanna um 12 stunda hvíld. Liggur í augum uppi hver aðstaða okkar yrði í samkeppni á hinum brezka markaði, er svo ólíkar kröfur yrðu gerðar um mannahald, auk þess sem aðstaða okkar er að öðru leyti óhægari og erfiðari en brezkrar útgerðar, meðal annars vegna tollgreiðslna, sem ís- lenzkir togarar verða að inna af hendi við löndun í Bretlandi. Vafaiaust er það mikill misskilningur er Alþýðusambandið vill beita sér fyrir 12 stunda hvíld á togurunum við allar veiðar, enda munu kommúnistar hafa átt hugmyndina og viljað hafa fulltrúa Alþýðuflokksins að ginningarfíflum enn sem fyrr. Þótt sjómenn fái ekki svo langa hvíld á sólarhring hverjum meðan veiðar eru stundaðar, gegnir allt öðru máli, er siglt er milli hafna, en þó einkum til erlends markaðs, auk þess, sem sjó- menn fá viðunandi hvíld við löndun og afgreiðslu hér í höfnum. íslenzkir atvinnuvegir eru yfirleitt þannig, að þá verður að sækja af kappi og hentar ekki ávallt að miða afköstin við mínúturnar einar, heldur þá þörf sem á afköstunum er hverju sinni. Ef bjarga þarf heyi undan skúr eða rigningu má ekki um það spyrja, hvort vinnutíminn sé liðinn, og ef innbyrða þarf troll eða gera að fiski, sem liggur undir skemmdum, hentar þetta ekki heldur. Þeir menn, sem krefjast 12 stunda svefns og hvíldar á hverjum sólarhring, ættu því hvorki að leggja fyrir sig sveitavinnu né sjávarsókn. Þeim hentar önnur atvinna og hægari, enda myndu þá launin vafalaust ekki reynast sam- bærileg við hlut þann, er þeir bera frá borði á togurunum. Kröfur um opinbera aðsloð. T^egar í öngþveiti er komið þykir flestum stéttum henta að bera fram kröfur um opinbera aðstoð og fyrirgreiðslu, þótt þær eigi aðalsök á því hvernig komið er, með fyrirhyggjuleysi kröfugerðum og kaupstreitu, sem vita mátti að væri tilgangs- lítið og ekki til varanlegra kjarabóta. Öll þjóðin hefur fallið í slíka freistni á styrjaldarárunum, þrátt fyrir allar aðvaranir ábyrgra aðila. Þegar svo atvinnuleysið ber að dyrum, þá er hlaupið upp til handa og fóta, og krafist opinberra aðgerða til úrbóta, þótt vitað sé að meinið læknist ekki með öðru móti en því, að atvinnurekstrinum séu sköpuð starfsskilyrði, sem ekki er um að ræða eins og sakir standa. Atvinnurekstur, sem ekki ber sig, neyðist til að draga saman seglin, eða að hætta starfræsklu með öllu, en af því leiðir atvinnuleysi um langa hríð eða skamma. Afturbatinn verður að koma frá þjóðinni sjálfri, sem skapar sér lífsskilyrðin. Þegar svo séð er að atvinnureksturinn þolir ekki auknar kröfur um hækkuð laun eða hlunnindi, þýðir heldur ekki að bera slíkar kröfur fram, enda ekki annað en skemmdar- verk, sem bitnar á öllum aðilum, en þó þyngst á þjóðarheildinni, er aðalframleiðslutækin liggja ónotuð. Til kaupa á þessum tækjum hefur verið varið stórfé á okkar mælikvarða, en til þess er ætlast að þau verði ekki leiksoppur í höndum dutlungafullra kröfugerðarmanna einvörðungu, en stuðli miklu frekar af bættri afkomu og öryggi þjóðarheildarinnar. 1 Sjjiittttjjui' i rf«í/; Þórarinn B. Guðmundsson. Hann Túbogi er sjötugur í dag. Það skal straz tekið fram, áður en lengra er haldið, að hann er ekki uppnefndur hér til þess að óvirða hann eða nprrast að honum, heldur ein- faldlega af því, að fáa mun renna grun í, að Þórarinn Böðvar Guðmundsson sé sami maðurinn og Túbogi, en auk þess hefi eg leyfi til þess að kalla hann þessu nafni, því að við erum góðir vinir, og vona eg, að sú vinátta megi haldast þrátt fyrir þenna greinarstúf. Eg hitti Túboga um daginn, glaðan og. reifan, eins og hans er von og vísa, og eg notaði þá tækifærið til þess að spyrja hann, hvernig á þessu sér- kennilega nafni stæði, því að eg hafði heyrt, að nú væri hann sjötugur, og é. t. v. væri óvið- kunnanlegt að nefna svo rosk- inn mann gælunafni á prenti. Hann var skírður Þórarinn Böðvar, eins og fyrr greinir, en þegar hann, ungur sveinn, ætl- aði að fara að segja nafn sitt, áður en hann hafði fullt vald á málinu, varð úr þessu Túbogi, eða eitthvað í þá átt. Þó tekur hann sjálfur fram, að norðan lands og austan nefni menn hann Tóboga, en sunnan lands og vesfan Túboga. Þá veit maður það. Túbogi (alias Þórarinn Böðvar Guðmundsson) er sem sé fæddur hinn 13. febrúar árið 1882, í Kóngsins Kaupinhafn, rétt við hliðina á hóteli því, er Angleterre heitir við Kongsins Nýjatorg. Foreldrar hans voru sæmdarhjónin Þórarinn Guð- mundsson franskur konsúll og kaupmaður á Seyðisfirði og Sig- ríður Jónsdóttir frá Finnboga- bæ, eða Grjótagötu 10, í Reykjavík. Túbogi ólst upp í höfuðstað Austurlands við hinn lygna fjörð í skjóli hárra fjalla til fimmtán ára aldurs, er hann fluttist hingað suður og settist í Latínuskólann.. Þar stundaði hann nám og lauk fjórða bekkj- arprófi, en fór þá utan og hóf nám við Brocksverzlunarskóla og lauk þar námi á níu mán- uðum. Túbogi var og er all-slyngur tungumálamaður, og á yngri áruni var honum töm Fáskrúðs- fjarðarfranska, sem var eins konar lingua france þeirra tíma í samskiptum Austfirðinga og þeldökkra fiskimanna frá Pempól og Sankti Maló. Túbogi fullyrðir nú, að auk hans tali varla nema einn núlifandi ís- lendingur þetta merkilega tungumál, en sá er Magnús Gíslason, skrifstofustjóri í Stjórnarráðinu. Þegar eg hitti Túboga á dög- unum og ætlaði að fá eitthvað bitastætt út úr honum, vildi hann aðeins segja það, að hann ynni að æviminningum sínum, en þar myndi hann jafnframt fara nokkrum orðum um áður- nefnda Fáskrúðsfjarðarfrönsku. Sjálfur sagði hann á þessa leið: „Mitt líf er ævintýr, og eg myndi vilja lifa því aftur ó- breyttu, ef eg ætti þess kost. Það hefir verið ævintýr, bland- ið mótlæti, en án þess væri lífið einskis virði“. Eitt mesta á- hugamál hans er Héraðsflóa- sandurinn, og að því mun hann vinna meðan lífið endist. Túbogi stundaði ýmis kaup- sýslustörf, meðal annars á Seyðisfirði, í Oslo í sex ár, Reykjavík um skeið, en auk þess var hann all-umsvifamikill blaðaútgefandi, gaf út „Neista“ á Seyðisfirði en „War Nev/s“ hér í síðustu styrjöld. Hann getur þess þó, að hann hafi aldrei sótt um upptöku í Blaða- mannafélag íslands. Hann kvæntist norskri ágæt- is konu, Betzy Berg að nafni, og varð þeim fimm barna auð- ið, fjögurra stúlkna og drengs. Allt hefir þetta reynzt hið mannvænlegasta fólk, en konu sína misti hann árið 1939. Böm þeirra eru: Unnur, gift Schiönning lektor í Höfn, Svava, gift Otto Schiöth á Ak- ureyri, Randí, gift Elíasi Krist jánssyni birgðaverði Lands- símans hér, Sigrid Marie, gift Tekke lækni í Kolding og Þór- arinn Böðvar, sem er í sigling- um. Við þessi tímamót í lífi hins síglaða og síunga Túboga vin- ar míps, leyfi eg mér að óska honum allra heilla á ókomnum áratugum, og eg veit, að undir þá ósk taka fjölmargir, því að vinsæll er hann með afbrigð- um og vel metinn í vinahópi. Freistandi væri að segja frá ýmsu því, sem á daga hans hefir drifið, en réttara er þó að láta endurminningar hans sjálfs tala sínu máli. Til hamingju með daginn, Túbogi! ThS. BEZT AÐ AUGLTS AIVISI BERGMAL Sjúkrasamlag Reykjavíkur 1952. Ragnar Benediktsson sendir mér eftirfarandi bréf: Gjald fyrir þetta ár er á- kveðið 25 krónur á mánuði, og verður þannig 300 krónur á ári. Verður gjaldið 38 krónum hærra en í fyrra, enda er dýr- tíðin orðin mikil í landinu. Má til sanns vegar færa, að há- tekjumenn geti greitt þetta gjald og bera þeir þó þung gjöld. Á eg þar við stéttir eins og t. d. kaupmenn og embætt- ísmenn. Verkamenn eru hvað tekjur 6nertir bókstaflega lagðir á hárrétta vog skatta-löggilding- ar, ef svo má að orði kveða, þar sem þeir geta engu leynt af vinnulaunum sínum, eins og aðrar stéttir geta gert. Þar eru aukatekjur engar. í«á munar um sjúkrasamlags og trygging- argjöld. En hið síðastnefnda gjald hefir enn ekki verið á- kveðið, en verður gert senni- lega á næstunni og verður með vísitöluálagi að þessu sinni. Vestur-íslendingur sagði mér síðastliðið sumar, að í Vestur- heimi væri aðeins eitt ákveðið tryggingargjald, sem samsvar- aði um 500 krónum að íslenzku verðmæti. Hér á landi virðist lítið vera að marka loforð valdhafanna í ýmsum efnum, þótt gullin séu loforðin við kjörborðið. Vænti eg þess nú við síðastliðin ára- mót, að auglýst yrði, að Sjúkra- samlag Reykjavíkur félli niður og hætti starfsemi sinni og sameinaðist Tryggingarstofnun ríkisins eins og ákveðið hafði verið fyrir nærri 6 árum, er tryggingarlögin gengu í gildi. En sjá! Sú von hefir algerlega brugðist og mun margur fé- lítill einstaklingur vera ó- ánægður með slíkt, þótt hann láti ráðamenn ríkisins bjóða sér margt. En hvað er ríkið í raun og veru? Er það ekki almenn- ingur í heild, eg og þú, lesandi góður? Skattþegnarnir smáir og stórir. Greiðum vér ekki allir skattpening í fjárhirzlu ríkis og bæjar? Og eru þeir peningar ekki á ýmsa lund vonarpening- ar þjóðarinnar? En það er ann- að mál. ' E'.ki langgr mig til þess að stuðla að atvinnuleysi starfs- manna Sjúkrasamlagsins, ea hvað sem því líður, eiga ríkir og fátækir kröfu á því, að Sjúkrasamlagið verði sameinað Tryggingarstofnun ríkisins á næsta ári (1953), og eitt sann- gjarnt gjald ákveðið. Eg hefi tvívegis ritað um þetta hér í Vísi á fyrra ári, en fyrir daufum eyr- um þess opinbera. Leyfi eg mér þó enn að minna á þetta máþ sem mér sýnist tími kominn til að leysa. Almenningur ætti 'að sýna þann manndóm og krefjast þess að tryggingarlögunum sé fram- fylgt og samlögin sameinuð í eina heild. Það er réttlætis- krafa. En réttlætið uþphefur lögiri.“ Gáta dagsins. Nr. 50: Fullt hús lagar og finnast engar dyr á. — Hvað er það? Svar við gátu nr. 49: Guðbrandur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.