Vísir - 12.03.1952, Síða 8

Vísir - 12.03.1952, Síða 8
LÆKNAK OG LYFJABtJÐIR Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í Læknavarðstofuna, sími 5030. Vörður er í Ingólfsapóteki, sími 1330. LJÓSATÍMI bifreiða og annarra ökutækja er kl. 18,30— 6.50. Næst verður flóð í Reykjavík ld. 18,00. Miðvikudaginn 12. marz 1952 Heilt bökasafn í happ.draettismiða. Borgfirðingafélagið efnir íil Iiapp- drættis með 25 vinningum verðmæti 45 þús. kr. r&tsheetím mmi Borgfirðingaféíagið í Reykja- vík efnir til happdrættis á næstunni með 25 vinningum, að verðmæti 45 þús. kr. Stærsti vinningurinn er heilt bókasafn, ásamt bókaskáp, og er verðmæti þess vinnings allt að 15 þús. kr. Þá er ferð til Miðjarðarhafsins og til baka aftur, allskonar rafknúin heimilistæki, málverk eftir Ásgeir Bjarnþórsson og ýmis- legt fleira. Tilgangurinn með happ- drættinu er sá, að kvikmynda Nýr blaðafiflllt rúi Nýr blaðafullírúi upplýsinga þjónustu Bandaríkjanna e kominn hingað tíl Reykjavíkur. Orville H. Goblen, en svo heitir hinn nýi blaðafulltrúi, var áður í sama starfi í Noregi. Hingað'kemur hann frá Banda- ríkjúnum, þar Sem hann var.í leyfi eftir tveggja og hálfs árs starf /við sendiráðið í Osló. Áð- ur fýrr var Goblen bíaðamað- ur í Daköta,'Oregoh og Wash- ington, en á styrjaldarárunum í her Bandaríkjanna í Iran og Kína. Borgarfjarðarhérað, landið, fólkið, framkvæmdir og at- ( vinnuháttu, en kvikmynd þessi [ er einn liður í væníanlegu byggðasafni, sem Borgfirðinga- félagið vinnur nú að að koma upp. Mun félagsstjórnin að öðru leyti skýra nánar frá þess- um fyrirætlunum á fundi, sem haldinn verður með blaða- mönnum í dag. Borgfirðingafélagið er öflugt átthagafélag, sem starfar af fjöri og krafti að því að við- halda tengslum þeirra, sem hafa flutzt úr hinu sögufræga Borgarfjarðarhéraði hingað til bæjarins. En auk þess vinnur félagið að margháttuðum menningarframkvæmdum sem héraðinu í heild má að gagni koma. Formaður félagsins er Eyj- ólfur Jóhannesson framkvæmd- arstjóri. ■ Baráttan gegn eiturlyfjun- m bar árangur. Washington (UP). — Fjórir leynilögreglumenn liafa verið heiðraðir fyrir vel unnin störf í þágu baráttunnar við eitur lyfin. Gamelin og Weygand ó- sammála nú eins og 1940. Gamelin er híynntur stofnun Evrópuhers. IfM |ím®. isssaSlyI|» essíliB.r «á elsiia árl.' Ottawa (UP). — Kanada tók við samtais 194,391 innflytj- anda á árinu 1951. Af þeirn voru nærri .115 þús. starfandi karl-ar, en hitt konur og börn. iJókst íbúatala landsins um 1,5 f/0 vegna þessa. Sjotti hver innflytjandi v.ar frá Bret- landi. Paris (UP). — Tveir fransk- ir herhöfðingjar, sem falin var vörn Frakklands gegn Hitler, eru ekki á einu máli um, hvern- ig snúast beri við hættunni af Rússum. Fyrstu tíu mánuði síðustu heimsstyrjaldar voru Gamelin og Weygand yfirmenn banda- mannahersins, og þá voru nöfn þeirra á allra vörum. United Press hefir lagt nokkrar spurn- ingar fyrir þá varðandi vanda- mál Evrópu nú, því að þótt þeir hafi báðir setzt í helgan stein, fylgjast þeir samt vel með við- burðum. Spurning: „Hafa Frakkar vilja til að verjast?“ Gamelin: „Mér virðist, að Frakkár muni verjast, þar sem þeir eru sannfærðir um, að þeir standi ekki einir í baráttunni fyrir menningunni.“ Weygand: „Þótt Frakkar sigruðu í báðum heimsstríðun- um, spyrja þeir nú sjálfa sig, hvort fyrri fórnir hafi verið þess virði, og hvort nýjar færi nóg í aðra hönd, en æskan er fjarri því að vilja leggja árar í bát.“ Spurning: „Er Evrópuher svarið við landvarnavahdamáli Frakka?“ Gamelin: „Bezta ráðið til að skapa djörfung og dug í franska hernum, er að setja Evrópuher á laggirnar.“ Weygand: „Hann gæti verið lausn framtíðarinnar, en fyrst verður hver þjóð að vopnast fyrir sig og dráttur á því er glæpsamlegur. “ Spurning: „Ilvað um víg- búnað Þjóðverja?“ Gamelin (veigraði sér við að svara afdráttarlaust): „Frakk- land er mikilvægasta land Evrópu. Öflugur Evrópuher væri hið bezta fyrir Frakkland og Evrópu í heild.“ Weygand: „Frá hernaðar- sjónarmiði væri óhyggilegt að útiloka þá frá vörnum Evrópu, sem þekktir eru fyrir hreysti og kunnáttu á sviði hermála.“ Þess má geta, að Gamelin og Weygand voru líka ósammála í herstjórnarstefnu 1939;—40. Utan úr heimi .... Bretar borga í sömu lIöiBSiliftt* á feröraisi rauiliðá. Brezká ríkisstjórnin hefir fyrirskipað hliðstæðar hömjur á ferðalögum húlgarskra og rússneskra sendisveitarstarfs- manna í London og í gildi eru í Sofia og Moskvu að því er varðar brezka sendisveitar- starfsmenn. Hömlurnar ná þó ekki til sendiherra Búlgaríu eða stað- gengils hans, þar sem engar ferðahömlur í Sofia ná . til brezka sendiherrans þar. Býið var að grípa til slíkra ráðstaf- ana gagnvart Ungverjum, en engar hömlur hafa verið settar á ferðalög tékkneskra og pólskra sendisveitarstarfs- manna, þar sem brezkir sendi- sveitarmenn í Póllandi og Tékkóslóvakíu eru frjálsir ferða sinna. Svipaðar hömlur og nú eru gengnar í gildi í Bretlandi eru komnar til framkvæmda . í Bandaríkjunum, Hollandi, Frakklandi, Ítalíu og Grikk- landi. Þar af Isiðaiidi Butler fjármálaráðherra flutti útvarpsræðu í gærkvöldi og gerði brezku þjóðinni grein fyrir stefnu sinni og stjórnarinnar í efnahagsmálum, eins og hún kemur fram í fjárlagafrumvarp- inu, sem lagt var fyrir þingið í gær. „Sú er trúa mín, að stjórnin hafi tekið rétta stefim, en reynt Ræsting skólanna Qg sparnaður. Vísir hefir borizt athuga- semd varðandi tunræður um tillögu sparnaðarnefndar um útboð á ræstingu í skólum. Segir þar, að tillagan hafi verið misskilin, því að vita-n- le'ga starfi ræstingakonui: fyrir samningsbundið kaup, fyrir hvern sem þær starfi. Kostn- aðarlækkun yrði þvi að byggj- ast á bættum starísaðferðum o. þ. h. hefir verið að halda á nýjar brautir, svo að ekki þurfi áfram að búa stöðugt við gjaldþrots- hættu á næsta leita“. í fjárlagaræðunni hafði Butler lagt áherzlu á, að þjóð- in væri til neydd að taka á sig auknar byrðar vegna fram- kvæmdar landvarnaáætlunar- innar. Enn yrði að draga úr innflutningi svo næmi 100 millj: stpd. og yrði alls dregið Úf innflutningnum svo næmi 10%. Niðurgreiðslur matvæla lækka úr 410 í 250 millj. stpd. og leiðir af' því verulega hækk- un á bfauði, kjöti og öðrum helztu matvælategundum. Nýir. skattar. ., Ýpisir skattar hækka verú- lega. M, a. kemur til sögunnaf nýr s.tórgripaskattur, breyting- ar .gerðar á skemmtanaskatts- fyrirkomulaginu, benzínskattur aukinn og bifreiðaskattur upp í 12 stpd. ög 10 sh. á bifr.eið. Hækkun á. áfengi og tóbaki er ekki ráðgerð, Tvær milljónir manna verða algerlega undan- þegnar skatti. Forvextir hækka úr 2U>% í 4%. Að lokinni ræðu Butlers í gær kyaddi Attlee sér hljóð§ og flutti stutta ræðu. ' Kvað hann vafalaust margt gott um frumvarpið að segja, en svo væri líka raargt, sem illt væri. Sumt skipti að vísu ekki máli, en við fyrstu sýn þætti sér ískyggilegast, hver áhrif það hefði að svo mjög væri cjregið úr niðurgreiðslu matvæla sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Bitnaði það hart á almenningi. Attlee kvaðst ekki vilja kveða upp neinn heildardóm um frumvarpið, fyrr en hann hefði kynnt sér það betur. Uppreisn Bevans. Umræðan heldur áfram í dag og á morgun, en svo verð- ur hlé til mánudags og lýkur umræðunni þá um kvöldið. Á flokksfundi jafnaðarmanna í gær var felld — með 172:63 — tiilaga Attlees um að þing- menn þeir, sem rufu floftksag- ann á dögunum, með því að greiða atkvæði gegn land- varnaætluninni, skyldu undir- rita skuldbindingar um að leika það ekki aftur. Hinsvegar var samþykkt miðlunartillaga um, að þingmenn skuli eins og á stríðstímanum hlíta samþykkt- um þingflokksins um afstöðu til hinna veigameiri mála. Miðstjórn verkalýðsflokks- ins kemur saman á morgun og ræðir ágreininginn frekar. Verkamaður slasast. í gær slasaðist verkamaður, sem var við vinnu í djúpum holræsisskurði inn í smáíbúða- hverfinu. i Vildi slysið þannig til að skúffa full af grjóti og möl strauks við manninn, þar sem hann var að vinna í skurðinum, en grjótið féll úr fjögurra metra hæð ofan í skurðipn. Maðurinn, sem heitir Guðlaugur Þorláks- son, Laugarneskampi 16, var fluttur í Landspítalann en að rannsókn lokinni heim til sín, þar sem hann var ekki alvar- lega meiddur. Parísaruætur s áustur- Hark á Frakklandsþingi. bingfundi frestaö eftir að ákvéðið var að láta asmræður um stefnu stfórnarinnar niður falla um hríð. / -/• íoí. Um þessar mundir eru sýnd í Ausíurbæjarbíó kvikmynd, sem nefnd hefir verið „Parísar- nætur“. Fjallar myndin að efni til um næturlíf Parísarborgar, en aðalhlutverjiin leika Bernard- bræður. Mynd þessi hefir vakið mikla eftirtekt og aðsókn að henni hefir verið frábær. Nýja samsteypustjórnin franska hélt velli við atkvæða- greiðslu í fulltrúadeildinni í gæv. 1 Þegar Pinay hafði gert grein fyrir stefnu hennar, — en höf- uðhlutverk hennar, í bili, væri að treysta gengi frankans, — var felld með 293:101 atkv. (kommúnista) tillaga um al- mennar umræður um stefnu stjórnarinnar. Þeim umræðum vildi stjórnin fresta, meðan hún gerði gang- skör að því að kippa versta efna- og fjárhagslegum mis- fellum i lag, en kommúnistar vildu umræður strax. Stofnuðu þeir til svo mikils harks á fund- inum, að Herriot forseti varð að fresta fundi, til þess.að „til- finningarnar gætu kólnað“, og var svo fundur settur af nýju eftir 2 klst. Jafnaðarmenn og Gaulle-ist- ar sátu hjá við atkvæðagreiðsl- una, einnig þeir, sem greiddu Pinay atkvæði á dögunum, að undanteknum þeim eina, sem hafði við orð að segja sig úr Þjóðfylkingunni. Stjórnin fær því að sýna, hvers hún er megnug,við lausn brýnustu vandamála, en ekki er henni spáð langlífi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.