Vísir - 05.04.1952, Qupperneq 4
ft
Laugardaginn 5. apríl 1952
ÐAGBLAÐ
Ritatjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur Ingólfsstræti 3.
Útgeíandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR HF.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm línur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan huf.
Hval má hver eiga?
' A B. og Þjóðviljinn hafa að undanförnu hvatt bifreiðastjórana
í Sandgerði til þess að láta hendur standa fram úr ermum
•og efna til verkfalls þar á staðnum. Alþýðublaðið viðurkennir að
deila sú, sem bifreiðastjórarnir hafa efnt til snúist ekki um
ikaup og kjör, með því að atvinnurekendur vilji láta Sandgerðis-
bílstjórana njóta söínu kjara eða betri en Þróttarfélagar njóta
bér í bænum, eða bifreiðastjórar í Keflavík þar á staðnum.
En greinarhöfundur AB. kemst svo að orði: ,,En eins og Vísir
segir snýst deilan um það, hvort atvinnurekendur þessir megi
hafa ótakmarkaðan bílafjölda til afnota eða ekki“. Skal fram
tekið í þessu sambandi að H.f. Miðnes og H.f. Garður eiga 4
og 2 bíla, sem félögin nota í eigin þágu, en hafa bifreiða-
stjóra í sinni þjónustu.
Greinarhöfundur AB. upplýsir að bifreiðastjórar í Sandgerði
séu nú 13 að tölu, og hafi þeir keypt sér bíla og byggt afkomu-
möguleika sína á atvinnu í plássinu, en ekki þjónustu við setu-
liðið. Þessir bifreiðaeigendur virðast þó hafa misreiknað sig á
atvinnunni, þar sem þeir grípa til svo róttækra ráðstafana að
banna öðrum bifreiðaeign, nema eftir því, sem þeim bifreiða-
eigendunum, en ekki atvinnurekendunum þóknast. Vinnulög-
gjöfin mun hvorki réttlæta né vernda slíkt tiltæki og að öðru
leyti hefur það ekki stoð í lögum. Jafnframt ber svo að gefa
því gaum, að hér eru það bifreiðaeigendurnir, sem berjast gegn
atvinnubílstjórum, sem engar bifreiðar eiga og vilja svifta þá
atvinnu í plássinu. Ekki er að undra, þótt AB. og Þjóðviljinn
séu viðkvæmir fyrir slíku og verji rétt bifreiðaeigendanna í líf
og blóð.
Málið liggur þá þannig fyrir að þréttán bifreiðaeigendur
-vilja meina öðrum að eiga vöruflutningabifreiðar og hafa efnt
*til verkfalls á staðnum þess vegna. Jafnframt hafa þeir tryggt
sér aðstoð einstakra verkalýðsfélaga til að knýja kröfur sínar
iram og mun Dagsbrún vera þar fremst í fylkingu undir stjórn
ókommúnista. Verkalýðsfélag Keflavíkur og atvinnubílstjórar
þar munu hinsvegar ekki telja sér rétt né skylt að taka afstöðu
í málinu og beita því ekki samúðaraðgerðum. Auðsætt virðist
að bifreiðastj órarnir brjóta í bágu við gildandi vinnulöggjöf og
jafnvel stjórnskipunarlög með tiltæki sínu og baka sér jafnframt
skaðabótaábyrgð.
Réttindl bifreilastjéra.
Fyrr á árum urðu bifreiðastjórar að vinna algenga erfiðisvinnu
við hleðslu bifreiðanna, auk þess sem þeir óku bifreiðun-
xim. Gat þetta leitt til ofþreytu og öryggisleysis við akstur og
•var því ekki nema eðlilegt að bifreiðastjórar vildu fá kjör sín
'bætt þannig að erfiðisvinnu væri að verulegu leyti af þeim
létt, enda fengu þeir kröfum sínum framgengt. Nú er svo
komið, að bifreiðastjórar snerta aldrei á öðru verki en akstri
hifreiðanna. Myndi slík atvinna teljast kvenmannsverk í Ráð-
.sljórnarríkjunum, en tæpast samboðið fullvinnufærum mönn-
xun, en það eru bifreiðastjórarnir flestir. Virðist skammt öfganna
rnilli í þessu efni, en sæmilegast væri eitthvert meðalhóf.
Það er á engan hátt óeðlilegt að bifreiðastjórar vilji tryggja
£ér réttindi, sem jafnframt leiða til aukins öryggis að því er
-umferðina varðar. En fámenni þjóðarinnar leiðir hinsvegar af
sér, að'eftirsjá er í fullvinnufærum mönnum í störf, sem hver
liðléttingur getur leyst eins vel af hendi og þá kvenþjóðin engu
■síður en karlmenn í innanbæjarakstri. Á stríðsárunum var slík
ásókn í vörubifreiðakaup að engu tali tók, enda voru verkefnm
aióg vegna framkvæmda í þágu setuliðsins. Að styrjöldinni lok-
dnni höfðu verið fluttar inn og teknar í notkun fleiri vöru-
Kifreiðar en þörf var fyrir, enda hlaut af því að leiða atvinnu-
leysi innan stéttarinnar. Séu óþarflega margar bifreiðar í ein-
hverju kauptúni eða kaupstað, leiðir engan veginn af því að
menn séu ekki frjálsir að því að eiga bifreiðar til eigin nota.
Vörubifreiðaeigendur verða þá að leita atvinnu annarsstaðar,
þar sem verkefni er fyrir hendi, vilji þeir ekki aðra vinnu
jstunda en bifreiðaakstur. Þetta eru sannindi, sem bifreiðaeig-
endur í Sandgerði sem annarsstaðar verða að gera sér ljós, en
þjóðinni væri fyrir beztu, ef þeir menn, sem geta ekki haft
satvinnu af bifreiðaakstri snéru sér að öðrum þarfari verkefnum,
■isem meira reyndu á manndóminn.
Þótt æskilegt sé að bifreiðaeigendur hafi næg verkefni fyrir
hifreiðar sínar og sjálfa sig, er vafasamur hagnaður að því fyrir
jþjóðarbúið, enda erftirsjá í öllum ónotuðu vinnuafli. Vilji full-
rvinnufærir mein stunda akstur öðru frekar, verða þeir að bera
mokkura áhættu, svo sem allir aðrir og hafa bifreiðastjórar í
íSandgerði þar enga sérstöðu.
V I S I R
Gluggarúðan, sem einangr-
ar eins og 20 sm. veggur.
i¥s//íf«í/ I œ&i. S&BBS sSB'&fgSBB'
BBBgÖff BMM' hÍttBmavkGSÉBB6B&Í hifofjla.
Eitt helzta vandamál manna í köldum iönduin
er að nýta hitann, sem úr eldsneytmu fæst, á sem
beztan hátt, svo að hitunarkostnaðurinn verði við-
ráðanlegur. Það er hagnaður fyrir einstaklinginn,
fjölskylduna og fíjóðarheildina. í grein þeirri, sem
hér fer á eftir, er um þetta rætt, en hún hyggist
aðallega á upplýsingariti frá UNESCO — Menn-
ingar- og félagsmálastoínun Sameinuðu þjóðanna.
Allt líf byggist á hiía, og eng-
in lífvera getur til lengdar lif-
að við reginkulda.
Þessi sannindi þarf raunar
ekki að hafa hér við. Við vit-
um, að mennirnir byggja sér
hús til þess að geta notið þar
hlýju og þæginda, en þó er það
sannleikurinn, að hlýja eða
þægindi fást ekki alltaf með
því einu að eignast þak yfir
höfuðið. Það verður að vera
hægt að hita híbýlin, og það
verður að vera hægt að hita
þau á hagkvæman hátt, því að
ef hitunarkostnaðurinn verður
of mikill þá er ekki víst, að
íbúinn geti risið undir honum,
og þá er til einskis barizt.
Um daga getur sólarljósið
oft hitað híbýli manna svo, að
þeir þarfnist ekki annars hita-
gjafa, en ekki eru allir svo vel
í sveit settir, að þeir njóti slíkra
hlunninda nema örstuttan tíma
á árinu. Vandamálið, sem hér
skal rætt, snýr líka fyrst og
fremst að hinum, sem þurfa að
nota eldsneyti af einhverju
lagi að afla sér eldsneytisins
og í öðru lagi að nýta hitann,
sem úr því fæst við brunann
sem allra bezt.
Veggir
og gluggar.
Reglan er nokkurn veginn sú,
að veggir gæti hitans þeim mun
betur, sem þeir eru þykkari, en
ekki er allt fengið með því, þar
eð ljós verður að fá að komast
inn, og oft er það svo, að kuld-
inn streymir inn um gluggann
og hitinn út, þótt hann sé lok-
aður og eigi að heita þéttur.
Með vaxandi skilningi manna
á gildi Ijóssins fyrir heilsufar
hafa gluggar farið stækkandi.
Það hefir sína kosti, en gallarn-
ir eru einnig miklir, og þeim
mun meiri, sem veðráttan er
kaldari. Með stórum gluggum,
án sérstaks útbúnaðar, eru
menn eiginlega að leggja geimn
um til hita(!) svo mjög leiðir
venjulegt gler.
Víða um heim hafa menn
tvöfalda glugga — storm-
glugga. Er þar um tvöfaldar
rúður að ræða, en loft leikur á
milli og er það einskonar ein-
angrari. En einangrunin var
ekki nógu góð — enn komst
hitinn út og hitunarreikning-
urinn hækkaði. Og þá var fund-1
in lausnin, sem öllum taer sam-
an um, að sé hin ákjósanleg-
asta: í ýmsum löndum er farið
að framleiða tvöfalt gler —
það er að segja tvær glerþynn-
ur með lofttómu rúmi á milli,
og
rannsókn á einangrunargildi
þessa glers hefir leitt í ljós,
að það geymir hita eins vel
tagi (eða hitaveituvatn, má
skjóta hér inn í). Þeirra vanda-
mál er tvennskonar — í fyrsta
og venjulegur liúsveggur,
tuttugu sentímetra þykkur.
Veggir
úr gleri.
Hvaða möguleikar opnast
við það, að slíkt gler er nú
framleitt og einangrar svo vel?
Meðal annars sá, að menn geta
— ef þeir vilja — haft næstum
eða alveg heila veggi úr gleri,
þar sem það er hentugt, en það
á vitanlega ekki við hvar sem
er. Og ekki mun húsmæðrum
víða um heim þykja lítils um
það vert, að með þessum tvö-
földu rúðum hverfur allur
vatnsagi úr gluggum, sem er
mjög hvimleiður, en skemmir
auk þess viðinn í gluggaum-
gerðinni.
Hitunarkostnaður
og byggingastyrkur.
Skortur á eldsneyti þjáir
heiminn um þessar mundir, og
því er það mikilvægt, að farið
sé sparlega með það. Þó munu
ekki vera nein viðurlög við því
að fara illa með eldsneyti, en
óhófleg eyðsla innifelur þó vit-
anlega viðurlögin sjálf —
kostnaðinn, sem menn stynja
undir. En í einu landi að
minnsta kosti eru viðurlög við
því, ef menn byggja óhyggi-
lega. Það er í Danmörku, því
að byggingarstyrkur, sem
menn geta fengið, minnkar til
mikilla muna, ef þeir hafa ekki
tvöfalda glugga. Þar skilja yfir-
völdin nauðsyn þess, að hiti frá
dýrmætu eldsneyti rjúki ekki
þegar út í bláinn, engum til
gagns.
MARGT Á SAMA STAÐ
Raftækjatrygging Rafha
Hafnarstræti 18, Reykjavík.
Sími 80322. — Verksmiðjan
sími 9022.
Gáta dagsins.
Nr. 94:
Herm þú mér áhöld
svo híbýlaprýðan
að innhýsa kunni
allar skepnur
og veita þeim
björg og bcina.
5 gátu nr. 93:
Kálfshaus.
l^ýkomsTiar
aiis konar
bílavörur
Framluktir
Afturluktir, 3 teg.
Samlokur
Þokuluktir
Parkluktir, 3 teg.
Hættuljós
Bakkljós
Neis taswitchar, margar
teg.
Ljósasw. margar teg.
Ljósaskiptar
Flautur
Rafkerti, 14 mm.
Hraðakaplar
Benzíndælur
Suðubætur
Bremsuborðasett, Ford,
Chv., Dodge, fólksb.
Rafgeymakapíar
V erkstæðislampar
Blettavatn fr. áklæði
Vatnskassaþéttir
Kertavírasett, Jeep, Chv.
Speglar, inni og úti
Bremsucylindrar Dodge
Brettamillilegg
Hurðaþétti
Puðar i sæti
Ljósaperur 6 og 12 volt
Benzínbarkar
Olíubarkar, Dodge, Jeep
Benzínlok læst og ólæst
Demparar
Vatnshosur
Pönnupakkn. og
Pústpakkn. l'r. Dodge
og Ford
Innsogsvíra
Hjólapakkdósir, Dodge,
og margt fleira
nýkomið.
HARALDUR
SVEINBJARNARSON
Snorrabraut 22.
Rcifiognaefni
Rör (plast) 5/8" og 3/4"
Vír (plast og vulk.) flest-
ar gerðir.
Rofar, tenglar, samrofar,
krónurofar inngreypt,
utanáliggjandi og hálf-
inngreypt, margar gerð-
ir. Einnig rakaþétt efni.
Mótorrofar og tenglar. —'
Hitatækjarofar.
Eidavélateiíglár og rofar,
Varhús, Vartappar.
Loftdósir, veggdósir, roí'-
ar og tengladósir.
Loftdósalok og krókar.
Undirlög.
Rörfittings 5/8" og 3/4"
Lampasnúra og hitatækja-
snúra.
Gúmmístrengur,
Blýstrengur. Spennur.
Arn permælar, voltmælar,
ohmmælar, sýrumælar,
og ólal margt fleira.
Sendum gegn póstkröfu.
VÉLA- OG
RAFTÆKJAVERZLUNIN
Bankastræti 10. Sími 2852.
Tryggvagötu 23. Sími 81279.
SlmaíúliH
GARÐiiR
Garðastræti 2 — Sími 7299.