Vísir - 05.04.1952, Page 8
LÆEN AB OO LYIJABtÐIB
Tanti yður lækni kl, 18—8, þá hringið í
Læltnavarðstofuna, sími 5030.
Vörður er í Ingólfs Apóteki, sími 1330.
bifreiða og annarra ökutækja er kl. 19,30
5,30. Næst verður'flóð í Reykjavík kl. 14,2
#.
Laugardaginn 5. apríl 1952
í veiÉingasölum Þjóðleikhúss- jtil síns ágætis, að ýmsir, sem
ins hófir nú verið köihið fyrir ekki sækja venjulegar málverka
fjölda mörgurh myndum eftir 1 sýningar, kunna að fá aukinn
.z. ....
— Berkialyf,
j Framh. af 1. síðu.
að framleiða lyfið. Um sama
leyti barst svo tilkynning frá
Ítalíu, þar sem íslendingum
var boðið nokkurt magn af lyf-
inu að gjöf í reynsluskyni.
Sendingar frá
þrem löndum.
Sem næst miðjum marz
barst svo svar frá Bandaríkj-
unum, frá formanríi berkla-
varnasambandsins þar. Var í
svari hans tekið fram, að notk-
un lyfsins væri enn algerlega á
byrjunarstigi og að svo komnu
xnáli ekki unnt að dæma um
árangur þess. Ennfremur að
útflutningur á lyfinu frá
Bandaríkjunum myndi eigi
verða gefinn frjáls fyrr en
nauðsynlegum athugunum og
rannsóknum væri lokið, vænt-
anlega í maí eða júnímánuði.
Hinsvegar var það tekið fram,
að verksmiðjunum væri leyft
að senda smávægilegar lyfja-
sendingar úr landi í reynslu-
skyni.
í síðastliðinni viku bárust
svo samdægurs hingað til lands
isonietoinsyruhydrazidlyf j a-
sendingar frá þremur löndum,
Sviss, Ítalíu og Bandaríkjunum,
og voru það gjafasendingar frá
tveimur síðarnefndu löndun-
um.
Hefir lyf þetta nú verið sent
öllum berklahælum landsins,
þar sem það verður væntanlega
gefið þeim sjúklingum, sem
taldir eru hafa mesta þörf fyrir
það.
M?iestiw h a Í ss
' Hollywood (UP). — Það er
Víst hald manna um heim allan,
aðleikarar í Hollywood hafi all-
ir gríðarlega mikil laun.
Það er ekki meira til í því, en
að allir Bandaríkjamenn búi í
skýjakljúfum, því að meira en
helmingurinn hefir sáralítil
laun. Af 7500 manns, sem leika
í kvikmyndum, höfðu 5243 ekki
3000 dollara í tekjur á sl. ári.
Margir þóttust heppnir að hafa
1000 dollara í árstekjur, og
sumir höfðu ekki meira en 100
tíali á árinu fyrir leik sinn.
Orsökin er sú, að leikararnir
'eru svo margir, að þeir hafa
Ílestir lítið að gera mikinn hluta
ársins. Af þessu leiðir líka, að
ilestir stunda leikararnir ein-
hverja aðra atvinnu að auki —
einn á t. d. forngripaverzlun,
ánnar litla veitingastofu, sá
þriðji viðgerðarstofu fyrir sjón
varpstæki. Þegar kall kemur,
i'á þeir kunningja eða vin til að
líta eftir fyrirtækinu, meðan á
myndatöku stendur.
Satt er það, að margir hafa
*nikil laun, en ekki eins marg-
Hið árlega skólasundmót fór
fram í Sundhöllinni í gær.
Keppt var samtals í 11 grein-
um, þar af 9 einmenningsgrein-
um og 2 boðsundum. Níu skól-
ar tóku þátt í keppninni.
Hæst stig í kvennasundi, ein
menningskeppni og boðsundi
samanlagt, hlaut Gagnfræða-
skóli Austurbæjar. Hann sigraði
einnig í boðsundi kvenna,
6X33 m. skriðsundi.
Hæst að stigum í karlasundi
varð Menntaskólinn. Hann bar
einnig sigur úr býtum í 10X33
m. skriðsundi karla.
♦
í dag hefjast í Stjörnubíó
sýningar á síórmerkri rúss-
neskri kvikmynd, sem nefnist
Cirkus.
Kvikmyndin er af einhverj-
um fjölbreyttasta og stærsta
sircus, sem völ er á að sjá í
heiminum. Eins og kunnugt er
eru sircussýningar taldar al-
þýðlegustu og fjölsóttustu
skemmtanirnar, sem til eru. ■—
Myndin er tekin í hinum glæsi-
legu Afga-litum, og mjög full-
komin að öllu leyti. Ekki er
ólíklegt að hún verði vinsæl
bæði hjá ungum og gömlum.
létil iea ei m
ir og menn ætla. Þeir eru t. d.
aðeins 139, sem hafa yfir 50.000
dollara á ári, en meðal þeirra
eru Clark Gable, Betty Grable,
Bob Hope o. fl. Þá koma 132
leikarar, sem hafa 20—50,000
dollara árslaun.
Menn mega heldur ekki halda
að leikararnir búi allir í dýrind-
is höllum og skrauthýsum. —
Mörg hundruð verða að láta
sér nægja eitt herber.gi, og eiga
alls ekki heima í - Hollywood
eða næstu smáborgum, sem tald
ar eru heimili kvikmyndastjarn
anna. Flestir eiga heima í Los
Angeles, sem er þó ekki víðs
fjarri.
Og sennilega géra menn yfir-
leitt ekki ráð fyrir því, að kvik-
myndaleikarar hafi með sér
,,verkalýðs“-félag. Þó er það
satt, og er enginn leikari utan
þess félags. Það semur ekki um
tímakaup eða þess háttar — það
semur aðeins um lágmarkslaun
á dag, og nýlega voru þau hækk
uð úr 55 dollurum í 70. En þeir
eru bara sárafáir, sem leika
.meira en 40—50 daga á ári.
Jon Éngllberts, málverkum,
vatnsiitamyndum, raderingúm
o. s. frv., og eiga bser án efa eft-
ii' að verða tii mikiílar unahar
þciíYi, er þarna koma, óg fagra
lisí kunna að meta.
Þessi nýbrejúni verður
vafalaust vlnsæl. Hefir hér tek-
ist einkar vel og margt, sern
stuðlað hefir að því. í fyrsta
lagi er birta ævintýra og feg-
urðar yfir þessum litauðgu
mýndum, sem skapa nýja stemn
ingu, ef svo mætti segja, í hin-
um snotru, en fremur dimnru
veitingasölum. f öðru lagi eru
myndirnar af þeirri stærð, sem
hentar í þessum húsakynnum,
og í þriðja lagi hefir þeim ver-
ið komið mjög smekklega fyrir,
enda hefir listamaðuririn sjálf-
ur, annast það.
Myndirnar voru á sýningu
þeirri, sem Jón Engilberts hafði
í Málaranum í desember s.l., og
þær eru þarna í Þjóðleikhús-
kjallaranum til prýðis og sölu,
og verða þar a. m. k. næstu
viku. Hugmyndin hefir, auk
þess, sem að ofan var 'getið, það
SfarfsfóSk ráðið
-fiS Keflavíkiar^
flugvéÍBar.
Á næstunni mun allmargt
starfsfólk verða ráðið til starfa
á Keflavíkurflugvelli.
Hefir Agnar Koefod-Hansen,
flugvallarstjóri, skýrt svo frá
að eins margt fólk og unnt
verður að koma fyrir til vistar
í nágrenni vallarins, verði ráð-
ið þar til starfa. Störfin, sem
um ræðir, eru í sambandi við
rekstur vallarins, en ekki nýj-
ar framkvæmdir. Vantar nú
þegar starfsfólk í ýmsum grein
um, svo sem: málara, járnsmiði,
blikksmiði, trésmiði, skrifstofu
fólk, símastúlkur, rafvirkja,
vélgæzlumenn og verkamenn.
Enn verður ekki sagt með
vissu hve rnargt fólk getur
fengið þarna vinnu, því ekki er
vitað hve mörgum verður hægt
að útvega vist í nágrenni vall-
arins, þegar í stað.
Skodield vesti
úr nylon.
Seoul (UP). — Undanfar-
ið hafa amerískir fótgöngu-
liðar prófað „hrynjur“ úr
nylon og léttum málmum.
Er hér um skothelt vesti að
ræða, sem vegur 7—8 pund
eða helmingi minna en
skotheld vesti úr málmi, sem
notuð hafa verið í Kóreu.
Nylon-vestin geta varið
menn sárum af allskonar
sprengjubrotum, en 60—80
af hundraði manna, sem
særast, hljóta sár af slíkum
brotum.
áhuga fyrir slíkum listaverk-
um, og slíkar sýningar ættu að
verða til þess að þroska lista-
smekk manna. Vafalaust verð-
ur þessi sýning til þess að verk
annarra ágætra listamanna eigi
eftir að prýða þessa veggi.
Frumkvæði að þessari ný-
breytni á Þorvaldur Guðmunds
son veitingamaður í Þjóðleik-
húsinu. Og ríú geta menn, um
sinn að minnsta kosti, notið við
ágæt skilyrði, töfrandi fegurð-
ar sérstæðs listamanns.
»-----
Fulltrúi íslands s ráðl
A.-bandaiagsfns.
Gunnlaugur Pétursson sendi-
ráðunautur hefir verið skipað-
ur fulltrúi ríkisstjórnar íslands
í fulltrúaráði Norður-Atlants-
hafsbandalagsins.
Bil@árekstiEr.
Um hádegið í gær varð harð-
ur bílaárekstur á mótum Múla-
vegar og Laugarásvegar, og
meiddist bílstjórinn í öðrum
bílnum svo, að flytja varð hann
í spítala.
Annað kvöld lýkur minning-
arsýningunni í Listamanna-
skálanum á málverkum Krist-
jáns H. Magnússonar, listmál-
ara, en sýningin hefir nú stað-
ið yfir í 13 daga.
Á þessari merku málverka-
sýningu eru .flest helztu verk
Kristjáns, 78 að tölu, og eru
þau flest í einkaeign, en þó eru
á sýningunni 24 málverk, sem
eru til sölu. Aðsókn hefir ekki
verið jafn góð og skyldi að þess-
ari ágætu sýningu, en 10 mál-
verk hafa selst. Kristján Magn-
ússon lézt ungur maður, en
hafði samt getið sér frægðar-
orð sem sérkennilegur málari
með mikla framtíð. Er það
5. umferð í gær.
Fimmta umferð landsliðs-
keppninnar í skák fór fram í
gærkveldi.
Úrslit urðu þau að Guðjón
varín Steingrím, Gilfer vann
Óla, Baldur vann Sturlu, Lár-
us vann Jón og Bjarni vann
Hauk. Aðrar skákir fóru 1 bið.
Næsta umferð verður tefld á
morgun.
Samsöngur Þrastar
í Gamia Bíó
á morgun.
Á morgun heldur Karlakór-
inn Þrestir í Hafnarfirði af-
mælissamsöng í Gamla Bíó, en
kórinn er 40 ára á þessu ári,
stofnaður 1912.
Var kórinn stofnaður í fe-
brúar 1912 af Friðrik Bjarna-
syni, sem lengi var söngstjóri
kórsins. Á söngskránni eru m.
a. fjögur lög eftir Friðrik
Bjarnason og stjórnar hann
' söngnum í- þeim. Páll Kr. Páls-
son er nú stjórnandi kórsins og
syngur kórinn önnur viðfangs-
efni, sem eru á söngskránni
undir hans stjórn.
Söngskráin er mjög fjölbreytt
og er samansett af mörgum
kórlögum eftir erlenda og inn-
lenda höfunda. Dr. Victor Ur-
bancic aðstoðar með undirleik,
en Pálmi Ágústsson syngur
einsöng. Samsöngurinn hefst
kl. 3 á morgun í Gamla Bíó.
engum vafa undirorpið að hann
hefði getið sér enn meiri frægð-
ar, ef honum hefði enzt aldur
til.
Það er sonur Kristjáns,
Magnús, sem stendur að þessari
yfirlitssýningu á verkum föður
síns og á hann þakkir skyldar
fyrir, því þeir sem þekktu
Kristján Magnússon listmálara
og' fylgdust með málaraferli
hans voru undantekningarlaust
hrifnir af honum.
Nú um helgina er síðasta
tækifærið til þess að sjá mál-
verk Kristjáns á sýningu og
ættu allir, sem fögrum listum
unna að sjá hana, áður en henni
lýkur.
Hynd þessi er af einu málverkunum á minningarsýningu
Kristiáns H. Magnússonar, listmálara.
\Mm°gt er shritjð,
Leikarar í HoUywood eiga
ekki allir góða daga.
MálverkasýníngHflni í Ustamanna-
skálanum lýkur annað kvöld.