Vísir - 21.04.1952, Síða 1
<
42. árg.
Mánudaginn 21. apríl 1952
89. tbl.
Ilér sést Sir Hugh Pugh Lloyd, flughershöfðinginn brezki, sem
kom við á Keflavíkurflugvelli á leið vestur um haf á laugar-
dagsmorgunn, svo sem sagt er annars staðar í blaðinu. Með
honum á myndinni — til hægri — er flugmaðurinn, Cassidy
að nafni. (Ljósm.: Brezka sendiráðið).
París (AP). — Pinay forsæt-
isráðherra Frakklands endurtók
í gær, að stjórnin væri staðráð-
in í að „bjarga frankanum“ og
koma efnahagslífi lands og
þjóðar á réttan kjöl.
Hvatti Pinay alla til þess að
auka framleiðslu og útflutning.
Schumann utanríkisráðherra
Frakklands sagði í gær, að
franska stjórnin væri reiðubúin
til þess að taka til athugunar
og ræða tillögur ráðstjórnar-
innar rússnesku varðandi Þýzka
land, en Frakkar yrðu að leggja
áherzlu á frjálsar kosningar í
öllu Þýzkalandi, áður en friðar-
samningar væru gerðir.
vfitahraiini
i gær.
26 ára í
London (AP). — Elísabeth II.
Bretadrottning er 26 ára í dag.
Afmælisins er minnzt í blöð-
um og útvarpi, fánar eru dregn
ir á stöng og skotið verður af
fallbyssum drottningunni til
heiðurs.
Hin opinberu hátíðahöld í til-
efni afmælisins fara ekki fram
fyrr en 5. júlí.
Grænkar á SA-
I Austur-Skaftafellssýslu er
bæði fjalilendi og útjörð farin
að grænka.
Eru bændur farnir að ráðgera
að sleppa fé næstu daga.
f morgun var logn og blíða
eystra, en örlítið andkaldara
en að undanförnu. Aflalaust er
en á línu og hefir naumast feng-
ist bein úr sjó síðan 20. marz.
ViiaiS HiiBffl vinninga fjirlr kvölsliH.
í fyrstu starfsviku íslenzkra
getrauna bárust alls 8083 raðir
frá 1542 þátttakendum.
Eins og vænta mátti voru
þátttakendum flestir í Reykja-
vík, eða alls 1352 en 190 úti um
land. Til samanburðar má geta
þess, að þegar Finnar hófu sína
getraunastarfsemi, bárust í
fyrstu vikunni sem svarar til-
tölulega miklu færri raðir cn
hér. Voru þær aðeins 3500, þeg-
ar tekið er tillit til mismunar
á fólksfjölda þar og hér, og
hvað hægt er að ná til margra
hérlendis. í Noregi bárust 6251
röð, reiknað á sama hátt, svo að
hér er vel af stað farið.
íslenzkum getraunum haía
borizt heillaskeyti frá samsvar-
andi stofnunum á öllum hinum
Farúk viil uppræta sviksemi o|
öreglu opmberra embættismanna.
Veitlr stjjórn Egyptafands umhol tfl að
skipa ranBisóknarnefndiir.
Kairo (AP). — Farúk kon-
ungur undirritaði í gærkvöldi
tilskipun, sem veitir stjórn
Hilali pasha víðtækt vald til
þess að rannsaka óreiðu í opin-
berum rekstri.
Hefir verið tilkynnt af hálfu
stjórnarinnar að hafin verði
barátta um land allt, til þess
að uppræta sviksemi og óreglu.
Skipaðar verða rannsókna-
nefndir, sem fá mjög víðtækt
vald. Þær geta t.d. farið inn í
hvaða skrifstofu sem er og
krafist þess að sjá bækur og
önnur gögn og þær geta kvatt
á sinn fund hvern sem er til
yfirheyrslu.
Erskine, hershöfðingi Breta á
Suezeiði, er nú að láta af störf-
um sínum þar, og heldur heim-
leiðis um miðbik þessarar viku.
f gær komu til London Sir
Ralph Stevenson, sendiherra
Breta í Egyptalandi, og Sir
Robert Howe, landstjóri í Sud-
an. í gærkvöldi sátu þeir veizlu
hjá Eden utanríkisráðherra. —
Viðræður hefjast í dag í utan-
ríkisráðuneytinu um ýmis atriði
brezk-egypzkra deilumála. Var
sagt í vikunni sem leið af hálfu
brezka utanríkisráðuneytisins,
að vonað væri, að þessar við-
ræður leiddi til þess, að ríkis-
stjórnir Bretlands og Egypta-
lands byrjuðu aftur formlegar
samkomulagsumleitanir um
lausn deilumálanna.
Norðurlöndunum, og þar var
íslenzkum getraunum og
íþróttahreyfingunni í heild arn-
að allra heiila með starfsemina.
Síðar í dag mun verða ljóst
hverjir hafi unnið, en rúmlega
3000 kr. koma til skipta miili
þeirra þriggja flokka, sem rfelt-
ast gátu. Eftirlitsmaður meö
getraununum fer síðan yíir úv-
slitin, en menntamálaráðuneyf-
ið hefir skipað Skúla Jenssen
lögfræðing í starf þetta.
Rétt er að benda mönnum á,
að nú dregur til úrslita í ensku
keppninni, svo að segja má, að
í sumum þeim leikjum, sem
getið verður um í þessari og
næstu vikuih, sé barizt upp á
líf og dauða, nefnilega, hvort
félög falla úr deild eða vinna
sig upp í næstu fyrir ofan. —
Gerir þetta getraunirnar enn
skemmtilegri en ella. En menn
verða að muna, að vegna 1.
sumardags, er getraunafrestur-
inn útrunninn á miðvikudags-
kvöld kl. 6.
Þrír menn slösuðust í Svína-
hrauni í gær, er senáiferðabíll
austan úr Árnessýslu og leigu-
bíll úr Reykjavík rákust á.
Slys þetta skeði síðdegis í gær
og var lögréglunni í Reykjavík
tilkynnt um það laust eftir kl.
6. Var þá jafnframt óskað eftir
sjúkrabíl og hann sendur þeg-
ar í stað.
Um tildrög slyssins er blað-
inu ekki kunnugt, enda er það
mál enn í rannsókn. En við á-
reksturinn skemmdust báðir
bílarnir mjög mikið og eru
skemmdirnar á sendiferðabíln-
um þó taldar meiri.
í sendiferðabílnum, sem ber
skrásetningarmerkið X-575, var
auk bifreiðarstjórans, kona
hans. Meiddust þau bæði, kon-
an fótbrotnaði en maðurinn
skarst í andliti. í hinni bifreið-
inni, sem var R-4175, voru far-
þegar og þar mun stúlka, sem
sat frammí hjá bílstjóranum,
hafa handleggsbrotnað.
Slys við Kolviðarhól.
í fyrrakvöld var sjúkrabíll
sendur upp að Kolviðarhóli
vegna slyss, sem þar hafði orð-
ið. Hafði ungur piltur, Bjarni
Ásgeirsson að nafni, verið að
renna sér á skíðum niður brekk
una fyrir ofan Kolviðarhól en
féll á skíðunum og fótbrotnaði.
Var hann fluttur í sjúkrabíln-
um til Reykjavíkur og lagður
inn á spítala.
Munaði litlu.
í fyrrakvöld munaði litlu að
stórslys yrði á Miklubrautinni.
Þar kastaðist maður af bifhjóli
og á bifreið, sem þar var á
ferð, en slapp minna meiddur
3 véiar ieifa
CÞff' &£mm'
ekwetfosiwlr*
en efni stóðu til. Skrámaðist'
maðurinn nokkuð á höfði og
fæti, en mun ekki hafa meiðzt
að öðru leyti.
Lenti í slysi
í annað sinn.
í gærdag, laust eftir hádegið
varð drengur fyrir bíl á mótum
Amtmannsstígs og Þingholts-
strætis. Drengurinn mun ekki
hafa meiðzt að ráði, en kvartaði
hins vegar nokkuð undan eymsl
um. Þessi sami drengur varð
fyrir öðrum bíl ekki alls fyrir,
löngu og viðbeinsbrotnaði þá.
Samgönguleiðir
að verða greið-
færar.
Samgönguleiðir eru yfirleitt
að verða greiðfærar.
Austur í sýslur eru nú allar
leiðir færar. Snjór er enn mik-
ill á heiðavegum norðanlands,
t. d. á Holtavörðuheiði, einkum
norðan til.
í byggðum mun snjór hvergi
til trafala á vegum á suðvestur-
landi, en vegir hafa sumstaðar
orðið all-holóttir í þíðunni, og
er bætt úr því eftir föngum
með því að hefla eins oft og
tök eru á. T. d. er nýbúið að
hefla Hvalfjarðarveginn norð-
anmegin fjarðarins, og haldið
var áfram að sunnanverðu í
gær.
100 mín. frá
Skotlandi híngai.
Á laugardagsmorgun var sett
nýtt met á fluglciðinni milli
Prestwick og Keflavíkur.
Var flogið á Canberra-
sprengjuvél, sem knúð er tveim
þrýstiloftshreyflum, milli þess-
arra staða á 100 mínútum eða
1 lclst. og 40 mínútum. Með
flugvélinni var Sir Hugh Pugh
Llovd, yfirmaður sprengjuflug-
sveita Breta.
Flugvélin hafði komið yfir
Keflavík á föstudagskvöldið, en
þá var ekki hægt að lenda þar
vegna veðurs, svo að snúið var
aftur til Skotlands,
I dag er ágætt flugveður og
leita þrjár flugvélar frá Flug-
félagi íslands að norsku sel-
veiðibátunum.
Vélar þessar eru Gullfaxi og
tvær Katalínur. Leitað verður
milli 63. og 69. breiddargráðu og
alla leið vestur að Grænlands-
strönd. Fyrsta vélin lagði af
stað klukkan 3 í morgun, en sú
síðasta klukkan 7. Flugbjörg-
unarsveitin sér aðallega um
leitina.
IGill
iaf Crlpps.
Ziirich (AP). — Sir Stafford
Cripps, fv. fjármálaráðherra,
hefir nú versnað svo, að tvísýnt
er talið um líf hans.
Hefir hann dvalist langdvöl-
um í heilsuhæli hér í borg, en
var þó í Bretlandi í vetur dá-
lítinn tíma.
Flóðin sjatna
vestan hafs.
Hmsslba úr mestu hættu.
St. Louis (AP). — Borgirnar
Omaha og Council Bluffs voru
taldar úr mestu hættu í gær-
kveldi.
Hafði þá tekist að fylla í
skörð, sem myndast höfðu í
varnargarðana í grennd við
borgirnar.
Verkfræðingasveitir hersins
og þúsundir sjálfboðaliða unnu
að verkinu. Horfði mjög í-
skyggilega eftir að skörðin
mynduðust. Er fyrsta skarðinu
hafði verið lokað bilaði steyptur
varnargarður, sem er til hlííðar
verksmiðjuhverfi Omaha, og
var þá tekið til við að fylla það.
Eftir að flóðið náði hámarki
við Omaha og Council Bluffs
hefir flóðahættan vaxið neðar
við fljótið og þar hefir flætt yf-
ir feikna vatnsflæmi. Tjón í
þessum vatnavöxtum hefir hvar
vetna verið mest á húsum og
mannvirkjum og ræktarlandi,
en vegna vel undirbúinnar og
röggsamlega framkvæmdar
hjálparstarfsemi hefir tekist að
koma í veg fyrir, að menn og
skepnur létu lífið í flóðunum.