Vísir - 10.06.1952, Page 4
4
V f S I R
Þriðjudaginn 10. júní 1952
DAGBLAÐ
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur Ingólfsstræti 3.
títgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (finun línur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Kosnmg í ísafirðl.
Hinn 15. þ.m. fer fram aukakosning í ísafjarðarkaupstað, en
þar verður fulltrúi kjörinn á Alþing í stað Finns heitins
Jónssonar. Svo sem menn rekur minni til urðu úrslit þau síðast
er Finnur var kosinn á þing, að hann hlaut færri atkvæði
en frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, en náði kosningu samt,
sökum þess að svo mörg atkvæði féllu á landslista, að það nægði.
Stafaði þetta af því, að flokksbræður Finns, þó einkum Hanni-
bal Valdimarsson, unnu ekki af fullum heilindum að kosningu
hans, enda mun Hannibal mjög hafa ágirnzt kjördæmiðð' þótt
ekki nyti hann til þess trausts flokksstjórnarinnar né kjósenda
á ísafirði.
Aðstaðan í ísafirði hefur verið einkennileg að ýmsu leyti
undanfarin ár, enda oltið þar á ýmsu. í bæjarstjórn hafa Sjálf-
stæðismenn og Alþýðuflokkurinn haft jafna fulltrúatölu, en
kommúnistar hafa fengið einn mann kjörinn, sem þannig hefur
verið oddamaður. Tókst um skeið samvinna með Sjálfstæðis-
mönnum og kommúnistunum, og var þá unnið kappsamlega
að ýmsum umbótamálum, þótt aðkoman væri erfið, eftir
margra ára óstjórn Alþýðuflokksins í bæjarmálum. Sem dæmi
mætti nefna, að Alþýðuflokks fulltrúarnir í bæjarstjórn höfðu
beitt sér fyrir sölu botnvörpungsins Skutuls og annarra skipa
úr bænum, á styrjaldarárunum og eftir styrjaldarlokin, er helzt
voru líkur til að slíkur rekstur gæti reynzt ábatavænlegur. Raf-
veitan í kaupstaðnum var algjörlega ófullnægjandi og vatns-
veitan einnig, sjúkrahúsið í niðurníðslu, skólahús af vanefnum
gerð og þannig mætti lengi telja. Sjálfstæðismenn unnu að
endurbótum á öllu þessu, og leituðust við að reisa við atvinnu-
lífið eftir mætti, þótt fjárskortur stæði mjög fyrir þrifum.
Vegna aðgerða Sjálfstæðisflokksins í ísafjarðarkaupstað má
atvinnulíf þar kallast viðunandi, en einkum hefur mikil at-
vinnubót orðið að báta og togarakaupum, sem Sjálfstæðismenn
hafa beitt sér fyrir, enda hafa þeir jafnframt annast rekstur-
inn. Sjálfstæðismenn vildu koma upp fullkomnu fiskiðjuveri
á staðnum, er nýtt gæti allan sjávarafla, en Alþýðuflokkurinn
hefur beitt sér því í gegn, en fest í stað þess kaup á gömlu
frystihúsi, sem lítt eða ekki hafði verið starfrækt um skeið.
Kaupverðið mun vera í hærra lagi,.en jafnframt allsendis óvíst
um afkomuna, nema því aðeins að reksturinn verði ekki fyrir
áföllum og verkefnin reynist nóg mestan hluta ársins. Valda
slík kaup nokkrum ugg meðal bæjarbúa, sem til þekkja, þótt
vera megi að Alþýðuflokkinum áskotnist atkvæði einhverra
þeirra sem við frystihúsið vinna og kunni það að ráða úrslitum.
Alþýðuflokkurinn gerði sér vonir um að kommúnistar
myndu tilleiðanlegir til að styðja frambjóðanda hans, enda
skylt skeggið hökunni, þar sem Hannibal kennari Valdimars-
son á í hlut. Af þessu varð þó ekki. Miðstjórn kommúnista-
flokksÍBs ákvað að hafa mann í kjöri, sem er Haukur Helgason,
ættaður að vestan, en starfsmaður í Útvegsbankanum hér
syðra um margra ára skeið. Má búast við að Haukur haldi
öllum kommúnistaatkvæðum til haga, þannig að lítill stuðn-
ing'ur berist Alþýðuflokkinum úr þeirri átt. Framsókn hefur
einnig teflt fram fulltrúa sínum, en óvíst er, hvort honum fekst
að halda fylginu saman, enda hefur flokkurinn aldrei átt veruleg
ítök í kaupstaðnum og Alþýðuflokkurinn mun ávallt hafa fengið
einhvern slæðing af afkvæðum úr þeirri átt.
Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins er Kjartan Jóhannsson
læknir, vel látinn athafnamaður, sem stöðugt hefur verið að
auka fylgi sitt, en hefur verið tvisvar áður í kjöri. Kunnugir
telja líklegt að Kjartan haldi ekki aðeins fylginu frá síðustu
kosningum, heldur auki það svo, að Hannibal sé með öllu
vonlaus upi að ná kosningu. Þykir margt benda til þess að
Hannibal örvænti um sinn hag, en þó einkum það, að hann
tregðaðist við að segja af sér þingmennsku, sem hann náði sem
uppbótarmaður, með tiltölulega litlu atkvæðamagni. Hannibal
nýtur ekki sömu vinsælda vestra og Finnur heitinn Jónsson,
en þar þer e'inkum til að hann þykir í hvatvísara lagi og ekki
friðsemdarmaður, þótt velja megi milli friðar og ófriðar.
Kosningin í ísafirði veldur ekki stórbreytingum, hver sem
úrslitin reynast. í stað Hannibal tekur Guðmundur I. Guð-
mundsson, bæjarfógeti í Hafnarfirði sæti á Alþingi, það sem
eftir er kjörtímabilsins, en í því fer nú að styttast. Verði Kjartan
læknir kosinn benda líkur til, að hann muni halda sætinu í
næstu kosningum og áfram, enda fer vegur Alþýðuflokksins
þverrandi þar, sem annarsstaðar.
íiai Sýáiísiœ&ififlatiSiuristst veriö hlutSaws ?
Þegar minnsti flokkurinn í
landinu býður fram mann til
forsetakjörs, er vonlaust að
hann nái kosningu nema með
aðstoð kjósenda úr hinum
flokkunum, sem hann berst við
harðri pólitískri baráttu. En til
þess að hann nái fylgi þessara
kjósenda er honum lífsnauðsyn
að fá þá til að trúa því, að þetta
sé ekki flokksmál og ekki póli-
tískt mál — og því þeirra eigin
flokki óviðkomandi hvern þeír
kjósi fyrir forseta.
★
Meðan stjórn og 'flokksráð
Sjálfstæðisflokksins vann að
því eftir megni, að mynda þjóð-
areiningu um kjör forsetans,
var róið að því öllum árum af
AB-liðinu — Alþýðuflokknum
og þeim sjálfstæðismönnum,
sem gengið hafa undir merki
þeirra, að Sjálfstæðisflokkurinn
yrði hlutlaus í kosningunum, ef
hann reyndist ófáanlegur til að
styðja Ásg. Ásg. Hann reyndist
ófáanlegur til þess þrátt fyrir
það, að sumir forvígismenn
hans voru mjög viðmælanlegir
um stuðning við Á. Á., ef flokk-
urinn væri fáanlegur til þess.
Hins vegar tóku þeir skýrt
fram, að þeir mundu hiklaust
fylgja ákvörðun flokks síns í
málinu. Flokkurinn viður-
kenndi hæfileika og mannkosti
Ásg. Ásg., en óskaði ekki eftir
honum sem forseta, enda var
þá lýðum ljóst, að ekkert sam-
komulag gat náðst um framboð
hans.
★
Með því að fá Sjálfstæðis-
flokkinn til að vera hlutlausan,
hlaut aðstaða Alþýðuflokksins
til að fá sinn frambjóðanda kos-
inn, að batna stórkostlega. Var
því eðlilegt að einkis væri látið
ófreistað að ná því marki. En
gat Sjálfstæðisflokkurinn verið
hlutlaus? Gat hann verið hlut-
laus og dregið sig út úr málinu
og aðeins verið áhorfandi að
leik hinna flokkanna til þess að
koma að pólitískum framþjóð-
.endum sínum? Þá var ljóst orð-
ið, að Alþýðuflokkurinn ætlaði
að bjóða fram Ásg. Ásg. ef sam-
komulag næðist ekki um hann.
Og ef Sjálfstæðisflokkurinn
sæti hjá, var Framsóknarflokk-
uritan staðrá'ðinn í því að bjóða
fram sinn mann. Líklega hefðu
þá kommúnistar boðið fram
líka, bótt ekki væri nema til
að safna á einn stað sinu póli-
tiska liði. Undir slíkum atvik-
um hefði hlutlaus og aðgerðar-
laus Sjálfstæðisflokkur valdið
hinum.mestu vonbrigðum hjá
meginhluta kjósenda sinna
enda hefði slík afstaða litið út
sem hrein uppgjöf af flokksins
hálfu.
★
Það var skylda flokksstjórn-
arinnar að afstýra því að flokk-
urinn kæmist í svo auðmýkj-
andi aðstöðu. Aðeins nokkrir
menn úr öllu forustuliðinu gátu
hugsað sér það, en þó munu
þeir hafa séð fljótlega að það
mundi geta haft óþægilegar af-
leiðingar síðar. En þetta féll
svo alveg úr sögunni þegar lík-
ur voru fyrir því að samkomu-
lag næðist milli tveggja stærstu
flokkanna um séra Bjarna
Jónsson.
★
AB-málgagnið og málalið
þess hrópar nú hástöfum að
þjó'ðin eigi að kjósa forsctann.
Auðvitað á hún að gera það.
Enginn annar getur gert það.
En hvað er þjóðin í þessu efni
— er hún ekki sama og kjós-
endurnir? Og hvað hafa kjós-
endurnir gert — hafa þeir ekki
skipað sér í flokka um lands-
málin? En nú segir AB-mál-
gagnið að flokkar þessara kjós-
enda megi ekki koma nálægt
forsetakjörinu, það sé þeim ó-
viðkomandi. En hvernig' á þá
þjóðin að kjósa ef kjósendurnir
mega hvergi koma nærri?
★
Þeir sem ekki hafa komist
lengra í stafrofinu en A-B —
eiga skiljanlega erfitt með að
svara slíku á skynsamlegan
hátt.
lega í síðasta ssnn
annað kvöld.
• ** ®
Tilgangurinn með þessum fáu
línum er sá að reyna að vekja
athygli Reykvíkinga á því að
hér er á ferðinni söngvari sem
ekki er neinn hversdagsmaður
á sínu sviði. Hann syngur ein-
mitt eins og við viljum að sung-
ið sé. Hátindur hvers lags um
sig nýtur sín alltaf bezt í með-
förum hans, og þannig á það að
vera. — Signore Bellon er nú
senn á förum héðan, en á morg-
un gefst þó enn eitt, og senni-
lega síðasta tækifæri til að
hlýða á þenna glæsilega söngv-
ara. Það er, trú mín og von að
! þeir sem tilkomumiklum og
fögrum söng unna, setji sig ekki
úr þessu síðasta færi til þess
að hlusta á einn mesta afburða-
söngvara sem hér hefir látið
til sín heyra.
Leonida, ti ringraziamo per
i raggi di sole che il tuo chanto
ha portato in nostra fredda ma
amata terra.
Kristján Kristjánsson.
BERGMAL
Nú nálgast óðum þjóðhátíðar-
dagurinn okkar, 17. júní, en þá
munu fara fram hin árlegu há-
tíðahöld hér í bænum og víða
um land. Ekki er mér kunnugt
um hvernig hátíðahöldunum er
háttað að þessu sinni, en hér er
komin fram ein tillaga um hvar
aðal hátíðahöldin ættu að fara
fram: „Bergmál er vinsamlega
beðið um að koma eftirfarandi
tillögu til þjóðhátíðarnefndar:
Þjóðhátíð á
Klambratúni.
Eg legg til að þjóðhátíðin
verði að þessu sinni haldin á
Klambratúni. Hvergi í bænum
er eins gott svigrúm fyrir úti-
skemmtun. Þar mætti slá upp
danspöllum, veitingatjöldum,
og auk þess mætti leyfa þeim,
sem langt eiga að, að tjalda í
útjöðrum svæðisins. Með þessu
fyrirkomulagi fengi þjóðhátiðin
í Reykjavík svip af þjóöhátíð
Vestmannaeyinga, sem haldin
hefir verið i Herjólfsdal árlega
í 3 aldarfjórðunga, og alkunna
er að er vinsæl um allt land.
Vestmannaeyingur'1. Tillagan
er athugunarvei ð og er henni
hér með vísað til réttra hlut-
aðeigenda.
Varist vírana.
Bergmáli hefir borizt ofur-
lítið bréf frá „Vegfarenda“, en
hann segir: ,,Eg var um daginn
á gangi og brá mér þá illilega
í brún. Eg. sá vörubíl, þar sem
maður stóð á palli, koma akandi
um fjölfarna götu, rétt ofan-
vert við miðbæinn. Þetta hefði
ekki verið í frásögur færandi,
ef slys hefði ekki legið við.
Þannig stóð á að loftnet úr ná-
lægu húsi hafði slitnað og lá
það þvert yfir götuna. Maður-
inn á palli vörubílsins uggði
ekki að sér fyrr en vírinn nam
rétt við háls hans, en þá beygði
hann sig snarlega, því kallað
var til hans. Nú vil eg spyrja:
Hver hefði átt sökina, ef slys
hefði orðið?“
Geviö við bilanir strax. . ■....
Bergmál getur ekki svarað
þessu ákvéðið, en ekki er ótrú-
legt að loftnetseigandi skapaði
sér ábyrgð með því að láta
loftnet sitt liggja þannig yfir
götu a. m. k., ef svo langt var
síðan að það bilaði, að tök hefðu
verið á að láta fara fram á því
viðgerð. Það er því ekki ástæðu-
laust að brýna það fyrir þeim
mönnum, sem loftnet eiga yfir
fjölfarnar götur, að þeir fylgist
vel með hvort þau bila, og láti
tafarlaust fara fram á þeirn
viðgerð, þegar það kernur fyrir.
kr.
Gáta dagsins.
Nr. 161:
Hver er sú maer, á vindum
vóð,
vafin æsku blómi,
en í valstrandar starfi stóð,
strákur í aldurdómi?
Svar við gátu nr. 160:
Sólarhringwiun.