Vísir - 11.10.1952, Blaðsíða 5

Vísir - 11.10.1952, Blaðsíða 5
Laugardaginn 11. október 1952. VÍSIR S Þjóðleitihúsið : JuBió og páfuglinn eftféir Sean tÞ9€Jnsey. Hávært kvenskass, drykk-' feldur letingi og grobbari, blóð- suga á honum með slagorð á reiðum höndum, hugsjónamað- ur, sem finnst hann hafi fórn- að nógu, fjöllynd stúlkukind, isem fellur fyrir spjátrungi og spjátrungurinn sjálfur, smá- smugulegir nábúar í fátæklegu umhverfi, sem mótast af drykkfeldni eiginmannsins og annríki konunar. Þetta er hversdagsleg mynd, hvorki hlægileg né grátleg, en ívaf og uppistaða leikritsins, sem Þjoð - leikhúsið ,sýnir. að , þessu sinni. Kynning írskra leikbólqnennta hefði getað verið betri, og sagt er, að svo hefði einnig getað verið að því er varðar höíund- inn sjálfan. Áhorfendur voru fáir á frumsýningu og í einhverri fjarlægð frá leikendunum, sem leiddi til lítils lófaklapps og fagnaðarláta og er það nýjung. Valur Gíslason ber leikinn uppi í gervi Jack Boyles sjó- mannsins, er sigldi „frá Mexi- koflóa og suður til Hvítahafs- ins“ og fékk fótagigt, ef hon- um bauðst ærleg vinna, en eklti seta ein á drykkjukrám. Val hefur sjáanlega tekizt að skilja :svo hlutverk sitt, að þar er hvorki of né van, en vel með allt farið í góðu gervi. Vegna leikmeðferðar Vals einnar, og geri menn ekki kröfur til neinnar ,,skrautsýningar“, ættu þeir að sjá leikrit þetta, sem vel má heimfæra á daglegt líf í allra þjóða umhverfi. Valur er „páfuglinn", en Júnó, — sem var fædd í júní og því kölluð svo af eiginmanni sínum, — var leikin af Arndísi Björns- dóttur, vel sem heild, en með nokkrum vanköntum, sem slípast af við fleiri sýningar. Júnó er langþreytt á eigin- manninum og kvensvarkur í þokkabót, og vissulega var hún hrjúf í meðferð Arndísar Björnsdóttur, einkum framan af, en leikur hennar var með miklum og góðum tilþrifum, þótt slegið væri á ýmsa strengi, og þá ekki sízt í leikslokin, er móðurleg umhyggja leiðir til fagurra fyrirheita og nýs lífs. Baldvin Halldórsson leikur Jonna, — son þeirra hjóna, sem :misst hefur annan handlegginn og fengið skot í mjöðmina fyrir frelsi írlands og finnst hann hafa fórnað nógu, þannig að hann hafi þá einnig ráð á að uppskera með hæfilegum svik- um við. málstaðinn. En slíkur tvískinnungur x-eynir á taug- .arnar, sem eru fullþandar fynr og. allt þetta tekst leikaranuin !a fgengiir nsjðg sanan. St.liólmur. — Útflutnirigur Svía á pappír og trjákvoðu var mun minni á fyrstu 8 mánuðum þessa árs en á sama tíma í fyrra. Minnkaði þessi útflutningur um hvorki meira né minna en 650 millj. s. kr. Annar útflutn- ingurinn var aðeins 96 millj. kr. minni í ár en í fyrra. Hann nam 5,4 milljörðum s. kr. (SIP) vel að sýna í látæði og mál- brigðum, þótt hann beiti rödd- inni fulldjarflega miðað við Míræft á morgun : Sesselja Jóns- Arndís Björndóttir og Emilía Jónasdóttir. þolið. Maríu, — dóttur hjón- anna, — leikur Herdís Þor- valdsdóttir fulldauflega í heild og oft hefur henni áður tekizl. betur. Sníkjudýrið Joxer Daly leikur Lárus Pálsson, með sín- um aðferðum og skilnipgi, sem getur valdið ágreiningi, en er verjanlegur. Hann hefur einnig haft leikstjórn á hendi. Regína Þórðardóttir, Ævar Kvaran, Gestur Pálsson og Robert Arnfinns.spn fara þqkkalega með hlutverk sín, sem eru frekar óveruleg og reyna lítt á þolrifin, en önnur hlutverk eru. minni og tæpast umtalsverð, Höfundur leikritsins er sízt mildur í skilningi sínum á mannfólkinu, og tekst að ganga svo frá hverjum einstökum, nema helzt Júnó, að. öll. samúð með, persónunum rýkur út í veður og, vind, Sálgreiningin sýnir aumingjask.ap og yfir,- borðshátt, öðru frekar, auk trúgirni og hégómleika, leti og framtaksleysis, sem á að dylja með flótta frá lífinu, sem leiðir til dauðaværðar drukk- innamanna í leikslokin. Þýðinguna hefur Lárus. Sig- urbjörnsson annast, en það mun hafa verið erfitt verk, enda verður ekki sagt að málblærinn sé í stíl höfundar, og á stöku stað er heildin rofin og fer það ekki allskostar vel. Kann þetta þó að vera smekksatriði, enda hefur Lárus vandað þýðinguna •í heild, þótt enskt „slang“ sé erfitt að þýða á venjulega ísr lenzku. K.G. Holssföðum, Mýrum. Níræð verður á morgun, 12. okt., Sesselja Jónsdóttir, Hofs- stöðum, Álftaneshreppi, Mýra- sýslu. Foreldrar Sesselju voru Jón Iróndi Þorvaldsson 1 Einars- nesi, Borgarhreppi, og kona hans, Oddfríður Sigurðardótt- ir. Fjögurra ára fluttist hún með foreldrum sínum að Hofs- stöðum og hefur átt þar heima síðan. Hún giftist 12. október 1891 Jóni Samúelssyni frá Knarrar- nesi og hafa þau búið á Hofs- stöðum í meifa en hálfa öld. Börn þeirra eru Ólöf, kona Sigurjóns fyrrum bónda og oddvita að Álftárósi í sömu sveit, og Friðjón, bóndi á Hofs- stöðum. Fimm fósturbörn ólu þau upp Sesselja og Jón. Eru þessi háöldruðu dugnaðar- og sæmdarhjón nú þrotin að heilsu. — Sesselja er greindar og mannkostakona, bókelsk og fróð um margt. Fjölda margir vinir þeirra hjóna munu senda þeim hlýjar kveðjur á níræðis- afmæli Sesselju á morgun. Vinur. „Haustrevyan" fileypur af stokkunum. f gærkyeldi var „Haust- revýan 1952“ frumsýnd í Sjálf- stæðishúsinu. Skemmtiatriðin í revýunni eru tveir stuttir gamanþættir með Alfreð Andrésson og Har- ald Á. Sigurðsson að aðalleik- .endum, en auk þeirra Guðrúnu ísleifsdóttur, Nínu Sveinsdótt- ur, Guðrúnu Leósdóttur og Pál Jónsson. Þá fluttu þeir Alfreð og Haraldur ásamt Guðrúnu Ásmundsdóttur stuttan sam- talsþátt. með. bröndurum úr bæjarlífinu og landsmálapóli- tíkinni. Nína Sveinsdóttir og Alfreð Andrésson sungu gam- anvísur, dansparið Maud og Jonny sýndu dansa og Manja Mourier söng. Langbezta atriðið á skemmti- skránni var söngur Mourier, ' enda var það með hreinustu á- gætum. Alfreð Andrésson gerir líka sína hluti vel og hann er það íágaður listamaður .að liann getur með svip sínum og túlk- un gert jafnvel lélegt efni og bragðdausa brandara skemmti- lega og hlægilega. Fyrstu symfoníutónleikarnir verfta næstkomandi þriftiudag. Symfoniuhljómsveitin efnir til fyrstu tónleika sinna á vetr- inum þriðjudaginn næstkom- andi í Þjóðleikhúsinu. Þeir Jón Þórarinsson, for- maður hljómsveitarinnar, gegði blaðamönnum grein fyrir starfsáætluninni o. fl. í gær, á Hótel Borg, að viðstöddum Kielland hljómsveitarstjóra. Hefur verið æft af kappi síðan um seinustu áramót, en áður fóru fram æfingar fyrir útvarp undir stjórn þeirra Ro- berts Abrahams Ottossonar og dr. Victors Urbansics. Á tónleikunum á þriðjudag- inn verður forleikur eftir Jón Leifs — Minni Islands — tvö hljómsveitarlög eftir Grieg, og symfonia eftir Brahms, mikið tónverk, flutt í fyrsta skipti hér á landi. — Að þessu loknu fær Kielland viku til hálfsmán- aðar leyfi og fer til Parísar til að stjórna þar tónleikum fræg- ustu hljómsveitar Frakka. Er Kielland kemur aftur verður farið að æfa undir aðra sym- fóníutónleikana, en þar kemur fram cellóleikarinn frægi Erl. Blöndal Bengtson. Þriðju tón- leikarnir verða um mánaða- mótin nóvember og desember og lýkur með þeim starfinu á þessu ári. Kielland mun og stjórna útvarpstónleikum. Þá er þess að geta, að ráð- inn hefur verið að symfoniu- hljómsveitinni fyrsti ,hornisti‘, afburða snjall, sem hingað er kominn frá óperunni í Graz í Austurríki. — Er fengur að fá hann, því að fyrsta hornista hefur hljómsveitina vantað síðan Lanzky-Otto fór. J. Þ. kvað symfóniuhljóm- sveitina eiga velvild og vin- sældum að fagna yfirleitt og vaxandi skilningi á hlutverki hennar hjá ráðamönnum bæjar og ríkis. 106 menn fórust. Yfirstjórn brezku járnbraut- anna hefur birt lokaskýrslu um manntjón af völdum slyss- ins í Harrow og Wheelstone stöðvunum. 106 menn fórust. — 87 voru enn í sjúkrahúsum, er síðast fréttist. skemmtir susin- lendingum. Nýr leikflokkur er í þann veginn að fara á stúfana í því skyni að sýna úti á Iands- byggðinni nýtt leikrit eftir Harald Á. Sigurðsson. w Leikflokkurinn nefnist „Glaðir gestir“ og ber víst nafn með rentu, því bæði er sagt að leikritið sé skemmtilegt og svo eru þetta einstaklega kátar og aðlaðandi persónur sem fara með hlutverkin. I Leikritið heitir „Karólína I snýr sér að leiklistinni“ og þeir sem kannast við höfundinn gera l sér að sjálfsögðu fulla grein (fyrir því að þar er ekki um neinn sorgarleik að ræða. J „Glaðir gestir“ eru 6 að tölu, þau Emelía Borg, Jóhanna Hjaltalín, Sólveig Jóhanns- dóttir, Lúðvík Hjaltason, j Hjálmar Gíslason og Baldur ! Guðmundsson. Leikstjóri er Emelía Jónasdóttir. Hefur þessi glaðværi hópur ákveðið að ferðast hér um Suð- urlandsundirlendið og Suður- nes og sýna Karólínu. Haraldar á ýmsum stöðum, en fyrst í Sandgerði á sunnudaginn kem- ur. Verða þá tvær sýningar, ; sú fyrri kl. 5, en hin kl. 9. Ovíst er hvort Karólína verður sýnd í Reykjavík en hinsvegar á- kveðið að sýna hana í Hgfnar- firði seinna meir. KVÚLÐjímkat. Arndís Björnsdótir og Valur Gíslason, SJÓMANNADAGSRÁÐ efn- ir nú í þriðja sinn til kabarett- sýninga í Austurbæjarbíó, og verður ekki annað sagt en að vel hafi til tekizt um val skemmtikrafta að þessu sinni ekki síður en fyrri daginn. — Kabarettsýningar þessar eru nú orðnar að heita má fastur liður í skemmtanalífi höfuðstaðarins og eru sýningar þessar vissu- lega kærkomin tilbreytni í bæjarlífinu. ❖ Það var ánægjulegt að vera á frumsýningu kab- arettsins í fyrradag. Fyrst og fremst vegna þess, að sýnilegt er, að forráðamenn kabaretts- ins hafa ekki látið sér nægja að fá hingað til landsins ein- hverja annars eða þriðja flokks skemmtikrafta, því að þeim er löngu ljóst, að við íslendingar eru orðnir vandlátir í þessum efrium. En í annan stað er á- nægjulegt, þegar fram koma fslendingar, sem virðast standa hinum erlendu listamönnum á sporði að ýmsu leyti. Eg á þar einkum við hinn snjalla munn- , hörpumeistara og blístrara, Ingþór Haraldsson. Ekki minn- ist eg þess að hafa heyrt til hans fyrr. ♦ Það liggur við, að segja mætti, að hann gæti tekið sér hið fornkveðna í munn: Eg kom, eg sá, eg sigraði, svo góð- ar voru viðtökurnar í fyrra- kvöld. Þá er framkoma þessa unga manns mjög til fyrir- myndar í yfirlætisleysi sínu og hógværð, og er sérlega skemmtilegt að sjá slíkt. Segja mætti mér, að eftirleiðis yrði Ingþór eftirsóttur skemmti- kraftur hér í Reykjavík. ❖ Ekki verður annað nreð sanni sagt en að menn fái nokkuð fyrir peningana, er þeir sækja kabarettsýningu. Sjómannadagsráðs. Sýningin er löng, skemmtitariðin yfirleitt mjög góð, sum glæsileg, en öll ber hún með sér hressandi blæ utan úr hinum stóra heimi fjöl- listamanna. Og menn geta líka minnzt þess, er menn sækja þessar sýningar, að um leið leggja þeir góðu málefni lið. TliS. j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.