Vísir - 23.12.1952, Qupperneq 12

Vísir - 23.12.1952, Qupperneq 12
LÆKNAR OG LYFJABÚÐIR Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í Læknavarðstofuna, sími 5030. Vörður er í Laugavegs Apóteki, sími 1618. LJÓSATÍMI bifreiða er 14,55 til 9,50. Flóð er næst í Reykjavík kl. 22,25. Þriðjudaginn 23. desember 1952 Slysfarir og viða þessa Snjóflóð í shiptiapi t'iS Einlsaskeyti frá AP. London í morgun. 23 menn biðu bana, en 11 aneiddust, bar af 4 hættulega, «r bifreið með skemmtiferða- fólki varð fyrir snjóflóði í gær- Jcvöldi í Langberg, Austurríki, wn 80 km. frá Innsbruck. Fólk þetta hafði komið með .járnbrautarlest til bæjar nokk- nrs, en fór þaðan í bíl til skíða- ■og sleðaferða. Snjóflóðið feykti fcifreiðinni, sem þá var að fara yfir brú, niður í árfarveg. Fregnir hafa borizt víðar að -um snjóflóð í austurrísku, bay- •ersku, svissnesku og frönsku Ölpunum, og þorp hafa ein- angrast af þeim sökum og sam - .gönguerfiðleikar eru víða mikl- ir. Um manntjón af völdum snjó flóða hafa ekki enn borizt frek- ari fregnir en að ofan greinir. Annars staðar að berast fregn- ir um miklar úrkomur, flóð og þokur, og er einkanega þoku- samt í Englandi. Hafskipið Queen Elisabeth tafðist í 2 klst. •við Wight-ey í gær og 250 menn tepptust á Ermarsundseyjum -vegna þokunnar. í Norður- Somerset var skyggni að eins 5 xnetrar. Skipsstrand. 12.000 lesta farþegaskip, franskt strandaði í fyrrinótt .skammt frá Beyrut, og hafa allar björgunartilraunir til jþessa orðið árangurslausar. Á skipinu eru a. m. k. á 3ja liundrað manns, þeirra meðal irm 100 pílagrímar, sem ætl- uðu að dveljast í Betlehem um jólaleytið. Endurteknar tilraunir til að strengja taugar milli skips og lands hafa mistekizt. Og allar Vinna almennt hafin á Akranesi. f morgun hófst vinna almennt á Akranesi, en í nótt náðist loks -samkomulag við bifreiðastjóra- deild verlcalýðsfélagsins. í tilkynningu, er birt var frá . Alþýðusambandinu í morgun, var frá því skýrt að fult sam- komulag hefði náðst á sátta- fundi, sem haldinn var í gær- kveldi. Þegar allsherjarsam- komulagið fékkst við verka- lýðsfélögin féllust atvinnurek- endur á Akranesi á það, en hins vegar gerðu bílstjórar sérkröf- ur varðandi notkun atvinnurek ■enda á eigin bílum o. fl., og drógst því á langinn að þar næð ist fullt samkomulag. Buðu at- vinnurekendur upp á sömu samninga og Þróttur hefur, en •bílstjórar vildu takmarka rétt atvinnurekenda á notkun eigin bíla. manntjón dagana. tilraunir til að bjarga fólkinu til lands í bátum, hafa mistek- izt. Tveimur bátum hefir hvolft við slíkar tilraunir. . Skipið hefur nú klofnað í tvo hluta, og orðið talsvert bil milli þeirra. Skipshlutarnir eru að eins nokkra tugi metra frá landi — Dráttarbátar frá Israel og Libanon eru komnir á vett- vang, beitiskipið Kenya, brezkt, og tvær helikopterflugvélar eru til taks til björgunarstarfsins undir eins og lægir. Önnur er brezk, hin bandarísk. rennnr ofnsi af f Jölskyldiim í nétt. Eldsvoðinn varB Árásum Kínverja hrundið. Tokyo. (A.P.). — S.-Kóreu- menn tóku í fyrradag hernað- arlega mikilvægar hæðir, sem kommúnistar náðu á sitt vald fyrr urn daginn. Mikil stórskotahríð er á þess- um kafla vígstöðvanna. — Van Fleet hefur tilkynnt, að nokkr- ar suður-kóreskar herdeildir hafi fyrir nokkru lokið þjálfun að mestu og verði brátt sendar til vígstöðvanna. Áróðurstíllaga frá Gromy- ko tekin til umræðu. Allsherjarþingi Sþ ffrestað fram í ffebrúar. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna heldur seinasta fund sinn í bili í dag, en kemur síð- an saman á næsta ári, sennilega verður það 24. febrúar. Klykkt er út í dag með um- ræðu um þingsályktunartilögu Gromykos, sem fordæmir með- ferð á stríðsföngum í Kóreu, er hann líkir við „fjöldamorð". í ræðu sinni í morgun talaði hann um hryðjuverkastefnu, bandaríska böðla o. s. frv. Gross fulltrúi Bandaríkjanna kvað Gromyko hafa borið þessa til- lögu fram á seinustu stundu, áður en fundum verður frest- að, til þess að enn einu sinni að reyna að ata Bandaríkin auri, en allir mundu sjá, hver til- gangurinn væri — að hér væri um klaufalega áróðurstilraun að ræða. Gromyko vildi láta umræðu um málið sitja í fyr- irrúmi, en tillaga um það var felld. Varð hann að sætta sig við, að tillagan yrði seinasta mál á dagskrá. Áður hafði þingið samþ. á- lyktanir, m. a. samþykkt fjár- hagsáætlun. stofnunarinnar fyr- ir 1953, og var hún samþykkt með 50 atkvæðum gegn 5 (kom múnista). Útgjöldin nema 17,5 millj. stpd. — Samþykkt var tillaga Suður-Ameríkuríkja um stofnun. nefndar til athugunar á óafgreiddum umsóknum um upptöku í félagsskap S. Þj o. s. frv. Stef veitir afslátt frá gjaldskrá sinni eingöngu þeim notendum tónlistar, sem fyrir 15. janúar næstkomandi hafa sámið við félagið, sbr. ályktun aðalfundar,er er birt- ist sem auglýsing í blaðinu í dag. —- Góðgerða- og memi- ingarfyrirtæki greiða ekki flutningsgjöld til Stefs, nema að fyltjendur taki laun, og veit- ir þá Stef þeim góðgerða- og menningarfyrirtækjum, sem seeja við það fyrir 15. janúar n. k. 50% afslátt frá gjald- skrá. Samið um flutning Tosca í Þjóðleikhúsinu í vor. límaritið Sverige-lslaad greinir frá samn- ingum viö fforráðamenn Sinfónáubljói'n- sveitarinnar. TímaritiS „Sverige-Island“ greinir frá því í nýútkomnu hefti, að fullráðið sé, að fjórir listamenn frá Konunglegu óp- erunni í Stokkhólmi taki þátt í flutningi óperunnar Tosca í Þjóðleilíhúsinu hér. Óperan verður flutt í maí í í vor, en þetta hefir verið full- ráðið fyrir milligöngu tveggja foi’ustumanna Symfóníuhljóm- sveitarinnar, Jóns Þórarinsson- ar og Björns Jónssonar, sem voru á ferð í Stokkhólmi, að því er tímaritið segir. Það er Einar Andersson óp- erusöngvari, sem einkum hefir annazt samningagerð um þetta, en hann er kunnur á íslandi frá því er hann hélt söng- skemmtanir þar árið 1949. — Getr er ráð fyrir, að hirnr sænsku gestir dvelji hér í hálf- an mánuð, flytji óperu, hafi söngskemmtanir og komi fram í útvarpi. Vitað er, að hingað koma Birgit Nilsson óperusöngkona, Einar Andersson óperusöngv- ari, Kurt Bendix hljómsveitar- stjóri, og að líkindum Sigurd Björling óperusöngvari,. sem nú er staddur í New Qrleans í Bandaríkj unum. Bregðumst skjótt við til hjálpar. I brunanum mikla í Múla braggahverfinu 1 nótt sem leið misstu tvær fjölskyldur og tveir einstakiingar aleigu sína. Allir geta sett sig í spor þeirra, sem verða fyrir slíku áfalli — standa allt í einu uppi slyppir og snauðir, eftir að hafa misst allt sitt, jafn- vel nauðsynlegasta fatnað, á einu vettfangi. Fólk þetta á óskipta samúð allra Reyk- víkinga, sem allir sem einn munu vilja leggja eitthvað af mörkum til þessa fólks, og gera þannig sitt til að gleðja það og styðja fyrir jólin. Allir vilja, en það eru ekki allir, sem geta veitt hjálp, en Vísir vill fyrir sitt leyti hvetja alla, sem eitthvað geta af mörkum lát- ið, að snúa sér til Vetrar- hjálparinnar, sem hefur bezta aðstöðu til þess að veita móttöku gjöfum manna til þessa fólks, en tíminn er naumur, og því er mikil nauðsyn, að menn bregði fljótt við. Skrifstofa Vetrar- hjálparinnar er í Thorvald- sensstræti 4, sími 80785. — Hér þarf að hafa skjót við- brögð. Fatnaður o. fl. ekki síður en peningar, mun koma sér vel. Heiðra 2 frömuði skíðaíþróttarinnar. A3 vori reisir Skíðafélag Reykjavíkur tveimur látnum frömuðum skíðaíþróttarinnar á fslandi, þeim L. H. Muller kaupm. og Kristjáni Ó. Skag- fjörð stórkaupm., minnisvarða í grennd við Skíðaskálann í Hveradölum. Bautasteinar þessir verða tveir steindrangar, 2.20 metrar á hæð hvor fyrir sig, og verða þeir reistir á móbergshjalla skammt austan við Skíðaskál- ann. Á aðalfundi Skíðafélagsins, er haldinn var fyrir skemmstu, var Stefán G. Björnsson endur- kjörinn formaður þess, en aðrir í stjórn og varastjórn eru: Lárus G. Jónsson, Leifur Mull- er, Sveinn Ólafsson, Eiríkur Bech, Jóhannes Kolbeinsson og Guðlaugur Lárusson. Samvinna verður eins og í fyrra milli skíða- og íþróttafé- laga bæjarins um sameiginlega flutninga skíðafólks. Hefir ferðaskrifstofan Orlof tekið að sér afgreiðslu ferðanna í vetur. í nótt varð stórbruni, er braggaþyrping í Múlahverfi brann til ösku og þrjár fjöi- skyldur urðu húsnæðislausar, auk bess sem þær misstu allt innbú sitt. Það var á fimmta tímanum í nótt, er tveir menn vöknuðu við það í bragga, að loft braggans stóð í björtu báli. Komust beir við illan leik út og gátu vakið annað fólk sem svaf í sömu braggaþyrpingu. Var slökkvi- liðinu síðan gert aðvart, en beg- ar það kom á vettvang stóðu braggarnir allir í björtu báli og ekki viðlit að bjarga neinu. Er það skemmst af að segja að braggarnir brunnu til öskú og ] allt eða mestallt af því, sem i þeim var. í bröggum þessum bjuggu þrjár fjölskyldur og urðu þær fyrir tilfinnanlegu tjóni því þær misstu svo til hvert tangur og tetur sem í bröggunum var. Talið var í morgun að kvikn- að hefði í út frá rafmagni, en rafmagn í bröggunum hafði verið í ólagi. í gærdag um hádegisleytið var slökkviliðið kvatt inn að Langholtsvegi 68. Hafði kvikn- að þar lítilsháttar út frá mið- stöð, en skemmdir urðu ekki tilfinnanlegar. Samtals mun 12—15 manns hafa verið búsett í braggabygg- ingu þeirri er brann, en 9 voru heima þar í nótt. Húsráðendur og fjölskyldu- feður voru þeir Davíð Höjgaard, Guðmundur Halldórsson og Friðrik Jóhannsson, en auk þeirra og fjölskyldum þeirra hjuggu þar 1—2 einhleypir menn. Kona Friðriks liggur á sjúkra- húsi og var því ekki heima er bruninn varð, sömuleiðis voru börn þeirra hjóna ekki heima. Dóttir Guðmundar Halldórs- sonar og dóttursonur voru held- ur ekki heima í nótt. Tveir húsráðenda, Davíð og Guðmundur höfðu tryggt inn- bú sín og innréttingar, annar fyrir 30 þús. kr„ hinn fyrir 25 þús. kr. Var það vátryggt hjá Samvinnutryggingum og var þeim greitt vátryggingarféð strax í morgun. Eftir því sem frétzt hefur var innbú Friðriks óvátryggt. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarlögreglunni í morg- un var það Friðrik, sem fyrst varð eldsins var, en annars var rannsókn að hefjast í mál.inu rétt fyrir hádegið og yfirheyrsl- ur að byrja. Rúmlega hálft fimmta hundr- að virkra félaga er í Skíðafé- laginu og 100 ævifélagar. Vá- tryggðar eignir félagisns eru metnar á nær 730 þús. kr.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.