Vísir - 16.01.1953, Side 8
LÆKNAR OG LYFJABtfÐIB
Vanti yður lækni kL 18—8, þá hringið i
Læknavarðstofuna, sími 5030
Vörður er í Ingólfs Apóteki, sími 1330,
Föstudaginn 16. janúar. 1953.
LJÓSATÍMI
bifreiða 15,40 til 9,35.
Floð er næst í Reykjavík kl. 18,25.
Fyrstu skíðaferðir vetr-
arins verða á morgun.
Sex félög hafa samtök um skéiaferBir og
annast Orlof afgreiÖslu fyrir þau.
Efnt verður til fyrstu skíða-
ferða vetrarins á morgun og
sunnudaginn upp í sldðalönd
Reykjavíkur.
Skíðafélögin eða skíðadeildú’
íþróttafélaganna hafa eins og í
íyrra bundizt samtökum um
sameiginlegar skíðaferðir í vet,-
ur og í því skyni samið við
íerðaskrifstofuna Orlof, er sér
um afgreiðslu ferðanna.
Skíðafélögin, sem standa að
hinum sameiginlegu ferðum,
eru sex talsins, Ármann, Í.R.,
K.R., Skíðafélag Rvíkur, Skíða-
félag skáta og Valur. Er þetta
annað árið, sem þessi íélög
standa sameinuð að skíðaferð-
unum, en áður höfðu skíðafé-
lag Rvíkur og K.R. haft sam-
vinnu um tveggja ára skeið
um ferðir í skíðalönd þeirra.
Nokkru fyrir áramót gerð'u
félög þessi samning við Orlof
að sjá um ferðirnar í vetur og
annast afgreiðslu þeirra. Hefur
Guðmundur Jónasson tekið að
sér ferðirnar af hálfu Orlofs,
en sjálfur hefur hann 6 stóra
bila til þessara ferða, auk snjó-
bíla. Ef sá bílakostur nægir
ekki mun Guðmundur útvega
bíla eftir þörfum.
Fyrsta skíðaferðin að þessu
sinni verður í fyrramálið kl. 9
árdegis, en síðar verða tvær
aðrar ferðir á morgun, kl. 2
■og kl. 4 e. h. Fjórða ferðin verð-
ur á sunnudaginn kl. 10 árdegis.
Komið verður í bæinn á sunnu-
<dagskvöld.
Ferðunum verður þannig
háttað að sumir bílanna fara í
Jósefsdal með Ármenninga og
aðra þá, er þar vilja dvelja, en
aðrir bílar fara á Kolviðarhól
og að skíðaskálanum í Hvera-
I dölum.
j Búist er við mikilli þátttöku,
' því þrátt fyrir lítinn snjó, enn
sem komið er, hefur frétzt að
j skíðafæri sé sæmilegt orðið
efra.
( ,
í fyrra fóru hátt á 4. þús-
und manns í hinum sameigin-
legu skíðaferðum félaganna.
Verður það þó að teljast óvenju
léleg þátttaka meðfram vegna
þess að ekki voru farnar nema
tvær ferðir fyrir áramót og svo
ekki síður vegna hins að vegur-
inn upp á Hellisheiði var teppt-
ur í 5 vikur samfleytt.
Reynt verður að hafa þjón-
ustu sem allra -bezta og þægi-
legasta fyrir skíðafólkið og m.
a. verður það sótt flesta áætlun-
ardaga í úthverfin.
------*-----
Itússar smíðii
„litixwssískip-
ítalir hafa nýlega afhent
Rússum tvö „luxus“skip — far-
þegaskip, sem verða í ferðum
við A.-Asíu.
Skip þessi heita Norilsk og
Tobolsk, og eru 3500 smál.
hvort. Þau eru 319 fet á lengd
og hraðinn um 16 hnútar. Hvort
getur flutt 346 farþega.
Ljós leggitr lykkju á leið sína.
Húlfrar aldar göwtwl kewwiwg
Elwsíeins taliw söwwwð.
Okkur sýnist, að ljósgeisl-
arnir fari þráðbeint, að þeir
beygi ekki fyrir horn, en þó
«r það nú sannað, að þeir geta
„lagt lykkju á leið sína“.
Einstein hafði raunar haldið
því fram, að þyngdarlögmálið
.gæti haft þau áhrif, að ljósgeisl-
ar bognuðu, og hann spáði því
fyrir hálfri öld, að breyting á
Ijósi stjarna, sem færi í grennd
við sólu, mundi verða ein sönn-
unin fyrir afstæðiskenningu
sinni.
Nú er svo komið, að dr. Ge-
•orge van Biesbroeck, stjörnu-
fræðingur við háskólann í Chi-
cago, hefir gert útreikinga,
sem koma vel heim við kenn-
ingar Einsteins. Fór van Bies-
broesk tvívegis til Khartoum
í Súdan, til að vinna að þessum
athugunum —• í fyrsta skiptið
25. febrúar, og tókst þá að ljós-
mynda stjörnur, sem voru næst-
um beint bak við skólina, en al-
ger sólmyrkvi var þann dag.
Síðari myndirnar voru teknar
29. ág., þegar sömu stjörnur
voru aftur nákvæmlega á sama
stað að næturlagi og þegar
fyrri myndirnar voru teknar.
Með því að gera samanburð
á myndunum, tókst Biesbroeck
að reikna út áhrif aðdráttar-
afls sólarinnar á ljósgeislana frá
stjörnunum. Hornið reyndist
1.70 sekúnda, en í einni
gráðu eru 3600 sekúndur. Ein-
stein hafði á sínum tíma reikn-
að út, að ljósið mundi bogna
1,75 sekúndu, svo að hér mun-
ar ekki miklu.
Stjörnufræðingum hefir ár-
um saman leikið hugur á að
prófa kenningu Einsteins, og
árið 1947 sendi landfræðifé-
lagið ameríska leiðangur til
Brasilíu til að afla sannana, en
stjörnurnar bak við sólina voru
of dreifðar til þess að gagn yrði
að þeim.
Einstein vill ekkert segja um
útreikninga Biesbroecks, fyrr
1 en hann fær skýrslu hans í
hendur.
Hæstu vinningar
í HHÍ hér í bæ.
I gær var dregið í 1. floltki
Happdrættis Háskólans, en
vinningar voru samtals 550,
svo og 4 aukavinningar, alls
252.500 krónur.
25 þúsund króna vinningur
féll á nr. 3319 (fjórðungsmiðar,
seldir hjá umboði Pálínu Ár-
mann). 10 þús. kr. féllu á nr.
19.256 (fjórðungsmiðar, 3 í j
umboði Helga Sívertsen, Aust-
urstræti, og 1 hjá Maren Pét-1
urssdóttur). 5 þús. krónur féllu
á nr. 15.439 (heilmiði á Eski-
firði). Aukavinningur, 5 þús.
kr. féll á nr. 12.880 (fjórðungs-
miðar, 1 í Stykkishólmi og 3 í
Neskaupstað).
Truman flutti þjóð sinni
kveðjuávarp í gær.
Hasiaii hefur verið forseti
Bamdarikjaivna i Iæp 8 ár.
Einkaskeyti frá AP. —
New York í morgun. —
Truman forseti flutti kveðju-
ræðu í útvarp og sjónvarp í
gærkvöldi til bandarísku 'þjóð-
arinnar, en hann lætur af em-
bætti á þriðjudag.
Forseti í 8 ár.
Truman rakti ýmsa helztu
viðburði þeirra tæpra 8 ára,
sem hann var forseti. Kvað
hann þessa tíma mundu verða
Frönsk list í
listvinasalnum.
í dag verður opnuð í List-
vinasalnum við Freyjugötu
málverlsasýning, er nefnist
frönsk nýlist.
Eins og nafnið ber með sér,
er hér um að ræða nútímalist
franska, en á sýningunni eru
24 myndir eftir 19 listamenn,
sem allir eru búsettir eða hafa
dvalið langdvölum í Frakk-
landi, og þar orðið fyrir áhrif-
um í list sinni.
Ekki eru listamennirnir allir
franskir, heldur eru þarna
myndir eftir Rúmenann Dumi-
triescu, Danann Robert Jacob-
sen, Rússann Kandinsky, ítal-
ann Magnelli, Spánverjann Pi-
casso og Ungverjann Vasarely.
Hörður Ágústsson listmálari,
sem fyrir skemmstu er hingað
kominn frá París, hafði mynd-
irnar með sér. Flestar þeirra
keypti hann fyrir ýmsa íslenzka
aðila, en nokkur eru til sölu. —
Þetta eru litógrafíur, teikning-
ar og álímingar, sérstakar
nokkuð og óvenj ulegar, eins og
vænta má, og munu margir hafa
gaman af að kynnast franskri
nútímalist, eins og hún birtist
þarna.
Sýningin mun verða opnuð
formlega í kvöld, og mun
Schydlowsky sendikennari gera
það með ræðu.
minnst í sögunni sem upphafs
„köldu styrjaldarinnar", en
mikilvægustu ákvörðun sína
sem forseti taldi hann vera, er
hann ákvað að láta til skarar
skríða og stöðva ofbeldi kom-
múnista í Kóreu.
Viðhorfið gegn
kommúnistum.
Truman kvaðst stundum fá
bréf frá ..óþolínmóðu fólki’
sem vildi að kommúnistum
væru settir úrslitakostir og
k j ar nor kuspreng j um beitt.
Svar sitt væri blátt áfram: „Við
erum ekki þannig gerðir. Við
getum ekki brotið i bág við
kenningar og hugsjónir, sem
við viljum verja.“
Efling varnanna.
Hann kvaðst ekki geta sagt,
hvenær köldu styrjöldinni
myndi lykta, en eftir því sem
frjálsu þjóðirnar efldust að
vörnum og efnahagslega,
minnkuðu líkurnar fyrir, að
kommúnistar gætu haldið á-
fram útþenslutilraunum sínum.
Breytingar kynnu að verða í
löndum þeirra þjóða, sem fylgja
Rússum að málum og í Ráð-
stjórnarríkjunum sjálfum, en
hvort bylting yrði til þess að
knýja þær fram, eða hugarfars-
og stefnubreyting yrði, gæti
hann ekki sagt.
Útnefning Dulles
samþykkt.
Utanríkisnefnd öldungadeild-
arinnar í Washington hefur
staðfest útnefningu Eisenhow-
ers á Dulles sem utanríkisráð-
herra. Deildin á þó eftir að
greiða atkvæði um hana.
Dulles' sagði í gærkvöldi, að
Bandaríkj aþj óðin yrði ávallt að
hafa í huga írelsun kúgaðra
þjóða í Austur-Evrópu og ann-
arsstaðar og væri það firra, að
það gæti aðeins orðið í styrjöld.
Nefndi hann sem dæmi, að
Júgóslavía hefði slitið öllu sam-
bandi við Kominform, án þess
til styrjaldar kæmi. — Dulles
gaf í skyn, að engar stórbreyt-
ingar yrðu á utanríkisstefnunni,
en hann hefði margt i huga sem
til bóta myndi verða, og myndi
það koma í ljós smám saman á
þessu ári.
274 m» liöi«§
Gufuborumim er stöðugt
haldið áfram í Krýsuvík, án
þess þó, ‘að þar hafi nokkuð til
tíðinda borið að undanförnu.
Unnið er nú að borun holu
úti í mýrinni norðan vegarins,
og er sú hola orðin 274 metra
djúp. Er það meira dýpi, en
áður hefur verið komizt á, frá
því er gufuboranirnar hófust í
Krýsuvík. Hola sú, sem nú gýs
mest uppi í hlíðinni sunnan
vegarins, er 229 metra djúp.
Dynamitsprenging varð í gær
í kolanámu við Mons í Belgíu.
13 biðu bana, en 13 meiddust
! alvarlega.
Faxi kostar nær
millj.
28
Stevenson lætur
af embætti.
Adlai Stevenson, forsetaefni
demokrata, er laut í lægra haldi
fyrir Eisenhower, lét a£ em-
bætti sem fylkisstjóri í Illinois
á mánudag.
Ekkert hefur verið látið uppi
um fyrirætlanir hans, en þó er
talið víst, að hann muni verja
næstu vikum til þess að ganga
frá bók, þar sem birtar verða
helztu ræður hans. Síðan mun
hann fara í langt ferðalag, m.
a. til Kóreu, og taka til við lög-
fræðistörf, er heim kemur.
Á bæjarstjórnarfundi í gær
var flutt skýrsla um Faxaverk-
smiðjuna í Örfirisey.
Birgir Kjaran flutti skýrslu
Sveins Einarssonar framkv.stj.
um málið. Samkvæmt henni
hafði hún i árslok 1951 kostað
nær 23 millj. króna, en halli
á rekstri hennar það ár reyndist
344 þús. kr. Er þetta raunar
eðlilegt, þegar þess er gætt, að
verksmiðjan byggir afkomu sína
á síldargöngum í Faxaflóa, en
þær hafa brugðizt. Hins vegar
er fiskúrgangur ekki nægileg-
ur hér til þess að fullnægja
þörf vei'ksmiðjanna, sem úr
honum eiga að vinna. Ýmsar j Flokkur innborinna manna með
aðrar leiðir hafa verið kann- ' skildi og spjót að vopnum veita
aðar til þess að útvega verk- j þarna aðstoð brézku liði, sem
e{ib£j uijbj ig.iX ujoEjsrefaBq gs útbúið er fullkomnustu nútíma
framtíðarrekstri hennar. hertækjum.
Mau-Mau menn
einangraðir.
Kenya (AP). — Hcrlið £
Kenya er nú með aðstoð lög-
regíu að króa inni allmarga
flokka Mau-Mau-manna, í f jöll
unum og skógunum norður jf
Nairobi.
Segir í seinustu fregnum, að
hringurinn sé stöðugt að þrengj
ast um óaldarflokka þessa. —■