Vísir - 24.01.1953, Qupperneq 1
43. árg.
Laugardagmn 24. janúar 1953
19. tbl.
Infliiensiifaraldiir geisar
beggja vegna hafsins.
Eldur í báti
á miðum úti.
MeSan skipverjar á línu-
bátnum Sveini Guðmundssyni
frá Akranesi voru að Jeggja
'ínuna á miðum vestur í Flóan-
um í gær, kom upp eldur í
hásetaklefanum.
Hafði þar kviknað út frá olíu
, kynaingu og munaði minnst að
stórtjón hlytist af. En skipstjór-
inn, Þórður Sigurðsson, varð
strax var við eldinn og var hann
í ” . 'í slökktur því nær strax, og
r hurftu bátsverjar á engri að-
- 4 „> M stoð að halda. Skemmdir urðu
litlar á klefanum.
Þetta eru brezkar orustuflugvélar, Meteor 7, sem þykja bera i
öðrum flugvélum. Er vélarafl þeirra svo mikið, að þær get.
flogið beint upp.
Ellefu framboðslistar við
kjör 11 bæjarfulltrúa.
Niu listar komu mönnum aö.
Rétt fyrir jólin fóru fram
kosningar í bæjarstjórn Þórs-
hafnar í Færeyjum. ■
Flokkadrættr eru þar tals-
verðir, og átti alls að kjósa ell-
efu fulltrúa í bæjarstjórnina,
en svo vildi til, að framboðslist-
arnir urðu jafnmargir — ellefu
einnig.
Svo fóru leikar, að níu listar
af þessum ellefu fengu mann
kjörinn, og fengu tveir listarn-
ir tvo en hinir sjö einn mann
hver. Hæsti listinn fékk 192
at.kvæði og sá næsti 183, en
fæst atkvæði komu á L-lista,
sem fékk aðeins 72 atkvæði.
Alls voru greidd 1366 gild at-
kvæði.
Bæjarstjórn Þórshafnar hef-
ur síðan kosið borgarstjóra, og
hét sá Palli Hendriksen, sem
kjörinn var, en hann hafði ver-
ið borgarstjóri áður. Stóðu níu
fulltrúar að kosningu hans.
Gyiingar flýja
A.-Þýzkabnd.
Berlín. (A.P.). — Flestallir
— ef ekki allir — Gyðingaleið-
togar á hernámssvaaði Rússa í
Auster-Þýzkalandi, eru nú
flúnir þaðan.
Tveir komu til Yesiur-Ber-
línar í gær, annar fiá Magde-
burg, hinn frá Eisenach. Þrír
korau í fyrri viku.
Útflutningurinn.
Verðmæti útflutnings Fær-
eyinga nam alls 69,5 milljón-
um danskra króna, og var meira
en helmingur þess fullverkaður
saltfiskur. Verðmæti hans nani
34,6 millj. kr., en óverkaður
saltfiskur var fluttur út fyrir
21,5 millj. króna. Landbúnað-
arafurðir voru hinsvegar að-
eins 1,2 miílj. d. kr. virð.
Nýr hersiiöfðing!
8. hersins.
van FBeet lætnr af
störfum.
Einkaskeyti frá AP.
New York í morgun.
James van Fleet hershöfðingi,
sem um tveggja ára skeið hefui
verið yfirmaður 8. Bandaríkja-
hers í Kóreu, lætur af bví starfi
í lok marzmánaðar næstkom-
andi.
Við starfi hans tekur Max -
well D. Taylor hershöfðingi og
leggur hann af stað frá Wash-
ington til Japan eftir nokl:rá:
daga og hefur nokJ.ro viðdvöl í
höfuðstöð Marks Clarks yfir-
hershöfðingja, áður en hann fer
til Kóreu, til þess að taka við af
van Fleet. Taylo hefur vérið
varaformaður fram'•rv.-emdaráðs
landhersins.
50 Strato-cruisers
í flugferðum enn.
New York (AP). — 50 Strato
uuisers eru nú í notkun hjá
msiim flugféiögum í heimin-
ím.
Hvergi hefur orðið vart hreyf
ilgalla nema hjá brezka flugfé-
laginu BOAC, sem kippti öllum
flugvélum sínum af þessari
gerð úr umferð, sem fyrr hefur
verið getið. Hefur þetta vakið
aokkra furðu og er beðið með
alsverðri forvitni frekari
regna um þetta.
Mau-Mau menn
hafa í hótunum.
Kenya (AP). — Mau-Mau-
menn hafa nú í hótunum við for
eldra barna, sem send eru
í hina opinberu skóla og trú-
boðsskóiana.
Fjöldi foreldra hefur fengið
boð, munnleg eða skrifleg, um
að þeir muni fyrir týna lífinu,
ef þeir láti börnin ekki hætta
skólagöngu. Stjórnarvöldin í
Nairobi segja, að þeim foreldr-
um fari sífjölgandi, er ekki
skeyti um hótanir Mau-Mau-
manna.
3 Afríkuraenn voru drepnir
í Neri-héraðinu í Kenya í gær,
tveir þeirra í bardaga við lög-
regluna, en hinn þriðji var
heimavarnarliðsmaður.
Influenza geisar nú beggja
vegna Atlantshafs og virðist
ætla að verða allmannskæð
sums staðar.
Mikill inflúenzufaraldur fer
nú yfir Bandaríkin, einkum mið
fylkin, en hefur einnig breiðst
út allt til suðurríkjanna, og er
talið vafalaust, að hann muni
fara um allt landið.
Dauðsföll eru talin fimmt-
ungi fleiri en vanalega, þeg-
ar influeuza geisar vestra,
og þó talið, að hún sé yfir-
leitt í vægara lagi víðast
hvar.
Mikill fjöldi manna hefur
verið bólusettur og í stofnunum
sem framleiða bóluefni, er nú
unnið dag og nótt. Ein kunnasta
stofnun landsins, sem fram-
leiðir bóluefni, hefur undan-
farna. 10 daga framleitt meira
bóluefni en vanalega á einu óri.
Influenza hefur og verið all-
útbreidd á meginlandi Evrópu
að undanförnu, en verið talin
fremur væg, en í fregnum frá
Þýzkalandi í gærkveldi var tal-
að um influenzufaraldur í Bay-
i Undon.
London. (A.P.). — Mexi-
F:mska listsýningin, sem sýnd
var í Stokkhólmi við fádæma
aðsókn og athygli, verður sýnd
í í Tate Gallery í London.
i Forseti Mexico hefir fallizt
á, að heimsendingu llstaverk-
anna verði frestað, og þau sýnd
í London, og sé þetta gert af
, vinarhug í garð. Breta.
Ibúar USA ver5a 160
millj. á þ. ári.
Wasliington (AP). — Hag-
fræðingar bandariskra vátrygg-
ingarfélaga fullyrða, að íbúa-
tala landsins verði Iiomin upp
í 160 milljónir fyrir .lok þessa
árs.
íbúatalan var í lok ársins
1952 158.400.000 og hafði aukist
um 2.675.000 á árinu. íbúatala
boi-ga í grennd við New York
borg, teljast til borgarsvæðisins
(Metropolitan area), jókst um
1 milljón árið sem leið. Var
íbúatala N. York og nágrenna-
borga á fyrmefndu svæði
14 milljónir á sl. ári.
Kashmir-deilan til
umræ&u á ný.
Nýjar viðræður hefjast bráð-
lega um afvopnun Kashmir-
hcraðs í Indlandi, þar sem
bæði Indland og Pakistan hafa
herlið.
Samkomulag í þessu efni er
stærsta hindrunin fyrir þvi,
að samkomulag náist um fram-
tíð landsins.
Dr. Graham, sem er sátta-
semjari Sameinuðu þjóðanna í
deilunni, hefir ritað forseta
Öryggisráðsins og tjáð honum,
að fuiltrúar Pakistans og Ind-
Iands hafi nú fallizt á að koma
saman í Genf 4. febrúar, og
verður þé reynt að ná sam-
komulagi enn af nýju. Dr. Gra-
ham situr fundinn fyrir hönd
Öryggisráðsins.
ern, og væri kunnugt, að 16
menn hefði látizt úr veikinni í
aðeins einum bæ, og í stórum
borgum lægju menn rúmfastir
í þúsundatali —• í Stuttgart
lægju t. d. 7000 rúmfastir. Skól
um hefur verið lokað og sums
staðar samkomustöðum. í mörg
um borgum hefur bréfaútburð-
ur tafist mjög, vegna veikinnar,
og í sumum borgum Frakk-
lands lágu svo margir
slökkviliðsmenn, að til vand
ræða horfði um sinn.
Dauðsföllum hefur farið
fjölgandi í sumum bæjum
Frakklands og eru allt að því
helmingi fleiri í stöku borg en
vanalega, þegar inflúenza geis-
ar. Þess er þó að geta, að víða
hefur verið þokusamt og hrá-
slagalegt, og kann það að eiga
sinn þátt 1, að dauðsföllum
hefur fjölgað.
Fleiri dauðföll
í London.
Dauðsföllum hefur fjölgað
svo ískyggilega í London í
seinni tíð, að fyrirskipuð hefur
verið sérstök athugun. Sú dauðs
fallafjölgun er talin stafa af
völdum þokunnar, en ekki er
sagt frá neinum inflúenzufar-
aldri þar.
Ekki hætta
á ferðum.
Blaðið hefur snúið sér til
Björns Sigurðssonar læknis á
Keldum, sem fyrir hönd heil-
brigðisstjórnarinnar tekur við
tilkynningum frá stofnunum er-
lendis varðandi útbreiðslu in-
flúenzu, en frá þeim hefur ekk-
ert borizt um, að nein hætta sé
á ferðum. Hr. B. S. kvað hafa
verið búizt við því, að inflú-
enza yrði allútbreidd í ár. Þv£
að hún kæmi reglulega annað
hvert ár, en nú hefði hún að
vfsu náð útbreiðslu seinna en
við var búizt. —Um dauðsföllin.
sagði læknirinn, að þegar inflú-
enza geisaði fjölgaði allt af
dauðsföllum aldraðs og las-
burða fólks, en þegar dauðsföll-
um fjölgaði í yngri aldursflokk-
um væri hætta á ferðum. Um
það lægi ekkert fyrir nú.
JóHann Kannesson
kominn heim.
Tíðindamaður Vísis átti £
gær tal við sr. Jóhann Hannes-
son, sem er nýkominn heim frá
Hong Kong.
Grein um síra Jóhann og
störf hans birtist í Vísi eftir
helgina, en sr. Jóhann er lær-
dómsmaður mikill og allra ís-
lendinga fróðastur um hag
manna þarna austur frá. Mun
marga fýsa að kynnast honunx
og störfum hans.