Vísir - 24.01.1953, Qupperneq 4
VlSIB
Laugardaginn 23. janúar 19ý.i
wðsxm
DAGBLAÐ
Ritstjóri: Hex'steinn Pálsson. •
Skrifstofur Ingólfsstræti 3.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Simar 1660 (fimm línur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Samkeppnin viB ÞjóðleikhúsiB.
Undanfarið hafa orðið nokkur blaðaskrif vegna viðskipta
stjórnar Symfóniuhljómsveitarinnar við stjórn Þjóðleik-
hússins. Við skrif þessi hefur það komið fram, að stjórn
hljómsveitarinnar virðist hafa verið ófús til þess að semja um
það við leikhúsið, að hljómsveitin flytti tónverk innan veggja
þess, þótt há greiðsla — 380 þús. kr. — væri í boði, nema með
vissu skilyrði — ófrávíkjanlegu að því er virðist, því að slitnað
hefur upp úr samningum vegna þess. Skilyrði þetta mun hafa
verið það, að hljómsveitin fengi leikhúsið til eigin afnota í vor,
og hafði í hyggju að nota það til flutnings á óperunni Tosca,
en samið hafði verið um það við erlendan — sænskan —
óperuflokk að hann kæmi hingað til lands með vorinu og flytti
verk þetta á vegum Symfóníuhljómsveitarinnar.
Stjórn Þjóðleikhússins hafnaði þessu skilyrði hljómsveitar-
innar, og varð því ekki af samvinnu milli þessara tveggja aðila,
og ber að harma það, þar sem hér er um æðstu fulltrúa tveggja
listgreina í landinu að ræða. Eðlilegt virðist samt, að ekki sé
gengið að slíku s' i! rði, þar sem Þjóðleikhúsið hafði þegar
afráðið að flytja a..a óperu með íslenzkum kröftum — La
Traviata — og hér hefði því verið um beina samkeppni við
Þjóðleikhúsið að ræða.
Það er vissulega ekki ástæða til þess að undanþiggja Þjóð-
leikhúsið samkeppni, en það er óneitanlega óvenjuleg að-
fei’ð, ef fá á þá stofnun til þess að hlaupa undir bagga með
þeim, sem vilja efna til slikrar samkeppni við hana. Leikfélag
Reykjavíkur hefur haldið starfi sínu áfram, enda þótt Þjóð-
leikhúsið hafi ráðið marga leikara til sín, svo að þeir geta ekki
starfað hjá öðrum, én sú samkeppni hefur verið Þjóðleikhúsinu
gott aðhald og hvatning, til þess að vanda sem bezt til leikrita
þeirra, sem það tekur til meðfei’ðar. Slík samkeppni er heil-
brigð og sjálfsögð, og mundi vist enginn óska þess, að Leik-
félag Reykjavíkur hætti störfum. Reykjavík er líka orðin svo
mannmörg, og áhugi fyrir leiklist hefur glæðzt svo síðustu
árin, að bæjarbúar geta vel haldið tveim leikhúsum gangandi.
Hitt er öllu lakara, þegar efna á til samkeppni tveggja
stofnana, sem starfa báðar á vegum hins opinbera, og ætlað
er í rauninni'að sinna tveim að miklu óskyldum hlutverkum,
þótt hægt sé að sameina þau á ýmsan hátt. Þá er ekki von á
öðru en að borgarax-nir spyrji, hvað nú sé að gérast, hvort ekki
sé gengið öllu lengra en sæmilegt er. í þessu máli kemur það
einnig til greina, að það er óhemju kostnaðarsamt að setja óperu
á svið, ef vel á að vera — mannahald mikið í sambandi við
þær, bæði að því er snertir hljómsveit og söngfólk, æfingar
langar og sti’angar, svo að undirbúningsstarfið er tímafi-ekt og
útgjaldasamt.
Af þessum sökum er það íyrir neðan allar hellur, ef stofn-
anir, sem kostaðar eru af almannafé, fara í kapphlaup, sem
varla hefur annað í för með sér en auknar kröfur á hendur
þeim, sem undir kostnaðinum standa. Ættu opinberir aðilar,
sem ráða í þessum málum, að hafa gætur á því, að ekki sé
efnt til slíkra hjaðningavíga, því að varla eru framlög hins
opinbera til þess ætluð.
Furðusögur af ísiandi.
íslendingar eru orðnir því löngu vanir, að fyrir komi missagnir
•*- í erlendum blöðum. Höfundarnir eru oftast menn, sem hafa
ekki komið hér néma stutta stund, og upplýsingar þær,' sem
þeir hafa fengið um land oglýð, viljaoft brjálast i' meðförum
þeirra. Alvarlegra er þetta þó, þégar skáldsögúr eru birtár um
atburði hér í þeim eina tilgangi að nota þær í áróðri, til þéss
að auka hatrið þjóða í milli.
Þannig hefur nú til dæmis blað eitt í Moskvu, Isvestija, sem
Þjóðviljinn upplýsir að sé málgagn Sovétstjórnarinnar — menn
taki eftir, að blaðið er ekki málgagn kommúnistaflokksins, því
að það er auðvitað allt annað! — birt grein, þar sem skýi’t er
írá því, að verið sé að leggja vegi frá flugvellinum á Reykja-
nesi til nærliggjandi bæja, og auk þess sé verið að koma upp
flugvelli hjá Reynivöllum.
Flestir íslendingar vita, hvað satt er í þessu, og sennilega
vita ritstjórar rússneska blaðsins það líka, því að ekki munu
þeir alveg 'feamþandsláúsir við 3.' herdéiltliha hér. En ætlunin
er heldur ekki að segjá sátt, hanfi er áð' rettlæta fyrxrfrám þæf
gerðii’, sem Rússar hafa í undirbúniixgi, til þess að ná yfir-
ráðum í heimihúm: Kannské rertna líka •ehthveí' i’itlaun hiixgað,
svo-að hægt '®é‘áðÍ$£^ká-fé&&BW)'&nh«$l>.
ii
n
Perpetuum mobile
í svissueskri klukku.
■ #17
.öííxr-
. ypJi’uxnuóú.'T aor
’xíív i/í I’ 'í'fl'
Hingað hefur borizt furðu-
legur gripur, klukka, sem er svo
hugvitssamlega gerð, að hún á
að geta gengið „eilíflega", án
þess að mannshöndin eða neíít
finnanlegt afl komi til.
Það er Franch Michelsen úr-
smíðameistari, senx hefur flutt
inn þessa furðuklukku, sem
nefnist Atmos, svissnesk völ-
undarsmíð frá fyi’irtækinu
Jaeger-Le Coultre í Le Sexxtier.
Öldum saman hafa menn
streitzt við að búa til „eilífðar-
vél“, — perpetuum mobile. —
Með þessari klukku virðist mað
ui’inn hafa komizt næst þessu
mai’ki, eða náð því. Þessi
klukka á að geta gengið við-
stöðulaust ár og síð án þess að
nokkur komi nálægt henni,
ekki einu sinni til þess að
smyrja hana eða dytta að henni
á nokkurn hátt.
Hér verður ekki reynt að
skýra, með hvei’jum hætti þetta
má vei’ða, en í örfáum orðum
má segja, að það sé hitabreyt-
ing, senx orsaki það, að klukkan
gengur. Ekki þai’f nema urn 1
stigs hitabreytingu á sólai’hring
(á Celsiusmæli) til þess að
draga klukkuna upp,. svo að
hún gangí í 48 klst. En öryggi
klukkunnar er svo mikið, að
jafnvel þótt engin hitabreyting'
yrði í 100 daga, sem má heita
óhugsandi, rnyndi klukkan ekki
stöðvazt, svo mikið ,,vara-afl“
hefur hún umfram það, sem
þai-f til daglegs gangs.
Franch Michelsen fékk að
þessu sinni þrjár slíkar klukk-
ur, ljómandi fallegar og bin
mesta listasmíð. Verð „eilífð-
arklukkunnar“ mun vera um
4000 krónur.
„s. Lagarloss
fer frá Reykjavík mánudaginn
26. janúar beint til Akureyrar.
Hún uppsker
nú launín.
London (AP). — Kven-
læknir nokkur rússneskur
hefur verið sænidur Lenin-
orðunni.
Hún er eitt af mestu
tignarmerkjum, sem vald-
hafarnir í Kreml veita, fyrir
unnin afrek. — Kvenlæknir-
inn hafi unnið bað til lieið-
ursmerkisins að veita stjórn -
inni ómetanlega aðstoð við
að koma upp um læknana 9,
sem handteknir voru fyrir að
myrða eða áform uux að
myrða rússneska þjöð.iileið-
toga á sviði hermáia og
stjórnmála.
Nýkomið
ullarkjólatau í 3 gerðum og mörgum
litum, emmg blátt ullarkáputau.
Asg. G. Gunnlaugsson & Co.
Austurstræti 1.
Hraðferð
Austurbær — Vesturbær
Sunnudaginn 25. jánúar 1953 hefjast hraðferðir á nýrri
leið nr. 17.
Ekið verður á hálftíma fi'esti frá kl. 7,20 á
rúmhelgum dögum og kl. 9,20 á helgum dögum
frá Lækjartorgi um Hverfisgötu, Laugaveg, Nóa-
tún, Lönguhlíð, Miklubraut, Hringbraut, Furu-
mel, Nesveg, Faxaskjól, Kaplaskjólsveg, Bræðra-
borgarstíg, Vesturgötu, Hafnarstræti á Lækjar-
torg.
Strapiisvaynar fícfjkjavíkur
♦ BERGMAL ♦
Væntanlega fer nú að komast
skriður á þarft mál, sem gert
hefir verið að umtalsefni í
Bergmáli oftar en einu sinni.
Og er það biðskýli fyrír far-
þega með strætisvögnum; en
fram til þessa hafa óvíða verið
byggð skýli á áfangastöðum,
og farþegar því orðið að standa
úti í misjöfnu veðri meðan beð-
ið er eftir vagninum.
Einkum
í úthverfum.
Það er auðvitað einkum í
úthverfunum, þar- sem nauð-
syn er á slíkum skýlum. Eru
nú helzt líkur á að einstakling-
um verði gefinn kostur á að
reisa skýli á helztu stöðurn, þar
sem þeirra virðist mest þörf
og reka einhverskonar verzl-
un i sambandi við þau. Strætis-
vagnar Reykjavíkur létu sjálfir
reisa nokkur slík skýli, og þótti
mikil bót að þeinx, en skýlin
voi’U dýr og fyrirsjáanlegt, að
jS.V'.R., væri ofyiða, að. rpisfi
fleiri.
Skýli þessi fengu heldur ekki
að vei’a í friði fyrir hinni ein-
kennilegu skemmdarfýkn, sem
unglingar hér virðást haldnir.
En væri einhver atvinnui’ekst-
ur í sambandi vð þau, og um
leið þá stöðugt eftirlit, væri
kannske hægt að girða fyrir
þá hættu. Það er að minnsta
kosti víst, að fólk í úthverfun-
um mun fylgjast af miklum á-
huga með þessu máli. Ætlunin.
mun vera að hafa þessi vænt-
anlegu skýli með svipuðu sniði
og skýlin á Hafnarfjarðarleið-
inni, en þau hafa gefizt vel og
verið vinsæl.
Þar ætíu að fást
frímerki.
Helzt er gert ráð fyrir, að í
sambandi við biðskýlin verði
selt tóbak og sælgæti, auk þess
sem forstjóri S.V.R. óskar eftir,
því að væntanlegum leyfishöf-
um verð gert að skyldu að selja
farmiða með vögnunum, skipta
1 peningum, >setja upp r skilti um
ferðir o. s. frv. Eg vildi bæta
því við, að í þessum skýlum
Skemmdaryargar þar , . ti , í væri Uka upplagt að selja, frí-
■ úp,^ij,.en fólk. sgfn í: úthVeFf^.?
um býr, hefir til þessa orðið
að fara langa leið til þess að
útvega sér þau, og myndi þeirri
nýbreytni verða fagnað.
Leiðir S.V.R.
En vel á minnzt. Forstjói’i
S.V.R. vill að hjá biðskýlun-
um verði komið upp skiltunx
um ferðir strætisvagna, og er
það auðvitað ágætt, ef hægt er
að koma framkvæmdinni yfir
á aði’a með þessu móti. En
hvernig líður skiltunum á alla
áfangastaðiria, þár sem greint
sé frá hvaða leiðir nemi þár
staðar. Nú hafa flest allir vag'n-
arnir hlotið sitt númer, en enn
vantar leiðaskiltin á áfanga-
staðina. — kr.
Gáta dagsins.
Nr. 348:
Einn er kominn ofan úr
Grindaskörðum
afgamall en ungur þó,
ýfir geisar’ land dg sjo.
Sya'r við gátu nr. 347:
',l!"