Vísir - 16.02.1953, Blaðsíða 8
VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir miiw f2ísi\ ö ! imm
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til \wlH MSK. breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist
mánaðamóta. — Sími 1660. . W úb oBr d& áskrifendur.
♦
Mánudaginn 16. febrúar 1953
JYtj iéitts ktÞSsttat úea isits :
Kristindómur og kommúu-
ismi eru náskyldir!
Russlandi einu rikir algert
trúarbragðafreisi!
Stúdentafélag Reykjavíkur
gekkst fyrir fjölsóttum fundi í
Sjálfstæðishúsinu í gær, og var
umræðuefnið að þessu sinni
„Kirkja og kristindómur“.
Málshefjendur voru þeir síra
Jóhann Hannesson kristniboði
og síra Gunnar Benediktsson
rithöfundur.
Síra Jóhann flutti ítarlega og
vel uppbyggða ræðu, þar sem
hann ræddi m. a. skyldleika
og mismun hugsjónakerfis forn-
kristninnar og fræðikerfis
kommúnismans. Benti m. a. á,
að kenningar ýmissa kirkju-
feðra mótuðust af sameignar-
.stefnunni, svo og klausturlifn-
aður fyrr á öldum, þar sem
munkarnir hefði verið gersnauð
ir menn. Síðan rakti hann sög-
una fram til vorra daga, og
sýndi fram á, með ljósum rök-
um, að kommúnisminn í fram-
kvæmd gæti engan veginn sam-
rýmzt kristindóminum. Varpaði
. síra Jóhann fram tíu spurning-
um um þessi atriði, sannaði,
hvernig kúgun og blóðþorsti
kommúnismans, eins og hann
hefur birzt í framkvæmd, eða
„hinn blóðugi rakhnífur marx-
ismans“, gæti ekki samrýmzt
hugsjónum kristindómsins. —
Ræða síra Jóhanns vakti ó-
skipta athygli, enda prýðilega
flutt af þekkingu og rökvísi.
Enginn munur?
Síra Gunnar Benediktsson
flutti gíðan sína framsöguræðu,
• og mun hún sjálfsagt hafa kom-
ið mörgum á óvart. Hefði þótt
- tíðindum sæta fyrir fáum ár-
um að heyra kommúnista flytja
slíka ræðu, og hætt við, að hún
þætti ekki á línunni. Nú virt-
ist síra Gunnar ætla að taka
að sér að sanna, að kristindóm-
ur og kommúnismi væri ná-
skyld fyrirbæri, ef ekki sama
mannúðarhugsunin á bak við
bæði.
Síra Gunnar lýsti yfir því,
að Rússland væri eina rík-
ið, þar sem algert trúfrelsi
ríkti, og lækju strangar refs-
ingar við að trufla helgihald
manna.
Hins vegar kvaðst sr. Gunnar
vita, að til væri öfl í landinu,
sem litu kristni og kirkju óhýru
auga, og að sér væri ekki grun-
laust um að ríkisstjórnin rúss-
neska styddi þá menn. Síra
Gúnnar talaði ævinlega um
sjálfan sig og aðra kommúnista,
í ræðu sinni, sem kristna menn
og lagði á þetta ríka áherzlu.
Virðast þarna hafa orðið furðu-
leg sinnaskipti eða ný lína upp
tekin.
Gamansögur
frá Svíþjóð.
Síðan tók tii máls Skúli Thor-
oddsen læknir, sem þótti hlut-
ur kristindómsins heldur lítill
eftir 2000 ára starf, samanborið
við 30 ára feril kommúnismans.
Hins vegar sagði hann gaman-
sögur frá Svíþjóð.
Næstur talaði Ingi R. Helga-
son bæjarfulltrúi kommúnista.
Ingi var mjög á sömu línu og
síra Gunnar, lagði ríka áherzlu
á „mannúð“ kommúnismans, og
flutti hina prúðmannlegustu
ræðu um skyldleika kommún-
ismans, en vitnaði annars í frá-
sögn norsks trúboða um ástand-
ið í Kína.
Þá talaði Björn Þorsteinsson
sagnfræðingur, og var ræða
hans torskilin, en mönnum skild
ist þó, að hann mælti eindregið
með blessun þeirri, er komm-
únisminn hefði leitt yfir þjóð-
irnar.
Rosenberg-
hjónin.
Næstur tók til máls Thorolf
Smith blaðamaður, sem benti á,
hve vafasamt væri að trúa
bræðraþeli og mannúðarhjali
kommúnista, sem tækju menn
af lífi hópum saman í járn-
tjaldslöndunum, án þess, að ís-
lenzkum kommúnistum þætti á-
stæða til að hefja neinar náð-
unarherferðir, en notuðu hins
vegar raunaleg örlög Rosen-
bergs-hjónanna bandarísku til
þess að vekja samúð með komm
únismanum í nafni mannúðar.
— Þá töluðu síra Pétur Magn-
ússon í Vallanesi, Þorvaldur
Þórarinsson lögfræðingur og
frummælendur.
Fundurinn fór mjög pmð-
mannlega fram, eins og vera
ber um slíkar samkomur.
Elnar E. Sæmundsen
jfyrrv. skógarvörður.
Einar E. Sæmundsson fyrrum
skógarvörður lézt á sjúkrahús-
inu Sólheimum í morgun.
Einar var fæddur 1885 að
Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð.
Hann varð fyrst skógarvörður
á Vöglum í Fnjóskadal 1908, en
síðar hér á suðurlandi og hafði
jafnan mikil afskipti af skóg-
ræktarmálum. Hann var einnig
einnig kunnur fyrir ritstörf,
smásagnagerð og vísur og kvæði
er hann orti. Hann skrifaði bók
ina ,,Hestar“ ásamt Daníel
Daníelssyni og ritstjóri Dýra-
verndarans var hann um langt
skeið. Á síðustu árum hafa birzt
eftir hann fjölmargar greinar
og ritsmíðir í ýmsum riturn,
blöðum og' tímaritum.
Banamein Einars var hjarta-
bilun.
Hallaii sér í stífluhúsinu, er
hann hafði dottið í árnar.
Maðnrinn stal bíl Jkunning|a síns.
Lögregluvarðstofunni var til-
kynnt um það rétt fyrir helg-
einskis var. En þegar komið
var eftir nokkra stund á stað-
ina, að maður hefði brotizt inn. inn, þar sem bílnum hafði ver-
ið stolið, var hann kominn ’
þangað aftur, skemmdur að
framan og rafmagnslaus. Mál
þétta hefir verið kært til rann-.
sóknárlögreglunnar.
Á föstudag óku tvær bifreið-
ar út af Hafnarfjarðarveginum
og var m. a. kennt um þoku.
Slys á mönnum urðu engin og '
litlar skemmdir á farartækj-
unum.
Nýtt tímarit —
Fréttir í myndum.
í dag hóf göngu sína í
Reykjavík nýstárlegt tímarit,
„Fréttir í myndum“, en nafnið
gefur til kynna viðfangsefni
þess.
Rit þetta er nýjung. hér á
landi, það segir fréttir með
myndum, en skýringartextar
eru gagnorðir, en auk þess
flytur það stuttan annál nýlið-
ins mánaðar.
í þessu hefti eru m. a. mynd-
ir af forseta íslands, fyrsta
ríkisráðsfundi í tíð núverandi
forseta, ennfremur myndir frá
jitterbugkeppni, úr leikhúsun-
um og margt fleira að ógleymd-
um afbragðsmyndum Halldórs
Péturssonar.
Ritið er ljósprentað í Litiio-
prent, vandað að frágangi og
myndir valdar af kostgæfni.
Ábyrgðarmaður er Guðmunc’.ur
Benediktsson.
í stífluhús rafstöðvarinnar við
Elliðaár og lægi þar blautur og
og fáklæddur.
Hafði maður þessi verið við
skál og dottið í Elliðaárnar.
Skreiddist hann af sjálfsdáðum
upp úr, en hefir líklega verið
kalt, jafn blautur og hann var.
Tók hann þá það til bragðs að
bx-jóta rúðu í stífluhúsinu og
skríða þar inn. Þar hallaði hann
sér út af, en skömmu síðar kom
lögreglan á vettvang og flutti
manninn heirn.
Fyi-ir helgi kom leigubílstjóri
á lögregluvai'ðstofuna og kærði
yfir því að bifreið sinni hefði
verið stolið.
Atvik að atburði þessum
voi'u með þeim hætti, að bif-
reiðarstjói'inn var að aka far-
þega um bæinn. En í þessari
ferð þurfti bílstjórinn að
skreppa inn í ákveðið hús og
skildi kveikjulykilinn eftir á
meðan. Taldi hann það óhætt,
þar sem hann kannaðist við far-
þegann, en er bílstjórinn kom
út aftur voru bæði bíll og far-
þegi á bak og burt. Fekk hann
sér þá leigubíl og ók um mið-
bæinn til þess að svipast eftir
hinum stolna bíl, en varð
30 faNa eBa sær-
ast í Persíu.
Teheran (AP). — í gær sló
í bardaga milli borgara og her-
liðs í Luristanhéraði, sunnar-
lega í Persíu.
Var boðað til útifundar, sem
var bannaður, og tvístraðist
mannfjöldinn ekki, fyrr en í
bardaga hafði slegið. Þrjátíu
manns féllu og særðust.
Truxa sta5inn al prettum í Osíg
Laumaði geftraunaseðli i inn-
siglaðan kassa.
Góður fagnaður
hjá Páli
á Hjálmsstöðum.
Mikill mannfjöldi, sjálfsagt
um 100 manns eða meira, sat
rausnarboðPáls bónda á Hjálms
stöðum í Laugardal á áttugasta
afmælisdegi hans í fyrradag.
Eins og áður hefir verið get-
ið í Vísi átti Páll Guðmundsson
á Hjálmsstöðum 80 ára afmæli
s.l. laugardag. Sveitungar hans
og aði'ir gestir fjölmenntu að
Hjálmsstöðum þann dag, og er
það mál manna, að þar hafi
verið veitt af sjaldgæfri rausn
,og höfðingsskap. Veizlugestur
tjáði Vísi, að þar hefðu boi'ð
svignað undan krásum og góð-
gerðum, en Páll sat með gestunr
sínum til kl. 6 á sunnudags-
morgun, og sá þá hvorki á
honum elli né vín.
Fjölmargar ræður voru flutt-
ar og óspart látið fjúka í kvið-
lingum. Meðal ræðumanna vpru
sóknarpresturinn, síra Ingólfur
Ástmarsson, Páll bóndi Dið-
riksson á Búrfelli, Helgi bóndi
Guðmundsson á Apavatni, Böð-
var á Laugarvatni og fjölmarg-
ir aðrir. Sveitungar færðu Páli
að gjöf tvo hægindastóla, en
börn hans silfurbúinn göngu-
staf. Páli bárust á annað hundr-
að heillaskeyta.
Töframaðurinn Truxa, sem
mestan fögnuð vakti hér í
fyrra, var nýlega staðinn að
prettum í Osló.
Truxa og kona haixs vpx’u
nýlega á ferð í Osló og sýndu
þar ýpaisleg töfrabrögð, m. a.
hugsanaflutning, eins og þau
gerðu hér, við mikla athygli
Óslóarbúa. Höfðu þau bækistöð
sína á Hótel Bristol, en komu
auk þess frain í útvarpinu. Ha-
mark þessarar heimsóknar
sltyldi náð með því, að Truxa
ætlaði að segja fyrir úrslit
verðlaunagetraunar í samþandi
við tólf knattspymukappleiki,
Frestur til að skila getrauna-
seðlum var útrunninn á
fimmtudegi, og þann dag kom
Truxa á aðallögreglustöð Osló-
ai'boi'gar með peningakassa,
sem í átti að vera hin rétta
lausn getraunarinnar. Rann-
sóknai'lögreglan innsiglaði
peningakassann, og hlustendur
um gjöi’vallan Noreg hlýddu
með athygli, er lögreglumaður
opnaði kassann á laugai'dags-
kvöldi, en í honum reyndist
vera getraunaseðill með öllum
úrslitum réttum.
En Harald Uggen lögreglu-
maður hafði staðið Truxa áð
prettum, en hann sagði ekki
frá því fyrr en á mánudags-
morgun, og skýrði þá frá því,
hvernig Truxa hefði farið að
þessu. Þegar Uggen fékk lyk-
ilinn að peninga.kassaniim, tók
hann eftir því, hvernig í öllu
lá. Lykillinn vár holur, og inni
í honum var getraunarseðili-
inn með réttri ráðningu sain-
kvæmt opinberri tilkynningu
norsku getraunastarf semin na v
síðdegis á laugardag. Þegai’
lyklinum var stungið í skrána,
þeyttist seðillinn inn í kassann,
en í lyklinum var fjöður, sen,
olli þessu. Vitaskuld var en.. -
inn getraunaseðill í kassanum,.
þegar hann var innsiglaðux.
Þessi frásÖgn er höfð eftiv
Kaupmannahafnarblaðinu
„Bprlingske Tidende“. lims
vegar var þess ekki getið, .hvort
hugsanaflutningur Truxahjón •
anna í útvarpinu hefði rc-ynxt
eitthvað athugaverður eða
prettir verið í tafli.
Um 160 lestum af sprengjuxn
var varpað í fyrrinótt á bæki-
stöðvpr kommúnista hjá Sin-
anju í N.-Kóreu.
Handknattleíksmóti5
í kvöld.
Handlmattleiksmeistaramót
íslands heldur áfram í íþrótta-
húsinu að Hálogalandi í kvöld
kl. 8. Þá fara fram tveir leikir
j í A-deild á milli Vals og Aftur-
eldingar, — í. R. og Fram.
Vafalaust má búast við
spennandi og tvísýnni keppni,
því stigin eru dýrrnæt og fall-
hættan niður í B-deild yfirvof-
andi.
í B-deild hefur fai’ið fram
einn leikur, en þar sigraði
Þróttur F.H. með 17 mörkum
gegn 9.
Lögreglan í Tékkóslóvakíu
hefur handtekið ínann nokkurn,
og sakað hann um njósnir fyrir
Bandaríkin.